Vísir - 14.05.1980, Blaðsíða 24

Vísir - 14.05.1980, Blaðsíða 24
.1tfsm Miðvikudagur 14. maí 1980 síminneröóóll Spásvæöi Veöurstofu Islands eru þessi: 1. Faxaflói, 2. Breiöafjörður, 3. Vestfiröir, 4. Norðurland, 5. Noröausturland, 6. Austfiröir, 7. Suöausturland, 8. Suövest- urland. Veðurspá dagslns Um 700 km SV af Reykjanesi er 995 mb lægö sem þokast V. Yfir sunnanveröri Skandi- navlu er 1032 mb hæö. Áfram hiytt veöur og vlða 15- 20 stiga hiti síödegis á Noröur- og Noröausturlandi. Suövesturland til Breiöafjarö- ar: S kaldi, skýjaö og smá- skiirir. Vestfiröir: SA gola eöa kaldi, skýjaö og sums staöar þoku-1 loft á miðum. Noröur- og Noröausturiand: S gola, léttskýjaö. Austfiröir: S gola eöa kaldi, þokuloft sunnan til. Suöausturland: S kaldi eöa stinningskaldi vestan til en talsvert hægari austan til... Veðriö hér og har Kiukkan sex I morgun: Akur- eyri, skýjaö 10, Bergen létt- skýjaö 10, Helsinki léttskýjaö 8, Osló léttskýjaö 10, Reykja- vík lirkoma 8, Stokkhólmur léttskýjaö 8, Þórshöfn þoku- móöa 9. Klukkan átján f gær: Aþena skyjaö 17, Berllnléttskýjað 13, Feneyjarskýjaö 19, Frankfurt léttskýjaö 19, Nuuk skýjaö 2, London léttskýjaö 20, Luxem- burghálfskýjað 17, Las Palm- as skýjaö 20, Maliorca létt- skýjaö 18, Montreal skárir 14, New York skýjaö 24, Parfs léttskýjaö 22, Róm alskýjaö 17, Malaga léttskýjaö 21, Vln léttskýjaö 12, Winnipeg al- skýjaö 8... Lokl segir „Svlar stóöu á öndinni” segir Mogginn. Þar sem Sviar munu vera rúmlega átta milljónir talsins má telja fullvfst, aö öndin hafi veriö frekar illa haldin á eftir. i'TI'l IW—II illlMULilliiLlililLXMM—UIUM. Skipverjar á Fjallfossi björg- uöu I nótt fjögurra manna áhöfn af dönsku fiskiskipi sem var aö sökkva um 70 sjómilur frá Fær- eyjum. Bráöur leki haföi komið aö bátnum og var ekki við neitt ráöiö. Fiskibáturinn Jesper frá Kors- ör sendi út neyöarkall I nótt þar sem hann var staddur um 70 sjó- mllur suösuöaustur af Akrabergi I Færeyjum. Haföi skyndilega komið mikill leki aö vélarrúmi og var báturinn aö sökkva. Fjallfoss var þá staddur á þessum slóöum á leiö til Rotter- dam og hélt þegar 'til hjálpar. Laust fyrir klukkan fjögur I nótt tilkynnti Fjallfoss aö tekist heföi aö bjarga fjögurra manna áhöfn Jespers og skipshundinum aö auki. Veöur var sæmilegt er at- buröurinn átti sér staö. Fjallfoss heldur áfram ferö sinni til Rotter- dam meö skipbrotsmenn. — SG Umferðarslys varð á Bústaðavegi i gær, þeg- ar bifhjóli var ekið aftan á fólksbifreið. Meiðsli ökumanns bif- hjólsins voru ekki talin alvarleg. Ljosmynd: Guðmundur Hegli Bragason. Fjallfoss bjargaði áhöfn af sökkvandi bátl Linnulausar áráslr á sundlauglna í Breíöholtl og nýbyggingu daghelmllls: TJÖNH TALH NEMA UM 20 MILLJÚNUMI Samkvæmt skýrslum sem lagðar voru fyrir fund borgarráðs í gær nemur tjón af völdum skemmdarverka við nýju almenningssundlaugina í Breiðholti um 15 milljónum króna og skemmdir á nýbyggingu dagheimilis við Iðufell nema f jórum milljónum. „Þetta er mjög alvarlegt mál og skemmdarverkin hafa staðiö linnulaust I langan tfma”, sagöi Leifur Blumenstein bygginga- fræöingur hjá borgarverk- fræöingi i samtali viö VIsi I morgun. Verktaki viö byggingu sund- laugarinnar telur aö skemmdarverkin nemi um 15 milljónum króna þau tvö ár sem hann hefur annast fram- kvæmdir. Þarna hefur veriö kveikt I, verkfærum stoliö, rúö- ur brotnar og þegar byrjaö var aö flisaleggja laugina var ráöist á þær meö bareflum og fllsarn- ar brotnar. Viö Iöufell i Breiöholti hefur veriö unniö viö byggingu á litlu húsi fyrir dagheimili og leik- skóla og er þaö nú rúmlega fok- helt. Allt frá upphafi fram- kvæmda hefur veriö ráöist á ný- bygginguna og var strax byrjaö aö brjóta niöur uppslátt. Þegar veriö var aö setja rúöur I húsiö voru brotnar 28 rúöur af 60. Var þá gripiö til þess ráös aö negla fyrir alla glugga, en árásimar hafa haldiö áfram og verkfæri einnig eyöilögö. Skemmdir eru metnar á hátt I fjórar milljónir. Eins og Vísir greindi frá I gær er rúöubrot I grunnskólum borgarinnar meö ólikindum og hafa veriö brotnar rúöur aö verömæti 17 milljónir frá ára- mótum. —SG FLOGIB MEB FERSKAN FISK TIL RMERÍKU7 ÞAÐ ER I ATHUGUN HJA S0LUMIDST0D HRAÐFRYSTIHUSANNA ,/Þetta er á algjöru byrjunarstigi og fyrst er að kanna áhuga félagsmanna hér suð-vestanlands," sagði Hjalti Einarsson framkvæmdastjóri í Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna þegar Vísir spurði hann hvort rétt væri að hugmyndir væru uppi um að flytja ferskan fisk á markað f USA með flugvélum," og í þeim filgangi boðum við til fundar með þeim á mánudaginn kemur." Hjalti sagöi aö Coldwater I USA yröi kaupandinn. Markaö- urinn er talinn nokkuö viss, enda hafa ýmsir reynt þetta áö- ur, þó aöeins i mjög smáum stil. Um hvort af þessu yröi sölu- aukning eöa þáö dragi úr ann- arri sölu Coldwater, hélt Hjalti aö hvorutveggja yröi, einhver aukning ætti aö fást viö þetta, en I raun væri hér um aö ræöa ó- verulegt magn, miðað viö heild- arsöluna viö Coldwater, ef miö- aö er viö aö senda eina flugvél I viku meö um 45 tonn, en mánaöarlega eru send þangað 6-8000 tonn meö skipum. Hjalti bjóst viö aö fyrst og IH ■! Ml MMMMRMM IITir 11 TF' mffflTlI fremst yröi karfi fluttur flug- leiöis, en ekkert væri til fyrir- stöðu aö flytja aörar fisktegund- ir á þennan hátt, t.d. lúöu eöa ýsu, en óskir kaupenda mundu ráöa mestu um þaö. Fiskurinn veröur flutttur út flakaöur, en aö öllum llkindum óunninn aö ööru leyti. Kostnaöurinn viö flutninginn hefur ekki veriö kannaöur, sagöi Hjalti, en ef til kemur veröur leitað tilboöa hjá flutningaflugfélögum. SB

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.