Morgunblaðið - 25.10.2001, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 C 9
NVIÐSKIPTI ATHAFNALÍF útprentun fasteignaveðbréfanna til bank-
anna.
Á vef Íbúðalánasjóðs er rætt um ráðgjöf
og raunhæft mat. Þessi ráðgjöf fer fram
innan bankanna og tilgangur hennar er að
aðstoða væntanlega íbúðarkaupendur við
að finna út hver raunhæf greiðslugeta
þeirra er, samkvæmt upplýsingum frá
bönkunum. Spurning eins og „hvað þarftu
að fá?“ ku þó hafa heyrst af vörum þjón-
ustufulltrúa og beint að væntanlegum
íbúðarkaupanda sem mættur var í
greiðslumat. Talsmenn bankanna kannast
ekki við slíkt og segja þjónustufulltrúum
uppálagt að gera viðskiptavinum grein fyr-
ir öllum áhættuþáttum og hugsanlegum
erfiðleikum ef umsækjendur ætla sér of
mikið.
Samkvæmt upplýsingum frá fjármála-
stofnunum sem sjá um greiðslumatið hef-
ur stór hluti umsækjenda, allt upp í helm-
ingur, þegar gert kauptilboð í íbúð áður en
sótt er um greiðslumat. Þessir umsækj-
endur líti því á greiðslumatið þeim augum
að það þurfi að passa við þær áætlanir sem
ákvarðanir hafi verið teknar um.
Drífa Óskarsdóttir sér um greiðslumatið
hjá Búnaðarbanka Íslands. Hún segir í
samtali við Morgunblaðið að fyrirkomulag-
ið sé á þann hátt hjá Búnaðarbankanum að
þjónustufulltrúar sjá um að öll gögn fylgi
umsókn og senda svo til Drífu sem sér um
útreikningana eftir forriti Íbúðalánasjóðs.
Hún hittir því aldrei þá sem hún er að
„meta“ en aðspurð telur hún það ekki
koma niður á matinu.
Umsækjendum er skylt að leggja fram
skattskýrslu, launaseðla þriggja síðustu
mánaða, alla seðla vegna lána, skulda og
hugsanlegra meðlagsgreiðslna, auk stað-
festingar á sparifé og sölumats á íbúð ef
viðkomandi er að selja.
Greiðslumatið grundvallast á eigin fé
Þórunn Ragnarsdóttir, forstöðumaður
heimilislánadeildar Landsbanka Íslands,
segir viðtöl þjónustufulltrúa Landsbank-
ans við væntanlega íbúðarkaupendur eiga
að vera nokkuð ítarleg og ráðgefandi. Far-
ið er í gegnum pappíra og alla liði á láns-
umsókn. „Greiðslumatið grundvallast á
eigin fé, þ.e. á fólk einhvern sparnað eða
getur það fengið t.d. styrk frá fjölskyldu
eða lífeyrissjóðslán. Ef slíkt er ekki fyrir
hendi verður ekki um fasteignakaup að
ræða þar sem kaupandi verður að geta
reitt fram 10–35% af verði þeirrar fast-
eignar sem hann hyggst kaupa,“ segir
hún.
Dæmið er svo reiknað með aðstoð for-
rits frá Íbúðalánasjóði. Þór-
unn segir að eftir samþykkt
greiðslumats fái umsækj-
endur í hendur sundurliðaða
áætlun um mánaðarleg út-
gjöld sem ætlunin sé að fólk
fari eftir, ella stefni í óefni.
„Ef það er tilfellið, sem
ég hef miklar efasemdir um,
að þau vinnubrögð þjón-
ustufulltrúa verði algengari
að spyrja viðskiptavini fyrir-
fram hvað þeir þurfa, þ.e.
hvaða greiðslugetu og hámarks-
verð íbúðar, þá ætti Íbúðalána-
sjóður að senda endurskoðendur
í banka og sparisjóði og skoða
fylgigögn sem krafist er við
greiðslumat,“ segir Þórunn.
Að sögn Þórunnar hefur útprentun
fasteignaveðbréfa hjá bönkunum ekki
verið möguleg tæknilega, en hún segir
æskilegt að flytja það starf yfir til bank-
anna og þá í þeim til-
gangi að flýta fyrir, þar
sem núverandi ferli
tekur töluverðan tíma.
Samkvæmt upplýs-
ingum frá Íslands-
banka veita þjónustu-
fulltrúar í útibúum
grunnupplýsingar en í
þjónustumiðstöð fast-
eignaviðskipta hjá Ís-
landsbanka veitir sér-
hæft starfsfólk ráðgjöf
og gerir greiðslumat.
Þegar greiðslumat
liggur fyrir er farið yfir
niðurstöðurnar og þýð-
ingu þeirra. „Jafn-
framt er veitt ráðgjöf
varðandi fjármálaþátt-
inn, s.s. hvaða leiðir í fjármögnun eru hag-
kvæmastar,“ segir Sigurður Nordal, upp-
lýsingafulltrúi Íslandsbanka. Íslandsbanki
telur æskilegt að viðskiptavinir geti fengið
alla þjónustu á einum stað og er hlynntur
því að framkvæmd útlána fari í gegnum
bankana.
Áhersla lögð á að láta kerfið virka
Guðmundur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Íbúðalánasjóðs, segir ástæðuna fyrir
því að hætt hafi verið við áform um að fast-
eignaveðbréf yrðu prentuð út hjá bönk-
unum að ekki hafi verið talið að í því fælist
nein sérstök hagræðing. „Það voru
ákveðnir erfiðleikar í upphafi árs 1999
þegar Íbúðalánasjóður var nýstofnaður.
Biðlistar voru langir og höfuðáherslan lögð
á að láta kerfið virka. Samstarf okkar við
bankana hefur alla tíð verið mjög gott. Í
upphafi átti það að verða tvíþætt, þ.e. að
bankarnir sæju um greiðslumatið og að
prenta út fasteignaveðbréf. Áhersla var
lögð á greiðslumatsþáttinn og að láta kerf-
ið virka.“ Guðmundur segir að það hafi
verið markmiðið hingað til og áform um að
flytja meiri þjónustu til bankanna hafi því
ekki verið tekin upp að nýju.
En ýmsir hafa talið að frekari yfirfærsla
til bankanna gæti haft fleiri kosti í för með
sér, þ.e. aukna ábyrgð bankanna á
greiðslumati sem þeir gera fyrir viðskipta-
vini sína og aukna hvatningu til bankanna
um að standa vel að greiðslumatinu. Að
ekki sé talað um ef innheimtan færðist líka
til bankanna. Þá mætti líta svo á að kerfið
yrði heildstæðara þar sem sami aðili fylgdi
málum eftir. Það hefur hins vegar aldrei
staðið til að færa innheimtuna til bank-
anna að sögn Guðmundar. „Mér vitanlega
hefur það aldrei verið til umræðu að inn-
heimtan flyttist til bankanna líka. Inn-
heimtuferlið er í mjög föstum skorðum og
ég held að það verði ekki betra með því að
fela fleiri aðilum umsjón með því.“
Íbúðalánasjóður heildsölubanki?
Um þær hugmyndir að Íbúðalánasjóður
yrði nokkurs konar heildsölubanki, þ.e.
banki sem lánar lánastofnunum sem aftur
lána íbúðakaupendum, og færa þannig
mikla starfsemi frá Íbúðalánasjóði til
bankanna, segist Guðmundur jákvæður
fyrir því að skoða allar nýjungar og breyt-
ingar, en slíkt sé ekki á dagskrá. „Á bak
við þessa hugmynd er sú hugsun að Íbúða-
lánasjóður væri lántakandinn hjá stórum
fjárfestum, t.d. lífeyrissjóðum, og endur-
lánaði síðan bönkunum fé til að veita sín-
um viðskiptavinum í lán. Ég held að þetta
yrði dýrara fyrir lántakandann, þ.e. vextir
yrðu hærri. Sú þjónusta sem sjóðurinn
veitir nú er í föstum skorðum þar sem
sömu leikreglur gilda fyrir alla og ég sé
ekki að óbreyttu að annað form á þessu
væri betra. Að mínu mati er það fremur
forgangsatriði að gera Íbúðalánasjóð virk-
ari á rafræna sviðinu og bæta á þann hátt
þjónustuna við þá viðskiptavini sem geta
eða vilja annast sína þjónustu á rafrænan
hátt í gegnum sína heimatölvu. Þessir
möguleikar eru stöðugt að aukast og ég vil
að Íbúðalánasjóður verði þátttakandi í
þessari þróun.“ Guðmundur segir að
greiðslumatið hafi vissulega verið gagn-
rýnt fyrir að vera of rúmt en á hinn bóginn
sé ljóst að allir reyni að fá sem mest lán og
oftar en ekki hefur verið gagnrýnt að sjóð-
urinn hefði of miklar takmarkanir t.d.
varðandi hámarkslán og viðmið við bruna-
bótamat.
Fleiri umsóknir vegna greiðsluerfiðleika
Guðmundur segir það þó ákveðnar vís-
bendingar um að ýmsir hafi færst of mikið
í fang að umsóknum fólks um aðstoð vegna
greiðsluerfiðleika hafi fjölgað verulega frá
síðasta ári og árinu 1999 þegar þær voru í
lágmarki, að sögn Guðmundar. Árið 1999
bárust Íbúðalánasjóði 149 umsóknir um
aðstoð vegna greiðsluerfiðleika. Árið 2000
voru þessar umsóknir 225 og í ágústlok
2001 voru umsóknirnar orðnar 240. „Það
er því ljóst að nokkur
fjölgun hefur orðið á
þessum umsóknum þótt
langt sé frá að þær
nálgist það ástand sem
var á árunum 1994 til
1996. Þá bárust sjóðn-
um 1.200–1.500 um-
sóknir á ári. Þess má
einnig geta að með
lagabreytingu í vor
voru heimildir sjóðsins
til að bregðast við
greiðsluvanda fólks
rýmkaðar nokkuð,
einkum með heimild til
að lengja lánstíma og
létta þannig greiðslu-
byrði við viss skilyrði,
s.s. veikindi, tekjutap,
atvinnuleysi og aðrar ófyrirséðar ástæður.
Í heildina talið er hins vegar afar lítið um
vanskil hjá Íbúðalánasjóði og það ber vott
um að kerfið virki vel,“ segir Guðmundur
Bjarnason, forstjóri Íbúðalánasjóðs.
Íbúðalánasjóður ekki ódýrari en forverinn
Forsvarsmenn Íbúðalánasjóðs telja núver-
andi fyrirkomulag mun skilvirkara, betra
og ódýrara en fyrirkomulagið á dögum
Húsnæðisstofnunar, eins og komið hefur
fram á opinberum vettvangi. Margt gott er
um kerfið að segja en staðfest hefur verið
að það er ekki ódýrara en á dögum Hús-
næðisstofnunar. Samkvæmt úttekt Ríkis-
endurskoðunar, sem falið var að gera sam-
anburð á rekstrarkostnaði Húsnæðis-
stofnunar og Íbúðalánasjóðs, var rekstrar-
kostnaður Íbúðalánasjóðs á árinu 1999
rúmum 100 milljónum króna hærri en
meðalrekstrarkostnaður Húsnæðisstofn-
unar var á tímabilinu 1994–1997. Fé-
lagsmálaráðherra hafði áður áætlað að
ekki væri ólíklegt að árlegur sparnaður af
því að leggja niður Húsnæðisstofnun og
stofna Íbúðalánasjóð gæti numið 80–100
milljónum króna í lægri rekstrarkostnaði.
..................
Á r i ð 1 9 9 9 b á r u s t
Í b ú ð a l á n a s j ó ð i 1 4 9
u m s ó k n i r u m a ð s t o ð
v e g n a g r e i ð s l u e r f -
i ð l e i k a . Á r i ð 2 0 0 0
v o r u u m s ó k n i r n a r
2 2 5 o g í á g ú s t l o k
2 0 0 1 v o r u þ æ r
o r ð n a r 2 4 0 .
..................
steingerdur@mbl.is
vað
tnað
matsforrit
a forrit sem er mat-
iðkomandi umsækj-
viðkomandi og há-
em umsækjandinn
nað út.
ru með þessu að
jóð sem er á end-
innheimtustofnun-
í milliliður á milli
búðalánasjóðs. Og
hlutverki bankanna
m það þegar Íbúða-
á laggirnar að færa
til bankanna, frá
rnir áttu þannig að
ignaveðbréfa þegar
ðs væri fengið fyrir
ir myndu svo jafn-
u og afhenda svo
éf í skiptum fyrir
ðbréf. Þetta sam-
myndi spara íbúðar-
r og mikinn tíma.
lunin bæði að veita
a hið opinbera hús-
ýrari hætti en áður.
rðið sökum tækni-
sögn framkvæmda-
ðs, Guðmundar
ið hætt við að færa
mat er ekkert grín
Teikning/Andrés
trúar séu sér þess full-
ra ráðgefandi og þeir
hæft mat á hvað það getur
æmt viðmiðunartölum
r bifreiðar um 21 þúsund
við það við útfyllingu
u nálægt raunveruleik-
kanum segir að flestir
úðarkaupendum grein fyrir
lgjört lágmark. „Þeir sem
kar eiga von á erfiði og
nni er fólk beðið að gefa
er sú tala tekin ef hún er
s, annars er stuðst við ör-
m greiðslumatsins.“ Sam-
er farið yfir með umsækj-
slum við
r verður hver og einn um-
ennan kostnað sjálfur.“
gmark 7 !
-
22/6 ..(/62&
8! 6
4
,4
9
#$%
& '
#$% )&
#$% *&+
#$% ,&+
#$% -&+
/
()&
/
(*&+
/
(,&+
/
(-&+
0
+ "
&1(
$%(
2 "( ( . '+' 1 '
"+'#' )334
" %'
'( *-5 555
**5 555
*55 555
)65 555
)75 555
)-5 555
)*5 555
)55 555
65 555
75 555
-5 555
*5 555
5
,6
48
7,
46
6-
46
)5
-
55
-
)*
*
5,
)
),
6
78
*
43
-*
86
6)
38
76
))
4
68
)
35
8-
)-
*
)3
8
)3
7
*,
-
*)
8
8)
4
*)
3
88
5
**
3
5,
8
),
*
7*
-
)-
8
67
6
)-
8
3-
7
)4
-
7)
)