Vísir - 14.05.1980, Qupperneq 13
MiOvikudagur 14. mai 1980
12
vfsm
„Þetta hefur verið óttalegt kropp að undanförnu hjá okkur, þorskurinn
virðist hafa elt loðnuna”, sagði einn af sjómönnunum, sem blaðamaður
Visis rabbaði við á Dalvik fyrir nokkrum dögum. Það var farið að halla
undir kvöld og mannlifið við Dalvikurhöfn dæmigert fyrir islenskt sjávar-
þorp, eða réttara sagt sjávrbæ, þvi Dalvik er orðinn kaupstaður. Það var
„blankalogn” eins og við segjum gjarnan fyrir norðan, sólskin og bjartur
himinn.
Síðdegisstemming við Dalvikurhðfn
har sem forsetaframbjóðandl
Iffgaðl upp á hversdagsielkann
.ÞORSKURI
Bátarnir voru aö tinast inn og
landa. Aörir voru aö gera klárt
fyrir næsta dag. Togarinn
Björgúlfur var aö taka is, oliu
og kost. Nokkrir strákar voru
aö veiöa, en fengu ekkert.
Sögöust vera aö biöa eftir
feörum sinum og létu þess getið
að þeir heföu oft fengið stóra
fiska þegar þeir hefðu fengið að
fara meö i róður. Fjölskrúöugt
fuglalif var hvert sem litið var,
enda nóg æti. Svartbakur,
sneglur, hettumávar og æðar-
fugl, hvað innan um annað, en
gamlir Dalvfkuringar höföu orð
á aö minna bæri á æðarfuglinum
i seinni tiö. Vargfuglinn sæi
fyrir þvi.
Hét áður Böggvistaða-
sandur
Byggö á Dalvík myndaðist i
kring um verbúöir bænda úi;
og
Myndir
texti: *
Gfsli Sigur-
geirsson, blaöa-
maöur Visis á
Akureyri.
Svarfaöardal, sem reistar voru
á Böggvistaöasandi.' Smá
saman lengdist sá tími sem
veriö var i verbúöunum þar til
þær voru orönar aö þorpi. Siöar
fékk þaö nafnið Dalvik og var
sama hreppsfélag og Svarf-
aöardalshreppur, þar til Dalvík
fékk kaupstaöarréttindi 1975.
1. desember s.l. voru ibúar á
Dalvik 1260 og er fjölgunin hæg
en örugg, aö sögn Valdimars
Bragasonar, bæjarstjóra. Lang-
flestir lifa af sjávarútvegi eða
þjónustugreinum f tengslum við
hann. KEA er stóra nafnið á
staönum. Sér um mestan hluta
af versluninni, á frystihúsið og
útgeröarfélagið á móti bænum
og Björgvini Jónssyni.
Einstaklingar verka einnig fisk,
Þeir höfðu margt að skrafa eftir aö Rögnvaldur var farinn.
mest i skreið og salt, og þá af
eigin bátum. Visir að iðnaöi
hefur veriö á Dalvik, en á nú
undir högg aö sækja.
Tekjurnar y fir
meðallagi.
Meöaltekjur bæjarsjóös af
hverjum einstaklingi eru vel
yfir meöallagi á Dalvik og er
þaö mun betri útkoma en hjá
nágrönnunum i ólafsfirði.
„Komiö þið sælir drengir, ég heiti Rögnvaldur Pálsson, forsetaframbjóðandi lslands".
„Mennirnir i brúnni”.
„Þeir fiska sem róa.”
Landaö úr Otri, sem
fengið hafði um 3 tonn út
af Rauöanúp eftir 7 tlma
stim á miðin.
Kemur þaö til af þvl aö atvinnu-
reksturinn er blandaöri, þaö er
ekki eins mikiö einhliöa bundið
i sjárvarútvegi og f Ólafsfiröi.
Má þar tilnefna ýmsa þjónustu-
stafsemi viö sveitina.
Helstu verkefnin á árinu hjá
Dalvíkurbæ eru viö fyrsta
Gert klárt fyrir næsta róöur.
áfanga aö grunnskóla, heilsu-
gæslustöð, sem hefur verið i
byggingu siöan 1975, en vonir
standa til aö hluti hennar verði
tekinn I notkun á árinu, leik-
skólabyggingu er að verða lokið
og verið er aö innrétta siðari
áfanga dvalarheimilis fyrir
aldraða. Þegar þetta er talið og
við bætast ýmsir fastir þjón-
ustuliðir er litiö svigrúm til fjár-
hagslega varanlegrar gatna-
gerðar.
Mannlif við höfnina
Eins og sagði i upphafi var
mannlifiö við höfnina dæmigert
fyrir islenskt sjávarþorp — bæ,
fyrirgefið. Til viöbótar þvi sem
áður er nefnt stóöu menn viða
undir vegg og röbbuðu um
landsins gagn og nauðsynjar.
Heimsókn Rögnvaldar Páls-
sonar, forsetaframbjóöanda,
var til aö lffga upp á hversdags-
leikann. Menn voru að visu mis-
jafnlega áfjáöir f að ræða við
frambjóöandann og lengst
spjallaði hann viö nokkra „grá-
sleppukarla”.
Sagöi Rögnvaldur þeim að
þetta væri allt saman ágætis-
fólk, sem væri f framboöi. En
það væri ljóst aö einungis einn
frambjóöandinn kæmist að,
nema þvi aöeins aö hann og
Vigdís sameinuöust. Þau ættu
tryggan sigurinn.
Lét Rögnvaldur vel af undir-
tektum landsmanna, en lét þess
getið aö áhuginn fyrir sér virtist
fara minnkandi eftir þvi
semnærdrægi heimahögunum,
Ólafsfiröi.
Rögnvaldur kom vföa við I
máli sinu og höföu „grásleppu-
karlarnir” margt aö ræöa þegar
hann var frinn og voru enn aö
þegar blaöamaöur VIsis kvaddi.
En Visir er enn á ferðinni á
Dalvik f dag og veröur efni
þaöan birt smátt og smátt á
næstunni.
G.S.:Akureyri.
Vargfuglinn hefur nægi-
legt æti viö úrennsliö frá
fiskverkuninni.
VERÐLAUNA-
GRIPIR OG
FÉLAGSMERKI
Framleiði alls konar
félagsmerki. Hefi á-
vallt fyrirliggjandi
ýmsar stærðir verð-
launabikara og verð-
launapeninga, einnig
styttur fyrir flestar
greinar íþrótta.
Leitið upplýsinga
MAGNÚS E.
BALDVINSSON
Laugavegi 8.
Bernharðs
Hannessonar s.f.
Suðurlandsbraut 12,
sími 35810.
Fyrir al/a
fjölskylduna
N.L.F . búðirnar
Laugavegi 20B
óðinsgötu 5
(v/óðinstorg).
Heildsö/usimi:
> 10262 r