Morgunblaðið - 03.03.2002, Page 2

Morgunblaðið - 03.03.2002, Page 2
2 B SUNNUDAGUR 3. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ eru æfingar á leikritinuJón Oddur og Jón Bjarni,sem dregið hafa hressanog ungan leikarahóp inn íÞjóðleikhúsið, en verkið var frumsýnt í gær, laugardag. Fjór- ir drengir á aldrinum átta til tíu ára skiptast á að leika titilhlutverkin. Andri Már Birgisson, tíu ára, og Benedikt Clausen, átta ára, leika Jón Odd, en Matthías Sigurbjörnsson og Sigurbjartur Atlason leika Jón Bjarna, sem er með gleraugu og „getur ekki að því gert þótt hann sé pínulítið rangeygður“. Aðrir fjórir skiptast á að leika ann- ars vegar hlutverk hrekkjusvínsins Jóhannesar og hins vegar bekkjar- félagans Lárusar í sýningunni, og fara Alexander Briem, Áslákur Ingv- arsson, Daði Már Guðmundsson og Guðmundur Felixson með þeirra hlutverk. Þá leika tvær ungar stúlk- ur, þær Arna Dís Ólafsdóttir og Sandra Björt Pétursdóttir, Selmu, litlu systur Lárusar. Sjö strákar eru mjög uppteknir við að spila risk og önnur spil þegar blaðamann ber að garði. Lætin í her- berginu eru svo mikil að það er ekki nokkur leið fyrir mig að ná athygli drengjanna. Ég leita því til leikstjór- ans, Þórhalls Sigurðssonar, sem hef- ur sérhæft sig í stjórnun ungra drengja síðastliðnar átta vikur og tekst honum á undurskömmum tíma að draga þrjá þeirra út úr spennandi spilaleikjunum og í viðtal. Sá fjórði, Andri Már, er enn á leiðinni úr skól- anum og í leikhúsið. „Aðalmálið er að fá að leika. Það er rosalega gaman,“ segir Benedikt og hinir taka undir. Þeir eru þó sammála um að oft sé skemmtilegra að vera á æfingum en í skólanum. „En við þurf- um að leggja hart að okkur. Í stað þess að læra í skólanum þurfum við að læra heima á kvöldin,“ segir Matthías og Þórhallur Sigurðsson leikstjóri bætir við að ekki megi gleyma að á tímabili hafi þeir líka þurft að læra textann í leikritinu, sem er heilmikill. Sá Bláa hnöttinn 36 sinnum En hvernig fengu þeir hlutverkin? „Við fórum í prufu og stóðum okk- ur bara svona vel,“ segja þeir í kór. Tveir þeirra eiga ekki langt að sækja leiklistarhæfileikana. Sigurbjartur er sonur Atla Rafns Sigurðarsonar leikara og Benedikt er sonur leikar- anna Elvu Óskar Ólafsdóttur og Andra Clausen. Benedikt, þótt ungur sé, hefur töluverða reynslu á leiklist- arsviðinu, og hefur t.d. leikið í kvik- myndunum Regínu og Ikingut. Sigurbjartur hefur líka leikið áður. Hann lék í Vatni lífsins sem sýnt var á fjölum Þjóðleikhússins fyrir skömmu og stóð þar við hlið föður síns sem lék einnig í verkinu. Svo segist hann hafa farið mjög oft í leik- hús: „Ég sá til dæmis Bláa hnöttinn 36 sinnum, ég sá allar sýningarnar nema eina og það var alltaf jafn gam- an,“ segir hann stoltur, en þess má geta að pabbi hans lék annað aðal- hlutverkið í sýningunni. Hlutverk tvíburanna Jóns Odds og Jóns Bjarna eru burðarhlutverk í sýningunni og eru þeir bræður á svið- inu nánast allt verkið. „Við höfum þurft að einbeita okkur mikið til að ná textanum og líka til að standa okkur vel,“ segir Sigurbjartur. Þórhallur tekur undir og segir að það sé mikið á þá lagt. „Þegar þeir eru ekki á svið- inu þá eru þeir að skipta um föt og undirbúa næstu innkomu. Þeir hafa verið alveg rosalega duglegir, en þeir fá líka mikið út úr þessu. Þegar þeir skemmta sér vel þá skemmta þeir áhorfendum líka.“ Vel á minnst, hvernig fara þeir að því að skemmta fólki? „Þegar Jón Oddur og Jón Bjarni gera eitthvað fyndið þá finnst okkur það fyndið og þá finnst fólkinu í saln- um það fyndið líka,“ segir Sigurbjart- „Smá Jón Oddur og Jón Bjarni í okkur sjálfum“ Það hefur verið mikið fjör í Þjóðleikhúsinu und- anfarnar vikur en þar hafa tíu ungir leikarar verið við æfingar. Húsið hefur leikið á reiðiskjálfi og talað er um að veita eigi Þórhalli Sigurðssyni leikstjóra sérstök þolin- mæðisverðlaun fyrir vinnu sína síðustu vikurnar. Ragna Sara Jónsdóttir fór á stúfana og hitti fjóra hressa stráka sem leika tví- burabræðurna Jón Odd og Jón Bjarna í samnefndu leikriti. Morgunblaðið/Árni Sæberg Þórhallur Sigurðsson leikstjóri ásamt tveimur pörum af Jóni Oddi og Jóni Bjarna. Frá vinstri eru Andri Már Birgisson og Benedikt Clausen, sem leika Jón Odd, og Sigurbjartur S. Atlason og Matthías Sig- urbjörnsson, sem leika Jón Bjarna. Morgunblaðið/Ásdís Bræðurnir láta sig ýmis mál varða. Hér eru þeir Benedikt og Sigurbjartur í hlut- verkum sínum, ásamt Sigurði Sigurjónssyni sem leikur föður tvíburanna. Ljósmynd/Þjóðleikhúsið Jón Oddur og Jón Bjarni eru uppátækjasamir en vilja vel að sögn fjórmenning- anna sem leika þá. Hér eru þeir leiknir af Andra Má og Matthíasi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.