Morgunblaðið - 25.10.2001, Side 6

Morgunblaðið - 25.10.2001, Side 6
6 C FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ NVIÐSKIPTI AFNÁM verðbólgureikningsskila og lækkun tekjuskatts kemur best skuldsettum fyrirtækjum sem skila góðum hagnaði. Þetta kom fram á morgunverðarfundi Deloitte & Touche hf. þar sem kynnt var nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á skatta- og ársreiknings- lögum og farið yfir áhrif þess á skatt- skil og reikningsskil rekstraraðila. Sigrún Ragna Ólafsdóttir, endur- skoðandi hjá Deloitte & Touche, fjallaði á fundinum um niðurstöður úttekta sem hún gerði, annars vegar á áhrifum tekjuskattslækkunar og hins vegar á afnámi verðbólgureikn- ingsskila á fyrirtæki. Úttektirnar tóku til 27 fyrirtækja af 49 sem skráð eru á Aðallista Verðbréfaþings Ís- lands. Þær miðuðu að því að fá úr því skorið hvaða fyrirtæki og atvinnu- greinar væru betur eða verr sett við afnám verðbólgureikningsskila og lækkun tekjuskatts úr 30% í 18%. „Niðurstaðan var á þá leið að skuldsett fyrirtæki með góðan hagn- að græða mest á breytingunni. Þau mega draga allar verðbætur af lán- um frá tekjum sínum og lækka þann- ig skattstofninn. Auk þess njóta þau lækkunar tekjuskatts af því að þau eru með hagnað. Þau félög almennt, sem eru með skuldir umfram peningalegar eignir, hafa fært í rekstrarreikning verð- breytingartekjur sem falla niður við afnám verðbólgureikningsskila. Af- koma þessara félaga á pappírunum versnar og skattstofninn lækkar því ekki þarf að greiða af verðbreyting- artekjufærslunni. Þar að auki fá þau lækkun á tekjuskatti. Þessi félög njóta því talsverðrar skattalækkun- ar og virði þeirra ætti að aukast. Hins vegar hækkar skattstofninn verulega hjá fyrirtækjum sem eru með peningalegar eignir umfram skuldir, s.s. lánastofnanir, við afnám verðleiðréttinga og skattgreiðslur myndu aukast talsvert ef ekki kæmi til lækkun tekjuskattsprósentunnar. Þegar fram í sækir munu skatt- stofnar rekstraraðila þó almennt hækka vegna lækkandi afskrifta og eigið fé þeirra mun fara lækkandi vegna vanmats eigna.“ Reikningarnir jafnvitlausir Sigrún sagði að verðbólgustig á Ís- landi hefði síðastliðinn áratug verið sambærilegt við það sem gerist í ná- grannalöndunum og því væri ekkert því til fyrirstöðu að fara úr verð- bólgureikningsskilum yfir í kostnað- arverðsreikningsskil, jafnvel þótt verðbólgan í ár sé hærri en hún hefur verið um árabil. Markmið verðleiðréttinga sagði hún vera að sýna í rekstrarreikningi raunafkomu á meðalverðlagi þess tímabils. Kostnaðarverðsreiknings- skil á hinn bóginn sýni nafnverðsaf- komu. Þegar verðbólgan sé lítil sem engin sé þó óverulegur munur á þessum reikningsskilum. „Flestir eru sammála um að rekstrar- og efnahagsreikningur samkvæmt verðbólgureikningsskil- um sé réttari heldur en samkvæmt kostnaðarverðsreikningsskilum. Við getum sagt sem svo að með því að fara yfir í kostnaðarverðsreiknings- skil verði þau ekki verri hjá okkur en hjá öðrum þjóðum, bara jafnvitlaus.“ Sigrún sagði hins vegar mikilvægt að hemja verðbólguna. „Fari verð- bólgan langt fram úr því sem gerist í kringum okkur þá skekkist staða at- vinnugreinanna meira og skattstofn- arnir verða óeðlilegir. Félög í stórum stíl, eins og t.d. lánastofnanir, fara þá að greiða skatta af verðbótum, sem eru bara verðbólgutekjur en engar raunverulegar tekjur og verðbólgu- reikningsskilin leiðréttu áður með gjaldfærslu í rekstrarreikningi fé- laganna.“ Hún segir þennan mun hafi komið vel fram í úttekt þar sem áhrif verð- bólgureikningsskila á afkomu félaga á VÞÍ voru reiknuð þrjú ár aftur í tímann. „Frávikin voru lítil á árinu 1998 þegar verðbólgan var bara 1,27% en miklu meiri þegar verð- bólgan var 4 og 5% á árunum 1999 og 2000. Ef verðbólgan fer svo umfram það þá verður skekkjan enn meiri.“ Einstaklingsrekstri útrýmt Í erindi Árna Harðarsonar hdl. kom fram að verði frumvarp ríkisstjórn- arinnar að lögum þá mun einstak- lingsrekstri verða útrýmt, a.m.k. mun hann ekki verða rekinn með hagnaði. Einstaklingur í rekstri greiðir að lágmarki 38,7% í skatt, eins og launa- maður, af hagnaði sínum auk 7% sér- stakan tekjuskatt ef hagnaðurinn fer yfir þau mörk. Á meðan greiðir sam- eignarfélag 26% og hlutafélag 18%. Árni sagði sameignarfélagsformið í raun verða hagstæðast með þessum lögum enda greiddi einstaklingur ekkert fyrir að taka til sín hagnað þaðan en félagið greiddi 26%. Hins vegar greiddi hlutafélag 18% skatt og einstaklingurinn 10% af því sem eftir stendur til að fá hagnaðinn til sín. Heildarskattlagningin væri því 26,2% á hagnað af hlutafélögum.                       "##$  !  %&  '   () *+, -   !                         ! "  #$#%&%'& # ()*+   &!  ,  -. ".# -. ,"" .""/ 0# #1 $12  (./01.2/ /2/.020 3(./0). (2 2/.  . /.  2.1/1 (. / . .)0 0. . 2 -        (.22. 01)./(0 3.0).(1) )0.() .1(.(0( )/. 2 .022 )(1.( .0.) -    4   5 )6/ 3( 6/ 3 60 3((6/ 306) 3(6 306) 3061 3(160 .02.0)2 /(.20/ 3.11.200 (1.1( .( 0./11 ./.() 2.2) 2.0/2 0.(0/. / 5/6 3 6/ 3(6( 5 62 562 5 60 306 3 16( (6) -        -    4   Skuldsett fyrir- tæki með hagnað græða mest Skattstofnar fyrirtækja munu almennt hækka þegar fram í sækir og einstaklingsrekstri verður útrýmt verði frumvarp um skattalagabreytingar og afnám verðbólgureikningsskila að lögum SAMRÆMD vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 109,7 stig í september síðastliðnum og hækkaði um 0,3% frá ágúst. Í frétt frá Hagstofu Íslands kemur fram að á sama tíma hækkaði samræmda vísitalan fyrir Ísland um 0,8%. Frá september 2000 til jafn- lengdar árið 2001 var verðbólg- an, mæld með samræmdri vísi- tölu neysluverðs, 2,4% að meðaltali í ríkjum EES, 2,5% í evru-ríkjum og 8,8% á Íslandi. Mesta verðbólga á evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var á Íslandi 8,8% og í Hollandi 5,4%. Verð- bólgan var minnst 1,3% í Bret- landi. Mest verðbólga á Íslandi Samræmd vísitala á EES-svæðinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.