Morgunblaðið - 01.03.2002, Side 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 43
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 551 3485 • Fax 568 1129
Áratuga reynsla
í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Vaktsími allan sólarhringinn
896 8284
✝ Páll StephensenHannesson fædd-
ist á Bíldudal 29. júlí
1909. Hann lést á
Landspítala, Foss-
vogi, 21. febrúar síð-
astliðinn. Foreldrar
Páls voru Sigríður
Pálsdóttir, f. 15.2.
1887, d. 29.11. 1966,
og Hannes B. Steph-
ensen kaupmaður á
Bíldudal, f. 26.8.
1878, d. 23.12. 1931.
Móðurforeldrar
voru hjónin Arndís
Pétursdóttir Egg-
ertz og séra Páll Ólafsson prestur
á Prestsbakka í Hrútafirði og síðar
í Vatnsfirði við Ísafjarðardjúp.
Föðurforeldrar voru hjónin Þórey
Kristín Ólína Pálsdóttir og Bjarni
Þórðarson bóndi á Reykhólum.
Páll var elstur níu systkina. Af
þeim eru þrjú á lífi: Arndís, f. 30.6.
1917; Jón f. 19.9. 1921; og Erla f.
4.5. 1923. Látin eru: Kristín, f.
1.10. 1910, d. 11.8. 1999; Bjarni, f.
30.5. 1912, d. 6.3. 1968; Theodór, f.
16.11. 1913, d. 23.10. 1916; Agnar,
f. 12.4. 1916, d. 12.10. 1916; Þórey,
f. 27.6. 1919, d. 14.12. 1994.
Páll kvæntist Báru Kristjáns-
dóttur frá Húsavík, f. 27.12. 1910,
d. 9.8. 1989. Bára fæddist á Borg-
fermingaraldri, fyrst á skútum
föður síns frá Bíldudal en fór síðar
á vertíðir suður til Reykjavíkur og
var einnig eina vertíð á Norðfirði.
Hann var háseti á varðskipinu Ægi
sumarið 1930 en réð sig til Eim-
skipafélagsins þá um haustið á
fyrsta Lagarfoss. Á því skipi var
Páll næstu níu árin sem háseti og
síðar stýrimaður eftir að hann
lauk farmannaprófi. Páll stundaði
útgerð á Bíldudal frá 1940 til 1943
er hann keypti línubátinn Úðafoss
frá Akranesi og sigldi honum vest-
ur á Bíldudal daginn sem Bretar
hernámu Ísland, 10. maí 1940. Páll
hætti sjómennsku 1943, hóf þá
störf hjá Gísla Jónssyni, fv. alþing-
ismanni, og gerðist síðar umboðs-
maður Eimskipafélagsins og Rík-
isskipa á Bíldudal, en þeirri stöðu
gegndi hann til 1984 er hann flutti
til Reyjavíkur. Páll var hreppstjóri
Suðurfjarðahrepps í tuttugu ár,
sat í hreppsnefnd og var oddviti
hreppsins í átta ár. Hann sat í
sýslunefnd V-Barðastrandarsýslu
í mörg ár, var í sóknarnefnd Bíldu-
dalskirkju og meðhjálpari í tæp
tuttugu ár og gegndi fjölda ann-
arra trúnaðarstarfa fyrir sitt
sveitarfélag. Einnig gegndi hann
trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn og átti meðal annars sæti
um tíma í kjördæmisráði flokksins
fyrir vestan. Páll var fréttaritari
Morgunblaðsins á Bíldudal um
árabil.
Útför Páls fer fram frá Áskirkju
í dag og hefst athöfnin klukkan
13.30.
um í Grímsey en flutti
kornung til Húsavík-
ur. Hún var dóttir
hjónanna Kristjáns
Sigurgeirssonar sjó-
manns í Grímsey og
síðar á Húsavík, f. 6.7.
1875, d. 15.7. 1944, og
Þuríðar Björnsdóttur,
f. 8.9. 1869, d. 22.3.
1949. Barn Páls og
Báru er Sigríður
Stephensen bankarit-
ari, f. 4.7. 1938, búsett
í Reykjavík. Maki
hennar var Pétur Val-
garð Jóhannsson, út-
gerðarmaður og skipstjóri á Bíldu-
dal, f. 17.8. 1935, d. 25.2. 1980.
Börn Sigríðar og Péturs eru: 1)
Páll Ægir, f. 16.7. 1959, og eru
börn hans og Helgu Báru Karls-
dóttur Sigríður Stephensen, Pétur
Valgarð og Aldís Bára. 2) Kristín,
f. 12.2. 1965, maki Helgi Þór Jón-
asson og eru börn þeirra Hinrik og
Martha Sunneva. 3) Hannes Sig-
urður, f. 2.5. 1970. 4) Pétur Val-
garð, f. 17.9. 1974, maki Friðborg
Jónsdóttir og er barn þeirra Eygló
Anna.
Páll stundaði nám við Stýri-
mannaskólann í Reykjavík og lauk
þaðan farmannaprófi vorið 1934.
Hann stundaði sjómennsku frá
Með nokkrum orðum langar mig
að kveðja þig, afi minn, og þakka
þér fyrir einstaka vináttu og vænt-
umþykju frá því ég man eftir mér.
Ég verð að segja að mér finnst svo-
lítið skrítið að geta ekki lengur
komið við hjá þér á Hrafnistu í
Reykjavík þar sem þú hafðir búið í
hartnær fimmtán ár, bara í stuttan
tíma eins og ég var vanur og spjall-
að við þig. Það var ósköp notalegt
því ég bjó svo nálægt þér, gat geng-
ið til þín eins og á Bíldudal forðum.
Þú varst hafsjór af fróðleik, hafðir
lifað mestu umbrotatíma Íslands-
sögunnar, tekið þátt í þeim og séð
breytingar sem engan óraði fyrir,
þegar þú varst ungur, að gætu orð-
ið, jafnvel á langri ævi. Yfirleitt
gafstu þér tíma til að tala við mig í
heimsóknum mínum en það gat
komið fyrir að þú svaraðir mér í
stuttum setningum ef þú varst að
fylgjast með því sem var að gerast
niðri á þingi eða að horfa á Schuma-
ker í Formúlunni. Ekki mátti raska
ró þinni ef landsliðið í handbolta var
að leika, þá þýddi yfirleitt ekkert að
tala við þig. Þá drakk ég kaffiboll-
ann afskiptalaus inni hjá þér,
kvaddi og fór og undraðist hvað
svona fullorðinn maður gæti haft
mikinn áhuga á íþróttum. Stundum
hringdir þú í kjölfarið og skamm-
aðir mig fyrir að koma aldrei í heim-
sókn. En þetta er nú allt sagt í
gríni, afi minn, það vitum við báðir.
Þú varst að mörgu leyti sérstæður
maður, heimsmaður með létta lund,
hvers manns hugljúfi en þó skoð-
anafastur í meira lagi. Ekki væri
rétt að segja að þú hefðir verið há-
vaðalaus, sérstaklega ef landsmálin
eða önnur þér hugleikin mál voru til
umfjöllunar. Það var gaman að
ræða við þig um allt milli himins og
jarðar; um liðna tíma vestur á fjörð-
um og horfna atvinnuhætti, lífið í
Kaupmannahöfn á millistríðsárun-
um því þú hafðir mikið dálæti á
þeirri borg, eða bara hvað sem var.
Ég man eftir einni ferð sem við fór-
um saman í bíl fyrir nokkrum árum
frá Húsavík til Reykjavíkur. Landið
þitt þekktir þú svo vel að flestum
misfellum í landslaginu sem bera
einhver nöfn kunnir þú skil á. Mér
þótti þetta ágætt og fræðandi í upp-
hafi ferðar en ég verð að játa það
fyrir þér að ég var búinn að taka
mér athyglishlé þónokkru áður en
við komum í Húnavatnssýslu. Ekki
síst vegna þess að þú lést ekki
nægja að segja mér ógrynni kenni-
leita heldur raktir jafnharðan ættir
fólks sem bjó á bæjum sem við
keyrðum fram hjá. Þá varst þú í
essinu þínu og líkur sjálfum þér.
Minnið þitt var ótrúlegt fram á síð-
asta dag og þú fylgdist svo vel með
því sem var að gerast í þjóðfélaginu.
Ég minnist þess ekki að neitt frétt-
næmt málefni hafi farið fram hjá
þér. Það kom fyrir að við vorum
ekki sammála, en þú sast alltaf fast
við þinn keip og hvorki ég né aðrir
högguðu þínum skoðunum, það var
eitt af því sem mér varð ljóst mjög
ungum.
Þú varst elstur níu systkina,
misstir tvo bræður á barnsaldri og
föður þinn langt um aldur fram, er
þú varst aðeins 22 ára. Þá varst þú
nýbyrjaður í siglingum og átti sjó-
mennskan og störf sem henni tengj-
ast eftir að verða hluti af lífi þínu í
langan tíma. Þú tókst af fullum
krafti þátt í atvinnulífinu á Bíldudal
í tæpa hálfa öld og gegndir marg-
víslegum trúnaðarstörfum á staðn-
um enda atorkusamur og duglegur.
Þitt vinnulag var að gera hlutina
strax og fylgdi því stundum nokkur
fyrirgangur ef þér fannst menn
standa eitthvað í vegir fyrir skoð-
unum þínum eða áætlunum. En það
risti ekki djúpt því þín létta lund
einkenndi oftast þitt háttalag. Þeg-
ar ég var að alast upp fannst mér þú
vera hluti af staðnum og staðurinn
hluti af þér og ef ég hugsa vestur á
firði kemur þú alltaf upp í huga mér
eins og ég man þig í gamla daga.
Skip var að koma með vörur eða að
sækja frosinn fisk og þú varst að
ráða flokk manna í vinnu og nokkra
vörubílstjóra. Hróp og köll heyrðust
frá bryggjunni sem iðaði af lífi í þá
daga og alltaf heyrðist hæst í þér.
Þú stjórnaðir og vildir að allir létu
að þinni stjórn hvort sem þeir voru í
vinnu hjá þér eða ekki. Það var í
þínu eðli að hafa mannaforráð. Þú
barst hlýjar tilfinningar til Bíldu-
dals og vildir staðnum allt það
besta. Stolt þitt af uppruna þínum
leyndi sér ekki og þér rann í skap er
þú ræddir um fólksflóttann undan-
farinn áratug frá Vestfjörðum.
Hvers kyns brask og nútíma stjórn-
unarhættir í sjávarútvegi áttu ekki
upp á pallborðið hjá þér, þú skildir
ekki þessa hagfræði og ég á frekar
bágt með að skilja hana líka, þótt
hálf öld skilji okkur að.
Erfitt er að tala um þig, afi, í
langan tíma án þess að minnast á
ömmu. Hún var stór hluti af lífi þínu
og þú syrgðir hana svo sárt er hún
lést fyrir rúmum tólf árum. Amma
var ekki minna sérstök en þú og
hún hafði yfirleitt afskaplega sterk-
ar og ákveðnar skoðanir. Mér
fannst amma alltaf falleg og tign-
arleg en geðrík var hún og duldi
sjaldan skoðanir sínar. Fyrir kom
að sveið undan orðum hennar því
sumir þola illa hreinskilni og stund-
um lét hún þjóta í pilsum eins og
séra Jakob frændi minn Hjálmars-
son sagði er hann jarðsöng hana. Þá
gustaði af henni og hún kom því
rækilega til skila sem segja þurfti
við hvern sem var og hvar sem var.
En ekkert aumt mátti hún sjá, það
þoldi hún ekki og ófáar voru ferð-
irnar sem hún sendi mig með bakk-
elsi og fleira til þeirra sem minna
máttu sín. Hún var alin upp við
kröpp kjör norður í landi og það
mótaði hana eflaust. Ég held hins
vegar, afi, að þú hafir ekki verið að
„spökulera“ svo mikið í þessu. At-
vinnulífið fangaði hug þinn allan,
þar vildir þú vera með puttana,
amma stjórnaði hins vegar heim-
ilinu ykkar, Staðarhóli og það gerði
hún með miklum krafti. Á Bíldudal
leið henni vel og þar átti hún sínar
sælustu stundir með þér. Á Stað-
arhóli var gestagangur mikill og
höfðuð þið yndi af að taka á móti
fólki. Í afmælisdagabók ykkar eru
nöfn a.m.k. þriggja forsætisráð-
herra ásamt öðrum fyrirmönnum
þjóðarinnar sem heimsóttu ykkur
og var amma snillingur í að seiða
fram dýrindis rétti með stuttum
fyrirvara. Þar var hún á heimavelli
og slógu fáir þeirri gömlu við í þeim
efnum. Ég var ekkert að þvælast
fyrir henni þegar svo stóð á, betra
að halda sig í hæfilegri fjarlægð, en
annars var ég yfirleitt með annan
fótinn á Staðarhóli sem barn. Árið
1984 fluttuð þið til Reykjavíkur
ásamt móður minni og yngri bræðr-
um mínum. Amma undi hag sínum
illa í Reykjavík en þið bjugguð á
Laugarnesvegi í þrjú ár. Síðan flutt-
uð þið í þjónustuíbúð í Jökulgrunni
við Hrafnistu í Reykjavík. Eftir að
hún dó fluttir þú í stórt og gott her-
bergi á Hrafnistu, þar leið þér vel
og þar var vel um þig séð. Þú þekkt-
ir alla og allir þekktu þig. Það er
landsbyggðarbragur á lífinu þarna
og það kunnir þú að meta. Systkini
þín, Addý, Jón og Erla voru dugleg
að heimsækja þig og auðséð hvað
kært var á milli ykkar allra. Eins
heimsóttum við systkinin og
mamma þig mikið í gegnum tíðina
og er ekki hægt annað en að dást að
móður minni hvað hún sýndi þér
mikla ræktarsemi alla tíð. Það er
ekki auðvelt að vera einbirni eins og
hún, ef eitthvað var að þá hringdir
þú eingöngu í hana og hún leysti þín
mál fljótt og vel.
Sem fyrrverandi kennari gæfi ég
þér ágætis einkunn fyrir að vera afi
og ekki síður langafi. Börnin mín
komu mikið til þín en þó einkum
yngri dóttir mín, Aldís Bára, og allt-
af passaðir þú þig að eiga eitthvað
fyrir Aldísi þína. Á milli ykkar var
einstaklega kært og henni var mikið
í mun að sjá þig sem oftast.
Ég veit að amma beið eftir þér
þegar þú fórst frá okkur og hefur
trúlega slegið upp mikilli veislu eins
og henni var lagið, þar hefur ekki
skort veitingarnar og þú sem mikill
matmaður ert trúlega ágætlega
haldinn í dag. Ég veit að þú ert sátt-
ur og þú mátt vera það eftir langa
og viðburðaríka ævi.
Takk fyrir allt og allt, afi.
Páll Ægir Pétursson.
Elsku langafi. Okkur þykir svo
leiðinlegt að þú skulir vera farinn
frá okkur en við vitum að núna líður
þér vel og ert ekki lengur veikur í
hjartanu þínu. Nú ert þú kominn til
Guðs og englanna á himnum og þar
er enginn veikur. Mamma segir
okkur að þú sért líka hjá okkur þótt
líkaminn sé sofnaður og vakni ekki
aftur. Við skiljum ekki alveg þetta
með líkamann og sálina, ekki ennþá.
Við eigum örugglega eftir að skilja
það þegar við stækkum, eins og svo
margt annað.
Það var alltaf svo gott að koma til
þín á Hrafnistu og þú varst alltaf
svo glaður að sjá okkur. Þú fórst
alltaf beint í ísskápinn til að finna
eitthvað gott að gefa okkur, kex,
súkkulaði og ávexti, og sendir okkur
alltaf heim með nesti í poka.
Elsku langafi, við þökkum þér
fyrir stundirnar sem við áttum sam-
an og biðjum Guð að vera með þér
og passa þig að eilífu.
Hinrik og Martha Sunneva.
Okkur bræðurna langar að minn-
ast afa okkar, Páls Hannessonar,
með nokkrum orðum en hann lést á
Landspítalanum í Fossvogi 21. febr-
úar sl.
Það tekur tíma að átta sig á því
að afi skuli ekki vera með okkur
lengur, því að hann var alltaf fastur
punktur í lífi okkar. Maður upplifði
afa aldrei sem gamlan mann, fyrir
okkur var hann alltaf eins, og þó að
líkaminn hafi verið farinn að gefa
sig nokkuð síðusti misserin var afi
andlega hraustur alveg fram í and-
látið. Hann var stálminnugur og
fylgdist af áhuga með því sem var
að gerast í kringum hann, hvort
sem það var líf og störf okkar í fjöl-
skyldunni eða þjóðfélagsmálin al-
mennt.
Þær eru ótalmargar minningarn-
ar tengdar afa og ömmu frá
bernskuárum okkar fyrir vestan.
Það var alltaf jafn gott að koma á
Staðarhól. Amma átti jafnan eitt-
hvað gott í gogginn og alltaf mátti
maður leika sér inni á skrifstofu-
herberginu hans afa, við að teikna
eða eitthvað annað, því afi var ein-
staklega barngóður maður. Inni í
þessu herbergi var stórt skrifborð,
skjalaskápur, hillur fullar af ýmis-
konar pappírum og annað spenn-
andi dót, að ógleymdum skrifborðs-
stólnum góða, sem við bræður
nefndum Réttstólinn og var jafnan
nokkur keppni um að ná. Einnig
komum við oft á hreppstjóraskrif-
stofuna hans á efstu hæð í Jónsbúð-
inni, því alltaf hafði afi tíma til að
sinna manni. Hann gegndi starfi
umboðsmanns fyrir Eimskip og
Ríkisskip um árabil og var alltaf
mikið um að vera hjá afa þegar
strandferðaskipin Hekla, Askja og
Esja komu til hafnar á Bíldudal.
Afi átti Volvo-bifreið með skrán-
ingarstöfunum B-15. Hann hafði
mjög gaman af að keyra um landið
og fóru þau amma margsinnis norð-
ur til Húsavíkur og víðar. Margar
sunnudagsferðir voru farnar í
Flókalund og fengum við oft að fara
með. Á seinni árum hér í Reykjavík,
eftir að amma var dáin, fórum við
bræðurnir oft með afa í bíltúr en þá
hafði dæmið snúist þannig við, að
annar okkar keyrði en afi var í hlut-
verki farþegans. Það var mjög gam-
an að keyra um gamla borgarhluta
Reykjavíkur með afa, því þar var
hann þaulkunnugur frá fyrri tíð. Í
þessum túrum var gjarnan komið
við í Kaffivagninum þar sem menn
gæddu sér á kaffi og kleinum.
Stundum fórum við í bíltúr austur
fyrir fjall eða í lengri ferðir, jafnvel
alla leið norður til Húsavíkur. Slík
ferðalög voru afa jafn ánægjuleg og
okkur enda þekkti hann sveitir,
byggðir og ættir Vesturlands, Vest-
fjarða og Norðurlands einkar vel.
Sumarið 1992 fórum við fjölskyldan
í ferðalag hringinn í kringum landið
á þremur bílum. Gist var við Kirkju-
bæjarklaustur í nokkrar nætur og
ferðinni síðan haldið áfram og áð í
Stafafelli í Lóni, áður en haldið var
upp á Hérað, þar sem dvalið var í
viku. Hafði afi mikla ánægju af
þessu ferðalagi.
Eftir að amma dó dvaldi afi í
rúmgóðu einstaklingsherbergi á
Hrafnistu í Laugarási og leið hon-
um þar vel og naut prýðilegrar
umönnunar. Viljum við koma á
framfæri þakklæti til starfsfólks
Hrafnistu. Auk okkar fjölskyldunn-
ar voru systkini hans tíðir gestir hjá
honum og hefur hann kunnað vel að
meta það. Jafnframt viljum við
koma á framfæri kæru þakklæti til
starfsfólks deildar B-7 á Landspít-
ala í Fossvogi, þar sem afi dvaldi
síðustu dagana.
Elsku afi, við viljum að lokum
þakka fyrir allar góðu stundirnar
sem við áttum saman. Guð geymi
þig.
Hannes Sigurður og Pétur
Valgarð Péturssynir.
Elsku afi. Við systkinin viljum
þakka þér fyrir allar samverustund-
ir sem við áttum með þér á liðnum
árum. Við komum oft til þín á
Hrafnistu en Aldís þó oftast með
pabba. Þú áttir alltaf eitthvað til að
gefa okkur og hugsaðir fyrst og
fremst um að öllum liði vel sem
komu til þín. Þegar við bjuggum á
Kjalarnesi komst þú stundum þang-
að og heimsóttir okkur því þú varst
svo hress þrátt fyrir háan aldur. Þú
talaðir mikið um Bíldudal og var
greinilegt að þar var hugurinn oft
en þú fylgdist líka mikið með öllu
þínu fólki, ömmu, pabba og systk-
inum hans og okkur barnabarna-
börnum þínum sem orðin eru sex.
Þú vildir vita hvað hvert okkar væri
að gera og þér var í mun að allt
gengi vel. Þú tókst nærri þér ef eitt-
hvað var ekki eins og það átti að
vera því þér þótti svo vænt um okk-
ur. Þú varst barngóður og mikill
fjölskyldumaður og þess nutum við
meðan þú lifðir. Við söknum þín
mikið elsku afi en vitum að þér líður
vel þar sem þú ert núna.
Elsku afi við viljum þakka þér
fyrir umhyggju þína fyrir okkur og
biðjum góðan guð að vera með þér.
Sigríður Stephensen
Pálsdóttir,
Pétur Valgarð Pálsson,
Aldís Bára Pálsdóttir.
PÁLL STEPHENSEN
HANNESSON
Fleiri minningargreinar um Pál
Stephensen Hannesson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.