Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 59 DAGBÓK Garðatorgi, sími 565 6550 Nýkomnar blússur, bolir og buxur Opið alla daga frá kl. 10 til 19 – einnig um helgar. Öllum fyrirspurnum verður svarað. Reykjavík: Perlan, sími 562 9701. Akureyri: Hafnarstræti 91-93, 2. hæð, símar 461 5050 og 861 1780. Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda 1.-3. mars FRÉTTIR Árnað heilla STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake FISKAR Afmælisbörn dagsins: Þú ert ungur í anda og öðr- um líkar vel við þig vegna þess hve auðvelt er að gera þér til hæfis. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú hefur þörf fyrir að kaupa einhvern hlut sem er einung- is ætlaður þér. Láttu slag standa ef þú hefur efni á þessum hlut, því þú hefur mikla þörf fyrir að láta á þér bera. Naut (20. apríl - 20. maí)  Reyndu að hefja líkamsrækt eða stunda afþreyingu þar sem mikils úthalds er krafist því þú býrð yfir mikilli orku. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Einhver öfundar þig og verk þín. Þú skalt vara þig á því að treysta einhverjum sem þú hefur illan bifur á. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú skalt búa þig undir að geta átt stund með vinum þínum. Samvera í slíkum fé- lagsskap mun vafalaust veita þér mikla gleði. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ert einstaklega metnaðar- gjarn í dag. Þú vilt fram- kvæma eitthvað og ekkert getur staðið í vegi þínum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú fyllist óslökkvandi löngun til þess að öðlast nýja lífs- reynslu. Þú gætir heimsótt söfn, bókasöfn, bókaverslan- ir, framandi veitingastaði og staði sem eru ekki í alfaraleið til þess að koma til móts við þessar þarfir. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú fyllist ástríðu í garð ein- hvers sem er þér nákominn. Reyndu að heimsækja ein- hvern ef þú hefur tækifæri til þess. Ef það gengur ekki upp skaltu skaltu lesa rómantíska sögu eða horfa á rómantíska kvikmynd. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú getur átt von á spennu í samskiptum þínum og náins vinar. Spennan gæti magnast því hvorugur er tilbúinn til þess að miðla málum. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú sinnir starfi þínu af kost- gæfni í dag. Samstarfsfélag- ar þínir verða undrandi hversu afkastamikill þú ert. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Nýttu tækifærið til þess að skemmta þér. Dagurinn í dag er kjörinn til þess, hvort sem það eru teiti, rómantísk stund eða skemmtileg dægrastytting. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Ringulreið og óreiða ríkir á heimili þínu í dag. Viðgerðir, endurskipulagningar, þrif eða gestagangur sýnir fram á hversu fjölskyldan þín er at- hafnasöm. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú ert ánægður og fullur af krafti. Enginn getur staðist tillögur þínar, skiptir þá engu máli á hvaða sviði um ræðir. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. HINN mikilvirki bridspenni Eric Kokish lá lengi yfir spil- um NS í von um að finna ein- hverja skynsamlega leið til að komast í sjö hjörtu í eðli- legu kerfi. Hann gafst upp með þeim orðum að gott væri að ná hálfslemmu: Norður gefur; allir á hættu. Norður ♠ K9 ♥ 7543 ♦ D10 ♣98765 Vestur Austur ♠ G1073 ♠ D64 ♥ 6 ♥ 98 ♦ G97 ♦ 65432 ♣KD1043 ♣ÁG2 Suður ♠ Á852 ♥ ÁKDG102 ♦ ÁK8 ♣-- Spilið kom upp í undanúr- slitum NEC-bikarsins í Jap- an og var því spilað á fjórum borðum. Tvö pör spiluðu hálfslemmu, eitt par fjögur hjörtu, en Norðmennirnir Glenn Grötheim og Terje Aa leystu vandann fullkomlega með sínu sérnorska Víkinga- laufi, sem Grötheim er höf- undur að. Kerfið er byggt á spurnarsögnum, þar sem annar aðilinn tekur völdin og spyr hinn í þaula. Hér eru sagnir þeirra félaga: Vestur Norður Austur Suður -- Pass Pass 1 lauf (1) Pass 1 tígull (2) Pass 1 hjarta (3) Pass 2 hjörtu (4) Pass 2 spaðar (5) Pass 3 lauf (6) Pass 3 tíglar (7) Pass 3 spaðar (8) Pass 4 lauf (9) Pass 4 hjörtu (10) Pass 4 spaðar (11) Pass 4 grönd (12) Pass 5 spaðar (13) Pass 6 hjörtu (14) Pass 7 hjörtu Pass Pass Pass Skýringar: 16+ punktar. (2) Afmelding, 0-8 punkt- ar. (3) 20+ punktar. (4) 5-8 punktar, a.m.k. 5- litur í laufi með 4-lit til hliðar. (5) Spurning um fjórlit- inn. (6) Fjórlitur í hjarta. (7) Spurning um skipt- ingu. (8) 2-4-2-5. (9) Spurning um ása. (10) Enginn ás. (11) Spurning um kónga. (12) Einn kóngur. (13) „Hvar er kóngurinn?“ (14) „Í spaða.“ BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 90 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 1. mars, er níræð Fanney Daníels- dóttir, Túngötu 4, Húsavík. 60ÁRA afmæli. Sextug-ur er í dag, 1. mars, Eyjólfur Magnússon Schev- ing kennari, Skeiðarvogi 23, Reykjavík. Hann er að heiman. Veislan verður til- kynnt síðar. LJÓÐABROT STÖKUR Yggjar sjó ég út á legg uggandi um Dvalins kugg, hyggju dugur dvínar segg, duggan þegar fer á rugg. Griðkuríma 1. e4 d5 2. exd5 Rf6 3. Bc4 Rxd5 4. Rf3 Bg4 5. b3 e6 6. Bb2 Rf6 7. Rc3 Be7 8. h3 Bh5 9. g4 Bg6 10. Rh4 c6 11. Rxg6 hxg6 12. Df3 Dc7 13. O-O-O Rbd7 14. d4 Rb6 15. Bd3 O-O-O 16. Re4 Rbd5 17. Kb1 Da5 18. g5 Rxe4 19. Bxe4 Hhf8 20. h4 Ba3 21. Ba1 Bb4 22. Hd3 Be7 23. Hdd1 Bb4 24. Hd3 Rc7 25. a4 f5 26. gxf6 Hxf6 27. Dg3 Bd6 28. Dg2 Hdf8 29. Hf1 Staðan kom upp á Norðurlandamótinu í skólaskák sem lauk fyrir skömmu. Marte Egeland hafði svart gegn Rani Tomason. 29... Hxf2! 30. Hxf2 De1+ 31. Ka2 Hxf2 32. Bc3 De2 og hvít- ur gafst upp. Seinni hluti Íslandsmóts skák- félaga hefst í kvöld kl. 20.00 í Brimborgarhúsinu á Bílds- höfða. Allar líkur eru á spennandi keppni þar sem Taflfélagið Hrókurinn og Taflfélag Reykjavíkur munu berjast hatrammlega um meistaratitilinn en Tafl- félagið Hellir fylgir í humátt á eftir og mun blanda sér í baráttuna ef hinum tveim fé- lögunum fatast flugið. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. 60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 1. mars, verður sextugur Sólon R. Sigurðsson, bankastjóri Búnaðarbanka Íslands hf. Sama dag á Sólon 40 ára starfsafmæli í banka. Hann starfaði 21 ár hjá Lands- banka Íslands og hefur nú starfað 19 ár hjá Búnaðar- bankanum, þar af rúm 12 ár sem bankastjóri. Afmælis- barnið og eiginkona hans, Jóna V. Árnadóttir, eru að heiman á afmælisdaginn. GULLBRÚÐKAUP. Í dag, föstudaginn 1. mars, eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Hildegard Þorgeirsson og Haf- steinn Þorgeirsson, til heimilis að Klettahlíð 16, Hvera- gerði. Á þessum tímamótum dvelja þau á heimili dóttur sinn- ar í Stykkishólmi. 50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 1. mars, er fimmtugur Theodór K. Þórðarson, Höfðaholti 8, Borgarnesi. Eiginkona hans er María Erla Geirsdóttir.       FÖSTUDAGINN 1. mars milli kl. 17–19 verður opið hús hjá Íslands- deild Amnesty International í Hafnarstræti 15 í Reykjavík. Tilefnið er að deildin hefur flutt starfsemi sína í nýtt húsnæði. Íslandsdeild Amnesty Internat- ional var stofnuð í september árið 1974 og hefur deildin haldið uppi öflugri baráttu gegn mannrétt- indabrotum. Félagar eru nú rúm- lega þrjúþúsund og byggir deildin starfsemi sína á framlögum þeirra til starfsins, segir í fréttatilkynn- ingu. Opið hús hjá Amnesty ALMENNUR afgreiðslutími verslana og þjónustuaðila í Smáralind breytist frá og með föstudeginum 1. mars. Á virk- um dögum verður opið frá kl. 11–19, á laugardögum frá kl. 11–18 og á sunnudögum frá kl. 13–18. Veitingastaðir eru opnir fram eftir kvöldi eftir sem áður. Nánari upplýsingar veitir Þorvaldur Þorláksson á skrif- stofu í Smáralindar í síma 528- 8000. Nýr af- greiðslutími í Smáralind
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.