Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 55
NÁMSKEIÐ Skipulags og skjala ehf.
„Skjalastjórnun með ISO-staðli“
verður haldið 20. og 21. mars nk. eftir
hádegi (miðvikudag og fimmtudag).
Alþjóðlegur staðall um skjalastjórnun
ISO-15489 er nýkominn út, en er þeg-
ar orðinn hjálpartæki þeirra sem vilja
njóta góðs af bættu skipulagi skjala á
vinnustað, segir í fréttatilkynningu.
Námskeiðið er öllum opið en er
ekki síst ætlað skjalastjórum fyrir-
tækja eða öðrum sem bera ábyrgð á
vistun pappírsskjala eða rafrænu
vinnustaðasafni. Mælt er þó með að
fólk hafi fyrst sótt námskeiðið „Inn-
gangur að skjalastjórnun“ sem
Skipulag og skjöl ehf. halda reglu-
lega. Í námskeiðinu er rædd upp-
bygging ISO-15489, lítillega farið í
sögu hans og tengsl við aðra staðla.
Einstaka kröfur staðalsins verða
ræddar sérstaklega með dæmum af
íslenskum vinnustöðum. Fólki verður
leiðbeint um hvernig best er að upp-
fylla þessar kröfur. Sýnt verður
stjórnunarmyndband um skjalaáætl-
anir á vinnustað. Kennt er í úrvals
húsnæði með tölvuskjávarpa. Kaffi og
meðlæti báða dagana er innfalið í
námskeiðsgjaldi. Námskeiðsgjald er
kr. 25.000. Sjá nánar heimasíðuna:
www.skjalastjornun.is. Námskeiðs-
skráning er hjá Skipulagi og skjölum
ehf. Sjá einnig: www.skjalastjornun.is
Skjalastjórnun
með ISO-staðli
UMFERÐARRÁÐ og Frumherji hf.
hafa skrifað undir samning til þriggja
ára um að Frumherji hf. annist fram-
kvæmd skriflegra og verklegra öku-
prófa á öllu landinu frá og með 1. apríl
næstkomandi.
Í október á síðasta ári ákvað stjórn
Umferðarráðs að auglýsa eftir áhuga-
sömum aðilum til að annast fram-
kvæmd skriflegra og verklegra öku-
prófa á landinu öllu. Frumherji hf.
reyndist sá aðili sem að mati sérstakr-
ar matsnefndar var talinn hæfastur til
verksins og ákvað stjórn Umferðar-
ráðs að ganga til samninga við félagið.
Samningurinn gerir m.a ráð fyrir
að Frumherji hf. muni bjóða fastráðn-
um prófdómurum sem eru í starfi hjá
Umferðarráði starf hjá Frumherja hf.
og að prófstöðum muni ekki fækka frá
því sem nú er. Með samningnum mun
Frumherji hf. nota skoðunarstöðvar
sínar um allt land sem prófstaði, en
félagið rekur stöðvar á 28 stöðum á
landinu.
Ökunámsdeild Umferðarráðs mun
eftir sem áður hafa yfirstjórn með
ökuprófum, þ.m.t. samningu prófa,
eftirliti með framkvæmd ökuprófa,
eftirliti með ökukennslu ásamt rann-
sóknum á ökuprófum og niðurstöðum
þeirra, segir í fréttatilkynningu.
Umferðarráð semur um
framkvæmd ökuprófa
T I LBODIN GILDA Í ÖLLUM
VERSLUNUM OKKAR
FL ÍSPEYSUR
2990
ULLARPEYSUR
1990
TREFLAR
1490
FERMINGARFÖT
13990
SMÁRALIND S ÍMI 565-9730
LAUGAVEGI S ÍMI 562-9730
KRINGLUNNI S ÍMI 568-0800
AKUREYRI S ÍMI 462-7800
Misritun á nafni
Rangt var farið með nafn Hreins
Stefánssonar lífefnafræðings hjá Ís-
lenskri erfðagreiningu í frétt í Morg-
unblaðinu í gær um legslímuflakk.
Vegna mistaka var Hreinn kallaður
Reynir í fréttinni. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT