Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Jón Arnar og Vala verða
í eldlínunni í Vínarborg / B3
Brasilíumenn tefla fram öflugu
liði gegn Íslandi / B1, B4
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Í heimsókn hjá ömmu/B2
Saga bjúgverpilsins/B3
Arne Jacobsen í heila öld/B4
Endurnæring eftir barnsburð/B5
Dómsdagstrú og ragnarök/B6
Auðlesið efni/B8
Sérblöð í dag
AÐALFUNDUR Landssíma Ís-
lands verður haldinn mánudaginn
11. mars nk.
Fundurinn hafði verið boðaður
þriðjudaginn 19. mars en ákveðið var
að flýta honum og var stefnt að
þriðjudeginum 12. mars.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði í umræðum um Símann á Al-
þingi á miðvikudag að hann vildi
beita sér fyrir því að aðalfundur fé-
lagsins yrði haldinn sem fyrst, helst
föstudaginn 8. mars.
Samkvæmt upplýsingum frá Sím-
anum var ekki hægt að koma því við
að halda aðalfund með þetta skömm-
um fyrirvara.
Ákveðið var í gær að aðalfundur
skyldi haldinn mánudaginn 11. mars
kl. 16 á Grand hóteli.
Aðalfund-
ur Símans
11. mars
VÖRÐUR – fulltrúaráð Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík samþykkti
framboðslista flokksins vegna borg-
arstjórnarkosninganna á fjölmenn-
um fundi í Valhöll í gærkvöldi. Var
tillaga kjörnefndar um skipan full-
trúa í þrjátíu sæti framboðslistans
samþykkt samhljóða. Björn Bjarna-
son, fráfarandi menntamálaráð-
herra, er í efsta sæti listans en á list-
anum eru fjórtán konur og sextán
karlmenn.
Ekki gert með neinum
illindum eða rógi
Davíð Oddsson forsætisráðherra
og Björn Bjarnason ávörpuðu full-
trúaráðsmenn á fundinum og sögðu
framboðslistann sigurstranglegan
en gagnrýndu báðir Reykjavíkurlist-
ann harðlega. Davíð sagði sjálfstæð-
ismenn eiga Reykvíkingum þá skuld
að gjalda að koma borginni úr hönd-
um R-listans. Í kosningabaráttunni
yrðu verk R-listans afhjúpuð og öll-
um yrði gert ljóst með hvaða hætti
fulltrúar R-listans hefðu stjórnað.
„Það verður ekki gert með neinum
illindum eða rógi, heldur þannig að
verk þeirra verða dregin fram í
dagsljósið,“ sagði Davíð.
Sagði hann að sjálfstæðismenn
myndu fyrst og síðast leggja áherslu
á að sýna með hvaða hætti Sjálfstæð-
isflokkurinn ætlaði að koma nýju lífi,
krafti og nýjum framfaramálum
fram í höfuðborginni, þannig að kjör-
dagurinn, 25. maí nk., yrði sigurdag-
ur fyrir Reykvíkinga. „Við munum
standa þannig að málum að við mun-
um líta glaðan dag 26. maí næstkom-
andi. Við heitum því sjálfstæðis-
menn,“ sagði Davíð í lok ræðu
sinnar.
Davíð sagði í samtali við Morgun-
blaðið að sér litist mjög vel á fram-
boðslista sjálfstæðismanna. „Hann
er fjölbreyttur og byggður á góðri
reynslu annars vegar og svo eru
margir nýir að leggja fram krafta
sína,“ sagði Davíð. „Ég er ánægður
og stoltur af þessum lista og veit að
nái hann meirihluta – sem ég vona að
gerist borgarinnar vegna – þá er
komin öflug stjórn um borgina á nýj-
an leik, sem er afar æskilegt,“ sagði
Davíð.
Endurspeglum það besta
í samfélaginu í Reykjavík
„Það hefur verið mikill einhugur
um listann, eins og hefur verið í öll-
um okkar kosningaundirbúningi,
þannig að þessi fjölmenni fundur og
sá einhugur sem hér ríkti staðfestir
að þessi listi er mjög vel valinn af
kjörnefndinni.
Það hefur tekist vel að finna þann
samnefnara sem við viljum hafa í
okkar kosningabaráttu til að hún
verði árangursrík,“ sagði Björn í
samtali við Morgunblaðið.
Björn sagði að á listanum væri
m.a. að finna ungt fólk og fólk með
margvíslega reynslu, sem kæmi úr
ólíkum áttum. „Ég er sannfærður
um að þegar við leggjum saman
krafta okkar og förum að vinna að
úrlausn mála endurspeglum við
mjög vel það besta í samfélaginu í
Reykjavík,“ sagði Björn.
Davíð Oddsson ávarpaði fund fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Verk R-listans verði afhjúp-
uð í kosningabaráttunni
Morgunblaðið/Sverrir
Björn Bjarnason, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Guðrún Ebba Ólafsdóttir og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ræðast
við á fundi Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Valhöll í gærkvöldi. Þau skipa fjögur efstu sætin á fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor.
ÚTIHÚS og hlaða gjöreyðilögðust í
bruna á Máskeldu í Saurbæ, um
fjörutíu kílómetra frá Búðardal, í
gær. Átján hross brunnu inni.
Að sögn lögreglu er um eyðibýli að
ræða en útihúsin eru nýtt frá öðrum
bæ. Segir lögregla aðstæður hafa
verið ágætar til slökkvistarfsins þar
sem stillt var og lítil snjókoma. Hins
vegar hafi verið erfitt að eiga við eld-
inn þar sem mikill eldsmatur hafi
verið í heyi sem var í húsunum. Úti-
húsin voru gömul, slegið upp með
timbri og klædd með bárujárni, en
hlaðan uppsteypt. Eftir að vatn var
búið á slökkvibílunum þurfti að grípa
til þess ráðs að brjóta ís á ánni
Hvolsá og sækja vatn þangað.
Tilkynnt var um eldinn þegar
klukkan var tuttugu mínútur gengin
í tíu í gærkvöldi og stóð slökkvistarf
enn þegar Morgunblaðið fór í prent-
un. Ekki er vitað um eldsupptök.
Átján hross
brunnu inni
BJÖRN Bjarnason mun láta af emb-
ætti menntamálaráðherra á rík-
isráðsfundi á Bessastöðum, sem
haldinn verður fyrir hádegi á
morgun.
Davíð Oddsson, forsætisráðherra
og formaður Sjálfstæðisflokksins,
segir að afráðið verði á þingflokks-
fundi Sjálfstæðisflokksins í dag
hver muni taka við embætti
menntamálaráðherra af Birni.
Ekki frekari breytingar í
ríkisstjórn að þessu sinni
Davíð segir þingflokk sjálfstæð-
ismanna koma saman kl. 13.30 í dag
til að ráða ráðum sínum og ráð-
herraskiptin muni svo fara fram á
ríkisráðsfundi sem boðaður hefur
verið kl. 11.15 á morgun. Þar muni
nýr ráðherra taka við embætti
menntamálaráðherra.
Spurður hvort gerðar verði frek-
ari breytingar í ríkisstjórninni
sagði Davíð svo ekki verða að þessu
sinni. „Það verður eingöngu þessi
breyting,“ svaraði Davíð.
Björn mun sitja áfram á Alþingi
Björn hefur gegnt embætti
menntamálaráðherra í tæp sjö ár
og segir það leggjast mjög vel í sig
að snúa sér að borgarmálunum.
Hann ætli nú að helga sig kosninga-
baráttunni eftir að hann hefur látið
af ráðherraembætti. „Ég mun gera
það inn á við og út á við og leggja
mig allan fram um að ná þeim
árangri sem við stefnum að,“ sagði
Björn.
Björn var spurður hvort hann
væri alfarinn úr stjórnarráðinu og
sagði hann svo vera. „Ég verð
áfram á Alþingi en ég segi af mér
ráðherrastörfunum,“ sagði Björn.
Ráðherra-
skipti fara
fram á rík-
isráðsfundi
á morgun
EFTIRTALDIR munu skipa fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins
vegna borgarstjórnarkosninganna í
Reykjavík í vor en listinn var sam-
þykktur á fundi Varðar – full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík í gærkvöldi:
1. Björn Bjarnason,
menntamálaráðherra.
2. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
borgarfulltrúi.
3. Guðrún Ebba Ólafsdóttir,
formaður Félags grunnskóla-
kennara.
4. Hanna Birna Kristjánsdóttir,
stjórnmálafræðingur.
5. Guðlaugur Þór Þórðarson,
borgarfulltrúi.
6. Kjartan Magnússon,
borgarfulltrúi.
7. Gísli Marteinn Baldursson,
fréttamaður.
8. Inga Jóna Þórðardóttir,
borgarfulltrúi.
9. Margrét Einarsdóttir,
laganemi.
10. Jórunn Frímannsdóttir,
hjúkrunarfræðingur.
11. Kristján Guðmundsson,
trésmiður.
12. Alda Sigurðardóttir,
fræðslufulltrúi VR.
13. Benedikt Geirsson,
framkvæmdastjóri.
14. Marta Guðjónsdóttir, ritstjóri.
15. Tinna Traustadóttir,
lyfjafræðingur.
16. Rúnar Freyr Gíslason, leikari.
17. Bolli Thoroddsen,
menntaskólanemi.
18. Ívar Andersen,
verslunarmaður.
19. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
verkefnisstjóri.
20. Margrét Kr. Sigurðardóttir,
viðskiptafræðingur.
21. Elva Dögg Melsteð,
háskólanemi.
22. Óskar V. Friðriksson,
fyrrv. fulltrúi.
23. Jónas Bjarnason,
efnaverkfræðingur.
24. Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir, prófessor.
25. Baldvin Tryggvason,
fyrrv. sparisjóðsstjóri.
26. Ólafur B. Thors, forstjóri.
27. Elín Pálmadóttir, blaðamaður.
28. Magnús L. Sveinsson,
formaður VR.
29. Hulda Valtýsdóttir,
blaðamaður.
30. Davíð Oddsson,
forsætisráðherra.
Framboðslisti sjálfstæðis-
manna í Reykjavík