Morgunblaðið - 23.04.2002, Side 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Efnisyfirlit
Austurbær ................................. 10
Ás .............................................. 8–9
Ásbyrgi ...................................... 43
Berg .............................................. 23
Bifröst .......................................... 37
Borgir ................................... 32–33
Eign.is ............................................. 6
Eignaborg .................................... 40
Eignamiðlun ........................... 10–11
Eignaval ...................................... 38
Fasteign.is .................................. 42
Fasteignamarkaðurinn ............... 4
Fasteignamiðlunin .................... 38
Fasteignamiðstöðin .................. 27
Fasteignasala Mosfellsbæjar .. 17
Fasteignasala Íslands .............. 35
Fasteignastofan .......................... 19
Fasteignaþing ............................. 39
Fjárfesting ................................... 15
Fold ................................................ 13
Foss ............................................... 36
Garðatorg ...................................... 5
Garður ........................................... 21
Gimli ..................................... 34–35
Híbýli ............................................ 47
Híbýli og skip .............................. 40
Holt ................................................ 41
Hóll .......................................... 16–17
Hraunhamar ....................... 24–25
Húsakaup ....................................... 3
Húsavík ........................................... 9
Húsið ............................................. 18
Húsin í bænum ............................. 71
Höfði ............................................. 48
Höfði .............................................. 14
Kjöreign ....................................... 22
Lundur ................................... 20–21
Lyngvík .......................................... 31
Miðborg ........................................ 30
Óðal & Framtíðin ....................... 33
Skeifan .......................................... 12
Stakfell ........................................ 47
Vagn Jónsson ............................. 29
Valhöll .................................. 28–29
viðbótarlánum Íbúðalánasjóðs,
virkni þeirra og þróun útlána 1999–
2001. Þá munu aðilar úr verkalýðs-
hreyfingunni, húsnæðisnefndum
sveitarfélaga, frá verðbréfamark-
aðnum, Félagi fasteignasala og fé-
lagsmálaráðuneytinu kynna sjón-
arhorn þessara aðila á viðbótar-
lánakerfið og hvernig það hefur
reynst. Í kjölfarið verða pallborðs-
umræður um viðbótarlán.
Af þessu tilefni er ekki úr vegi að
rifja upp hvað viðbótarlánin eru.
Viðbótarlánin eru arftaki eldra fé-
lagslega eignaíbúðakerfisins.
VIÐBÓTARLÁN, viðbótar-lánakerfið og starfsemiÍbúðalánasjóðs fyrstu þrjú
starfsárin verða viðfangsefni Hús-
næðisþings Íbúðalánasjóðs 2002, en
þingið verður haldið í Salnum í Kópa-
vogi nk. þriðjudag, 30. apríl. Ætlunin
er að halda Húsnæðisþing á tveggja
ára fresti.
Á þinginu verður litið yfir farinn
veg og ársskýrsla 1999–2001 flutt.
Þá verður ítarleg umfjöllun um
víðbótarlán og viðbótarlánakerfið á
Húsnæðisþingi, en viðbótarlánin
voru ein helsta nýjungin í skipan
húsnæðismála þegar Íbúðalánasjóð-
ur var stofnsettur. Húsnæðisþing
Íbúðalánasjóðs er öllum opið og hefst
kl. 13:00.
Mismunandi sjónarhorn
Á þinginu mun verða kynning á
Lánin koma til viðbótar húbréfa-
lánum og geta numið allt að 25% af
markaðsverði íbúðar. Heildarlánveit-
ing Íbúðalánasjóðs má þó aldrei fara
yfir 90% af markaðsverði að teknu
tilliti til áhvílandi veðskuldbindinga.
Allir sem rétt eiga á húsbréfaláni
til kaupa á eigin íbúð eiga kost á við-
bótarláni að uppfylltum skilyrðum
um greiðslugetu og tekju- og eigna-
mörk.
Ennfremur er sveitarstjórn heim-
ilt að setja reglur um veitingu viðbót-
arláns sem taka m.a. mið af húsnæð-
isaðstæðum, gerð húsnæðis og
ástandi þess, fjölskyldustærð, heilsu-
fari og vinnugetu.
Viðbótarlán eru:
peningalán
veitt til 40 ára
verðtryggð
afborgunarlaus fyrsta árið, aðeins
eru greiddir vextir og verðbætur
endurgreidd með jöfnum
greiðslum vaxta og afborgana
(annuitet)
með minnst fjóra gjalddaga á ári.
Vextir viðbótarlána
Vextir viðbótarlána eru ákvarðaðir
árlega og taka mið af þeim kjörum
sem Íbúðalánasjóður fær við sölu
húsnæðisbréfa hverju sinni. Eftirfar-
andi er yfirlit vaxta viðbótarlána
1999–2001.
Ár Vextir viðbótarlána
1999 4,45%
2000 4,54%
2001 5,7%
2002 5,7%
Hafa ber í huga að fylgni er á milli
kjara við sölu húsnæðisbréfa og af-
falla húsbréfa.
Á árinu 1999 var ávöxtunarkrafa
húsbréfa á markaði það lág að þau
voru seld á yfirverði. Á árinu 2000
hækkaði ávöxtunarkrafa og húsbréf
fóru að bera afföll.
Ávöxtunarkrafa húsbréfa varð allt
að 5,7% og hefur löngum verið það
síðan.
Á sama hátt hækkaði ávöxt-
unarkrafa við útboð á húsnæð-
isbréfum Íbúðalánasjóðs. Sú hækkun
varð til þess að nauðsynlegt var að
hækka vexti á viðbótarlánum og öðr-
um peningalánum Íbúðalánasjóðs
sem fjármögnuð eru með sölu hús-
næðisbréfa.
Húsnæðisþing
Íbúðalánasjóðs 2002
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
Markaðurinn
eftir Hall Magnússon,
yfirmann gæða- og markaðsmála
Íbúðalánasjóðs/hallur@ils.is
FJÖLMÖRG heimili státa af falleg-
um sérhönnuðum gripum sem koma
frá fyrirtækinu Epal. Oft er um að
ræða sérhönnuð húsgögn og hluti
sem frægir hafa orðið vegna útlits og/
eða notagildis.
Epal, fyrirtæki Eyjólfs Pálssonar
og fleiri aðila, hefur í ár verið starf-
andi í 27 ár.
„Nafn fyrirtækisins er „íslensk
hönnun“ það er saman sett úr E
(fyrsta stafnum í Eyjólfur) og Pal
(Pálsson). Fyrsta verslun okkar var á
Hrísateig 47, síðan fluttum við í Síðu-
múla 20, þá í Faxafen 7 en síðast liðin
sex ár hefur verslunin verið í Skeif-
unni 6,“ sagði Eyjólfur Pálsson í sam-
tali við Fasteignablað Morgunblað-
ins.
Bókin Leyndarmál
Fyrir skömmu gaf Epal út bókina
Leyndarmál, sem er hugmyndavinna
rithöfundarins Sjóns og grafísk
hönnun Ámunda Sigurðssonar. Þetta
er mjög sérstök bók og glæsileg þar
sem er að finna fallegar myndir og
hugvitsamlegan texta.
„Í bókinni er að finna myndir og
texta sem sýnir það sem fyrirtækið
er að fást við um þessar mundir,“
sagði Eyjólfur.
En hvers vegna heitir þessi bók
Leyndarmál?
„Af því að margir hafa vitað um
hluta af því sem við seljum, en það
hefur ekki nokkur maður vitað hvað
við skiptum við marga aðila,“ sagði
Eyjólfur.
„Bókin er byggð upp sem yfirlit yf-
ir alla þá framleiðendur sem við
skiptum við, þar eru myndir af hluta
af framleiðslu þeirra og einnig eru í
bókinni merki þeirra allra og heima-
síður. Þessi bók er því aðgangur að
miklu meiru en kemst fyrir í einni
bók og bókin heldur gildi sínu m.a. af
því að heimasíðurnar endurnýjast.
Í bókinni er hið fjölbreytilegasta
efni, m.a. er þar að finna línurit af
hreyfingu hægra augans í draum-
svefni og þegar flett er áfram koma
fjórar síður af rúmum sem við erum
með á boðstólum. Allir sem hafa
áhuga á að eignast þessa bók ættu að
hafa samband við okkur og þeir fá
hana þá endurgjaldslaust. Það er
gaman að segja frá því að við höfum
sent bókina Leyndarmál til fjöl-
margra aðila erlendis og fengið mikil
viðbrögð, menn hafa hringt og sent
tölvupóst og m.a. sagt að þetta sé
einn sá alflottasti bæklingur sem þeir
hafi séð á ævinni.“
Viljum vera með vörur sem
uppfylla kröfur
En hvað hefur Epal haft að leið-
arljósi í starfi sínu þessi 27 ár?
„Okkar leiðarljós er að vera með
vörur sem uppfylla kröfur um gæði
og gott verð. Þegar ég tala um gott
verð er það verðið sem varan kostar í
landinu þar sem hún er framleidd.
Við erum með vörur frá öllum
Norðurlöndunum, Þýskalandi og
Ítalíu, Austurríki og Sviss. Einnig er-
um við með vörur íslenskra hönnuða,
svo sem Erlu Sólveigar Óskarsdótt-
ur, Guðrúnar Margrétar Ólafsdóttur,
Ólafar Jakobínu Ernudóttur og Odd-
geirs Þórðarsonar. Einnig seljum við
vörur eftir Pétur Lúthersson.“
Sérdeild með smærri
nytjahluti
Eruð þið með margvíslegar vörur
sérhannaðar fyrir heimili?
„Á seinasta ári settum við upp sér-
staka deild þar sem við erum með
smærri nytjahluti en ekki skraut-
muni sem slíka.
Þar seljum við hluti eins og kaffi-
könnur, hitakönnur, vatnskaröflur,
vínkaröflur, hnífapör, blómavasa,
öskubakka, damaskdúka, kerta-
stjaka og þannig mætti lengi telja.“
Hvað er vinsælast af þessum hlut-
um?
„Vatnskaröflurnar og vatnsglösin
frá Rosendahl, sem eru í stíl. Það
þurfa allir að drekka a.m.k. tvo lítra
af vatni á dag ef vel á að vera og það
er gaman að drekka vatnið úr fal-
legum glösum. Hitakönnurnar frá
Stelton eru líka mjög vinsælar. Í ár
eru 25 ár síðan þær komu fyrst fram.
Hönnuður þeirra er Erik Magnusen.
Í haust var sýning á verkum hans í
Hönnunarsafninu í Garðabæ, þar var
sýnd gjöf sem Stelton gaf safninu,
sem var öll hönnunarlína Eriks
Magnusens.“
Seljum mikið af gluggatjalda-
efnum og áklæðum
En hvað með stærri heimilisvörur,
hvað er vinsælast þar?
„Við seljum mikið af gluggatjalda-
efnum og áklæðum og þar er hönnun
á munstrum og litum í fyrirrúmi. Sú
hönnun er í sífelldri þróun. Við höf-
um selt mjög mikið af slíkri fram-
leiðslu þau 27 ár sem Epal hefur
starfað.
Hvað aðrar vörur varðar þá eru
sófar frá fyrirtækinu Erik Jörgensen
mjög vinsælir. Þeir eru afar ending-
argóðir. Ég skoðaði t.d. 16 ára gaml-
an sófa frá Jörgensen og púðarnir í
honum voru eins og nýir. Það er dún-
blanda í þeim sem heldur sér svona
vel. Við erum einnig með mikið af
stólum sem seljast vel, t.d. Sjöuna
eftir Arne Jacobesen og Maurinn eft-
ir sama hönnuð.“
Fékk happdrættisvinning
og keypti sér leðursófa
Hefur hönnun hjá þeim fyrirtæk-
um sem þið skiptið við breyst mikið
frá því fyrirtækið tók til starfa?
„Auðvitað er sífelld þróun í gangi
en margt af því eldra kemur aftur og
aftur. Þar er einfaldlega um að ræða
mjög vel hannaða hluti, einfalda og
látlausta. Sem dæmi um slíkt eru t.d.
leðursófanir sem Börge Mogensen
hannaði árið 1952. Þeir eru enn í fullu
gildi og vel það. Fjöldi fólks á sér
þann draum að eignast svona sófa.
Ég man t.d. eftir manni sem fékk há-
an happdrættisvinning og lét það
verða sitt fyrsta verk að koma hingað
og kaupa sér Börge Mogensen-leð-
ursófa.“
Hvað með eldhúsvörur – hvað ertu
með af slíku?
„Við erum með margar tegundir af
eldhúsborðum, t.d. Elipsu-borð sem
er hönnun Piet Hein, rithöfundarins,
til er torg í Stokkhólmi sem er með
sömu lögun og borðið. Með þessu
borði vann rithöfundurinn vel heppn-
að hönnunarverk. Sjálfur hef ég
reynt að tengja hönnun og ýmsar
aðrar listgreinar saman. Í fyrra vor-
um við t.d. með hreyfiverkið Fjörfisk
sem Sigurborg Þrastardóttir skrifaði
mjög fagmannlega um í Morgun-
blaðinu. Finnur Arnar leikstýrði
þessu verki. Þar var sérsamin tónlist,
ballettdansarar og fleira. Við munum
gera meira af þessu tagi í framtíð-
inni.“
Hönnuðir og aðrir listamenn
farnir að vinna meira saman
Finnst þér hönnun og listsköpun
vera að nálgast meira í gerð hús-
muna?
„Já, hönnuðir og aðrir listamenn
eru farnir að vinna meira saman og
þá kemur bæði meiri fjölbreytni og
meiri styrkur í verkin.“
Hver er þinn uppáhaldshönnuður?
„Ég hef alltaf verið mjög hrifinn af
Paul Henningsen í ljósahönnun. Við
erum með verk hans hér. Ég er eink-
um hrifinn af lömpum hans með gler-
skermum.“
Fær tvo danska hönnuði
í heimsókn í maí
„Þess má geta að núna, seinnipart-
inn í maí, fæ ég tvo danska hönnuði í
heimsókn, þá Peter Hiort Lorenzen
og Johannes Foersom, sem munu
halda fyrirlestur í samvinnu Epals,
Háskólans í Reykjavík og Listahá-
skólans um hönnun og viðskipti. Við
ætlum að bjóða fólki í viðskiptalífinu
að koma og hlusta á hvert er gildi
hönnunar í viðskiptalífinu.“
Úr bók Epal – Leyndarmál.
Stólar Arne Jacobsen í bókinni
Leyndarmál.
Leyndarmál Epal
Sum fyrirtæki leggja mikla vinnu og hugkvæmni í gerð
bæklinga eða bóka um það sem viðkomandi fyrirtæki
er með á boðstólum. Guðrún Guðlaugsdóttir ræddi
við Eyjólf Pálsson um bókina Leyndarmál, fyrirtæki
hans, Epal, og það sem boðið er upp á þar.
Stólar sem Epal er með á boðstólum.
Myndin er úr bók Epal, Leyndarmáli.
Morgunblaðið/Golli
Eyjólfur Pálsson í Epal.