Morgunblaðið - 03.03.2002, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 03.03.2002, Qupperneq 6
Sælkerar á sunnudegi Steingrímur Sigurgeirsson Hanna Friðriksdóttir Áslaug Snorradóttir Á MISJÖFNU þrífastbörnin best,“ segir mál-tækið og eins „Það lærabörnin sem fyrir þeim erhaft“. Þegar maður stendur augliti til auglitis við barn sem neitar að borða eru það gamal- kunn klókindi eða óklókindi að bjóða einhvers konar umbun eða verðlaun fyrir að klára það sem á disknum er. Á barnaheimili æskunnar man und- irrituð vel eftir „nælonsúpum“ (kakó- og fleiri tegundum pakkasúpna) sem fylgdu í kjölfar misholls aðalréttar. Í minningunni virðast kjötfarsbollur hafa verið ótrúlega oft á boðstólum. Börnum finnst góðar kjötbollur og kakósúpur, en þau eru miklu meiri sælkerar en margan grunar, enda ber að minna á að bragðskyn er að miklu leyti lært. Valentína Björnsdóttir, matselja á leikskólanum Laufásborg í Reykjavík, hefur komist að raun um að börn eru í raun mjög fordómalaus gagnvart mat og opin fyrir því að prófa eitthvað nýtt. Lífrænir hafrar og ólífur á minn disk Valentína segir að þegar hún hafi tekið við starfinu fyrir 1½ ári hafi krakkarnir verið hálfónýtir við að borða grænmeti, en nú sé búið að venja þau á það. „Þau finna einfald- lega hvað þeim líður vel af því, enda brosir hver fruma út að eyrum við hvern bita af fersku grænmeti,“ segir hún og brosir sjálf. Fólk virðist almennt vera að vakna til meðvitundar um hollt mataræði og það er líkt og við stöndum á þröskuldi í þeim efnum í ýmsum skilningi. Skýrt dæmi er hin síháværari krafa um mannsæmandi verð á fersku græn- meti og ávöxtum. Valentína segir það mikið gleðiefni hvað mikið sé orðið af matvælaframleiðendum sem byggja starfsemi sína á persónulegri þjón- ustu, lífrænni ræktun, fjölbreytni og ótrúlegum gæðum. Þar á meðal má nefna Ingólf á Engi sem framleiðir hágæðakryddjurtir og salat af ýmsu tagi, m.a. hina ljúffengu og litfögru silfurblöðku. Eins notar hún lífrænt bankabygg frá Eymundi í Vallarnesi mjög mikið í matinn, t.a.m. í buff og grauta. Hafrakoddar, Cheerioshringir og kornflögur eru gjarnan uppistaða morgunmatarins ásamt hinu ómiss- andi lýsi og ávöxtum, en Valentína eldar einnig reglulega ofan í mann- skapinn hafragraut sem bættur er með lífrænum höfrum. Valsaðir hafr- ar eru svo mikið unnir og því gefa heilu, lífrænu hafrarnir mun meiri orku. Búið er að taka sykur út af dag- skrá morgunverðarborðsins og virð- ist enginn syrgja hann svo heitið geti. Grænt og vænt lasagna hússins með baunaívafi er mjög vinsælt meðal Laufásborgara í hádeginu. Til vitnis um hvað börnin eru meðvituð um mataræðið nefnir Valentína að eitt sinn hafi þau verið í orðaleik sem gekk út á að einn nefnir eitthvað orð og þá á hinn að segja það fyrsta sem honum dettur í hug tengt orðinu. Einn sagði lasagna og þá svaraði hinn að bragði: „baunir“. Þetta segir meira en mörg orð. Ólífur eru stundum sett- ar í skálar á undan matnum og mat- seljan þarf að halda fast utan um risa- stóra ólífukrukkuna til að hún endist í tvær máltíðir svo sólgið er smáfólkið í hin suðrænu ber. Linsusúpa, hvít- lauksbrauð og hummus er einnig of- arlega á vinsældalistanum. Súpan sú ber ólík nöfn eftir því á hvaða borði hún er: á einu borði er það Pokémon- súpa, löggusúpa á því næsta o.s.frv. Hvítlauksangandi lítill herramaður Foreldrar virðast einnig vera mjög ánægðir með matinn sem börnin fá á leikskólanum og ein móðirin hafði orð á því hvað það væri kostulegt að tveggja ára sonur hennar kæmi stundum heim af Laufásborg angandi af hvítlauk eins og lítill franskur herramaður. Matseðill eins og sá sem Valentína byggir á er svo sannarlega til eftirbreytni og hlýtur jafnframt að auðvelda mörgu foreldrinu matar- uppeldi barnanna þar sem búið er að venja þau á hið holla og af hinu sæta. Í kaffinu er ekkert kleinujapl heldur brauð, marmelaði, grænmeti, ostur, kex, túnfisksalat ofl. og stundum er bökuð dýrindis gulrótarkaka. „Börnin gera sér grein fyrir því að þau eru að borða hollan mat og eru meðvituð um það sem þau láta ofan í sig af því þau ætla að verða stór og sterk,“ segir Valentína. Henni finnst einkennilegt hvernig forgangsröðunin er í kerfinu. Hún hefur úr að moða um 160 kr. á dag til að fæða hvern munn og segir það heilmikla kúnst að fara ekki fram úr fjárhagsáætlun og jafnframt hafa máltíðirnar næringarríkar og fjöl- breyttar. Hún segist ekki taka þátt í þeim leik sem stundaður hafi verið til margra ára inni á hinum ýmsu stofn- unum landsins, þar með talið leikskól- um og heimilum, að framleiddir séu hálfpartinn kransæðasjúklingar sem lifi að miklu leyti á unnum kjötvörum. Hún bætir við að heillavænlegast sé að borða matinn í sem upprunaleg- astri mynd og oft gleymist í öllu fjas- inu og fussinu yfir hinu háa grænmet- isverði, að grænmeti og baunir eru ódýrari en kjötvörur. Með því að nota slíkt hráefni getur hún líka vandað sig meira og leyft sér ýmislegt sem ekki væri möguleiki á ef kjötið væri notað. Þess má geta að krakkarnir á Lauf- ásborg fá nú kjötfarsbollur einu sinni til tvisvar í mánuði en áður var þessi gamalkunni heimilismatur lagaður jafnvel 2–3 í viku. Valentína stendur reglulega fyrir matreiðslunámskeiðum þar sem hún kennir fólki að matbúa úr grænmeti og baunum. Eldað með ást og umhyggju Matseljan góða seiðir fram sálina í súpunni góðu þegar hún hrærir í henni. Hún leggur mikla áherslu á að eldað sé með ást og umhyggju. Hver þekkir ekki muninn á því að henda í sig hálfkaldri pakkasúpu í hádeginu og því að gæða sér á ljúfum fiskrétti í rólegheitum sem einhver eða maður sjálfur hefur nostrað við að útbúa? Ef maður leggur ekki sál sína og hjarta í matseldina gerist nefnilega harla fátt annað en venjubundin soðning og saðning. Það þarf hins vegar ekki mikið til að breyta hverri máltíð í lítið ævintýri sem seður jafnt magann, sál- ina og öll skilningarvitin jafnframt því að byggja upp eftirvæntingu og for- vitni yfir því hvað verði í matinn næsta dag. Varðandi matseld og manneldi eiga eftirfarandi orð Megasar vel við: Ekkert er ómögulegt allt getur skeð á móti geði er sett geð sem veð á móti ógeði ógeð. POKÉMONSÚPA AÐ HÆTTI VALENTÍNU Yndisleg súpa sem gaman er að elda og skálda eftir því sem til er hverju sinni í ísskápnum. Svo er bara að njóta þess að hræra og laða fram súpusálina! 1 bolli rauðar linsur 8 bollar vatn 3–4 súputeningar (helst grænmetis) 1 msk. saxaður engifer (má sleppa) 1 meðalstór laukur 1 stór glurót í teningum 1 tsk. malað cummin safi úr ½ sítrónu 2 msk. ferskt kóríander salt eftir smekk Setjið linsur, vatn og engifer í pott og látið suðu koma upp. Lækkið hit- ann og sjóðið í 20 mín. Bætið krafti út í. Setjið gulrætur og krydd út í og sjóðið í u.þ.b. 10 mín. til viðbótar. Að lokum er sítrónusafa og kóríander bætt út í. Litlir sælkerar Hummus, hvítlauksbrauð og grænmeti. Valentína leggur sál sína og hjarta í matseldina. Það er alltaf gott í matinn á Laufásborg. Kjúklingur m/sveppasósu, „nammi namm“. „Þetta var alveg rosaleg gott lasagna.“ ahf@mbl.is Hanna Friðriksdóttir ÞRJÚ Chardonnay-vín frá Nýja heiminum eru tekin fyrir að þessu sinni. Þau eiga fátt annað sameig- inlegt en það að vera framleidd úr sömu hvítu þrúgunni og vera í reynslusölu hjá ÁTVR sem stend- ur. Fyrst ber að nefna Barramundi Sémillon Chardonnay sem er kassavín frá Ástralíu. Kassavínin svokölluðu hafa verið mjög vinsæl hér á landi og er stór hluti léttvíns- sölu vín í þriggja lítra kössum. Vafalítið spilar verðið þar inn í. Það er því ágætt að fjölbreytnin í þessum vínum skuli vera að aukast en Ástralir sjálfir neyta töluvert mikið af kassavínum þó að þeir hafi framan af einbeitt sér að útflutn- ingi á vínum sem búið er að tappa á flöskur. Þetta er hið þokkalegasta hvít- vín, léttur sítrusávöxtur í bland við hitabeltisávexti. Ágætis fylling, smá þykkt og fita og sæta í bragði, smá sæta án þess að vera stuðandi. Kostar 3.290 krónur fyrir þriggja lítra kassa, sem samsvarar um 800 krónum á 0,75 lítra flösku. Ekki slæmt verð fyrir ástralskt hvítvín. Frá Kaliforníu kemur vínið Ro- bert Mondavi Coastal Chardonnay 1999 (1.690 kr.). Ilmur er ferskur með skörpum ávexti, vínið mjúkt með góðri sýru og vott af eik í munni. Ferskt og skemmtilegt Kaliforníuvín. Einnig frá Kaliforníu er Ernest & Julio Gallo Sonoma County Chardonnay 1998 (1.690 kr.). Þetta er vín í allt öðrum stíl, ávöxturinn heitur og þykkur, eikað með rist- uðum viðarkeim. Vín til að smjatta á, þungt og flott. Það er mettandi og þarf varla meðlæti. Klassísk Kalifornía í gamla stílnum. Chardonnay í reynslusölu Vínvalið var líkt og ávallt óaðfinnanlegt. Þetta er einn af örfáum veitingastöðum landsins þar sem maður leyfir sér að hafa engar skoðanir sjálfur á því hvað hentar best með matnum og hingað til hef ég ekki orðið fyrir stórkostlegum vonbrigðum, heldur þvert á móti oft fengið vín sem komu skemmtilega á óvart með matnum. Steingrímur Sigurgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.