Morgunblaðið - 01.03.2002, Side 12
FRÉTTIR
12 FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
blaðamanns sé þar að veði. Ég tel nauðsynlegt
að setja lög sem vernda slíka menn. Það hugsa
nefnilega fleiri eins og núverandi stjórnendur
Landssímans.“ sagði Reynir.
Gagnkvæmt traust blaða-
manns og heimildarmanns
Agnes Bragadóttir, fréttastjóri á Morgun-
blaðinu, sagði mikilvægt að ræða stöðu heimild-
armanna í framhaldi af ákvörðun Landssímans
að segja heimildarmanni DV upp störfum.
„Tengsl blaðamanns og heimildarmanns eiga
alltaf að vera vernduð fyllsta trúnaði. Sá sem
lætur okkur í té upplýsingar í trúnaði og vill
ekki að nafn hans komi fram í tengslum við
heimildir sínar; upplýsingar sem við teljum það
þýðingarmiklar eða merkilegar að þær eigi er-
indi á prent eða í ljósvakann, verður að vera viss
um að hans nafni sem persónu verði algerlega
haldið utan við fréttaumfjöllunina og hann eigi
ekki á hættu að málið springi beinlínis í andlitið
á honum. Það leggur okkur þær skyldur á
herðar að nota heimildirnar sem heimildarmað-
ur lætur okkur í té á afar varfærinn hátt, þannig
að við gerum aldrei neitt eða segjum sem kunni
að leiða til þess að heimildarmaður okkar verði í
uppnámi,“ sagði Agnes.
Agnes rifjaði síðan upp fréttaskýringar sem
hún skrifaði árið 1995 um endalok Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga, en skrifin urðu til þess
að Rannsóknarlögregla ríkisins krafðist þess að
hún upplýsti um heimildarmenn sína. Hún hafn-
aði þeirri kröfu. Héraðsdómur tók undir kröfu
RLR, en Hæstiréttur sneri dómnum við. „Þar
með var staðfestur sá grundvallarréttur blaða-
manna að vernda heimildarmenn okkar, réttur
sem er í lýðræðisríkjum um allan heim. Að mínu
viti var þessi úrskurður Hæstaréttar því mikill
sigur fyrir frjálsa blaðamennsku á Íslandi og í
Í SÍÐUSTU viku sagði Landssíminn upp
starfsmanni sem játaði að hafa veitt DV upplýs-
ingar úr bókhaldskerfi Símans. Hörð viðbrögð
hafa orðið við þessari uppsögn. Blaðamanna-
félag Íslands efndi til fundar í fyrradag um rétt-
indi og stöðu heimildarmanna. Á fundinum voru
frummælendur Reynir Traustason, ritstjórnar-
fulltrúi á DV, Agnes Bragadóttir, fréttastjóri á
Morgunblaðinu, og Þór Jónsson, varafrétta-
stjóri á Stöð 2.
„Að mínu mati eru þetta skilaboð um að upp-
ljóstrarar, sama hvað réttlætanlegar upplýsing-
ar þeir bera á borð, eiga ekki neins staðar að
eiga skjól. Boðskapurinn er að það er ljótt að
segja frá. Verði þessi sjónarmið ofan á í sam-
félaginu mun það valda okkur öllum óbætanleg-
um skaða í framtíðinni,“ sagði Reynir Trausta-
son um uppsögn Halldórs Arnar Egilssonar,
sem var heimildarmaður hans að frétt um við-
skipti Símans við fyrirtæki Friðriks Pálssonar,
stjórnarformanns Landssímans.
Heimildarmenn í lykilhlut-
verki í máli Árna Johnsen
Reynir sagði að heimildarmenn DV meðal
starfsmanna BYKO hefðu gegnt lykilhlutverki
við að upplýsa um hvernig Árni Johnsen, fyrr-
verandi alþingismaður, hefði misfarið með fjár-
muni skattborgaranna. „Ég fullyrði að ef starfs-
menn BYKO hefðu ekki sagt frá þessu væri
þingmaðurinn enn á Alþingi og kannski um það
bil að fá ráðherrastól.
Fyrstu vísbendingar um málið komu frá
starfsmanni BYKO sem sagði að þingmaðurinn
hefði breytt merkingum á byggingarefni fyrir
framan starfsmenn fyrirtækisins. Hann horfði á
þetta gerast og ofbauð,“ sagði Reynir.
Reynir sagði að þessi starfsmaður BYKO
hefði brotið trúnað við fyrirtækið með því að
koma papírum um þessi viðskipti þingmannsins
til DV. Málið væri því sambærilegt við mál Hall-
dórs Arnar Egilssonar sem farið hefði í bókhald
Landssímans til að ná í gögn sem sönnuðu að
fyrirtæki í eigu stjórnarformanns Landssímans
hefði átt viðskipti við Símann.
Reynir sagði að fyrir skömmu hefði DV feng-
ið upplýsingar um að eitthvað væri að í starf-
semi Þjóðmenningarhúss. Blaðið hefði ekki
fengið upplýsingar um hvað hefði gerst heldur
að Ríkisendurskoðun hefði krafið fjölda starfs-
manna hússins um upplýsingar. Í framhaldi af
því hefði DV hafið upplýsingasöfnun sem leiddi
til þess að skrifuð var frétt um málið. Uppljóstr-
arar hefðu því einnig í þessu máli gegnt lyk-
ilhlutverki í því að upplýsa um málið. „Ég er
ekki sannfærður um að stjórnvöld hafi ætlað sér
að upplýsa almenning um málið. Ég get ekki
fullyrt það en ég held að það hafi verið ætlunin
að afgreiða málið í kyrrþey með einhverjum
hætti. Ríkisendurskoðun gerir fjölda úttekta á
málum sem aldrei fara lengra en til viðkomandi
stjórnvalda,“ sagði Reynir.
Reynir sagði að DV hefði átt frumkvæði að
því að hafa samband við Halldór Örn Egilsson,
starfsmann Landssímans, og lagt hefði verið að
honum að nálgast upplýsingar sem sönnuðu
greiðslur til Friðriks Pálssonar stjórnarfor-
manns. „Ég leitaði Halldór uppi og var í nokkr-
ar vikur að sannfæra hann um að það sem hann
vissi ætti erindi við þjóðina.“
Reynir sagði að viðbrögð Landssímans við
fréttum um viðskipti fyrirtækisins hefðu verið
allt önnur en BYKO. Síminn hefði lagt áherslu á
að finna uppljóstrarann. Þegar upplýst hefði
verið um viðskipti Símans við Góðráð ehf. hefði
leitin að uppljóstraranum verið hert. Reynir
sagði að það hefði verið áfall fyrir sig þegar
Halldóri var sagt upp störfum. Hann hefði hins
vegar sjálfur tekið þá ákvörðun að koma fram
undir eigin nafni.
„Niðurstaða mín er sú að þau þrjú mál sem ég
hef rakið væru ekki á vitorði almennings ef
heimildarmenn hefðu ekki staðið sig og þar af
leiðandi gert fjölmiðlum kleift að segja frá þeim.
Það snýr að okkur að standa vörð um heimild-
armennina og sjálfur tel ég að heiður minn sem
reynd trygging fyrir því að við gætum áfram
starfað með eðlilegum hætti að því meginhlut-
verki okkar að miðla upplýsingum til almenn-
ings um hvað eina sem máli skiptir og varðaði
almannahag.“
Agnes sagði að gagnkvæmt traust þyrfti að
ríkja milli heimildarmanns og blaðamanns.
Blaðamaður yrði að hafa traust á sínum heim-
ildarmanni og þar reyndi á reynslu, þekkingu
og dómgreind hans. Blaðamaður þyrfti einnig
að vinna sig upp í það að njóta óskoraðs trausts
heimildarmannsins þannig að heimildarmaður-
inn þyrði að sýna blaðamanninum þann trúnað
sem nauðsynlegur væri. Agnes sagði að allir
blaðamenn lentu í því að reynt væri að misnota
eða afvegaleiða þá af heimildarmanni í þeim til-
gangi að koma höggi á andstæðing eða ljúga sig
út úr vandræðum. Það gerðist hins vegar ekki
nema einu sinni því að þar með hefði viðkom-
andi glatað trausti okkar. En það væri ekki síð-
ur mikilvægt að blaðamaður passaði vel upp á
heimildarmenn sína. Vinnubrögð hans mættu
ekki verða til þess að upp um þá kæmist. Hún
sagðist ekki sjá betur en einhver klaufaskapur
hefði valdið því að upp komst um „litla Lands-
símamanninn“.
Lög sem vernda heimildarmenn
Þór Jónsson, varafréttastjóri á Stöð 2, fjallaði
í erindi sínu m.a. um lög sem setta hafa verið í
öðrum löndum í þeim tilgangi að vernda heim-
ildarmenn. Hann vísaði þar til Bandaríkjanna,
Bretlands og Svíþjóðar.
„Þessi brottrekstur Landssímamannsins
sýnir okkur glögglega að það sé þörf á einhvers
konar heimildavernd. Þetta brýnir okkur í
Blaðamannafélaginu til að gera kröfur um slíka
vernd og að hún nái ekki bara til stjórnsýslu rík-
is og bæja heldur á hún líka að ná til stofnana og
fyrirtækja sem eru í meirihlutaeigu ríksins,“
sagði Þór.
Þór sagði að í Bandaríkjunum færi nú fram
umræða um að gildandi lög um vernd heimild-
armanna yrðu gerð víðtækari. Ástæðan væri
ekki síst Enron-málið. Margir væru þeirrar
skoðunar að lögin ættu líka að ná til starfs-
manna í slíkum fyrirtækjum, en þau næðu í dag
einvörðungu til þeirra sem störfuðu hjá hinu op-
inbera. Rök þeirra sem sett hefðu fram slíkar
hugmyndir væru m.a. þau að ef heimildarmenn
sem byggju yfir upplýsingum um lögbrot eða
misfellur nytu ekki verndar væri hætta á að
fjárfestar töpuðu sparifé sínum og lífeyri.
Þór sagði að í bandarísku lögunum væri sett
sú almenna regla að það væri bannað að leita
heimildarmenn uppi eða að refsa þeim sem
veittu upplýsingar um lög- eða reglugerðarbrot,
valdníðslu, óráðsíu með opinbert fé o.s.frv.
„Hvað átti „litli Landssímamaðurinn“ að
gera? Átti hann að kvarta við Friðrik Pálsson,
eða átti hann að fara ofar og kvarta við Sturlu
Böðvarsson, eða átti hann að fara til Ríkisend-
urskoðunar? En eins og menn vita höfðu þessir
ágætu herrar hringt í Ríkisendurskoðun til að
fá stimpil á þennan gerning. „Litli Landssíma-
maðurinn“ hafði allar ástæður til að vantreysta
þessum yfirmönnum sínum og því kemur hann
máli sínu eðlilega til fjölmiðla,“ sagði Þór.
Sambærileg mál?
Að loknum framsöguerindum urðu nokkrar
umræður á fundinum um hvort eðlismunur væri
á BYKO-málinu og máli Landssímamannsins.
Agnes Bragadóttir taldi að eðlismunur væri á
þessum tveimur málum. Annars vegar hefði
starfsmaður BYKO haft frumkvæði að því að
koma frétt á framfæri við DV, en hins vegar
hefði blaðið átt frumkvæði að því að hvetja
starfsmann Landssímans til ólöglegs athæfis,
þ.e. að brjótast inn í tölvukerfi Símans og rjúfa
þannig trúnað við fyrirtækið. Hún sagðist hins
vegar vera þeirrar skoðunar að stjórnendur
Símans hefðu klúðrað málum og að þeir ættu að
fara frá. En þó að hún væri þeirrar skoðunar að
þessar upplýsingar hefðu átt erindi til almenn-
ings hefði hún efasemdir um aðferðafræðina.
Reynir Traustason mótmælti þessu og sagði
að málin væru af sama toga. Þeir Halldór Örn
hefðu verið sammála um að þarna væri um að
ræða upplýsingar sem almenningur ætti rétt á
að fá. Hann sagði að að í BYKO-málinu hefði
fréttaöflunin einnig byggst á upplýsingum sem
komu úr bókhaldi fyrirtækisins. Munurinn á
málunum fælist fyrst og fremst í því hvernig yf-
irmenn fyrirtækjanna, þ.e. BYKO og Lands-
símans, hefðu tekið á málunum eftir að frétt-
irnar voru birtar.
Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri DV,
sagði að þessi tvö mál væru sambærileg. Blaða-
menn væru á hverjum einasta degi að leitast við
að nálgast sannleikann í hverju máli. Hann
gagnrýndi harðlega framkomu Símans í þessu
máli og skoraði á stjórn Blaðamannafélagsins
að bregðast strax við til að auka vernd heimild-
armanna.
Borgar sig ekki að tjá sig
Herdís Þorgeirsdóttir þjóðréttarfræðingur
sagði að þetta mál hefði tvær hliðar. Í fyrsta lagi
væru blaðamenn verndaðir fyrir því að gefa upp
heimildarmenn. Slík vernd væri til staðar í rétt-
arframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu.
„Vernd uppljóstrara er hins vegar ekki til stað-
ar, en það má leita hennar. Slíkt mál hefur ein-
faldlega ekki komið fyrir dómstólana. Það má
hins vegar túlka lög á þann hátt að þessi vernd
sé til staðar,“ sagði Herdís.
Herdís sagði að stöðugt væri verið að reyna
að senda út það sem hún kallaði „frystiskila-
boð“. „Það er reynt að koma þeim skilaboðum
til fólks að það borgi sig ekki að tjá sig. Fólk veit
aldrei hverjar afleiðingarnar geta orðið.“
Herdís sagði að ef mál „litla Landssíma-
mannsins“ færi fyrir Mannréttindadómstólinn
myndi dómstóllinn spyrja, hvaða lög braut
hann? Einnig yrði spurt, þjónaði brottvikning
mannsins lögmætu markmiði? Var brottvikn-
ingin nauðsynleg í lýðræðislegu samfélagi?
„Réttur almennings til að fá upplýsingar er
grundvallarréttur samkvæmt 73. gr. stjórnar-
skráinnar og samkvæmt 10. gr. mannréttinda-
sáttmála Evrópu,“ sagði Herdís.
Halldór sýndi trúnað og hugrekki
Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamanna-
félags Íslands, sagðist ekki gera greinarmun á
BYKO-málinu og Landssímamálinu. „Starf
blaðamanna er að bera sig eftir fréttum og upp-
lýsa mál. Í máli Landssímamannsins er það
ljóst í mínum huga að hann rauf ekki trúnað við
einn eða neinn. Hann sýndi trúnað. Það er
kjarni málsins. Ég er ósammála fullyrðingum
um að Landssíminn geti ráðið og rekið hvern
sem er. Það er alveg fráleitt að þessi maður
skyldi vera rekinn fyrir að sýna trúnað og sýna
meira siðferðilegt hugrekki en aðrir,“ sagði
Hjálmar.
Fjölmenni á fundi Blaðamannafélags Íslands um réttindi og stöðu heimildarmanna
Heimildarmenn þurfa á
aukinni vernd að halda
Réttindi og staða heimildar-
manna var til umræðu á fundi
Blaðamannafélags Íslands í
fyrrakvöld. Á fundinum kom
fram sú krafa að lög yrðu sett
sem vernduðu heimildarmenn.
Morgunblaðið/Kristinn
Frummælendur á fundinum voru Reynir Traustason, ritstjórnarfulltrúi á DV, Agnes Braga-
dóttir, fréttastjóri á Morgunblaðinu, og Þór Jónsson, varafréttastjóri á Stöð 2. Fundarstjóri
var Arna Schram blaðamaður á Morgunblaðinu. Agnes Bragadóttir er í ræðustól.
Blaðamenn fjölmenntu á fund Blaðamannafélagsins þar sem réttindi og staða heimildar-
manna var til umræðu og voru umræður líflegar að loknum framsöguerindum.