Vísir - 09.06.1980, Blaðsíða 30

Vísir - 09.06.1980, Blaðsíða 30
VÍSIR Mánudagur 9. júni 1980 GUDLAUGS ÞORVALDSSONAR Fundur í Stapa n.k. þriðjudag 10. júní kl. 20.30. Fundarstjóri: TÓMAS TÓMASSON Ræöumenn: Páll Jónsson Guðrún Ólafsdóttir Jóhann Einvarðsson Jón Böðvarsson Hildur Júlíusdóttir Halla Tómasdóttir Gunnar Jónsson ALLIR VELKOMIMIR Stuðningsmenn SuMlro?® ÍMimTS l-K- Acryseal - Butyl - Neor HEILDSÖLUBIRGÐIR OflAseeirsson i ir-ii r\\ /rnrM i iti _ ^ HEILDVERSLUNGrensásvegi 22 — Sími: 39320 105 Reykjavík— Pósthólf: 434 \”ti{ .1 •• »>,1 > i 'i 30 Hvernlg skrlfa á nðfn kínverskra ráðamanna Þaö leikur liklega lltill vafi á þvi, aB Islendingar eru meðal menntuöustu þjóBa. Aö minnsta kosti efumst viö sjaldan um aB svo sé. ViB btium llka yfir sterkri áráttu aö láta I ljós hina miklu þekkingu okkar svo aö ekki fari milli mála hjá neinum aö viö höfum vit á málunum. Þaö er þvl ekki nema von aö þegar færi gefst aö skiptast á oröum viö einhverja af starfs- mönnum klnverska sendiráös- ins á íslandi leiöist margur maðurinn I þá freistni aö láta nokkur orö falla um klnversk stjórnmál. Upplýsingar um Klna I Islenskum f jölmiölum eru orðnar mun meiri en áöur var, þannig aö þaö er eölilegt aö landinn vilji sýna Klnverjum aö Hua Guofeng hann fylgist vel meö. Hræddur er ég þó um aö lltið veröi um svör hjá Kínverjum þegar viömælandi fer fjálglega að tjá sig um þá ágætismenn „Húa Kúafeng og Teng” eins og tiökast hefur sums staöar aö döutan Ragnar Baldursson, Tóklo, skrifar. rita og bera fram nöfn formanns og varaformanns Kommúnista- flokks Klna. Að visu er það rétt aö þar sem starfsmenn kln- verska sendiráðsins eru kurteisustu menn, þá brosa þeir bara við og eru hinir vingjarn- legustu, þó svo aö skilji tæpast hvað I ósköpunum um sé að ræða. Þaö er sem sé fyrir neðan allar hellur hversu geipilega Is- lendingum almennt tekst aö snúa út úr framburöi á nöfnum forystumanna þessarar fjöl- mennustu þjóöar veraldar. Samkvæmt latlnuletri Kín- verja ber aö rita nafn formanns KFK Hua Guofeng. Réttur framburöur á nafni hans er ná- lægt því aö vera I Islenskri skrift „Hva Gvoföng”. Nafn vara- formannsins „Teng” ber nú aö rita sem Deng Xiaoping, en framburöur er eitthvaö svipaö „Döng Sjápfng’LÞó svo aö Kln- verjarskrifi nafn hins látna for- sætisráöherra sins „Zhou Enlai” (framboriö eitthvaö I llkingu viö „Dsó Enlæ”), þá mun víst vera allt i lagi aö bera nafn hans áfram fram á Islenska vísu sem Sjú Enlæ, hér bera Japanir svipaö fram og ís- lendingar. Nýjar stjörnur á himni kln- verskra stjórnmálaeru svo þeir Hu Yaobang, ritari kinverska kommúnistaflokksins, og Zhao Ziyang, fyrsti varaforsætisráð- herra landsins og llklegt for- sætisráðherraefni. Þaö er sjálf- sagt fyrir alla íslendinga, sem hafa áhuga á kínverskum stjórnmálum, aö vita aö Hu Yaobanger boriöfram sem „Hú Jábang” og Shao Ziyang nálg- ast þaö að vera boriö fram sem „Dsá Dsjuang”. Þaö er þó rétt aö geta þess aö nöfn þessi eru krydduð tónum þegar Klnverja bera þau fram og ýmis hljóö I kfnversku eru ekki til I Islensku og þvi erfitt aö ná alveg réttum framburöi á kínverskum nöfnum, enda getur enginn ætlast til þess aö íslend- ingar snúi upp á sér tunguna þegar taliö berst aö klnverskum stjórnmálum. Tókió, 13. mal 1980. HUGMYND ER TIL ALLS FYRST” - segja eigendur nýstofnaðs fyrírtækís „Hugmynd h.f/ „Þetta er sjálfstæö ráögjafar- þjónusta,” sögöu þeir Egill Eö- varösson og Björn Björnsson, aö væri aöalstarfssviö fyrirtækis- ins „Hugmynd h.f.” en þaö er nýtt fyrirtæki, sem býöur auglýsingastofum og fram- leiöendum auglýsinga sérþekk- ingu á sjónvarpi. „Hugmynd h.f.” er hlutafélag og eru aðaleigendurnir þeir Eg- ill Eövarðsson og Björn Björns- son. Þeir félagar eru báöir þaul- vanir sjónvarpsmenn og hafa báöir starfaö viö sjónvarpiö, Egill er þar enn, en Björn hætti fyrir þrem árum. „Hugmynd h.f.” tók til starfa I mal s.l. og eru þeir þegar famir að vinna aö mörgum auglýsingum, þótt engin hafi enn litiö dagsins ljós, þar sem framleiöslutími auglýsinga er 6- 8 vikur. Þeir sögöu, aö fyrirtækiö væri algerlega óháö auglýsingastof- um og framleiöendum auglýs- inga og tæki ekki aö sér aöra auglýsingagerö en hugmynda- vinnu og handritagerö. Einnig sögöu þeir, aö þjónusta sem þessi.væri fastur liöur I auglýs- ingagerö vlöast erlendis. Þetta sparaöi framkvæmdatlma, sem annars færi I tilraunir, auk þess sem allt yröi aögengilegra fyrir þá, sem fullvinna auglýsinguna Sjónvarpiö væri I viöeigandi til- vikum áhrifamesta og jafn- framt ódýrasta auglýsing sem völ væri á. Gerö slikra auglýs- inga færi vaxandi og sama mætti segja um kröfur þeirra, sem aö þeim stæöu, þ.e.a.s. auglýsenda og framleiðenda, jafnt sem neytenda. Forsenda góörar sjónvarpsauglýsingar væri fyrst og fremst fagleg og vönduö hugmyndavinna I upp- hafi, en aö mati þeirra Egils og Björns hefur þeim liö alls ekki veriö nógu mikill gaumur gef- inn. Því betri grunnur, sem lagður væri aö auglýsingunni, þeim mun meiri áhrif heföi hún, og lengra notkunargildi. Þeir sögöu, aö með þessu væru þeir alls ekki I samkeppni viö auglýsingastofur, heldur væri hér um aö ræða enn eitt skrefiö, sem óstigiö heföi veriö I gerö sjónvarpsauglýsinga. Þeir Egill og Björn sögöu, aö takmörk fyrirtækisins væru enn ekki endanlega séö. Áhugi á kvikmyndagerö annarri en auglýsingum væri fyrir hendi hjá þeim báöum, eftir þvi sem aöstæöur leyföu, svo aö vel kæmi til greina aö færa út kviarnar slöar. T.d. væru þeir aö vinna núna aö kvikmyndinni „TIvolI” sem hlaut styrk úr Kvikmyndasjóöi en aö henni standa Jakob Magnússon og Stuðmannahópurinn, auk þeirra Egils og Björns. Hlutverk þeirra síöastnefndu er aö útbúa kvikmyndahandrit, en frum- drög að handriti liggur fyrir frá Jakobi. Aætlað er aö taka myndina upp sumariö 1981, en þetta er söngva- og gleðimynd, unnin út frá sömu hugmynd og platan fræga, TIvolI. Aö lokum tóku þeir félagar, fram, aö það sama gilti um sjónvarpsauglýsingar og svo margt annaö, aö hugmynd væri til alls fyrst, ekki slst góö hug- mynd. —K.Þ. Aöaleigendur og starfsmenn Hugmyndar hf„ þeir Egill Eövarösson t.v. og Björn Björnsson. (Vlsismynd JA).

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.