Morgunblaðið - 03.03.2002, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MARS 2002 B 17
bílar
Íbúðalánasjóður og RSK
auðvelda þér framtalið
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
•
5
5
9
0
/s
ia
.i
s
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Íbúðalánasjóðs,
www.ils.is, og vefsíðu Ríkisskattstjóra, www.rsk.is.
Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími: 569 6900 - 800 6969 Fax: 569 6800 www.ils.is
Íbúðalánasjóður hefur tekið höndum saman við Ríkisskattstjóra, í því
skyni að auðvelda viðskiptavinum sínum að telja fram lán Íbúðalánasjóðs.
Yfirlit lána Íbúðalánasjóðs beint á rafræna skattframtalið
Yfirlit yfir afborganir og stöðu lána Íbúðalánasjóðs, vegna ársins 2001, verða skráð
beint á rafræna skattframtalið 2002.
Afborganir lána Íbúðalánasjóðs verða uppreiknaðar miðað við yfirtökudag lánanna.
Framteljendur, sem yfirtekið hafa lán Íbúðalánasjóðs, þurfa því ekki að uppreikna
lánin sín eins og áður.
Sundurliðað yfirlit lána Íbúðalánasjóðs fylgir skattframtali
Yfirlit yfir lán Íbúðalánasjóðs munu koma fram á sundurliðunarblaði sem fylgir
skattframtali. Því verða yfirlit yfir stöðu íbúðalána vegna ársins 2002 ekki send
viðskiptavinum sérstaklega.
NÝR Nissan Micra er kominn
á markað í Japan undir heitinu
March og kemur líklega á
markað í Evrópu á næsta ári.
Þar skipar hann sér í flokk
með virðulegum nýjum smá-
bílum eins og VW Polo og
Ford Fiesta. Bíllinn var fyrst
frumsýndur sem hugmynda-
bíll á bílasýningunni í Frank-
furt síðastliðið haust og minnti
þar suma á róttækt útlit hinn-
ar nýju VW bjöllu. Þegar bíll-
inn kemur á markað verður
hann boðinn með þremur
gerðum véla, þ.e. 1,2 l,
88 hestafla og 1,4 lítra,
103 hestafla og 1,5 lítra
dísilvél, 65 hestafla.
Fimm gíra handskipt-
ur kassi og CVT-reim-
skipting verða í boði.
Bíllinn, sem verður
smíðaður í Sunder-
land á Englandi, verður
rúmbetri og betur búinn
en fyrri gerð. Þótt hann sé
styttri en núverandi gerð er
hann hærri og breiðari, með
meira innanrými og væntan-
lega einnig meira veggripi.
Ný Nissan Micra er komin á
markað í Japan undir heitinu
March.
Bjöllulaga
Micra
BMW X5 er fyrst og
fremst ætlaður fyrir
Bandaríkjamarkað enda
byggður þar í landi. BMW
X3, litli jepplingurinn,
verður hins vegar fyrst og
fremst ætlaður fyrir Evr-
ópumarkað og verður
framleiddur í Graz í Aust-
urríki.
X3-jepplingurinn fær
mest af sinni tækni frá
næstu kynslóð BMW 3 sem vænt-
anleg er á markað 2005. Á mynd-
inni má sjá frumgerð bílsins í hálf-
gerðum dularklæðum. Þó virðist
ljóst að línurnar verða ekki ósvip-
aðar og í X5, en bíllinn verður þó
talsvert minni.
Allar bensínvélarnar í nýja bíln-
um verða sex strokka. Sú minnsta
verður 2,2 lítra og skilar 170 hest-
öflum og líklegt þykir að hinar
verði 2,5 lítra, 192 hestafla og
þriggja lítra, 231 hestafl. En bíll-
inn verður líka boðinn með tveggja
lítra dísilvél, líklega 150 hestafla.
Sama þriggja lítra dísilvélin og í
X5, 184 hestafla, verður einnig í
boði í X3. Bíllinn er væntanlegur á
markað innan þriggja ára og hefst
framleiðslan vorið 2004.
BMW X5 eignast lítinn bróður
BMW X3 í dularklæðum.
Tölvugerð mynd af BMW X3, sem væntanlegur er á markað 2004.
VOLVO hefur farið óvenjulega leið
til að vekja athygli á Volvo V70 XC
í Svíþjóð. Nöfn sem hafa reynslu-
ekið bílnum fyrir 17. mars og
þeirra sem eiga slíkan bíl þar í
landi lenda í potti sem dregið verð-
ur úr. Verðlaunin eru fimm daga
ævintýraferð á Íslandi 9.–14. apríl
nk. Volvo auglýsir þetta á heima-
síðu sinni í Svíþjóð undir heitinu
Expedition Volvo Cross Country
Island. Þar gefst 19 heppnum ein-
staklingum kostur á að reynsluaka
Volvo Cross Country á Vesturlandi
sér að kostnaðarlausu, fara í ferðir
á jökul og hvalaskoðunarferðir
ásamt heimsókn á Þingvelli, Gull-
foss og Geysi.
Íslandsferð á Volvo V70 XC
Volvo V70 XC Cross Country verður farkostur Svíanna í Íslandsferðinni.
NÝIR bílar streyma fram þessa dag-
ana frá framleiðendum enda stendur
fyrir dyrum einn af hápunktum
hvers bílaárs í Evrópu, bílasýningin í
Genf. Einn af allra nýjustu bílunum
er fjögurra sæta Alfa kúpubakur.
Sagt er að lakkið sé varla þornað á
honum áður en hann verður afhjúp-
aður á sýningunni og Alfa hefur ekki
ennþá fundið nafn á bílinn. Hann er
svipaður að stærð og núverandi Alfa
GTV en hönnunin, sem var í höndum
Giugiaro á Ítalíu, tekur mið
af stíleinkennum 156, 147 og
jafnvel 166.
Meðal nýjunga eru
vængjadyr sem opnast upp á
við. Einnig er á honum sól-
lúga með gleri sem dekkist í
mikilli sólarbirtu og heldur
þannig birtustiginu jöfnu
innan í bílnum.
Bíllinn er algerlega smíð-
aður úr áli og koltrefjaefn-
um og ýmis tækni úr kappaksturs-
bílum á að tryggja það að þetta verði
góður akstursbíll. Vélin er miðjusett,
4,0 lítra, V8 sem afkastar að minnsta
kosti 400 hestöflum. Bíllinn á að ná
100 km hraða á um 5 sekúndum.
Aflið fer einvörðungu til afturhjól-
anna um sex gíra handskiptan gír-
kassa sem er staðsettur við afturöx-
ulinn til þess að tryggja sem jafnasta
þyngdardreifingu milli öxla. Meðal
öryggisbúnaðar eru Michelin dekk
sem hægt er að aka þótt springi á
þeim. Eins og Nardo-ofursportbíll-
inn er nýi Alfa-hugmyndabíllinn
smíðaður með það í huga að vera lög-
legur götubíll.
Nýjasta útspil Alfa er þessi aflmikli kúpubakur.
Alfa-ofursportari
18 tommu álfelgur og rennilegt útlit á nýj-
um Alfa-hugmyndabíl.