Morgunblaðið - 03.03.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.03.2002, Blaðsíða 16
16 B SUNNUDAGUR 3. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ bílar EINHVERJAR mestu framfarir sem orðið hafa í bíltækni á undanförnum misserum eru dísilvélar með nýrri innsprautunartækni, sam- rásarinnsprautun. Slíkar vélar eru mun afl- meiri, þýðgengari og hljóðlátari en dísilvélar með olíuverki og fullkominn valkostur við bens- ínvélar, þ.e.a.s. ef við byggjum við annað kerfi en þungaskattskerfið og ef opinberar álögur væru ekki hærri á dísilbíla en bensínbíla. Ekki veit undirritaður hve oft hann hefur minnst á þetta en vonandi verður frumvarp um olíugjald sem liggur fyrir Alþingi samþykkt á komandi vori. Vel heppnuð andlitslyfting Nú er kominn á markaðinn M-jeppi frá Mercedes-Benz með V8 samrásardísilvél og for- þjöppu, ML 400 CDI, feikilega öflugur og marg- brotinn bíll. Hann hefur fengið talsverða and- litslyftingu frá fyrri gerð. Mest áberandi er nýtt grill og nýir framstuðarar. Þá eru komnar á bíl- inn nýjar framlugtir með gegnsæju hlífðargleri og þokuljósin hafa verið færð úr framljósasett- inu niður á stuðarann. Meiri krómskreytingar eru líka á bílnum og að innan hefur hann líka fengið andlitslyftingu og meiri öryggisbúnað. Nú eru m.a. hliðarpúðar við glugga staðalbún- aður. Þessar breytingar eru allar til bóta og ýta enn frekar undir glæsileika þessa bíls. ML 400 CDI er með leðurklæðningu sem staðalbúnað. Framsæti eru með rafstýringu og upphitun er á sætum. Sætin veita þó ekki alveg nægilegan hliðarstuðning, sem verður ennþá áþreifanlegra í leðursætum. Við miðjustokk er farsímastöð sem tekur við flestum gerðum Nokia-síma, og gerir handfrjálsa notkun símans einfalda og þægilega. Sætaupphitunin og far- símastöðin eru reyndar hluti af valbúnaði. Breytingar hafa verið gerðar á stjórnrofum og komin er sjálfvirk miðstöð með loftkælingu með stórum snúningsrofum. Hljómtæki eru með geislaspilara og útvarpstækið, sem er framleitt af Mercedes-Benz, er næmt. Gott ráð til að kanna gæði bílaútvarpstækja er að stilla á djassstöðina FM 97,7 sem virðist alla jafna send út á afar lágum styrk. Í jeppanum náðist hún greinilegar og betur en í öðrum útvörpum. Frábær dísilvél Ein tæknilegasta og öflugasta dísilvélin á markaðnum núna er V8 vélin sem er einmitt að finna í ML 400 CDI. Þetta er 3.996 rúmsenti- metra vél með fjórum ventlum á hvern strokk. Hún er hljóðlát en afar aflmikil, 250 hestöfl að hámarki og togið er hvorki meira né minna en 560 Nm að hámarki. M-jeppinn er í grunninn þungur bíll, eigin þyngdin er 2.335 kg. Hann er smíðaður á sjálfstæða grind, er með sjálfstæða fjöðrun og mikinn tæknibúnað. Þess vegna er líka þungt í honum pundið. Þetta er bíll sem get- ur dregið á eftir sér allt að 3,5 tonna kerru eða vagn. Upptakið fyrstu metrana virðist í fyrstu bara í meðallagi. En eftir fyrstu 10–20 metrana kemst verulegur skriður á bílinn með góðri inn- gjöf þegar túrbínan kemur inn. Bíllinn er þá eins og raketta og millihröðunin er mikil. Fram- leiðandi gefur samt upp að hröðun úr kyrrstöðu í 100 km hraða verði á 8,1 sekúndu, sem er nátt- úrulega sérlega glæsilegt á þetta þungum bíl með dísilvél. Við vélina er tengdur fimm þrepa sjálfskiptur kassi með valskiptingu, sem þó tekur ráðin af mönnum ætli þeir sér að pína vélina í of háan snúning. Þá einfaldlega skiptir bíllinn sér sjálfur upp. Fjórhjóladrifskerfið heitir 4ETS. Það er með rafstýringu á millikassa fyrir lága drifið. Kerfið virkar þannig að missi eitt, tvö eða þrjú hjól veg- grip hemlar búnaðurinn lausu hjólunum niður meðan fullt afl helst á því eða þeim hjólum sem hafa grip. Engar driflæsingar eru í staðalgerð- inni en bíllinn kemur hins vegar með nýjustu rafeindatækni, eins og t.a.m. þessari virku spól- vörn og ESP-stöðugleikastýringu, sem grípur inn í aksturinn sé farið of geyst í beygjur með því að draga strax úr afli til hjólanna og með hemlun með samtvinningu við ABS-hemlakerf- ið. Þetta gerði bíllinn í prófuninni skammlaust og jafnvel áður en sérstakt hættuástand væri fyrir hendi. Þetta getur virkað pirrandi en þá er bara að aftengja búnaðinn með einum hnappi. ESP-kerfið er mikill öryggisbúnaður en kemur þó að sjálfsögðu ekki í stað fyrir árvekni og að- gát í akstri. En M-jeppinn er þannig úr garði gerður að hann hefur lágan þyngdarpunkt og meiri fólksbílaeiginleika en títt er um jeppa sem smíðaðir eru á sjálfstæða burðargrind. Menn gætu því freistast til að taka upp aksturslag sem betur á við fólksbíla en jeppa því bíllinn leggur sig lítið í beygjum og liggur fastur á vegi. Magnaðar bremsur Fjöðrunin er dálítið stíf og slagstutt og eins og hönnuð meira fyrir hraðbrautarakstur. Annað í M-jeppanum sem er alveg í takt við þýska hraðbrautarbíla er hemlakerfið, sem er eitt hið öflugasta í þessari gerð bíla. Stórir, kældir diskar eru á öllum hjólum og að auki er fyrir hendi svokallaður BAS-búnaður, sem á ís- lensku kallast hemlunarflýtir. Við prófun á þurru malbiki var bílnum nauðhemlað á 80 km hraða og það var eins og hann klóraði sig fastan í malbikið þar til hann stöðvaðist. Feikiöflugar og nákvæmar bremsur. ABS-kerfið er sömuleiðis háþróað og laust við skruðninga þótt púlsinn finnist vel upp í fetilinn. Bíllinn er fremur þungur í stýri en nákvæmur og leggur vel á. ML 400 CDI er öflugur og vel búinn jeppi. Frágangur er allur eins og best verður á kosið – þetta er gæðagripur. Það sem hann hefur á móti sér er feiknahátt verð. Staðalgerðin kostar tæp- ar 8 milljónir króna, 7.990.000 kr. Með aukabún- aði, sóllúgu, losanlegum dráttarkróki, xenon-að- alljósum, dökklituðu gleri í hliðar- og afturrúðu, handfrjálsum búnaði ásamt loftneti fyrir Nokia GSM og upphituðum framsætum kostar hann 8.577.100 krónur. Morgunblaðið/Kristinn Mercedes-Benz ML400 CDI eftir velheppnaða andlitslyftingu. M-hraðbraut- arjeppi með V8-dísilvél Mikið farangursrými. Aftursæti er hægt að færa fram og aftur um 80 mm. V8-samrásardísilvélin skilar 250 hestöflum og 560 Nm togi. REYNSLUAKSTUR Mercedes-Benz ML400 CDI Guðjón Guðmundsson gugu@mbl.is Vél: 3.996 rúmsentimetrar, átta strokkar, forþjappa, samrásarinn- sprautun, CDI. Afl: 250 hestöfl við 4.000 snún- inga á mínútu. Tog: 560 Nm við 1.700-2.600 snúninga á mínútu. Drifbúnaður: Sítengt fjórhjóladrif með lágu drifi. Gírkassi: 5 þrepa sjálfskiptur með valskiptingu. Hemlar: Diskar að framan og aftan, kældir, 4ra rása ABS, BAS (heml- unarflýtir). Lengd: 4.638 mm. Breidd: 2.126 mm (að speglum meðtöldum). Hæð: 1.820 mm. Farangursrými: 1.061 lítri (2.020 með aftursæti felld fram). Eigin þyngd: 2.335 kg. Hröðun: 8,1 sekúnda úr kyrrstöðu í 100 km (samkvæmt framleiðanda). Hámarkshraði: 213 km/klst. Eyðsla: 10,9 lítrar í blönduðum akstri. Verð: 7.990.000 kr. Umboð: Ræsir hf. Mercedes-Benz ML400 CDI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.