Morgunblaðið - 23.04.2002, Blaðsíða 44
44 C ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Á
RIÐ 1870 voru Vega-
mótabæirnir þrír á svip-
uðum slóðum og húsið
Laugavegur 21 stendur
nú. Bæirnir drógu nafnið af vega-
mótunum sem þarna voru og var
vegurinn frá Bakarabrekku þá
nefndur Vegamótastígur. Í tíð
þessara bæja var ekki búið að
leggja Laugaveginn en hjá Vega-
mótabæjunum skiptust leiðir út úr
bænum.
Magnús Pálsson, múrari, fékk
snemma á árinu 1884 leyfi fyrir að
byggja sér hús á þessum slóðum.
Húsið stendur enn og verður
fjallað um það hér á eftir. Í bygg-
ingarleyfinu er tekið fram að það
eigi að standa í 5 álna fjarlægð frá
Vegamótabrú og í sömu fjarlægð
frá Klapparstíg og var leyfilegur
grunnflötur þess 10 x 9 álnir. Ole
J. Haldorsen (Ole norski) byggði
húsið fyrir Magnús.
Vegamótabrú
Hús Magnúsar Pálssonar var
fyrst tekið til brunavirðingar 19.
ágúst 1884 og er þá skráð Vega-
mótabrú. Í virðingunni segir að
húsið sé 8 x 51⁄2 álnir að grunnfleti,
byggt af bindingi sem múrað er í
með múrsteini. Annar hliðarvegg-
urinn er úr hlöðnum grásteini. Þak
er klætt járni á langböndum.
Í húsinu eru fimm íbúðarher-
bergi og eldhús. Við vesturenda
hússins er inngönguskúr, 3 x 8 ál-
in, hæð 51⁄2 alin. Þegar virðingin
var gerð var húsið ekki fullklárað.
Aðalhúsið er minna að grunnfleti
en byggingarleyfið bauð upp á,
virðist sem Magnús hafi notað
hluta leyfilegs grunnflatar undir
skúrinn sem er skráður geymslu-
skúr. Þegar þessi virðing var gerð
var húsið ein hæð og kjallari.
Samkvæmt íbúaskrá frá árinu
1890 eru talin í húsinu þrjú heim-
ili. Á fyrsta heimilinu eru: Magnús
Pálsson, húsbóndi, múrari og eig-
andi hússins, 46 ára, fæddur í
Reykjavík; Steinunn Jónsdóttir,
kona hans, 56 ára, fædd í Reykja-
vík, og börn þeirra öll fædd í
Reykjavík; Jón, 24 ára, Magnús,
18 ára, Helga, 15 ára, og tökubarn-
ið Margrét Árnadóttir, 5 ára.
Einnig voru á heimilinu: Matthías
Árnason, 23 ára, skósmíðanemi og
leigjandi, frá Garðasókn á Akra-
nesi, og Magnús Benediktsson, 20
ára, skósmiður og leigjandi.
Á öðru heimili voru: Jón Þórð-
arson, húsbóndi og sjómaður, 55
ára, fæddur í Arnarbælissókn,
Helga Snorradóttir kona hans, 55
ára, fædd í Grindavíkursókn, Guð-
finna Jónsdóttir, dóttir þeirra, 18
ára, fædd í Gaulverjabæjarsókn,
Marta Markúsdóttir leigjandi og
lausakona, 55 ára, fædd í Búrfells-
sókn og Georg Emil Pétursson, 16
ára, dóttursonur Mörtu, fæddur í
Reykjavík.
Á þriðja heimilinu voru: Guðjón
Knútsson, húsbóndi og sjómaður,
21 árs, fæddur í Reykjavík; Mál-
fríður Ásbjarnardóttir kona hans,
27 ára, fædd á Akranesi; og Valdi-
mar Finnsson tökubarn, 9 ára,
fæddur í Reykjavík. Erfitt er að
sjá fyrir sér að allur þessi fólks-
fjöldi hafi búið í húsinu, þó svo að
einhverjir hafi hafist við í kjall-
aranum, en þegar þessi íbúaskrá
var gerð var ekki búið að byggja
ofan á húsið.
Í september árið 1895 sækir Ole
um leyfi fyrir Magnús að stækka
húsið svo að það verði að grunn-
fleti 10 3⁄16 x 12 9⁄16 álnir og byggja
hæð ofan á það. Hann fékk einnig
leyfi fyrir að byggja skúr við hús-
ið, 4 x 8 1⁄4 álnir að grunnfleti.
Leyfið var veitt með því skilyrði að
að hlið hússins sem sneri að
Klapparstíg 3, sé með eldvarnar-
vegg. Þar er hlaðinn veggur úr til-
höggnu grjóti, mjög fallegur.
Eigendaskipti 1897
Ole J. Haldorsen kaupir eignina
af Magnúsi Pálssyni árið 1897 og
býr þar ásamt fjölskyldu sinni.
Hann var mikill athafnamaður og
þekktur borgari. Lengst af bjó
fjölskyldan á efri hæðinni en neðri
hæðin var notuð undir ýmiss konar
rekstur.
Greinargóð lýsing er til af hús-
inu þegar það var brunavirt í júní
1924. Þar segir m.a. að það sé
byggt af bindingi, klætt utan með
borðum, pappa og járni á þrjá
vegu en annar hliðarveggurinn er
úr hlöðnum steini. Þakið er gert af
borðasúð með pappa og járni yfir.
Á neðri hæðinni er sölubúð með
skúffum, hillum og borðum, fjögur
íbúðarherbergi og eldhús. Skil-
veggir eru úr bindingi með tvö-
földum þiljum og þiljað er neðan á
loftbita og ýmist málað eða vegg-
fóðrað. Á efri hæðinni er sama
herbergjaskipan og frágangur all-
ur mjög svipaður og á neðri hæð-
inni. Kjallari er undir öllu húsinu
2,2 metrar undir loft, með stein-
steypugólfi, notaður fyrir geymslu.
Ole byggði sólpall við inngöngu-
dyrnar að efri hæðinni. Pallurinn
sneri út að garðinum sem er vest-
an við húsið. Í dag þekkja borg-
arbúar garðinn betur sem torg við
Laugaveginn. Á góðviðrisdögum er
algengt að sjá söluborð þar með
smávarningi í garðinum. Sverrir
Kristinsson, átta ára sonur núver-
andi eiganda hússins, kann vel að
meta garðinn og er þar stundum
með vinum sínum að selja dót.
Fyrir jólin er algeng sjón að lista-
menn séu þar að búa til styttur úr
klaka. Í garðinum eru gömul tré
sem Ole og Else hafa gróðursett.
Í kjallara hússins er brunnur
sem nú er búið að setja yfir. Hann
gerði Ole J. Haldorsen og notaði
hann brunninn til þess að leskja
kalk í honum, en það var notað í
steinlímsgerð. Ole hafði trésmíða-
verkstæði í kjallaranum og stóð
hefilbekkurinn sem hann smíðaði
sjálfur í horninu Klapparstígsmeg-
in.
Lengi vel var ekki leitt rafmagn
á efri hæðina nema rafmagnsljós
voru í tveimur herbergjum og eld-
að á kolavél.
Árið 1925 var gluggum breytt í
húsinu, um breytinguna sá Finnur
Ó. Thorlacíus. 1957 voru gerðar
útlitsbreytingar á útidyrum sem
Erlendur Helgason hannaði.
Byggði verslunar-
hús fyrir Akra-Jón
Ole J. Haldorsen var lærður tré-
smiður. Hann var fæddur 1. mars
1849 í Nordre Selle, Finaas
Præstigjild, Noregi. Hann kom til
Íslands 11. júní 1877 og fór til
Borgarness tveimur dögum síðar.
Þar byggði hann verslunarhús fyr-
ir Jón Jónsson, kaupmann, (Akra-
Jón). Ole reisti kirkjuna í Norð-
tungu veturinn 1878-1879, en sum-
arið áður skrapp hann snögga ferð
til Noregs.
Til Íslands kom hann alkominn í
mars 1883 og settist að í Reykja-
vík. Sama ár byggði hann hús á
Skólavörðustíg 4 og árið eftir
byggði Ole húsið sem hér er verið
að fjalla um. Hann smíðaði einnig
vagnhjól og vagna.
Kona Ole J. var Else Johnsdott-
ir Haldorsen, fædd 14. maí 1861 á
Agö, Fetja Prestakalli í Noregi.
Hún fór frá Stafanger 11. maí 1892
með unnunsta sínum til Íslands.
Fyrsti áfangastaður þeirra var
Reyðarfjörður en þangað komu
Varðveislugildi þessa
húss er ómetanlegt, þar
sem það hefur óvenju
mikla sögu að geyma og
er auk þess eitt af elstu
húsum við Laugaveg,
segir Freyja Jónsdóttir,
sem hér fjallar um húsið
Laugavegur 21.
Morgunblaðið/Ásdís
Á neðri hæð hússins er nú verslunin Hljómalind, en í kjallara eru geymslur.
Húsið stendur á horni Laugavegar og Klapparstígs. Það var byggt 1884 og í brunavirðingu sama ár er það skráð Vegamótabrú. Í brunavirðingunni segir, að það sé
byggt af bindingi, sem múrað er í með múrsteini. Annar hliðarveggurinn er úr hlöðnum grásteini, en þak klætt járni á langböndum.
Ole J. HaldorsenElse J. Haldorsen
Laugavegur 21