Morgunblaðið - 03.03.2002, Page 3

Morgunblaðið - 03.03.2002, Page 3
ur og Benedikt heldur áfram: „Við verðum að vera hressir og það kemur fólkinu til að hlæja.“ „Já, ef við erum ekki hressir, þá gerist ekki neitt,“ bætir Matthías við. Bækurnar í uppáhaldi Strákarnir segjast allir hafa lesið bækurnar um Jón Odd og Jón Bjarna, sumir hafa lesið þær allar, aðrir eina eða tvær. „Þegar ég fékk hlutverkið þá byrjaði ég að lesa bæk- urnar til að setja mig inn í hlutverk- ið,“ segir Sigurbjartur sem hljómar eins og þrautþjálfaður atvinnuleikari. „Þetta voru alltaf uppáhaldsbæk- urnar mínar þegar ég var lítill,“ segir Matthías, sem nú er orðinn tíu ára, að verða ellefu. „Jón Oddur og Jón Bjarni var uppáhaldsbók bekkjarins, en kennarinn las hana oft í nestistím- anum,“ segir Benedikt. En hafið þið séð kvikmyndina? „Já,“ segja Sigurbjartur og Bene- dikt í kór en Matthías segir: „Ja, ég hef séð hana ruglaða!“ og allir fara að hlæja. Nú ber að konu sem flytur þær fréttir að Benedikt verði að fara í búning, þar sem Andri Már sem leik- ur Jón Odd á móti honum sé eitthvað slappur. „Ég trúi því ekki. Ég verð bara stressaður. Við verðum að taka litla æfingu núna,“ segir Benedikt, og er þar með rokinn í burtu. Þegar ró hefur aftur komist á hóp- inn spyr ég hvað sé skemmtilegast í leikritinu og ekki stendur á svari: „Vatnsbyssustríðið og slagsmálin!“ svara þeir Matthías og Sigurbjartur í kór. Gaman þegar áhorfendur fara að hlæja En eru Jón Oddur og Jón Bjarni eitthvað líkir strákunum sjálfum? „Já stundum þegar þeir eru að prakkarast,“ segir Sigurbjartur og Matthías heldur áfram: „Já, þeir vilja vel, en það endar bara stundum svo- lítið illa.“ „Þeir halda til dæmis að það sé ekkert slæmt við að segja að Jón Bjarni hafi lent undir öskubíl,“ segir Sigurbjartur. „Við erum ekki alveg svona ýktir, en það er smá Jón Oddur og Jón Bjarni í okkur sjálfum,“ segir Matthías. Eruð þið stressaðir fyrir frumsýn- inguna? „Nei, ég hlakka bara til,“ segja þeir báðir. „Það er rosalega gaman að standa fyrir framan alla á sviðinu og sérstaklega gaman þegar fólkið fer að hlæja,“ segir Matthías. „Já, þá þarf maður að bíða með textann sinn þangað til allir eru hætt- ir að hlæja, annars heyrist ekki það sem maður segir,“ segir Sigurbjart- ur, sem ætlar að verða leikari þegar hann verður stór. Matthías ætlar líka að verða leikari og Andri Már líka, sem bætist nú í hópinn og er orðinn hressari. Erfitt að læra textann Miðað við það sem áður hefur kom- ið fram er lífið í leikhúsinu einn sam- felldur dans á rósum í hugum þessara ungu drengja. En hefur æfingaferlið aldrei verið erfitt og leiðinlegt? „Jú, auðvitað er þetta stundum erfitt. Það var til dæmis frekar erfitt að læra allan textann,“ segir Matth- ías. „Og að læra í hvaða búninga við eigum að fara í næst,“ segir Sigur- bjartur. „Við þurftum líka að læra að dansa, en það var bara gaman,“ segir Andri Már og Matthías bætir við: „Við dönsum vals, en ég var nú búinn að læra hann fyrir löngu. Við fáum nefnilega danskennslu í skólanum. Það er mjög gaman.“ Nú er farið að ókyrrast í kringum okkur og uppábúna leikara í gervi foreldra tvíburanna, Soffíu frænku og Ömmu dreka hefur drifið að. Það virðast allir vera tilbúnir fyrir eina af lokaæfingunum og kominn er tími til að sleppa strákunum á sviðið. Full- orðnu leikararnir eru sammála um að sérstaklega fjörugt andrúmsloft hafi einkennt æfingar á verkinu, en við- urkenna að ærslin hafi stundum reynt á þolinmæðina. Nú er bara að bíða og sjá hvort fjörið færist ekki upp á svið með strákunum kraft- miklu og þeim takist að fá áhorfend- ur til að hlæja, eins og þeim finnst svo gaman. rsj@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MARS 2002 B 3 ÞÁTTTAKA ÞÍN STUÐLAR AÐ: • þ í n u e i g i n ö r y g g i á s j ó o g l a n d i • r e k s t r i 1 0 2 b j ö r g u n a r s v e i t a u m l a n d a l l t • a u k n u ö r y g g i b a r n a • b j ö r g u n m a n n s l í f a • a u k i n n i f r æ ð s l u o g f o r v ö r n u m s l y s a • r e k s t r i 9 b j ö r g u n a r s k i p a k r i n g u m l a n d i ð • r e k s t r i 3 5 u n g l i n g a d e i l d a • r e k s t r i S y s a v a r n a s k ó l a s j ó m a n n a • r e k s t r i B j ö r g u n a r s k ó l a n s TIL MIKILS AÐ VINNA: 2 7 0 u t a n l a n d s f e r ð i r a ð v e r ð m æ t i 3 5 m i l l j ó n i r. - 1 5 0 h e l g a r f e r ð i r f y r i r 2 t i l D u b l i n a r e ð a E d i n b o r g a r - 1 0 0 v i k u f e r ð i r f y r i r 2 t i l M a l l o r k a , P o r t ú g a l , K r í t a r e ð a B e n i d o r m - 2 0 s ó l a r l a n d a f e r ð i r í 2 v i k u r f y r i r f j ö g u r r a m a n n a f j ö l s k y l d u t i l M a l l o r k a , P o r t ú g a l , K r í t a r e ð a B e n i d o r m –berst fyrir lífi þínu F e r ð a h a p p d r æ t t i 2 0 0 2 Miðar eru seldir á skrifstofu félagsins að Stangarhyl 1. Sími: 570 5900 SLYS GERA EKKI BOÐ Á UNDAN SÉR!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.