Morgunblaðið - 23.04.2002, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2002 C 9HeimiliFasteignir
SVÖLUÁS NR. 4 - VEL SKIPULAGT
Fallegt 211 fm PARHÚS á tveimur hæðum.
Afhendist fullbúið að utan en fokhelt að inn-
an. Verð 13,7 millj. Teikningar á skrifstofu.
KRÍUÁS NR. 47 - LYFTUBLOKK -
ÚTSÝNI - BÍLSKÚR Nýkomið 3ja og
4ra herbergja íbúðir með eða án bílskúrs.
Rúmgóðar og vel skipulagðar íbúðir. Fallegt
útsýni. SÉRINNGANGUR Í ALLAR ÍBÚÐIR.
„ ÖRFÁAR EFTIR.”
SVÖLUÁS - H.F. NÝKOMIN FALLEG
206 FM raðhús á tveimur hæðum, falleg
og skemmtileg hönnun. Góð staðsetning.
Falleg útsýni, 5 herb. stofa og borðstofa.
SVÖLUÁS NR. 19 -23 Nýkomin falleg
206 fm RAÐHÚS á tveimur hæðum, falleg
og skemmtileg hönnun. Góð staðsetning.
Falleg útsýni, 5 herb. stofa og borðstofa.
SVÖLUÁS NR. 3 - PARHÚS Húsið er
190 fm á tveimur hæðum, ásamt 28 fm bíl-
skúr. 5 herbergi, sjónvarpshol, aflokað eldhús
og fl. Húsið afhendist fullbúið að utan og fok-
helt að innan. Verð 13,9 millj.
SVÖLUÁS NR. 7-9-11 RAÐHÚS Sér-
lega falleg 131 fm RAÐHÚS, ásamt 24 fm
BÍLSKÚR. Fullbúin að utan fokheld að innan
kr. 12,9 millj. Tilbúin til innréttinga kr. 16,4
millj. Fullbúið án gólfefna kr. 19,9 millj.
ÞRASTARÁS NR. 16 - 3JA OG 4RA
HERBERGJA Fallegar 3ja og 4ra herb.
íbúðir í fallegu fjölbýli. Húsið skilast fullbúið
að utan og íbúðir fullbúnar án gólfefna
með vönduðum innréttingum frá ALNO.
Verð frá 11,350 millj. Byggingaraðilar:
INGVAR OG KRISTJÁN EHF.
ERLUÁS 68 - GLÆSILEGT Á EINNI
HÆÐ GLÆSIL. 212 fm EINBÝLI á EINNI
HÆÐ, ásamt 44 fm tvöföldum BÍLSKÚR á
góðum stað í ÁSLANDINU. Húsið skilast full-
búið að utan, fokhelt eða lengra komið að
innan. SÉRLEGA FALLEG EIGN.
KRÍUÁS NR. 31 OG 33 FALLEG
RAÐHÚS Falleg 189 fm RAÐHÚS, ásamt
35 fm innbyggðum BÍLSKÚR. Húsin skilast
fullbúin að utan og fokheld eða lengra komin
að innan. Verð 12,6 millj.
ÞRASTARÁS 46 - 2JA HERB. Á
FRÁBÆRUM ÚTSÝNISSTAÐ Vorum að
fá inn fallegar 2ja herb. íbúðir í fallegu fjölbýli.
Íb. skilast fullb., án gólfefna. Hús fullbúið að
utan. Teikn. á skrifst. og neti. Verð frá
10,650 millj. ATH. „TVÆR“ EFTIR.
KRÍUÁS NR. 39-41 Fallegt 234 fm
RAÐHÚS á tveimur hæðum með innbyggð-
um bílskúr. Húsið afhendist fullbúið að utan
en ómálað. Að innan rúmlega fokhelt þ.e. bú-
ið að einangra að fullu. Afhending jan./feb.
2002. Verð 13,9 millj.
ÞRASTARÁS NR. 1 - FALLEGT EIN-
BÝLI Vorum að fá fallegt 187 fm EINBÝLI,
ásamt 33 fm inbyggðum BÍLSKÚR, samtals
220 fm. Húsið selst fullbúið að utan og til-
búið til innréttinga að innan. Grófjöfnuð lóð.
TIL AFHENDINGAR STRAX. Verð 21,5 millj.
KÓRSALIR - KÓPAVOGI - GLÆSI-
EIGNIR Nýkomnar 4ra herbergja „LÚXUS
ÍBÚÐIR” í „LYFTUBLOKK”. Með hverri íbúð
fylgir bílgeymsla. Rúmgóðar íbúðir, stærðir
frá 115 fm og verð frá 16,2 millj. Glæsileg-
ar innréttingar. Traustir verktakar.
HAMRABYGGÐ Fallegt 203 fm einbýlis á
góðum stað í hrauninu á einni hæð. 4 svefn-
herbergi, gott skipulag, fullbúið að utan en
fokhelt að innan. Verð 13,9 millj.
ERLUÁS - FALLEGT RAÐHÚS Fallegt
164 fm ENDARAÐHÚS, ásamt 28 fm inn-
byggðum BÍLSKÚR. Húsið skilast fullbúið að
utan, fokhelt eða lengra komið að innan. Verð
13,4 millj.
NÝBYGGINGAR
SUNNUVEGUR - SÉRINNGANGUR Fal-
leg og góð 64 fm íbúð með sérinngangi, íbúðin
er talsvert endurnýjuð. Verð 8,4 millj.
VALLARBARÐ - MEÐ BÍLSKÚR Falleg
nýleg ca 80 fm 2ja herb. íbúð, ásamt bílskúr, í
litlu, nýlega máluðu fjölbýli. Góðar innrétting-
ar. Sólskáli. Verð 10,9 millj.
VÍÐIVANGUR - FALLEG Vorum að fá í sölu
fallega 67 fm 2ja herbergja íbúð í góðu og litlu
fjölbýli. Fallegt útsýni. FRÁBÆR STAÐSETN-
ING.
SUÐURHVAMMUR Góð 63 fm 2ja her-
bergja íbúð á 1. hæð í lítilli sameign (3 íbúð-
ir). Íbúðin er LAUS FLJÓTLEGA. Verð 8,6
millj.
ÞÚFUBARÐ - FALLEG Góð 2ja herbergja 59
fm íbúð á jarðhæð í góðri blokk. Íbúðin er laus
fljótlega. Verð 7,9 millj.
LAUFVANGUR - LAUS FLJÓTLEGA Góð
71 fm íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli. Nýlegar eld-
hús innrétti., laus fljótlega. Verð 9,5 millj.
ATVINNUHÚSNÆÐI
HELLUHRAUN - GÓÐUR STAÐUR Vorum
að fá í sölu gott 177 fm atvinnuhúsnæði, ásamt
ca: 20 fm millilofti á mjög góðum stað. Stór lóð
og byggingaréttur fylgir. Vreð 14,6 millj.
DRANGAHRAUN - GOTT ENDABIL Gott
120,5 fm ENDABIL með góðum innkeyrsludyr-
um. Í húsinu hefur verið starfrækt BÍLAVERK-
STÆÐI og er möguleiki á að kaupa tæki með.
Verð u.þ.b. 9,0 millj.
RAUÐHELLA - NÝLEGT Gott 74 fm bil,
ásamt ca 50 fm millilofti. Góð innkeyrsludyr og
hátt til lofts. LAUST FLJÓTLEGA. Verð 6,2 millj.
SUMARBÚSTAÐIR
MÚLABYGGÐ 16 - BORGARBYGGÐ
GLÆSILEGUR 45 fm bústaður á góðum
stað í landi Grímstaða í Borgarbyggð. Raf-
magn, vatn. Stór timburverönd. Kjarrivaxið
land. Verð 6,9 millj.
DRANGAHRAUN Gott 120 fm ENDABIL,
ásamt góðu millilofti. 2 innkeyrsludyr ca 3,60
á hæð, hægt að keyra í gegn. Lofthæð frá
4,30 upp í ca 6,0 m. Verð 10,8 millj.
Húsið er 136 fm PARHÚS, ásamt 30 fm innbyggðum JEPPABÍLSKÚR. Fallegar inn-
réttingar. 4 svefnherbergi. FALLEG EIGN Á GÓÐUM STAÐ. Verð 19,3 millj.
SUÐURHOLT - NÝLEGT OG FALLEGT
STARFIÐ í Vindáshlíð er eins og
margir vita rekið og stjórnað af
kjarkmiklum og duglegum stúlkum í
KFUK. Stjórnin sem stendur á bak
við sumarstarfið í Vindáshlíð er kos-
in á aðalfundi félagsins. Það fer ekki
á milli mála að þarna er unnið af
framsýni og áhuga fyrir markmiði
félagsins sem er að segja ungum
telpum frá Jesú Kristi og trúnni á
hann.
Þarna eru risin nokkur hús. Fyrst
var reistur gamli stóri skálinn, næst
kom Hallgrímskirkjan, hún var flutt
frá Saurbæ á Hvalfjarðarströnd og
innréttuð að nýju af Aðalsteini Thor-
arensen kennara í húsgagnasmíði,
sem gerði hana mjög aðlaðandi eftir
flutninginn. Enda er þessi gamla
kirkja mikið notuð í sumarstarfinu.
Rétt ofan við kirkjuna voru sett
niður sex lítil hús sem keypt voru frá
virkjunarframkvæmdum og nefnast
þau hús Fellin, mest notuð til íbúðar
fyrir starfsfólk á staðnum.
Þá var ráðist í að byggja stóran
íþróttaskála. Þar geta stúlkurnar
haft afdrep til leikja þegar illa viðrar
til útiveru. En útileiktæki voru sett
upp í góðu skógarrjóðri skammt frá
íþróttaskálanum. Því verki stjórnaði
Gunnar Örn Jónsson íþróttakennari.
Viðhald og viðgerðir
Þessi hús þörfnuðust auðvitað öll
eðlilegs viðhalds og viðgerða, margir
gengu um þau og slit með miklu
álagi kallaði stöðugt á lagfæringar.
Eftir að lokið var við íþróttaskál-
ann var hafist handa við gagngerar
og vandaðar viðgerðir elsta hússins.
Þurfti þá meðal annars að skipta um
glugga og endurnýja járnklæðningu
að hluta til.
Mikill hluti viðhalds og viðgerða
hefur verið unninn endurgjaldslaust
í sjálfboðavinnu af áhugasömu fé-
lagsfólki bæði konum og körlum.
Ánægjulegt var að fylgjast með öllu
þessu starfi og að sjá að þarna komu
hinir sömu tryggu vinnufúsu fé-
lagssystkin á hverju ári, mánuð eftir
mánuð og var engu líkara en að jafnt
stúlkur sem piltar gleddust við
hverja vinnuferð.
Á sextíu ára tímabili hefur stöð-
ugt vaxið aðsókn að sumardvöl
stúlkna í Vindáshlíð og því orðið
þrengra um hópana sem þangað
sækja. Nú er svo komið að ráðist
hefur verið í nýja byggingu til þess
að fleiri fái komist að til dvalar í
Hlíðinni.
Hafin er bygging á stórum svefn-
skála sem tengist gamla skálanum
með tengibyggingu. Hönnuður
þessa skála er Sigurður P. Krist-
jánsson arkitekt og byggingarmeist-
ari nýja skálans er Gunnar Bjarna-
son.
Nokkuð hefur verið harðsótt að
reisa húsgrind þarna í hvassviðri og
snjókomu síðustu mánaða en þó hef-
ur verkinu miðað undra vel og er
vonast til að þessi skálabygging
verði frágengin að utan þegar vorar.
Hér bætist við allmikið hús sem
kemur sér vel á sumri komanda,
þegar það verður tilbúið. Fagurt er
að sjá í bakgrunni snæhvít fjöllin
sem eru við norðanverða Kjós-
arskarðsleið.
Ég hygg að flestum húsasmiðum
líki vel að vinna að verki sem þessu,
að byggja hús úr timbri. Þessi árs-
tími er þó sérlega erfiður. Birtu nýt-
ur skemur og illviðri eru tíð.
Mér bauðst að skjótast ásamt vini
mínum upp í Hlíð daginn sem lokið
var við að reisa grindina. Þann dag
var veður gott og sólin skein svo að
allt varð bjart og fagurt. Ekki var
margmenni þar þennan dag.
Timburverkið sem risið er var
fagurt á að líta, heflaður viður í
grindinni svo að veggir fást ennþá
beinni heldur en ef notað væri óhefl-
að efni, enda veggirnir þráðbeinir og
réttir, þótt langir séu.
Traust virtist grindin líka vera og
vel stífuð. Það gladdi augu gamals
smiðs að virða nýbygginguna fyrir
sér.
Þær konur eru orðnar margar
sem minnast dvalar í Vindáshlíð á
æskuárum með þökk til Guðs í huga,
konur sem lærðu ef til vill á þeim
stað að biðjast fyrir og að ræða við
Guð um hvaðeina í eigin lífi. Bænin
gefur styrk þegar erfitt er og allt má
leggja í hendur hans.
Hjá mér vaknaði spurningin sem
mörgum kemur í hug; hvernig geta
þær fjármagnað þessar fram-
kvæmdir? Ef ég bæri fram þessa
spurningu við hinar ungu stjórn-
arkonur, þá held ég að þær mundu
líta á mig og segja: Drottinn sér um
það.
Margoft hefur það gerst að fólk
sem þekkir þetta starf gefur fé af fá-
tækt sinni. Þarna er unnið mikils-
vert starf sem hjálpar mörgum ein-
staklingum til þess að sigrast á
erfiðleikum í lífi sínu. Mörg myndu
líka svara slíkri spurningu með til-
vitnun í orð Jesú. Sagði hann ekki:
„Verið ekki áhyggjufullir.“ Þetta
stendur í Matteusar guðspjalli 6.
kap. 25. versi og næstu versum. Í
þessu starfi er framgangur verksins
lagður í hendur Drottins og það
gengur vel.
Smiðjan
eftir Bjarna Ólafsson,
bjarnol@isl.is
Þessi mynd var tekin nýlega, þegar lokið var við að reisa grind hins nýja skála.
Nýbygging
í Vindáshlíð