Vísir - 09.06.1980, Blaðsíða 24

Vísir - 09.06.1980, Blaðsíða 24
vtsm Mánudagur 9. júnl 1980 Umsjón: Magdalena Schram Sænskur gaidrakarl með gítar í hðndum „Hann hefur allt til að bera til að verða einn af bestu gitarleik- urum heimsins”, er haft eftir hin- um þekkta sænska gltarleikara, Per-Olof Johnson, um landa sinn, GORAN Söllscher.og liklega geta margir af þeim alltof fáu áheyr- endum, sem mættu I Háskólabíó sl. fimmtutudagskvöld, tekið undir þau orð. Söllscher sem er aöeins 25 ára gamallsýndi á þessum tónleikum að hann hefur yfir mjög góðri tækni aö ráða, ekki aöeins að Þrátt fyrir að árin séu aðeins 25, hefur Göran Söllscher þegár náð góð- um tökum á gitarnum. hann væri fingrafimur, heldur tókst honum að galdra út úr glt- arnum blæbrigði, sem maöur hélt aö væru ekki til á venju- legum gltar. En það þarf meira en tækni til aö gera einhvern að góðum tón- listarmanni, því að án túlkunar væri alveg eins hægt aö stilla róbot á sviðið og láta hann leika eins og hann hefur forskrift til. Þaö var hins vegar fjarri lagi, aö sllkt ætti viö Söllscher, því að hann virtist leggja likama, sál og ekki síst andlit I aö ná fram þvi, sem hann ætlaöi sér, úr gltarnum. A fyrri hluta hljómleikanna voru eingöngu verk eftir enska tónskáldið og gitarleikarann John Dowland, en hann mun hafa verið uppi á dögum Kristjáns IV kon- ungs af Islandi og Danmörku. Báru þau verk keim af þeim tlma, en þetta voru yfirleitt glettin lítil lög venjulega, tileinkuð göfgum konum. Eftir hlé var þó komið töluvert annað hljóö I gltarinn, en þá lék Söllscher m.a. eitt kirkjulegt verk eftir Agustin Barrio, sónatlu eftir Spánverjann Manuel Ponce og ennfremur tilbrigði við japanska þjóðlagiöSakura eftir Y. Yocoh. í þvl verki naut Söllscher sln og var nánast sem gítarinn I höndum tónlist Halldór Reyn- isson skrifar um tónlist hans heföi breyst I japanskt lang- spil. Var þetta eflaust hápunktur tónleikanna og kunnu áheyrendur vel að meta snilli hins unga Svia og klöppuöu hann upp tvisvar. Eitt fannst mér þó athugunar- vert við þessa tónleika og það var sjálft tónleikahúsið, Háskólabfó. Þaö er ekki sama að vera með heila sinfónlu eða einn lltinn kassagltar I þessu flæmi og hefði verið smekklegra að hafa tónleik- ana I minna húsnæði og „huggu- legra”. DAUDI VID SðLARUPPRAS [ Einkunn: 5.0 Laugarásbió: Dracula Leikstjóri: John Badham Handrit: W.D. Richter Kvikmyndataka: Gilbert Taylor Aðalleikarar: Frank Langella, Sir Laurence Olivier, Donald Pleasence, Kate Nelligan og Tre- vor Eve. Mynd John Badham umDrac- „ula greifa cr þriðja kvikmyndin um þessa frægu þjóösagnaper- sónu, sem sýnd er hérlendis síð- ustu mánuðina. Síöastliöiö haust gafst kostur á aö sjá „Nosferatu: Vamplran” eftir Werner Herzog. Herzog íysti þvl yfir að hin sigilda þögla mynd F.W. Murnaus „Nos- feratu, hryllingssymfónla” væri fyrirmynd sín. Badham notar sama efnisþráð og Herzog og viröist hafa sama markmiö I huga, þ.e. að komast aö rótum þjóösögunnar um Dracula. Hann vill syna fram á, aö sagan er kvikmyndlr Sólveig K. Jónsdóttir skrifar sprottin úr hugskoti mannsins, tengd kynhvötinni og frumstæðri hrifningu af hinu skelfilega. Niðurstaöa Herzogs er sú, að Dracula veröi ekki drepinn, hann búi i manninum sjálfum. Badham hengir hins vegar greifann sinn i hæstu rá á seglskipi, þar sem hann bráðnar i sólinni. En sólin nær ekki til greifans nema fyrir tilstilli manna. Van Helsing (Sir Laurence Olivier) og Harker (Trevor Eve) ganga vasklega fram I aö bjarga tveim kven- mannssálum, sem hafa ánetjast Dracula gamla. Dracula hefur að sönnu áhuga á að ná karlmönnum á sitt vald, en kvenfólkiö veröur alltaf veikara en mannfólkið eins og Nóbelsskáldið lætur Bjart karlinn i Sumarhúsum segja. Dracula nær valdi yfir konum meö þvl aö blikka öðru auga með- an karlarnir standa af sér hverja árás hans. Dracula gerist aö mestu á geö- veikrahæli og I nágrenni þess. Það undirstrikar enn frekar aö Dracula er sprottin úr djúpum hugans en getur gerst sjúklega ágengur. Raunar eru aðeins þrjár persónur kvikmyndarinnar, sem nokkuö kveður að heilar á geðs- munum eöa lausar við Dracula. Kvikmyndatakan I Dracula er oft á tlöum falleg og nokkur atrið- in harla tilkomumikil, önnur smekklaus og hlægileg. Dracula, sá mikli hjartaknosari, er óneit- anlega hlægilegur þegar hann er farinn aö skrlöa veggi eins og teiknimyndaflgúran Batman. Þegar ástin brennur hvaö heitast milli Lucyar (Kate Nelligan) og Dracula, er svo brugöið upp myndum, sem minna einna helst á ódyrt plakat með mynd af elsk- endum I sólsetri, en á vísast aö tákna ástríðuhita. Dracula er sorgleg kvikmynd. Fórnarlömbum greifans er bjargað. Hjartaö er skoriö úr annarri stúlkunni til aö forða henni frá Dracula, en hinnar bíður aö ganga í hjónaband meö afbryöisömum lögfræðingi, svo aö ekki sé minnst á afdrif. Dra- cula sjálfs. Þegar allt kemur til alls,hiytur samúöin að vera með Dracula en ekki þeim þurru og forpokuöu krossferðariddurum, sem ráöast gegn honum. — SKJ Dracula (Frank Langella) beitir dáleiðslu og fórnardýrin biða I röð eft- ir að hann narti I þau. NÝ SÝNING I ASGRlMSSAFNI Arleg sumarsýning I Asgrlms- safni er nú opin og er þetta 47. sýning safnsins frá opnun þess árið 1960. Verkin á þessari sýningu eru máluö víðsvegarálandinu.m.a. I Skaftafellssýslu, Mývatnssveit, Hafnarfirði, Reykjavik, að ógleymdri Heklumynd, sem vakiö hefur mikla athygli. A heimili Asgrims eru sýndar vatnslitamyndir og teikningar. Erlendum gestum er greidd gatan meö upplýsingabæklingi á ensku.dönskuog þýsku. Safnið aö Bergstaöastræti 74. er opið alla daga, nema laugardaga, frá 1.30 -4 og aðgangur er ókeypis. Lísta- hátfðar- punktar Dagskráin á morgun, þriðjudag: Þjóðleikhúsið kl. 20.00: Þrjár systur eftir Anton Tsjekov. Kom-teatteri frá Helsinki. Lögberg kl. 20.30:nEmpty Words”. Upplestur úr verki Thoreau’s ásamt lit- skyggnum. John Cage ies. John Cage ■ Hann fann upp | r/happening" Sá, er les upp úr | Thoreau annað kvöld, John ■ Cage, er sannkallaður ■ þúsund þjala smiður. 1 gær ■ stjórnaði hann áti miklu i I Klúbbi listanna og I kvöld ■ veröur leikiö eftir hann ■ tónverk undir stjórn ekki ■ minni manns en Zukovsky. I Hann fann upp „the . ■ prepared piano” (undir- ’ búna pianóið?) og er talinn I hafa veriö fyrstur manna 5 til aö fremja „happening”. I Hann skrifar og gerir _ grafikmyndir. Dæmi um rit I hans er Silence (1961), A _ Year from Monday (1968) | og Writing Through I Finnegans Wake (1078). | Hann hefur gert útvarps- . dagskrár og teiknað bækur. | Arið 1949 fékk hann ■ Guggenheim verðlaun fyrir ■ að hafa iosað um viðjar ■ tónlistarinnar með verkum I sinum fyrir ásláttarhljóð- | færi og „undirbúna pianó- I inu”. Listinn yfir verk hans ■ um frumleg afrek á ótrú- ■ legustu sviðum er nær ■ óendanlegur og best að * legja sem svo, aö sjón og I áheyrn séu sögunni ® rikari... Og það er Paul Zukovsky * sem spiiar á tónleikunum I I Bústaöakirkju i kvöld, Cheap Imitations eftir John I Cage. Zukovsky er meö _ mestu túlkendum samtfma | fiðlutónlistar i dag. Tón- _ leikarnir byrja kl. 20.30. Annaö á dagskránni i ga kvöld: Leikrit Tjekovs, | Þrjár systur, i uppfærslu ■ Kom-teatteri frá Helsinki. ! ■ Þjóðleikhúsinu kl. 20.00.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.