Vísir - 06.02.1980, Qupperneq 1
Miðvikudagur 6. febrúar 1980/ 30. tbl. 70. árg.
Fjölda manns dreif aö til aö aöstoöa viö björgunaraögerðir og var fólk aö vonum slegið yfir þessum hörmulega atburöi. (Visism. GVA).
Átakanlegt slys varð á voginum framan við Sunnubraut i Kópavogi i gær
er tveir drengir,þriggja og fimm ára gamlir, féllu niður um is og drukkn-
uðu. Slysið varð um 300 metra frá landi og gengu björgunaraðgerðir mjög
erfiðlega þar sem isinn var ekki mannheldur og snjór yfir.
Þaö var um klukkan 17.45 að
hringt var i lögregluna i Kópavogi
frá tveimur húsum viö Sunnu-
braut og tilkynnt aö drengirnir
heföu fallið niður um isinn. Lög-
reglan fór þegar á vettvang og
haföi sérstakan isstiga með úr áli.
Þegar á staöinn kom var einn
maöur kominn út á voginn með
bátkænu er hann ýtti á undan sér
en ísinn brast og varð hann að ýta
bátnum á undan sér að vökinni
þar sem drengirnir voru. Þeim
skaut upp er maðurinn kom að
vökinni og náði hann þeim um
borð.
Tveir menn brutust að vökinni
á öðrum báti og lögreglumenn
lögðu stigann á isinn og reyndu að
komast út að vökinni en isinn
brotnaði og lögreglumaður fór i
sjóinn.
Blástursaöferð var reynd á litlu
drengjunum um leið og þeir náð-
ust og linu kastað út i bátinn og
hann dreginn að landi. Þar beið
sjúkrabill og drengjunum ekið á
sjúkrahús en þá voru þeir látnir.
Þaö mun hafa liðið hálf klukku-
stund eða meira frá þvi að vart
varð við slysið þar til komið var
með drengina að landi. Sjórinn er
mjög kaldur og voru björgunar-
menn sem fóru út á bátunum
mjög kaldir er starfi þeirra lauk.
Fengu þeir aðhlynningu á slysa-
varðstofu.
Drengirnir voru nágrannar og
leikbræöur, en sá eldri var
nýfluttur í Kópavog frá Reykja-
vík. Lögreglan i Kópavogi sagði i
morgun að fyllsta ástæða væri til
að vara við isnum þarna á vogin-
um og sömuleiðis á Fossvogi, þar
sem hann væri ekki mannheldur.
— SG
Frlðjón Þórðarson:
„Aihuga harf
ýmis mái’’
„Ég ætla að lesa málefna-
samninginn i dag og þegar ég
er búinn að skoöa hann vel
hlýtur að koma að þvi að ég
segi af eða á um stuöning viö
væntanlega rikisstjórn”, sagöi
Friðjón Þórðarson alþingis-
maður i morgun.
„Hvort ég tek endanlega á-
kvöröun i dag þori ég ekki að
fullyrða. Það eru ýmis' mál
sem þarf að athuga”. —ATA
TVEIR UNBIR DRENGIR
DRUKKNUDU A KÚPAV0GI
TEKUR NYJA SUORNIN
■ A FÖSTUDAGMN?
ISlefni aö bvf” sagöi Gunnar Thoroddsen I morgun
„Ég stefni að þvi, að stjórnin geti tekið við á föstudaginn”, sagði Gunnar
Thoroddsen, er Visir innti hann eftir gangi stjórnarmyndunarviðræðna á
morgun.
— Eru þeir Friðjón Þórðar-
son og Pálmi Jónsson búnir að
tilkynna þér, hvort þeir ætla að
styðja stjórnina?
„Nei, þeir eru ennþá að kynna
sér málin, meöal annars mál-
efnasamninginn, sem við erum
að ganga frá. Ég talaði við þá
Friðjón og Pálma i gær og ég á
von á, að þeir geri upp hug sinn
einhvern allra næstu daga”.
— Attu von á að fleiri þing-
menn Sjálfstæðisflokksins en
þegar hafa verið tilnefndir,
muni styöja stjórnina?
„Þvi fer fjarri, að það sé úti-
lokað, þvi að ég veit, að ýmsir
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
eru þvi hlynntir, að stjórn þess-
ara þriggja flokka komist á,
telja það að mörgu leyti æski-
legt stjórnarmynstur núna og
viðurkenna, að þetta er eini
möguleikinn nú til að koma á
þingræðisstjórn. Ég vænti þvi
þess, aðfleiri þingmenn komi til
samstarfs og helst þingflokkur-
inn allur”.
Sjá einnig bls. 2.
—ATA