Vísir - 28.02.1980, Blaðsíða 4

Vísir - 28.02.1980, Blaðsíða 4
VlSIR Fimmtudagur 28. febrúar 1980 HÓTEL VARÐBORG AKUREYRI S(MI (96)22600 Góð gistiherbergi Verð frá kr.: 7.500-14.000. Morgunverður Kvöldverður Næg bílastæði Er i hjarta bæjarins. AUKABLAÐI Leiðbeiningar ríkisskattstjóra með útfyllingu skattframtals einstaklinga í Blaðsölubörn vism er tvö blöð á morgun. Aukablað með leiðbeiningum fyrir skattframteljendur fylgir. Se/jið vtsi og vinnið ykkur inn vasapeninga. Komið á afgreiðsluna Tyrkneskir á heræfingum til undirbtínings vetrarstrfbs. — Tyrkjaher telur um 450 þúsund hermenn, sem sagðir eru einhverjir best þjálfuðu og baráttuglöðustu hermenn NATO-herjanna. Búnaður þeirra er þó fátæklegur og gamaldags að verða. TVRKLAND RAMBAR A ðNGÞVEITIS Hinir „sanntrúuöu” — eins og múhammeðsmenn kalla sig sjálfa — halda því fram, að um þessar mundir sé Tyrkland að taka sina refsingu fyrir að flaöra utan f óvinum Islams. Hinir róttækari vinstrisinnar i Tyrklandi llta á land sitt „sem veika hlekkinn f heimsvalda- keðju kapitalismans”. Herforingjarnir kenna að sjálfsögðu stjórnmálamönnun- um —og þá aöallega fyrri stjórn socialdemókratans, Bulent Ecevit — um þá pólitfsku ringulreið og hryöjuverkaöldu, sem tröllrlöur Tyrklandi. Einn Tyrki gengur fram og eygir vonarneista. Suleyman Demirel, forsætisráöherra, full- yröir, aö sparnaöarráöstafanir þær, sem íhaldsstjórn hans hef- ur á prjónunum, séu þaö eina, sem landinu fái bjargaö. Þeim boöskap taka þær 43 milljónir, sem Tyrkland byggja, meö slnum venjulega fyrirvara, er þeir hafa á loforöum póli- tíkusanna. Þeir hafa senn aö baki einhvern haröasta vetur, sem yfir Tyrkland hefur gengiö I langan tlma. Skortur á kynd- ingarolíu og rafmagni hefur ekki gert vetrarhörkuna létt- bærari. Dæmi eru til þess, aö menn hafi neyöst aö flýja íbúö- ir sínar og flytja inn á hótel, sem oftast eiga einhvern olluleka til þess aö orna gestum slnum. Fæstir hafa þó ráö á siku. Fimmti hver maöur er atvinnu- alus, og hinir, sem eru svo lán- samir aö hafa fasta tekjustofna, hafa mátt horfa upp á næstum 100% veröbólgu éta upp inni- haldiö I launaumslaginu. Ef einhver leiö er til þess aö stýra Tyrkjum Ut úr þessu efna- hagsöngþveiti og binda endi á þaö pólitlska ofbeldi, sem kost- ar mánaöarlega milli 150 og 200 mannsllf, er hún aö mestu undir Tyrkjum sjálfum komin. Áö mestu, en ekki öllu. Þaö er ljóst, aö hjálparlaust geta þeir þaö ekki alveg. Eftir nauösynlegri aöstoö veröa þeir aö leita hjá bandamönnum slnum á vestur- löndum. Spurningin er fyrst og fremst sú, hvort þeim berist sú hjálp I tæka tlö, eöa hvort hún veröi nægjanleg, þá hún kemur. Necmettin Erbakan, leiötogi þjóöernis-hjálpræöisflokksins, sem styöur Demirel í þinginu, aöutan Umsjón: \ Guðmundur " Pétursson hefur gefiö stjórn hans frest fram I mal. Ef hún ekki getur sýnt fram á áþreifanlegan árangur þá, er eins llklegt, aö Erbakan taki höndum saman viö Ecevit og lýöveldisalþýöu- flokk hans og felli stjórnina. Erlendar skuldir Tyrklands nema I dag milli 14 og 15 mill- jöröum dollara. 3 milljaröar falla I gjalddaga fyrir júnl næsta árs. í slöustu viku var efnt til sérstaks fundar hjá Efnahags- og menningarmála- stofnuninni (OECD) til þess aö fjalla um áætlanir varöandi efnahagslif Tyrklands, og fyrir marslok var ætlunin aö OECD leggi fram tillögur um, hvernig staöiö veröi undir þessum skuldum. Tyrkir vænta þess, aö OECD muni þá um leiö löfa þeim eins til tveggja milljaröa dollara efnahagsaöstoö I formi lána. 1 fyrrasumar uröu Tyrkland og Alþjóöa gjaldeyrissjóöurinn ásátt um yfirdráttarheimild fyrir 330 milljónir dollara, en fyrri helmingur þess hefur þeg- ar veriö nýttur og afgangurinn veröur þaö sennilega fyrir marslok. Til viöbótar veröur sjóöurinn sennilega aö lána 100 milljónir dollara. Af vesturlöndum skoöa menn efnahagsöröugleika Tyrkja I samhengi viö hernaöarlegt mikilvægi landlegu Tyrklands á suöurjaöri varnarsvæöis NATOs. Eins og Hans Matthöf- er, fjármálaráöherra V-Þýska- lands, oröaöi þaö fyrir skömmu, þegar hann var á ferö I Ankara: „Viö getum ekki horft upp á Tyrkland veröa gjaldþrota og um leiö varnarlaust gegn íhlut- unum eöa jafnvel árás Rússa.” 1 janúar síöasta uröu Tyrk- land og USA loks á eitt sátt um bandarlskar herstöövar á yfir- ráöasvæöi Tyrkja aö nýju. Þessum herstöövum var lokaö I júll 1975, þegar Tyrkjum sárn- aöi, aö Bandaríkaþing skyldi taka fyrir vopnasölu til Tyrja I hegningarskyni fyrir, aö banda- rlsk vopn voru notuö I innrás Tyrkja á Kýpur sumariö 1974. — 1 nýja samkomulaginu var þaö þó áréttaö af Tyrkjum, aö her- ' stöövarnar skyldu aöeins notaö- ar I þágu NATO. Þeir eru nefni- lega töluvert háöir olíuinnflutn- ingi frá Sovétríkjunum og njóta auk þess umtalsverörar efna- hagsaöstoöar frá hinum vold- uga nágranna sínum. Stjórnin I Ankara vill þvl slöur ofgera herrunum I Moskvu. Hin beiska deila Tyrkja viö nágrannanna og NATO-banda- mennina i Grikklandi, sem I áraraöir hefur veriö ógnun viö einingu Atlantshafsbandalags- ins, hefur hinsvegar ekki fengist leyst ennþá. Slöasta tilraun Bandarlkjamanna til þess aö miöla málum, svo aö varnar- vandamálin I Eyjahafinu fáist leyst meö hlutdeild grlska hers- ins aö nýju I hernaöarsamstarfi NATO-rlkjanna, viröist ætla aö renna út I sandinn. — Grikkir drógu sig út úr hernaöarsam- starfinu eftir Kýpurstrlöiö I mótmælaskyni viö aö tilmæli þeirra til NATO um aö stööva Tyrkina báru ekki árangur. Eftir því sem sjá hefur mátt á skrifum Aþenublaöanna hefur gríska stjórnin hafnaö nýjustu málamiölunartillögum Banda- rlkjamanna, og horfur á sáttum milli Grikkja og Tyrkja þvl jafn fjarlægar og fyrr.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.