Vísir - 28.02.1980, Qupperneq 6

Vísir - 28.02.1980, Qupperneq 6
VtSIR Fimmtudagur 28. febrúar 1980 T' - pegar KR-ingar sigruðu Fram i afar slökum leik í úrvaisdeildinni í kerfuknattleik - fáfi getur nú úiargað Fram frá faiii í 1. deiid Danska stórstjarnan I belgisku knattspyrnunni, Preben Elkjær Larsen, sem leikur meö Arnóri Guöjohnsen hjá Lokeren, lagði i siöustu viku fram kröfur sinar, ef Lokeren vildi halda honum lengur. Larsen þessi, eða Elkjær eins og landar hans kalla hann, hefur blómstraö hjá Lokeren i þau tvö ár sem hann hefur verið þar, en þangaö kom hann frá FC Köln I Vestur-Þýskalandi, þar sem hann náöi aldrei aö sýna sitt rétta and- lit á knattspyrnuvellinum. Eftir aö hann kom til Lokeren hefur aftur á móti allt gengið honum I haginn, og er hann nú i Belgiu og viöa I Everópu talinn besti knattspyrnumaöur Dan- merkur- mun betri en Allan Simonsen hjá Barcelona og allar hinar stjörnurnar, sem Danir eiga i knattspyrnunni um allan heim. Samningur hans viö Lokeren rennur út nú I vor, og aö sögn danska blaösins Berlingske Tidende, ætlaöi hinn 150 kg þungi framkvæmdastjóri Lokeren aö detta-út af stólnum, þegar hann sá upphæðirnar, sem Larsen kraföist fyrir áframhaldandi þjónustu viö félagiö. ,,Ég er besti maöur liösins og get því leyft mér aö smyrja svolitiö á þetta”, segir Larsen I viötali i sama blaöi. „Ég lét hann vita af því, aö ef Lokeren vildi ekki greiöa mér þaö, sem ég færi fram á, færi ég eitthvaö annaö. Ég get valiö úr tilboöum og þaö vita allir hjá Lokeren”. Þegar Lokeren keypti Larsen frá Köln greiddi félagið 400 þúsund v-þýsk mörk fyrir hann, eöa sem samsvarar um 92 milljónum Islenskum, en nú segja Maöur ætti aö hafa efnl á einum vindli af og til, þegar maöur er metinn á milljónir franka I belgisku knattspyrnunni, eins og Preben Elkjær Larsen hjá Lokeren.... Vonir Framara um að halda sæti sinu í úrvals- deildinni í körfuknattleik fóru hraðminnkandi í Laugardalshöll í gær- kvöldi. Þar tapaði liðið fyrir KR í afspyrnu- lélegum leik, án efa lélegasta leik mótsins, en KR náði að merja sigur á lokasprettinum 64:60. Greinilegt er, aö KR-ingar leggja nú ekki eins mikiö upp úr leikjunum i úrvalsdeildinni og áöur enda möguleikar þeirra á sigri úr sögunni. En aö liö Fram skyldi ekki rifa sig upp I gær- kvöldi er hlutur, sem er efiðara aö skilja, þvi að meö þokkalegum leik heföu Framarar náö i tvö dýrmæt stig i Höllinni i gærkvöldi. Fyrstu mlnútur leiksins gáfu reyndar visbendingu um hvaö koma skyldi. Ekkert var skorað langtimum saman, en Fram haföi yfirleitt yfirhöndina og leiddi i hálfleik 33:30 (!). KR náöi fljótlega yfirhöndinni i siöari hálfleik, og var það fyrir einkaframtak Jóns Sigurössonar. En KR-ingarnir náöu aldrei aö hrista Framarana af sér og undir lokin gat sigurinn reyndar hafnaö hvorum megin sem var. Mistök leikmanna voru mikil á báöa bóga, en KR náöi i bæöi stigin sem fyrr sagöi. Það er óþarfi aö fjalla mikiö um leikmenn liöanna. Aöeins tveir leikmenn sýndu umtalsveröa getu, þeir Jón Sigurösson hjá KR, sem hefur þó oft leikið betur, og Simon Ólafsson, sem var yfir- burðamaöur hjá Fram. Var reyndar synd, aö hann skyldi þurfa aö vera i tapliöi i gærkvöldi, svo vel lék hann. Þorvaldur Geirs son átti góða spretti hjá Fram, og Geir var sterkur hjá KR I vörn- inni i síðari hálfleiknum. Stigahæstir voru Jón meö 19 stig hjá KR, Geir meö 14, en hjá Fram Simon meö 28 og Darrell Shouse meö 12 en afar slaka nýt- ingu og fjölda misheppnaöra sendinga. Dómarar voru Ingi Gunnarsson og Kristbjörn Albertsson, og geröu þeir aragrúa mistaka eins og flestir leikmannanna, og voru þau fleiri, sern komu illa niöur á liöi Fram. gk-. HelmsUkarkeppnin I skfðastökki: Noregur áttl tvo bá bestu Allir fremstu skiöastökkvarar heimsins hafa nú flutt sig frá Lake Placid yfir til St. Moritz i Sviss, en þar fór fram I gær fyrsta stökkkeppnin af þremur, sem fara fram þar þessa dagana, en þær eru liöur I heimsbikarkeppn- inni i skiöastökki. 1 gær voru þaö Norömenn, sem höföu mikla ástæöu til aö fagna i St. Moritz og hafa eflaust gert þaö hressilega. Þeir áttu nefnilega tvofyrstu menn, og er þaö nokkur sárabót fyrir fremur slaka frammistööu norsku stökkvar- anna I Lake Placid. Þaö var Roger Ruud sem sigr- aöi I gær, en þá var keppt af 70. metrapalli.Hannstökkðl og 93,3 metra og hlautalls 260,8 stig. Rétt á eftir honum kom siöan landi hans Johns Saetre, sem stökk 91 / og 90,5 metra og hlaut 256,0 stig. Svisslendingar áttu tvo næstu menn, Robebert Moesching og Hanj-Jörgen Sumi, þá komu tveir Bandarikjamenn þvi næst tveir Sovétmenn og Italinn Lido Tam- asi var I 9. sæti. gk—. dönsku blöfoin, aö ef Lokeren vilji halda honum.veröi þaö aö greiöa margfalda þá upphæö, þvi aö hann sé metinn af öörum stórliö- um á um 20 milljónir belgískra franka, sem gerir um 300 milljón- ir Islenskar. -klp— Meö hópa á NM í badmin- ton 09 sundl Islensk ungmenni veröa I sviös- ljósinu á a.m.k. tveim Noröur- landamótum I iþróttum um næstu helgi, en þá fara fram NM ung- linga I badminton og sundi. Badmintonliöiö keppir i Danmörku og þangaö sendir Island 9 keppendur. Eru þau elstu i þeim hópi þegar orðin góökunn I Iþróttinni hér, en þaö eru þau Sif Friöleifsdóttir KR, Guömundur Adolfsson TBR og tslands- meistari kvenna, Kristin Magnúsdóttir. Meö badminton- fólkinu fer einn farastjóri, Garöar Alfonsson. Noröurlandamótiö i sundi fer fram I Finnlandi og þangað eru sendir tveir keppendur þær Katrin Sveinsdóttir og Þóranna Héöinsdóttir, Ægi. Meö þeim fara þeir Guömundur Haröarson þjálfari og Sveinn Oddgeirsson farastjóri. Símon og Jón risu upp Lokeren parf að borga vel fyrir Larsen Sænski skiöastökkvarinn Jan Holmund var ekki meöal keppenda I heimsbikarkeppninni I skiöastökkl I St. Moritz I Sviss f gær. Hann liggur axlarbrotinn heima eftir glæfrastökkiö sitt af 90 metra pallinum á Ólympiuleikunum f Lake Placid. Tugir þúsunda áhorfenda gripu andann á lofti þegar þeir sáu hann missa jafnvægiö f loftinu, og milljónir um heim allan sáu þetta atvik f sjónvarpinu hjá sér. Þessi mynd er einmitt tekin, þegar Svfinn byrjar aö snúast f loftinu en örfáum andartökum siöar skall hann I jörö- ina... úr meðaimennskunni

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.