Morgunblaðið - 25.10.2001, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.10.2001, Blaðsíða 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ C VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í F ÚTGERÐ ÍBÚÐAKAUP FÓLK Ragnar Ólafsson gerir út túnfiskbát frá Suður- Afríku og stundar ýmis önnur viðskipti. Íbúðalánasjóður leggur áherslu á raunhæft greiðslumat og ráðgjöf til umsækjenda. Davíð Börkur Jónsson er framkvæmdastjóri Ration- al.com í Danmörku sem skráð er á Nasdaq 100. GET EKKI 12 GREIÐSLUMAT 8–9 ÍSLENSKUR SVÍI 15 SALA á stýrikerfinu Windows XP frá bandaríska tæknifyrirtækinu Microsoft hefst í dag um heim allan. Annars vegar er um að ræða heimilisútgáfu og hins vegar fyr- irtækjaútgáfu, sem er ætlað að taka við hlut- verki Windows Millennium og Windows 2000. Microsoft segir að XP sé helsta breyting á Windows-stýrikerfi þess frá því að það gaf út Windows 95 fyrir sex ár- um. Hægt verður að kaupa bæði uppfærslur og fulla útgáfu. Jóhann Áki Björnsson hjá Tölvudreifingu, sem flytur inn vörur Microsoft, segir að mestu breyting- arnar sé að finna í heimilisútgáfunni, en not- endur Windows 2000 ættu ekki að finna fyrir jafnmiklum breytingum. Spurður hvort tölvunotendur þyrftu að uppfæra tölvukost sinn til þess að eiga þess kost að nota Wind- ows XP sagðist Jóhann ekki eiga von á því hvað varðar notendur á heimilum, ekki síst í ljósi þess að margar heimilistölvur væru sniðnar til þess að ráða við stóra tölvuleiki. Það væri hins vegar erfitt að meta það hvort tölvunotendur þyrftu að uppfæra vélar sínar. Samkvæmt upplýsingum frá Tæknivali kostar uppfærsla heimilisútgáfunnar 16.097 krónur, en uppfærsla fyrir fyrirtækjaútgáfu er á 31.175 krónur. Þá kostar heildarútgáfa heimilisútgáfunnar 32.197 krónur og fyrir- tækjaútgáfan 46.505 krónur, en verð er gefið upp án virðisaukaskatts. H U G B Ú N A Ð U R Windows XP í verslanir ÓSKAÐ hefur verið eftir af- stöðu byggingarnefndar Reykja- víkur til hugmynda um að breyta húsnæði Kjörgarðs við Laugaveg í Reykjavík í 109 herbergja hótel ásamt nýbyggingu við Hverfis- götu. Það er fyrirtækið Lóðarafl ehf. sem stendur fyrir þessari ráðagerð en eigendur þess eru byggingarmeistararnir Magnús Guðfinnsson og Svanur Tómas- son. Þeir hafa samið við eigendur Kjörgarðs um kaup á fasteigninni með fyrirvara um að hugmyndir þeirra um hótelbyggingu gangi eftir. Þeir segja fyrirætlanirnar ráðast af undirtektum borgaryf- irvalda, annars vegar, og hins vegar því hvort samningar takist við fjárfesta og/eða rekstraraðila sem hefðu áhuga á að koma að slíku hóteli. Teikningarnar að hótelinu, sem unnar voru hjá Teiknistofunni Óðinstorgi, gera ráð fyrir að byggð verði ein hæð ofan á Kjör- garð. Auk þess er gert ráð fyrir nýbyggingu við Hverfisgötu, sem yrði tengd með tengibyggingu við Kjörgarð. Kjörgarður var byggður árið 1961 og er 3.824 brúttófermetrar að stærð. Um árabil hafa verið reknar verslanir á 1. og 2. hæð hússins, sem er fjórar hæðir auk kjallara. Eigninni fylgir baklóð sem heimilt er að byggja 800 fer- metra húsnæðis á. Jákvætt fyrir Laugaveginn Magnús Guðfinnsson og Svanur Tómasson, forsvarsmenn Lóð- arafls ehf. og handhafar kaup- réttarsamnings að Kjörgarði, segjast telja staðinn henta ákaf- lega vel fyrir hótelrekstur. Er- lendir ferðamenn sem hingað komi sækist mjög eftir því að vera í miðbænum í nálægð við versl- anir og veitingastaði. Slíkt spari bæði tíma og fyrirhöfn. Enda sýni reynslan að nýting hótela í Reykjavík sé best í miðbæjar- kjarnanum eða nálægt 90%. Þeir telja að hótelbygging við Laugaveg standi af sér öll tíma- bundin áföll og að fullnægjandi eftirspurn sé tryggð fyrirfram vegna staðsetningar. Hótelið muni styðja við og treysta Lauga- veginn til framtíðar, þar sem saman fari fjölbreytt flóra versl- ana og veitingastaða, margháttuð menningarstarfsemi, og aðliggj- andi íbúðarkjarnar sem fyrirhug- aðir séu í Skuggahverfinu. Þetta séu allt þættir sem styðji hver við annan og myndi sameiginlega heilsteypt og blómlegt miðbæjar- líf. Þá segjast þeir álíta að hótel af þessari stærðargráðu, 109 her- bergi, sé það sem vanti við Lauga- veginn, en hótelsérfræðingar telji þá stærð hagkvæmasta í rekstri. Magnús og Svanur eru vongóð- ir um að óróleiki í ferðaþjónust- unni muni lítil áhrif hafa hér á landi til lengri tíma litið. Pantanir á ferðum til Íslands séu þegar teknar að glæðast og þeir spái því að vegna einangrunar landsins og hertra öryggiskrafna í Leifsstöð verði Ísland áfram vaxandi ferða- mannastaður. Ráð er fyrir því gert að hótelið verði tilbúið til notkunar að tólf mánuðum liðnum. Kjörgarði breytt í hótel? Teikningar hafa verið lagðar fram sem fyrirspurn fyrir byggingarnefnd Reykjavíkur Gert er ráð fyrir að byggð verði ein hæð ofan á Kjörgarð ef samþykki borgaryf- irvalda fæst fyrir því að breyta húsnæðinu í hótel með 109 herbergjum. Lena Helga- dóttir, arkitekt FAÍ hjá Teikni- stofunni Óð- instorgi, segir staðsetningu Kjörgarðs mjög góða fyrir hótel og að húsnæðið henti vel. Hún segir gert ráð fyrir bílastæðum í kjallara Kjör- garðs og á milli húsanna tveggja. Tengibyggingin milli húsanna sé af jarðhæð Kjörgarðs yfir á þriðju hæð nýja hússins við Hverfisgötu. Mót- taka hótelsins verði á jarðhæð Kjörgarðs en þar verði jafnframt verslanir og veitingastaðir. Þá sé gert ráð fyrir verslunum á jarðhæð hússins við Hverfisgötu. Farið sé fram á heimild til að byggja hæð ofan á Kjörgarð meðal annars á grundvelli þess hvað bílastæðin við hið væntanlega hótel séu mörg. Lena segist ekki í vafa um að hótel á þessum stað myndi hafa mjög jákvæði áhrif bæði fyrir miðbæ Reykjavíkur í heild. Hentugt húsnæði fyrir hótel Lena Helgadóttir  Endurbætt viðmót sem ætlað er að gera notendaskil aðgengi- legri og breytt uppröðun forrita.  Endurbætt hljóð- og mynd- vinnslukerfi og auðveldara að skrifa geisladiska en áður.  Endurbætt netkerfi fyrir heimili sem auðveldar að setja upp net- tengingar.  Eldveggur sem einkum er ætl- aður fyrir notendur heimilis- útgáfunnar. Helstu nýjungar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.