Morgunblaðið - 03.03.2002, Síða 4
4 B SUNNUDAGUR 3. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ljósmynd/Gerald Ploegstra
Margrét Sara hefur fengist við ýmis verkefni samhliða náminu. Þessar myndir eru úr myndbandi sem hún vann í samvinnu við hollenska þrívíddarhönnuðinn Gerald Ploegstra.
MARGRÉT SaraGuðjónsdóttir er 23ára. Hún mun út-skrifast í vor fráHoogheschool voor
de Kunsten í nútímadansi í Arn-
hem í Hollandi, en þess má geta að
skólastjóri skólans er danshöfund-
urinn og listræni stjórnandinn Hlíf
Svavarsdóttir, sem er íslenskum
dansunnendum að góðu kunn. Mar-
grét hefur þó verið gestanemandi í
Amsterdam Hogheschool voor de
Kunsten síðastliðið ár og nýtt tím-
ann til þess að þreyta inntökupróf
hjá dansflokkum þar sem nú hillir
undir útskrift.
Sjö mánaða
sýningarferðalag
Hún hefur nú komist á árs
samning hjá dansflokknum „Hush
hush hush“ í Antwerpen í Belgíu,
en mikil gróska er í nútímadansi í
Belgíu og Hollandi. Í samningnum
felst m.a. sýningarferðalag í sjö
mánuði um Portúgal, Grikkland,
Spán, Ítalíu, Frakkland, Belgíu,
Holland, Þýskaland og víðar.
Samningurinn verður framlengdur
ef sýningin selst áfram en fyrstu
tveir mánuðirnir fara í að skapa
verkið.
„Við munum ferðast um og sýna
nýtt verk sem við dansararnir
munum taka þátt í að skapa ásamt
danshöfundinum Abdelaziz Sarr-
okh, sem er marokkóskur að upp-
runa. Við erum sjö sem tökum þátt
í sýningunni og danshöfundurinn
valdi þjálfaða og fjölhæfa dansara
með ólíkan bakgrunn til þátttöku
og til að hafa áhrif á sköpunarferli
verksins. Ég er mjög glöð yfir að
hafa fengið þetta tækifæri því hér
er mjög mikið atvinnuleysi meðal
dansara og aldrei pláss fyrir alla,“
segir Margrét Sara, en nokkur
hundruð manns þreyttu inntöku-
prófið.
„Ég var búin að fara í nokkur
inntökupróf og hafði boðist nokkur
tækifæri útfrá þeim. Þetta var
hinsvegar langstærsta tækifærið
svo ég hugsaði mig ekki tvisvar um
og tók boðinu.“
Á hátíðarsýningu
með Jan Fabre
Margrét býr í Amsterdam ásamt
unnusta sínum en mun fara til Ant-
werpen og búa þar í tvo mánuði
meðan á æfingum stendur.
Þótt Margrét sé rétt að útskrif-
ast í vor hefur hún fengið ýmis
tækifæri í dansheiminum sem
marga dansara dreymir um. Þeirra
stærst er án efa uppsetning verks-
ins „I Am Blood - A Medieval
Fairytale“ sem hún tók þátt í sl.
sumar undir stjórn Jan Fabre.
Fabre er einn þekktasti nútíma-
danshöfundur Evrópu í dag. Hann
er þekktur fyrir að skapa fram-
úrstefnuleg dansleikhúsverk sem
eru blanda af dansi, leiklist og
myndlist. Erna Ómarsdóttir, annar
íslenskur dansari, hefur unnið með
Fabre og setti hann m.a. upp sér-
stakt sólóverk fyrir hana fyrir
tveimur árum, „My Movements are
Alone Like Streetdogs“. Margrét á
Ernu að hluta til að þakka tæki-
færið sem hún fékk með Fabre:
„Erna hringdi í mig og sagði
mér að það væri inntökupróf fyrir
næstu sýningu Jan Fabre. Ég
skellti mér til Belgíu og var ein
þeirra sex hundruð sem sótti um
stöðu fimm dansara. Inntökuprófið
tók rúmar tvær vikur og eftir stóð-
um við, fimm dansarar, einn leikari
og þrír tónlistarmenn,“ segir Mar-
grét.
Hún segir að Erna hafi einnig
átt að taka þátt í verkinu og útlit
hafi verið fyrir að þær myndu
vinna saman. Svo óheppilega vildi
þó til að Erna meiddist og varð að
hætta við þátttöku.
Blanda af heppni,
hæfileikum og vinnu
Um var að ræða þátttöku í heið-
ursverki sem Fabre hafði verið
beðinn að semja fyrir sérstaka há-
tíðarsýningu á hinni árlegu Avign-
on-leiklistarhátíð. Að sögn Fabre
er verkið mikilvægasta tækifærið
sem hann hefur fengið á ferlinum
til þessa og er þetta einn mesti
heiður sem honum hefur hlotnast í
leikhúsheiminum.
Æfingar tóku um þrjá mánuði en
verkið var sýnt í miðaldakastal-
anum „Palais des Papes“ sem er
eitt helsta aðdráttarafl borgarinnar
fyrir ferðamenn.
„Við sýndum verkið á útisviði í
miðjum kastalanum fyrir um 2.500
manns í hvert sinn. Það var alltaf
uppselt á sýningarnar og slegist
um miðana því þetta var mjög sér-
stök uppfærsla,“ segir Margrét og
bætir við, að gerð hafi verið bók og
heimildarmynd um sýninguna sem
koma eigi út innan skamms.
Það hefur greinilega gengið vel
hjá Margréti undanfarið, en hverju
þakkar hún velgengnina?
„Þetta er blanda af heppni, hæfi-
leikum og vinnusemi. Dansheim-
urinn í dag gengur mikið út á sam-
vinnu dansara og danshöfundar og
því er mikilvægt að hafa eitthvað
að segja og vera skapandi. Ég legg
mig bara alla fram og maður veit
aldrei hvað gerist næst,“ segir
Margrét.
Aðspurð hvort „Hush hush
hush“ ætli ekki að koma til Íslands
með nýju uppfærsluna segir hún:
„Ja, ef einhver hefur efni á að fá
okkur þá vona ég það.“
Dansari á framabraut
Ungur íslenskur dansari gerir það gott í Evrópu
um þessar mundir. Hún komst nýlega á samning
hjá þekktum belgískum dansflokki, „Hush hush
hush“, og var auk þess valin úr hópi 600 umsækj-
enda til að taka þátt í hátíðaruppfærslu danshöf-
undarins Jan Fabre í fyrra. Ragna Sara Jónsdóttir
náði sambandi við Margréti Söru Guðjónsdóttur á
milli dansæfinga í Amsterdam.
Hjólin eru farin að snúast hjá Margréti Söru Guðjónsdóttur, nútímadansara í
Hollandi, sem útskrifast formlega úr námi í vor.
’ Ég er mjög glöðyfir að hafa fengið
þetta tækifæri því
hér er mjög mikið at-
vinnuleysi meðal
dansara og aldrei
pláss fyrir alla ‘
rsj@mbl.is