Vísir - 06.02.1980, Page 2

Vísir - 06.02.1980, Page 2
vísm Miövikudagur 6. febrúar 1980 2 Hefur þú hugsað þér að sjá eitthvað af þeim kvikmyndum, sem Kvikmyndahátiðin hefur upp á að bjóða? Helga Bolladóttir, húsmóöir: Já, ég haföi hugsaö mér þaö. Ég ætla allavega aö sjá „Sölku Völku”. Jón Guömundsson, nemi: Eg ætla aö sjá „Sjáöu sæta naflann minn”, og ætli ég sjái ekki svo aðra til. Guörún Guömundsdóttir, hús móöir: Já, alveg helling. Markús B. Þorg eir sson, skip- stjóri: Nei, ekki veit ég til þess, en ég vil þakka þeim mönnum, sem að þvi stóðu og mér þykir leittað Njörður P. Njarövik hefur ekki fengið leyfi Bandarikja- manna til aö fara inn i land þeirra á vegum Kvikmyndahátíðar- innar. Anna Jóhannesdóttir, verslunar- stjóri: Ég hef áhuga á að sjá eitt- hvaö af þessum Islensku mynd- um. Gunnar Thoroddsen og Kristján Eldjárn I stofu á Bessastööum f gær. „NÝ STJÚRN FYBIB HELCI" - segir Gunnar Thoroddsen „Ég vænti þess að stjórnarmyndun verði lokið nú fyrir helgi”, sagði Gunnar Thoroddsen, alþingis- maður, þegar hann kom út af fundi með forseta Islands- í tilkynningu frá forseta segir aö Gunnari Thoroddsen hafi veriö faliö „aö gera tilraun til myndunar rikisstjórnar sem njóti meirihlutafylgis á Alþingi”. 1 tilkynningunni kem- ur einnig fram, aö það hafi meðal annars veriö með „tilliti til eindreginna ábendinga frá formönnum Framsóknarflokks og Alþýöubandalags” að forset- inn tók þessa ákvörðun. Forseti lagöi áherslu á að þessari tilraun yrði hraðaö eftir þvi sem unnt er. Gunnar Thoroddsen sagði eftir fundinn meö forseta, að lit- iö væri svo á, aö stuöningur 31 þingmanns væri nægilegur til aö hægt væri að mynda þingræðis- lega meirihlutastjórn. Aöspuröur um þann stuöning, sem stjórnarmyndun hans nýt- ur innan þingflokks Sjálfstæöis- flokksins sagöi Gunnar: „Mér er kunnugt um að ýmsir þingmenn innan Sjálfstæðis- flokksins, aörir en þeir sem þeg- ar hafa lýst afstöðu sinni, eru hlynntir þvi stjórnarmynstri sem hér um ræöir. Það er ástæöa til þess að ætla, að þing- flokkurinn endurskoði afstööu sina meö tilliti til þess, að þetta er eini raunhæfi möguleikinn til myndunar meirihlutastjórnar.” -P.M Mngflokksfundir hjá Sjálfstæðisfiokknum f gær: Engar ákvaröanir teknar Þingflokkur Sjálf- stæðisflokkins kom tvisvar saman til fund- ar i Alþingishúsinu i gærdag. Fyrri fundur- inn var örstuttur,vegna fjarveru Friðjóns Þórðarsonar, en sá siðari stóð i um það bil klukkustund. Fyrir fundinn ræddu þeir Pálmi og Friöjón saman eins- lega og yfirgáfu hann samtimis áöur en honum var lokiö. Þeir vildu ekkert láta hafa eftir sér um þaö sem fram fór á fundin- um og sögöust ekki hafa tekiö neina ákvöröun ennþá um stuöning viö rikisstjórn Gunn- ars Thoroddsen. Albert Guö- mundsson yfirgaf þinghúsiö áöur en fundurinn hófst, og Gunnar Thoroddsen var ekki heldur á fundinum. ölafur G. Einarsson, for- maður þingflokksins, sagöi aö engar ákvaröanir hefðu veriö teknar á fundinum, en vildi aö ööru leyti ekkert um hann segja. Ólafur vildi ekkert segja um hugsanleg viðbrögö þingflokks- ins vegna yfirlýsingar Alberts Guömundssonar þess efnis, aö hann myndi verja stjórn Gunn- ars Thoroddsen vantrausti.P.M. ■

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.