Morgunblaðið - 01.03.2002, Síða 57
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 57
Kringlunni,
sími 588 1680
v/Nesveg, Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
iðunn
tískuverslun
Ný sending frá
Buxur - jakkar
bolir
Glæsilegt úrval
af yfirhöfnum frá
Við viljum sem
minnst óþægindi
fyrir viðskiptavini okkar sem eiga rétt á sjúkraþjálfun
Nýjar reglur tryggingaráðs um endurgreiðslur vegna sjúkraþjálfunar taka gildi í dag. Þær gilda þar til samningar nást milli samninga-
nefndar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis og sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara.
Samkvæmt nýju reglunum eiga örorkulífeyrisþegar og börn með umönnunarkort rétt á 20 skiptum í sjúkraþjálfun eftir 1. mars.
Þurfi þeir á frekari sjúkraþjálfun að halda geta þeir sótt um styrk til Tryggingastofnunar. Með umsókn um styrk skal fylgja vott-
orð læknis (Beiðni um þjálfun). Þeir sem hafa fengið samþykkta sjúkraþjálfun sl. 10 mánuði og þeir sem njóta örorkulífeyris
eða eiga í gildi umönnunarkort þurfa þó ekki að leggja fram vottorð frá lækni nema þess verði sérstaklega óskað.
Allir aðrir þurfa að sækja um styrk. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á heimasíðu Tryggingastofnunar, www.tr.is, svo
og í þjónustumiðstöð og hjá umboðum TR.
Skilyrði fyrir styrkveitingu:
Tryggingastofnun tekur þátt í að greiða sjúkraþjálfun ef afleiðingar alvarlegra, langvinnra sjúkdóma eða slysa valda verulegri skerðingu
á færni til athafna daglegs lífs, göngugetu eða vinnufærni. Slík sjúkraþjálfun þarf samkvæmt niðurstöðum vísindalegra rannsókna og
reynslu að vera líkleg til að bæta færnina verulega.
Starfsfólk þjónustumiðstöðvar Tryggingastofnunar veitir alla aðstoð og frekari upplýsingar. Síminn þar er 560 4460.
Nýjar reglur tryggingaráðs um þjálfun eru á heimasíðu okkar, www.tr.is.
Athugið!
Ofangreint á aðeins við um þá sem eru í sjúkraþjálfun hjá sjúkraþjálfurum sem eru án samnings við Tryggingastofnun.
www.tr.is
Í ÞVÍ falli að mönnum hafi sézt yfir
frétt í Morgunblaðinu 21. febrúar
síðastliðinn um viðskipti Uffe Elle-
mann Jensens og
Royal Greenland
er hér útdráttur:
Téður Úffi var
stjórnarformaður
hjá „flaggskipinu
í grænlenzku at-
vinnulífi“, Royal
Greenland. Fyr-
irtækið hefur upp
á síðkastið verið
rekið með gríðar-
legu tapi. Grænlendingar gerðu sér
lítið fyrir á stjórnarfundi og ráku
Úffa og sömuleiðis hina Danina tvo,
sem í stjórn sátu (eigendur Lands-
símans, athugið!). Þremenningarnir
eru allir fyrrverandi ráðherrar. Það
gustar sumstaðar um fjallahnjúka!
Royal Greenland tapaði í ár leið
litlum þrjú þúsund þrjú hundruð
þrjátíu og sex milljónum íslenzkra
króna, og Grænlendingar eru afar
óhressir með það, þegar svo ofaná
bætist, að starfslokasamningar við
fyrrverandi stjórnendur eru, vægt
til orða tekið, höfðinglegir. Auk
þess gaukaði fyrirtækið að fráfar-
andi Óla framkvæmdastjóra gjafar-
korni uppá eitt hundrað og þrjátíu
milljónir íslenzkar, en Lars aðstoð-
arforstjóri fékk aðeins sextíu millj-
ónir að gjöf, báðar sporzlurnar að
sjálfsögðu greiddar með tapi fyr-
irtækisins (sbr. fjármagnstekju-
skattinn, sem sparifjáreigendur
greiða nú af vöxtum undir verð-
bólgu).
Úffi fær ámæli fyrir þessar gjafir.
Þar sem hann settist í stjórn 1993,
varð varaformaður 1995 og lauk
klifrinu með formennsku 1999, er
hann talinn hafa vitað um gjafirnar.
Hér slær Úffi út trompi: Búið að
semja við Óla fyrir 1993 og er
reyndar ekkert athugavert, þótt
gert sé sæmilega við hann, því hann
hafi átt mikinn þátt í uppbyggingu
fyrirtækisins og verið yfirmaður
þess í mörg ár; hinsvegar sé það hið
versta mál, að Lars skyldi gera sinn
„óvanalega starfslokasamning“ um
milljónirnar sextíu við Óla, „sem
hafði ekki fyrir því að segja stjórn-
inni frá því. Það er gagnrýnisvert,“
segir Úffi (kannast nokkur við ferlið
ef „gjöf“ er lesið sem „starfsloka-
samningur“?)
Þar sem Lars var fyrrverandi
formaður grænlenzku heimastjórn-
arinnar, gruna þarlendir hann um
að hafa í krafti djobbsins tryggt sér
„feita stöðu hjá Royal Greenland og
góðan starfslokasamning“. Því mót-
mælir Lars og segir, að Úffi, Óli og
Óvi, þáverandi stjórnarformaður,
hafi legið á sér að koma til starfa
hjá fyrirtækinu; segist að vísu hafa
samið um eftirlaunin við Óla, en
hann botni barasta alls ekkert í hon-
um að segja ekki stjórninni frá því!
(er þetta nokkuð kunnuglegt?)
Royal Greenland hefur lokað fisk-
vinnsluhúsum undanfarið, enda
voru þau rekin með fjórðungsaf-
köstum (sbr. frystihús í sjávarpláss-
um umhverfis landið, nýbyggð sum
hver eða endurgerð, unnið í ein-
hverjum þeirra svona annað slagið
en öðrum lokað).
Ýmis starfsemi á vegum Royal
Greenland „fyrirfannst ekki þegar
betur var að gáð“, en kostaði þó fyr-
irtækið eitt þúsund og sex hundruð
milljónir á síðasta ári (sbr. athafna-
manninn, sem sneri út hátt banka-
lán. Þegar hann fór á hausinn og
bankinn ætlaði að ganga að veðinu
fyrir láninu, kom í ljós að „kirkja
fyrirfannst engin“, heldur aðeins
gamall, kolryðgaður lýsistankur,
ekki túskildings virði!)
Tap Royal Greenland á „ýmissi
starfsemi erlendis“ var sjö hundruð
milljónir (sbr. erlendar fjárfesting-
ar Landssímans) og „allt hefur
gengið á afturfótunum með nýtt
tölvukerfi fyrirtækisins“ (sbr. Hús-
næðismálastofnun).
Útgjöld á síðasta ári vegna „að-
keyptrar vinnu ráðgjafa og lögfræð-
inga“ (sbr. „Góðráð“ stjórnarfor-
manns Landssímans) og vegna
starfslokasamninga var fjögur
hundruð og sjötíu milljónir (kannast
menn við sig „í Kjósinni“?)
Því er þetta skrifað að undirrit-
aður fær með engu móti séð að af-
brot fyrrverandi sparisjóðsstjóra í
Ólafsfirði sé meira eða verra en
margt það sem glymur í eyrum og
sker í augu landsmanna þessa dag-
ana, og hlaut hann þó, sex árum eft-
ir brot, tíu mánaða rasphús, skil-
orðsbundið í þrjú ár, auk þess að
greiða Sparisjóðnum tæpar 22 millj-
ónir í skaðabætur að viðbættum
áföllnum vöxtum og dráttarvöxtum,
og þessutan tvo þriðju af máls-
kostnaði.
Mér kæmi hreint ekki á óvart,
þótt flestir þeir rekstrar- og fjár-
málasnillingar, sem nú eru hvað
mest í fréttum vegna afglapa sinna,
fái stórriddarakross með keðju fyrir
störf að fyrirtækjarekstri og fjár-
málum í þann mund sem sparisjóðs-
stjórinn ólfirski telst hafa afplánað
brot sitt, sem var í því fólgið stofna
fé Sparisjóðsins í hættu og láta und-
ir höfuð leggjast að kynna stjórn-
inni allar gerðir sínar.
ÞÓRIR JÓNSSON,
fv. kennari við
Gagnfræðaskólann Ólafsfirði.
Barajón og Sérajón
Frá Þóri Jónssyni:
Þórir
Jónsson
Ókeypis lögfræðiaðstoð
öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012
Orator, félag laganema
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi