Morgunblaðið - 01.03.2002, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 35
mmtíu til
krifast á
gir að hér
lögfræð-
da en að-
einu eða
séu fleiri
íbúatölu.
deila um
of margir
menntaðir
margir. Í
einar séu
hlutfalls-
sem eru
ísinda og
ða hvort
háskóla-
áherslu á
þótt allir
lögfræði-
lum við
m, stjórn-
og fleiri
ppi skór-
en ekki
til hefð-
fa. „En
óða. Hún
afnréttis-
sari ráð-
okkar af
umræður
lögfræð-
tjórnvöld
rir hvert
taumana
a tíu pró-
veir lekt-
ð stunda-
son segir
nn í sam-
víða um
vera fleiri
að sinna
því breiða sviði sem deildinni er
ætlað að sinna. Það væri ekkert
launungarmál að vegna fjárskorts
hefði ekki verið hægt að veita
kennurum og nemendum þá þjón-
ustu sem vilji væri til að veita. Þótt
launakjör hefðu batnað væru laun
stundakennara ekki nógu góð og
æskilegt væri að bæta þau kjör.
Með aukinni samkeppni væri ekki
síst mikilvægt að geta boðið kenn-
urum sómasamleg kjör, því ekki
væri hægt að ætlast til að menn
tækju þessi störf að sér af hugsjón
einni saman. „En við höfum verið
lánsöm og haft mjög hæfa kenn-
ara.“
Erindi og
umræðuhópar
Páll Sigurðsson, forseti laga-
deildar, setur ráðstefnuna, en síð-
an flytur Vagn Greve erindi sitt.
Að því loknu flytur Eiríkur Tóm-
asson erindið Lagadeild á tíma-
mótum. Hvernig er deildin í stakk
búin til að mæta þeim kröfum sem
gerðar eru til hennar í upphafi
nýrrar aldar? Því næst flytja
Gunnlaugur Claessen hæstaréttar-
dómari, Lára V. Júl-
íusdóttir hæstaréttar-
lögmaður og Óttar
Pálsson héraðsdóms-
lögmaður stutt erindi
en að þeim loknum fara
þátttakendur í um-
ræðuhópa og loks verður greint frá
niðurstöðum hópanna. Ráðstefnu-
stjóri verður Jakob R. Möller
hæstaréttarlögmaður.
Ráðstefnan nefnist Laganám í
upphafi nýrrar aldar, lagadeild
Háskóla Íslands á tímamótum og
heldur lagadeildin hana í samvinnu
við Hollvinafélag lagadeildar,
Dómarafélag Íslands, Lögfræð-
ingafélag Íslands, Lögmannafélag
Íslands og Orator, félag laganema,
en hún hefst kl. 14 í Lögbergi, húsi
lagadeildar.
pphafi nýrrar aldar
Morgunblaðið/Kristinn
áskóli Íslands, lagadeild.
steg@mbl.is
Erindi um
tilhögun
laganáms í
Danmörku
TORGNY Peterson, fram-kvæmdastjóri evrópskusamtakanna ECAD(European Cities
Against Drugs), sem heldur fyr-
irlestur á ráðstefnu á vegum
áætlunarinnar Íslands án eitur-
lyfja sem haldin verður á Grand
hóteli í dag, segir ekki annað fært
í baráttunni við fíkniefnavandann
en að taka höndum saman á al-
þjóðlega vísu og berjast þannig
gegn vandanum. Hann segir sum-
ar þjóðir hafa gefist upp í þessari
baráttu og bendir á mikilvægi
þess að veita skynsamlega
fræðslu í stað þess að vera með
hræðsluáróður gegn fíkniefnum.
Peterson heldur á ráðstefnunni
fyrirlestur um mikilvægi alþjóð-
legrar samvinnu gegn fíkniefna-
vandanum og fullyrðir í samtali
við Morgunblaðið að óvíða í heim-
inum sé eins mikil alvara á bak
við mótstöðu gegn vandanum og
hér á landi. Hann telur sig vel
kunnugan málum hér á landi eftir
á annan tug heimsókna hingað.
„Það verður að segjast eins og
er að ég er mjög hrifinn af því
hvernig er haldið á málum hér á
landi,“ segir hann. „Þetta er lítið
land og ef við skoðum þann tíma
og fé sem lagt er í þessa baráttu
myndi ég telja þetta eitt alvarleg-
asta átakið sem nokkurt land hef-
ur staðið fyrir á þessu sviði. Þeir
sem hafa tekið þátt í þessu ættu
því að vera mjög stoltir.“
En er unnt að losa ríki undan
fíkniefnavandanum? Í svari hans
felst að það væri mikil bjartsýni
að tala um fíkniefnalaust Ísland,
en hins vegar felst mikill áhrifa-
máttur í því að halda slíku fram
af alvöru.
Ekki hægt að frelsa neitt
ríki undan fíkniefnum
„Sennilega mun hvergi verða
hægt að frelsa ríki undan fíkni-
efnunum en með því að upplýsa
almenning um markmiðin er að
minnsta kosti hægt að vísa veginn
að þeim. Það er hægt að útskýra
fyrir fólki að fíkniefni verði ekki
viðurkennd í samfélaginu, jafnvel
þótt þau séu til staðar. En ef við
eigum að ná árangri í baráttunni
gegn vandanum í hinum mismun-
andi löndum verður að nota sömu
hugmyndafræði án landamæra.“
Peterson leggur áherslu á sam-
ræmingu í lagasetningu milli
landa og útskýrir það með dæmi.
„Ef einhver er tekinn hér á landi
með 1 kg af amfetamíni ætti við-
komandi að fá svipaða refsingu og
hvar sem er annars staðar. Lönd
með slaka löggjöf draga til sín
fólk í fíkniefnum og það sést vel í
Hollandi í dag. Þar er hægt að
fara inn á sölustaði og kaupa
fimm grömm af kannabis, reykja
efnið og blása reyknum framan í
lögregluþjón án þess að nokkuð
gerist.“
Peterson bendir á glænýja árs-
skýrslu INCB (International
Narcotic Control Board), sem er
umboðsstofnun Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunarinnar (WHO), en í
skýrslunni er óvenjusterkt tekið
til orða um ástand mála og því
haldið fram að lögleiðing kannab-
isefna yrði söguleg mistök. „Þetta
er mjög sterk yfirlýsing og sögu-
leg að mínu mati. Aldrei hefur
nefndin sett fram jafnafdráttar-
lausa yfirlýsingu,“ segir hann.
Peterson bendir á mikilvægi
skynsamlegrar fræðslu um fíkni-
efni og að ná þurfi til unga fólks-
ins og foreldra þess. Þó fari það
eftir menningu hvers ríkis hvern-
ig farið sé að. „En grunnhug-
myndin að því að fyrirbyggja
fíkniefnanotkun er að ná til unga
fólksins, tala við foreldra þess og
gefa skýr skilaboð. Ég trúi ekki á
hræðsluáróður eins og að halda
því fram við fólk að það verði að
kókaínfíklum ef það notar kanna-
bis, vegna þess að það er ekki
satt. Það þarf að upplýsa fólk. Í
dag halda margir því fram að
kannabis sé ekkert hættulegra en
áfengi, en þeir hinir sömu hafa
ekki vit á því sem þeir eru að tala
um. Ef maður skellir í sig einum
vodka í dag verður runnið af
manni á morgun, en öðru máli
gegnir um kannabis. Ef maður
reykir kannabis í dag situr helm-
ingur af THC (tetrahydrókannab-
ínól, hið vímugefandi efni í kanna-
bis) eftir í líkamanum á morgun.
Kannabis er fituleysið efni en
alkóhól vatnsleysið og í því liggur
munurinn. THC sækir m.a. í
heilafrumurnar og hefur slæm
áhrif til langs tíma. Samt heldur
fólk því fram í Hollandi að kanna-
bisneysla sé ekki verri en súkku-
laðiát. Við ættum því að upplýsa
fólk um það sem vitum en hvorki
um það sem við vonum eða vilj-
um. Einnig er mikilvægt að höfða
til ábyrgðar foreldra og það hefur
verið gert töluvert hér á landi.“
Þýðir ekki að berjast gegn
vandanum með hléum
Ráðstefnan í dag á Grand hót-
eli markar lok fimm ára áætlunar
sem, eins og fyrr er getið, ber
heitið Ísland án eiturlyfja. Áætl-
uninni var hrint af stað árið 1997
og segir Peterson nokkuð miður
að nú sé komið að leiðarlokum.
„Ef menn vilja berjast gegn fíkni-
efnum þýðir ekki að gera það
með hléum. Mín skoðun er sú að
það þurfi að berjast gegn fíkni-
efnum með sama hætti og að
verja lýðræðið. Ef lýðræðið er
ekki varið er hætta á það glatist
og það sama má segja um barátt-
una gegn fíkniefnunum; ef slakað
er á í baráttunni er hætta á að
fíkniefnin fljóti yfir landið.“
Peterson segir að staðan í Evr-
ópu í dag sé sú að nokkur lönd í
álfunni hafi tapað í baráttunni
gegn fíkniefnunum, þótt viðkom-
andi þjóðir segi aðra sögu. „Per-
sónuleg notkun á kannabis er
leyfileg í Hollandi, Belgíu, Spáni,
Ítalíu og Portúgal. Í Sviss og
Hollandi er hægt að fá heróín hjá
yfirvöldum. Ef viðkomandi neyt-
andi er yfir tvítugu og á í heróín-
vanda, vill halda áfram neyslu og
fær efnið hjá yfirvöldum, hví ætti
hann að hætta? Það skiptir í raun
ekki máli hver útvegar efnið, því
sá sem það gerir er að ráðskast
með fólk og stjórna því. Heróínið
hefur alveg sömu áhrif án tillits
til þess hver útvegar það. Þetta
er gert til að halda neytendum í
skefjum svo þeir trufli ekki aðra
og hefur ekkert með frelsi að
gera.“
Morgunblaðið/Ásdís
Torgny Peterson, framkvæmdastjóri samtaka evrópskra borga gegn eiturlyfjum
Trúir ekki á
hræðsluáróður
Í dag verður rætt um
þróun og árangur
fíkniefnaforvarna síð-
ustu fimm ára og horft
til framtíðar á ráð-
stefnu sem markar lok
áætlunarinnar Íslands
án eiturlyfja. Torgny
Peterson er meðal
fyrirlesara og ræddi
við Örlyg Stein
Sigurjónsson um bar-
áttuna gegn fíkniefna-
vandanum.
orsi@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Torgny Peterson, framkvæmdastjóri ECAD, segir nokkur lönd hafa
gefist upp í baráttunni við fíkniefnin með lögleiðingu þeirra.