Morgunblaðið - 01.03.2002, Page 39

Morgunblaðið - 01.03.2002, Page 39
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 39 ÚTSÖLULOK Allt að 70% afsláttur Allra síðustu dagar föstudag-sunnudags KRINGLUNNI - 533 1730 NÝLEGA tók grein- arhöfundur til starfa sem iðjuþjálfi hjá Geð- hjálp. Iðjuþjálfar eru sér- hæfðir í að vinna með skjólstæðingum sínum á heildrænan hátt og í þeirra umhverfi. Þegar um geðsjúkdóma er að ræða getur verið um vandamál að ræða eins og skerta starfshæfni, samneyti við aðra get- ur orðið erfitt, fram- taksleysi, einangrun og hlutverkamissir. Dag- leg iðja, eins og það að halda heimili, stunda vinnu/skóla, fara á mannamót, getur orðið hindrun. Það getur verið um tímabundna röskun að ræða en einn- ig getur verið um að ræða varanlegt tap á færni. Iðjuþjálfar meta og þjálfa skerta færni til daglegrar iðju og vinna í samvinnu við einstakling- inn markmiðum sem viðkomandi set- ur sér. Iðjuþjálfi leggur áherslu á að sett séu raunhæf markmið sem eru í stöðugri endurskoðun. Leitast er við að draga fram styrkleika einstak- lingsins, efla sjálfsbjargargetu og auka lífsfyllingu. Í Geðhjálp er rekin félagsmiðstöð þar sem er opið mötuneyti alla daga, ákveðin virkni fer fram og unnið er að því að efla félagsleg tengsl gesta. Undirrituð hefur verið fengin til að end- urskipuleggja og efla starfsemina. Ég hef lagt áherslu á að efla hópastarf sem mun nýtast breiðari hópi eins og segir að ofan. Þannig er meiningin að geta komið til móts við mismunandi þarfir gesta út frá hæfni og vilja, fjölga þeim hlut- verkum innan hússins sem hægt verður að sinna og efla þátttöku hópsins í að móta þjónustuna. Haldnir eru nú vikulegir húsfundir, morgunhópur er að myndast þar sem lögð er áhersla á neytendaáhrif hvers konar, tölvuver er verið að opna þessa dagana sem án efa kemur til með að nýtast gestum til marg- víslegra hluta, m.a. fræðslu, náms og afþreyingar. Sjálfshjálparhópar hafa lengi verið starfandi í húsinu og nú hefur bæst við aðstandendahópur. Aðstandendastarf er mjög mikil- vægt hjá félagi eins og Geðhjálp. Því miður vill sá hópur gleymast þegar um geðsjúka er að ræða en þó svo mikilvægur þegar unnið er að bætt- um aðstæðum einstaklings og bata. Aðrir hópar eru fælni- og kvíðahóp- ur, eineltishópur og geðhvarfahópur. Eins og áður segir vinnur iðju- þjálfi með skjólstæðingum á heild- rænan hátt, þar sem leitast er við að efla sjálfstæði og bætt lífsgæði. Þannig er vel við hæfi að iðjuþjálfi vinni hjá félagi eins Geðhjálp sem sinnir hagsmunabaráttu geðsjúkra og vinnur að því að bæta aðstöðu þessa hóps sem og að auka mögu- leika til meðferðar og starfa. Iðjuþjálfi í Geðhjálp Auður Axelsdóttir Geðhjálp Iðjuþjálfi vinnur með skjólstæðingum á heild- rænan hátt, segir Auður Axelsdóttir. Leitast er við að efla sjálfstæði og auka lífsgæði. Höfundur er iðjuþjálfi hjá Geðhjálp. er þar vel sagt. En ekki duga orð- in ein og að sumu leyti er umfjöll- unin líka of þröng. Byggðamál snúast nefnilega ekki bara um landsbyggðina heldur um það hvernig við viljum byggja Ísland. Í þeim anda þarf að vinna ef við vilj- um ná árangri í því að viðhalda fjölbreytileik byggðar og menning- ar á Íslandi. Sóknarfæri í breytingunum Sóknarfærin eru víða. Þekking- ariðnaður, þar sem vinnan felst í hugmyndasköpun, þekkingaröflun og dreifingu þekkingar tekur við af framleiðslusamfélaginu. Þar eru sóknarfæri. Æ fleiri vilja njóta, ekki bara ósnortinnar náttúru, kyrrðar og fámennis, heldur einnig ómengaðrar fæðu. Aukinn frítími fólks leiðir til meiri ferðalaga. Ferðaþjónustan er vaxandi at- vinnugrein. Þar eru sóknarfæri. Fjölbreytileiki menningar og mannlífs verður mikilvægari í hinu einsleita auglýsinga- og neyslu- samfélagi. Þar eru sóknarfæri. Allt á þetta bæði við um Ísland allt og landsbyggðina sérstaklega. Markmið þeirra byggðaáætlana sem hingað til hafa verið sam- þykktar hafa ekki náðst nema að hluta. Aðgerðir stjórnvalda hafa verið fálmkenndar þar sem hvorki er við skilgreiningar á viðfangsefn- inu að styðjast né heldur skipulögð vinnubrögð eða þekktar reglur. Viðunandi árangur mun ekki nást fyrr en því er breytt. Styrkur þessarar áætlunar felst í því að þó ýmislegt sé óljóst orðað er ákveðnum aðilum ætluð ábyrgð á tilteknum verkefnum. Lærdómur hefur í því efni verið dreginn af niðurstöðum hinna fyrri. Það gefur von um einhvern árangur. Höfundur er þingmaður Samfylkingar. ÉG HEYRÐI eftir lækni einum um daginn að geðheilsa þjóðarinn- ar væri slæm, og ekki bara geðheilsa þessar- ar þjóðar heldur mann- kynsins yfirleitt. Lík- amleg heilsa er kannski betri enda mikil áhersla lögð á hreyfingu, íþróttir og svo framvegis. En hvað þarf til, til að geðheils- an sé í lagi? Í stuttu máli sagt þarf kannski manneskjan að geta verið manneskja til þess að það gerist. Þess vegna þurfum við að gæta þess að í þjóðfélagsgerð okkar sé pláss fyrir manneskjuna. Gegnum aldirnar höfum við alltaf verið að búa okkur til kerfi, kerfi þjóðfélagsins, og innan þess kerfis eru önnur kerfi: trúarbrögð, stjórn- mál, fjölskyldugerðin, og þessi kerfi hafa oft gengið nærri okkur sem manneskjum. Það er ekki alltaf pláss fyrir manneskjuna, einsog nýliðin dæmi sanna þarsem maður gengur út með 40 milljónir í vasanum, á meðan ung einstæð þriggja barna móðir missir íbúðina sína og lendir á götuna útaf 400 þúsund krónum. Þetta kerfi er ekki vinveitt mann- eskjum. Í tilviki einstæðu móðurinn- ar lendir hún í því að búa við þreng- ingar, þrengingar af hálfu þjóðfélagskerfisins, og það eru þess- ar þrengingar sem brjóta niður geð- heilsuna og bjóða heim hættunni á geðsjúkdómum. Einsog ég sé fyrir mér að þrengingar fyrri alda hafi smámsaman búið í haginn fyrir geð- sjúkdóma og þeir orðið arfgengir. Í sumum tilvikum er auðvitað um rak- inn líkamlegan þátt að ræða. Þrengingar geta auðvitað brotið niður líkamlega heilsu, en það eru þá þrengingar af öðrum toga. En það má segja að hvað varð- ar geðsjúkdóm þá upp- lifi manneskjan þreng- ingar, svo miklar að hún neyðist til að flýja inní hausinn á sér, þar sem allt lýtur hennar lögmálum og heimur- inn fyrir utan er hætt- ur að skipta máli nema á forsendum hennar. Því að þrátt fyrir að geðveikin virðist stjórnlaus ólga þarsem allt getur gerst er heimur hennar niðurnjörv- aður í kerfi, svo rígneglt að þar ekki pláss fyrir hversdagsleika af neinu tagi. Þráhyggjan ein getur verið á við rammgerðasta fangelsi. Nú sýna dæmin það og sanna að konum er hættara við þunglyndi en körlum og manni dettur í hug að það eigi að ein- hverjum hluta rætur að rekja til þjóðfélagsstöðu þeirra, þær fá lægri laun og á þær er ekki hlustað einsog karlmenn. Þessi kerfi sem ég er að tala um teygja sig inní einstak- lingana sjálfa, það er ákveðið kerfi sem fylgir því að vera karlmaður, kona, og svo framvegis, rétt einsog störf hafa líka ákveðin kerfi eða ímynd, læknir á að vera svona, stjórnmálamaður svona, og spegla þar með þau kerfi sem þeir eru fulltrúar fyrir eða táknmyndir. Í þessum táknmyndum er svo oft ekki pláss fyrir manneskjuna, bara tákn- myndina. Manneskjan koðnar niður, brotnar niður siðferðilega, tilfinn- ingalega, andlega, undan táknmynd- inni. Í stuttu máli sagt, hún hættir að þekkja sjálfa sig. Hún verður fulltrúi fyrir ákveðið kerfi, fulltrúi fyrir ákveðna hugmyndafræði, og hug- myndafræðin er ekki bara í stjórn- málum og heimspeki, hún teygir sig sem fyrr segir inní fjölskylduna. Þegar reynt er endalaust að uppfylla þarfir kerfisins eða lifa fyrir tákn- myndina gleymist hið einstaklings- bundna sem gerir manneskjuna að manneskju. Hið einstaklingsbundna er ekki hægt að fella í kerfi, í því býr hið óvænta sem brýtur sér leið, eins- og stráið sem vex uppúr malbikinu. En hið einstaklingsbundna, þ.e. hið manneskjulega, er viðkvæmt og það þarf að hlú að því. Sorg, þreyta, áhyggjur, kvíði, sársauki, jafnvel gleði; hvar er pláss fyrir þessar tilfinningar í þjóðfélags- gerð okkar? Vegna þess að við- kvæmnin er oft ekki viðurkennd sækjum við styrk í táknmyndina og manneskjan verður undir á bak við þessa táknmynd, hún er komin í fangelsi táknmyndarinnar og farin að upplifa þrengingar, og ef hún kemst ekki út úr því, þá fer hún inn í hausinn á sér ef svo má að orði kom- ast, og býr sér til pláss þar, pláss geðveikinnar. Ég get nefnt dæmi frá sjálfri mér þarsem ég fór í maníu í staðinn fyrir að fara í ástarsorg. M.a. af því að ég var föst í táknmyndinni töffaranum, vera hörð af mér, sýna ekki veikleika mína. Á þeim tíma var stórbrengluð manían hættuminni en eðlileg ástarsorg, táknmyndin geð- sjúklingur hættuminni en mann- eskja í sorg. Og allt þetta um að fást við tilfinningar sínar í garð karl- manns tengdist svo aftur föður mín- um sem á sínum tíma var fastur í táknmynd gáfumannsins og veikur af alkóhólisma og ófær um að sýna tilfinningar sínar í garð lítils barns. En manneskjan er nefnilega glúr- in, og málið er einfalt fyrir mann- eskjunni: Ef hún fær að vera mann- eskja hefur hún burði tilað halda andlegri heilsu. Og allt snýst þetta um að deila tilfinningum sínum með öðrum. Manneskjan þarf stundum bara eitt: Aðra manneskju. Manneskja eða táknmynd Elísabet K. Jökulsdóttir Geðhjálp Þrengingar fyrri alda, segir Elísabet K. Jökulsdóttir, hafa smámsaman búið í hag- inn fyrir geðsjúkdóma og þeir orðið arfgengir. Höfundur er rithöfundur og félagi í Geðhjálp. w w w .t e xt il. is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.