Morgunblaðið - 01.03.2002, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 9
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
Baðinnréttingar
V. Fellsmúla • S. 588 7332
Tilboðsverð
Hreinlætistæki!
Frakkar, leðurjakkar,
rúskinnsskyrtur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Léttur
fatnaður
í fríið
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Fákafen), sími 553 0100
Opið laugardag og sunnudag frá kl. 10 -16
RÝMINGARSALA!
Rýmum fyrir nýju vorvörunni - allt á að seljast.
Fjögur verð 1.000 - 3.000 - 5.000 - 6.000 - Frábær kaup
FLYTJIST yfirstjórn Varnarliðsins
hér á landi frá Norfolk í Bandaríkj-
unum til Evrópu mun það hafa
breytingar í för með sér fyrir Ís-
lendinga, að mati Halldórs Ás-
grímssonar utanríkisráðherra.
Hann segir í samtali við Morgun-
blaðið að jafnframt sé óljóst hvaða
breytingar það yrðu nákvæmlega,
of snemmt sé að segja til um það.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær greindi Halldór frá
þessum hugmyndum Bandaríkja-
manna í erindi sem hann flutti í
Viðskiptaháskólanum á Bifröst á
miðvikudag.
„Á þessu stigi treysti ég mér
ekki til að tjá mig frekar um þýð-
ingu þessara áforma fyrir okkur.
Við fylgjumst mjög náið með mál-
inu.
Því er ekki að neita
að við höfum vissar
áhyggjur af því að það
myndist Evrópustoð og
Ameríkustoð í Atlants-
hafssamstarfinu. Þar af
leiðandi teljum við að
það þurfi að ganga
fram af mikilli vand-
virkni í málinu. Við ger-
um okkur hins vegar
ljóst að atburðirnir 11.
september hafa breytt
miklu og kallað fram
nýja hugsun í öryggis-
og varnarmálum sem
ekki hefur verið séð
fyrir endann á,“ segir
Halldór.
Hann segir að mikilvægast sé af
öllu að varðveita tengslin við Atl-
antshafsbandalagið, NATO. Ísland
sé mikilvægur hlekkur í þeim efn-
um og á það muni stjórnvöld leggja
ríka áherslu í þeim sjónarmiðum
sem fram verða sett.
Nýtt skipulag með meiri
áherslu á heimavarnir
Utanríkisráðherra segir ennfrem-
ur að miklar umræður eigi sér stað
í Bandaríkjunum um endurskipu-
lagningu varnarkerfisins, í kjölfar
hryðjuverkanna 11. september sl.
„Það liggur ljóst fyrir að í hinu
nýja skipulagi verður lögð enn
meiri áhersla á það sem kallaðar
eru heimavarnir, sem munu njóta
mikils forgangs í varnarkefinu. Það
hefur áhrif á skipulagið gagnvart
Evrópu og öðrum svæðum og uppi
eru tillögur um slíkar breytingar.
Þessari umræðu er hins vegar ekki
lokið og nú á sér stað samráð meðal
annars á vettvangi Atlantshafs-
bandalagsins,“ segir
Halldór.
Aðspurður hver
séu helstu rök Banda-
ríkjamanna fyrir því
að flytja yfirstjórnina
frá Norfolk til Evr-
ópu segir Halldór
málið fyrst og fremst
ganga út á samræm-
ingu öryggis- og
varnarmála með nýj-
um hætti. Leggja eigi
aukinn þunga á
heimavarnarkerfi
Bandaríkjanna.
„Ég minni bara á
að engar endanlegar
ákvarðanir hafa verið teknar í mál-
inu. Uppi eru margvíslegar skoð-
anir, bæði innan og utan Bandaríkj-
anna, og engin ein skoðun þar
ráðandi. Á meðan málið er á því
stigi er ekki hægt að segja fyrir um
niðurstöðuna.“
Óljóst hvenær viðræður
hefjast um bókun við
varnarsamninginn
Aðspurður segir utanríkisráð-
herra ekkert liggja fyrir um það
hvenær viðræður hefjast við
Bandaríkjamenn um bókun við
varnarsamninginn, sem rann út fyr-
ir tæpu ári. „Við höfum verið í sam-
bandi við stjórnvöld í Bandaríkj-
unum en ekkert liggur ljóst fyrir
um framhaldið,“ segir Halldór og
bætir við að bandarísk stjórnsýsla
hafi verið önnum kafin í öðrum
verkefnum en þessum eftir hryðju-
verkin í haust. Baráttan við hryðju-
verkastarfsemi yfirgnæfi allt annað
og íslensk stjórnvöld hafi á því full-
an skilning.
Hefur breytingu
í för með sér
fyrir Íslendinga
Halldór Ásgrímsson
Utanríkisráðherra um mögulegan flutning yfirstjórnar
Varnarliðsins til Evrópu
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ
hefur sent tæpan tug mála til
efnahagsbrotadeildar ríkislög-
reglustjórans frá því það tók til
starfa og þau hafa öll verið tek-
in til rannsóknar eða verða tek-
in til rannsóknar. Engu máli
hefur verið vísað frá.
Í Morgunblaðinu á miðviku-
dag segir Árni Tómasson,
bankastjóri Búnaðarbankans,
að það hafi gerst nokkuð oft
með Fjármálaeftirlitið að þeir
hafi sent frá sér mál og þau hafi
fengið misjafnar viðtökur.
Jón H. Snorrason, yfirmaður
efnahagsbrotadeildar ríkislög-
reglustjórans, sagði í samtali
við Morgunblaðið að tæpur
tugur mála hefði komið frá
Fjármálaeftirlitinu frá því það
tók til starfa. Afgreiðsla mál-
anna hefði verið með þeim
hætti að ákært hefði verið í
málinu sem fyrst kom. Þá hefði
verið hætt rannsókn í máli sem
varðaði Búnaðarbankann,
þ.e.a.s. hvað varðaði banka-
stjórana og bankann sjálfan af
ástæðu sem hann hefði gert
rækilega grein fyrir í bréfi.
Önnur mál hefðu verið tekin til
rannsóknar. Annaðhvort hefði
rannsókn hafist eða myndi hefj-
ast, en engu máli hefði verið
vísað frá. Í engu tilviki hefði
niðurstaðan orðið sú að tilkynn-
ing eða kæra væri að tilefnis-
lausu.
Jón sagði að málin sem
kæmu frá Fjármálaeftirlitinu
væru í öllum tilvikum flókin og
tímafrek. Þarna væru á ferð-
inni mál sem vörðuðu grun um
brot eða brotastarfsemi í ann-
ars lögmætri atvinnustarfsemi,
þannig að það segði sig sjálft að
þarna væri löng saga, mikið af
gögnum og flókin atburðarás
sem fara þyrfti yfir.
Efnahagsbrota-
deild ríkislög-
reglustjórans
Tæpur tug-
ur mála frá
Fjármála-
eftirlitinu
SÖFNUNIN Börn hjálpa börnum
2002 hefst í dag, föstudaginn 1.
mars, og stendur til 23. mars. Að
þessu sinni verður safnað fyrir
byggingu El Shaddai-barnaheim-
ilisins á Indlandi og hafa hátt í 100
skólar með nálægt 3.000 börnum
tilkynnt þátttöku í söfnuninni í ár.
Verða börnin sem ganga í hús og
safna framlögum auðkennd með
barmmerkjum og myndskreyttum,
merktum og númeruðum baukum.
Aauk þess munu grunnskólabörn
ganga í hús og safna framlögum í
bauka. Munu tónlistarskólabörn
verða með uppákomur í helstu
verslunarmiðstöðvum og baukar
liggja frammi í bönkum, sparisjóð-
um, pósthúsum og bensínstöðvum.
Í söfnuninni í fyrra söfnuðust um
5,8 milljónir í bauka sem voru not-
aðar til uppbyggingar á Heimili
litlu ljósanna á Indlandi. Fyrir
söfnunarféð voru byggðar tvær
svefnálmur fyrir börnin á heim-
ilinu, skólahús með sex skólastof-
um og komið á fót menntaskóla
fyrir heimilið. Í ár er stefnt að því
að reyna að safna tíu milljónum
króna, en það er áætlaður kostn-
aður við að ljúka byggingu El
Shaddai-barnaheimilisins. Um 140
börn bíða þess við slæmar að-
stæður að nýja húsið, sem er rúm-
lega 1.000 fermetra bygging, verði
tilbúið. Staðan á byggingunni er sú
að steyptur hefur verið grunnur,
burðarsúlur og þak og hafa íslensk
börn safnað fyrir þeim fram-
kvæmdum í fyrri söfnunum, árin
1999 og 2000, auk þess sem hluti af
veggjum hefur verið hlaðinn.
Íslendingar sjá alfarið um að
kosta framfærslu barnanna og
uppbyggingu á El Shaddai-
barnaheimilinu og heitir landið
þar sem heimilið rís Nýja-Ísland.
Um 50 börn af þeim 140 sem bíða
eftir nýja heimilinu eru enn án
stuðnings, en reynt verður að finna
þeim öllum íslenska stuðningsaðila
á næstu vikum. Reikningur söfn-
unarinnar er í Íslandsbanka,
Laugavegi, nr. 515-14-110 000.
Börn hjálpa börnum