Morgunblaðið - 01.03.2002, Qupperneq 29
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 29
LAGERHREINSUN
á L a u g a v e g i
Ótrúleg
verð
Ekki missa
af þessu
L A U G A V E G I 9 5 - 9 7
DAREEN Abu Aisheh, 21 árs
palestínsk kona, sprengdi sjálfa
sig í loft upp skammt frá ísr-
aelskri varðstöð á Vesturbakk-
anum á miðvikudagskvöldið.
Nokkrir ísraelskir hermenn
særðust. Á þessari mynd er Abu
Aisheh með borða um höfuðið
sem á stendur Izzedine al Qua-
sam-herdeildin, sem er hernaðar-
armur Hamas-samtakanna. Hún
heldur á hníf í annarri hendi en
með hinni sýnir hún merkið „einn“
með vísifingri, sem skírskotar til
guðsins Allah. Abu Aisheh var
nemi í enskum bókmenntum við
Najah-háskóla í bænum Nablus á
Vesturbakkanum. Hún er önnur
palestínska konan sem fremur
sjálfsmorðssprengjuárás síðan Pal-
estínumenn hófu uppreisn gegn
hersetu Ísraela í september 2000.
AP
Sprengdi sig í loft upp
KENNETH Lay og Jeffrey Skill-
ing, fyrrverandi yfirmenn banda-
ríska orkusölufyrirtækisns Enron,
æfðu starfsfólk fyrirtækisins í að
líta út fyrir að hafa mikið að gera,
í von um að sannfæra fulltrúa fjár-
málafyrirtækja á Wall Street um
að mikil starfsemi færi fram í
orkusöludeild Enron. Þetta kom
m.a. fram í viðtali Reuters-frétta-
stofunnar við fyrrverandi yfir-
mann orkusöludeildarinnar, og
breska ríkisútvarpið, BBC, greindi
frá.
Enron varð gjaldþrota í desem-
ber sl., en var eitt sinn meðal
stærstu orkufyrirtækja í heimin-
um. Verið er að rannsaka kring-
umstæður gjaldþrotsins og eru
fyrrverandi yfirmenn Enron, þ. á
m. Lay og Skilling, grunaðir um
að hafa falið stórfellt tap og villt
þannig um fyrir fjárfestum.
Fyrir fjórum árum reisti Enron
stjórnstöð fyrir orkusöludeildina,
Enron Energy Services (EES), og
þegar fulltrúar fyrirtækjanna á
Wall Street komu til Houston, þar
sem aðalstöðvar Enron eru, var
starfsfólkinu í stjórnstöð EES
gert að þykjast vera upptekið við
að ná samningum og ræða við við-
skiptavini, að því er Joseph Phel-
an, fyrrverandi framkvæmdastjóri
EES, tjáði Reuters.
Þetta mun ekki vera í fyrsta
sinn sem fyrrverandi
starfsmenn Enron greina
frá því að þeim hafi verið
gert að þykjast uppteknir
í vinnu þegar gestir komu
í háhýsi Enron í miðborg
Houston. Svo fór, að EES
skilaði miklum hagnaði,
en þegar þetta var, 1998,
voru starfsmenn deildar-
innar aðeins örfáir og við-
skiptavinirnir lítið fleiri.
Hugmyndin var, að EES
myndi taka að sér, fyrir
fast gjald, að sjá um að
orkuþörf stórfyrirtækja
væri uppfyllt. Voru þessi
viðskipti talin lofa góðu.
Phelan sagði að starfs-
fólk hefði verið flutt af
öðrum hæðum í höfuðstöðvunum
og inn í stjórnstöð EES. Símhring-
ingar þangað inn voru skipulagðar
til að láta líta út fyrir að mikið
væri á seyði. Allt var þetta svið-
sett af mikilli kostgæfni til þess að
útsendurum Wall Street sýndist líf
vera í tuskunum.
Yfirmenn Enron svið-
settu mikil viðskipti
Fyrrverandi yfirframkvæmdastjóri Enr-
on, Jeffrey Skilling, er sagður hafa kennt
starfsfólki að þykjast upptekið við vinnu.
AP
ALRÍKISDÓMSTÓLL í Banda-
ríkjunum hefur komist að þeirri
niðurstöðu að orkumálaráðuneyt-
inu beri að láta af hendi 7.500 blað-
síður af gögnum er tengjast störf-
um sérstaks verkefnishóps sem
Dick Cheney varaforseti stjórnar.
Úrskurður dómstólsins gæti leitt
til þess að í fyrsta sinn yrðu op-
inberaðar nákvæmar upplýsingar
um áhrif yfirmanna í orkuiðnaðin-
um og ýmissa annarra aðila á
stefnu stjórnar Georges W. Bush
forseta í orkumálum.
Samkvæmt dómnum, sem kveð-
inn var upp á miðvikudaginn, ber
orkuráðuneytinu að afhenda fyrir
25. mars gögn um
tengsl fjölda ráðuneyt-
isstarfsmanna, sem
voru í verkefnishópi
Cheneys, við utanað-
komandi aðila. Úr-
skurður dómstólsins
kom í kjölfar máls-
höfðunar náttúru-
verndarsamtakanna
Natural Rescources
Defense Council
(NRDC) og tengist
ekki málshöfðun alrík-
isendurskoðunar
Bandaríkjanna á hend-
ur Cheney. Krefst
skrifstofa alríkisend-
urskoðunar upplýs-
inga um tengsl utan-
aðkomandi aðila og
embættismanna í öll-
um ráðuneytum og í
Hvíta húsinu er voru
í verkefnishópnum.
Umhverfisvernd-
arsamtökin lögsóttu
orkuráðuneytið, því
að þeim er lögum
samkvæmt ekki
heimilt að höfða mál
á hendur Hvíta hús-
inu. Orkuráðuneytið
hefur þegar afhent
alríkisendurskoðuninni sum af
þeim gögnum sem NRDC fer fram
á, en endurskoðunarskrifstofan
hefur ekki gert þau opinber.
Fulltrúi ráðuneytisins segir að far-
ið verði að dómsúrskurðinum.
Náttúruverndarsamtökin telja
að umbeðin gögn muni sýna fram á,
að fulltrúar ríkisstjórnar Bush hafi
átt leynilega fundi með fulltrúum
orkuiðnaðarins. Komi í ljós að svo
hafi verið, segir lögmaður samtak-
anna, hefur stjórnin brotið lög sem
kveði á um að slíkir fundir skuli
vera opnir almenningi og nákvæm-
lega skuli skrá allt sem fer fram á
þeim.
Dómstóll í Bandaríkjunum úrskurðar í máli verkefnishóps Dicks Cheneys
Orkuráðuneytinu gert að birta gögn
The Washington Post.
Dick Cheney
EITT barn lét lífið og 30 önnur særð-
ust í gær þegar sprengju var skotið á
barnaskóla í bænum Sarobi, vestan
við Kabúl. Afganskir embættismenn
kenndu talibönum og liðsmönnum al-
Qaeda, samtaka Osama bin Ladens,
um árásina.
Bærinn er undir stjórn stríðsherra,
sem studdi talibana en gekk til liðs við
Norðursambandið þegar það náði Ka-
búl á sitt vald í nóvember.
Fórnarlömb árásarinnar voru á
aldrinum 11-13 ára. Embættismaður í
afganska innanríkisráðuneytinu sagði
að ekki væri vitað hverjir skutu að
skólanum en benti á að talibanar og
liðsmenn al-Qaeda vildu grafa undan
afgönsku bráðabirgðastjórninni. Þeir
lægju því undir grun.
Árás á
barnaskóla
Kabúl. AP.