Morgunblaðið - 03.03.2002, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 03.03.2002, Qupperneq 10
Dúndrandi! af bassakeilum, bassaboxum og mögnurum í eina viku. 20% afsláttur M-hraðbrautarjeppi með V8-dísilvél Vel heppn- uð andlits- lyfting  SJÖ milljónasta Opel Cors- bifreiðin kom af færi- bandi Opel í verksmiðjunni í Zaragoza á Spáni í síðustu viku. Þar hefur Opel starfrækt eina af mörgum bíla- verksmiðjum sínum frá því árið 1982, en frá þessari verksmiðju er Opel Corsa fluttur út til meira en 70 landa sem gerir verksmiðju Opel í Zaragoza á Spáni að einum stærsta útflytjanda Spánar. Opel Corsa er nú mest seldi smábíllinn í heiminum. Fram að þessu hafa um 10,5 milljónir Opel Corsa verið smíðaðar í ellefu verksmiðjum Opel í fimm heimsálfum. Corsa var á síð- asta ári mest seldi bíllinn í sínum stærðarflokki í Þýska- landi og hefur verið það óslitið frá árinu 1994. Sjö milljónasta Corsa frá Zaragoza. 7 milljónasta Corsa frá Zaragoza NÝR og gerbreyttur Toyota Land Cruiser 90 kemur á mark- að víðast hvar næsta haust og verður væntanlega fáanlegur hér á landi upp úr næstu ára- mótum. Bíllinn er með sömu yf- stærri en núverandi Land Cruiser 90. Þegar nýi bíllinn kemur hingað til lands verður hann áfram boðinn m.a. með nýju fjögurra strokka dísilvél- inni, 163 hestafla. LX sem er í raun Toyota Land Cruiser 100 með Lexus-sér- kennum. Lexus GX, sem kynnt- ur var í Detroit í janúar, fyllir upp í tómarúmið á milli Lexus RX300 og LX. Hann er nokkru irbyggingu og Lexus GX, sem hefur verið kynntur í Banda- ríkjunum, en Lexus-gerðin verður ekki flutt inn hingað til lands af umboðinu. Í Bandaríkj- unum er einnig seldur Lexus Nýr Land Cruiser 90 verður með sama lagi og Lexus GX 470. Nýr Land Cruiser 90 um næstu áramót BMW sýnir CS1-hugmyndabíl-inn á bílasýningunni sem núer að hefjast. Bíllinn verður framleiddur, þó ekki óbreyttur, og fer í sölu árið 2004. Keppinautur- inn er greinilega VW Golf og aðrir bílar í þeim stærðarflokki og verð- ur kynntur sem fyrsti bíllinn í nýrri BMW 1-línu. Að innan er bíllinn að mestu með álflötum sem klæddir eru neoprene, efni sem flestir sportveiðimenn þekkja úr vöðlum. Miklar breytingar verða gerðar á innanrýminu áður en framleiðslubíllinn kemur á markað en ytri mál og útlit bílsins er mjög svipað og verður í framleiðslubíln- um. BMW breytir ekki út af venj- unni og ætlar að halda afturhjóla- drifi í bílnum. Með því móti vonast BMW til þess að bíllinn verði val- kostur þeirra sem leggja mikið upp úr sportlegum aksturseigin- leikum. iDrive-stjórnkerfið, sem kynnt var í nýju 7-línunni, er einn- ig að finna í hugmyndabílnum og þykir líklegt að það verði einnig í endanlegum BMW 1. Undir vélarhlífinni á hugmynda- bílnum verður 1,8 lítra Valvetron- ic-vél sem skilar að hámarki 115 hestöflum. Bíllinn er með raf- stýrðri kúplingu og gírskiptingin fer fram með því að styðja á hnappa aftanvert á stýrinu. BMW með Golf-valkost CS1-hugmyndabíll BMW er fyrirboði um nýjan bíl í Golf-flokki. Óvenjulegt er að kynna bílinn fyrst í blæjugerð. SALA á nýjum fólksbílum dróst saman um 28,3% í febrúar sem er mun minni samdráttur en verið hefur síðustu mánuði. Samdrátt- urinn í bílasölu á síðasta ári var 46% og rúmlega 50% í desember. Í janúar sl. var samdrátturinn 33,7%. Alls seldust 843 bílar í nýliðnum mánuði. Minnstur var samdráttur- inn í sölu Toyota, 5%, og er meira en fjórði hver seldur bíll í mánuðinum af Toyota-gerð.                        ! "                                #$                                        %&'                         %&' ()(*+     Minni samdráttur  EVRAN hefur ekki leitt til mik- illar jöfnunar bílverðs á hinum ýmsu markaðssvæðum innan landa Evrópusambandsins. Þetta kemur fram í nýrri könnun Evr- ópuráðsins sem sýnir að bílverð frá framleiðendum er hæst í Bret- landi og Þýskalandi en lægsta verð frá framleiðendum var inn í Spán, Grikkland, Danmörku og Finnland. Verðmunurinn var allt frá 12% á BMW 318i þar sem verðið var lægst og hæst og 41% á Opel Vectra. Þetta er fyrsta könnunin á verði frá framleið- endum eftir að evran var tekin upp í 12 af 15 aðildarríkjum ESB. Evran ekki leitt til verðjöfnunar á bílum  EINN af nýrri hugmyndabílum DaimlerChrysler gengur fyrir sápu, þ.e.a.s. sodium borohydride, sem er efni sem svipar mjög til borax, hins virka þvottaefnis í sápu. Bíllinn er Voyager MPV og sérfræðingar Daimler- Chrysler hafa fundið upp aðferð til þess að draga vetni úr efninu og hvarfa það síðan saman við súrefni. Við það verður til rafstraumur sem notaður er til að knýja bílinn. Sápubíll frá DaimlerChrysler

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.