Morgunblaðið - 26.04.2002, Síða 1

Morgunblaðið - 26.04.2002, Síða 1
96. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 26. APRÍL 2002 PALESTÍNSKUR herréttur sem kom saman í höfuðstöðvum Yassers Arafats, leiðtoga Palestínumanna, í Ramallah dæmdi í gær fjóra Palest- ínumenn í fangelsi fyrir morðið á ísr- aelska ferðamálaráðherranum, Rehavam Zeevi, í fyrra. Ariel Shar- on, forsætisráðherra Ísraels, lét hins vegar hafa eftir sér að þessi gjörn- ingur skipti engu máli enda héldu Ísraelar fast við þá kröfu sína að mennirnir yrðu framseldir í hendur ísraelskum yfirvöldum. Arafat er sjálfur sagður hafa lagt blessun sína yfir úrskurð palestínska herréttarins. Rétturinn dæmdi Hamdi Quran, sem sagður er hafa drýgt morðið, til átján ára fangels- isvistar og Baser al-Asmar, sem stóð vörð á meðan Quran framdi verkn- aðinn, til tólf ára fangelsis. Ökumaður tvímenninganna var dæmdur til átta ára fangelsis og sá fjórði hlaut eins árs fangelsisdóm fyrir að hafa haft vitneskju um, að til stæði að myrða Zeevi. Ráðherrann var myrtur í Jerúsalem 17. okt. sl. Ísraelar hafa alla tíð sagt að um- sátrinu við höfuðstöðvar Arafats í Ramallah lyki ekki fyrr en búið væri að framselja fjórmenningana í þeirra hendur, auk nokkurra annarra sem hafast við í vistarverum Arafats. Sagði talsmaður Sharons að for- sætisráðherrann hugleiddi nú að leyfa Arafat að yfirgefa Ramallah og fara í staðinn til Gaza. Væri mein- ingin að auðvelda Arafat að ráða nið- urlögum palestínskra öfgamanna, sem efnt hafa til sjálfsmorðsárása gegn ísraelskum borgurum. Saeb Erekat, fulltrúi Palestínumanna, sagði hugmyndina hins vegar eiga sér það markmið eitt að tryggja yf- irráð Ísraela á Vesturbakkanum. Munu ekki beita olíuþvingunum George W. Bush Bandaríkjafor- seti fór fram á það í gær að Ísraelar lykju við brottflutning herliðs síns frá herteknu svæðunum og hvatti hann Ísraela til að leita friðsamlegra lausna á umsátrunum í Ramallah og Betlehem. Bush ræddi við Abdullah, krónprins Sádi-Arabíu, í Texas og sagði hann eftir fundinn að Abdullah hefði heitið því að S-Arabar myndu ekki beita olíuþvingunum í því skyni að beita Bandaríkjamenn þrýstingi í málefnum Mið-Austurlanda. Palestínskur herréttur dæmir fjóra menn fyrir morðið á ísraelskum ráðherra Sharon krefst enn framsals Ramallah, Washington, Jerúsalem. AP, AFP. NÍU Palestínumenn yfirgáfu í gær Fæðingarkirkjuna í Betlehem og höfðu þeir með sér lík tveggja manna sem fallið höfðu í skotbar- daga við ísraelska hermenn. Ísr- aelsher hefur setið um kirkjuna í þrjár vikur en innandyra eru um 200 Palestínumenn. Ekki tókst að ná samkomulagi um að binda enda á umsátrið í gær en Ísraelar segja 30 hryðjuverkamenn meðal þeirra sem hafast við í kirkjunni. Reuters Umsátrið heldur áfram RÍFLEGA þrjátíu manns urðu fyrir meiðslum, þar af tíu alvarlegum, þegar sprenging skók tvær byggingar á Manhattan-eyju í New York í gær. Mikill fjöldi slökkvi- liðsmanna og hjálparstarfsfólks þusti þegar á vettvang en í upphafi óttuðust margir að um hryðjuverk hefði ver- ið að ræða. Svo var þó ekki og töldu fulltrúar borgaryf- irvalda líklegast að sprenging hefði orðið í hitakatli í kjallara hússins með fyrrgreindum afleiðingum. AP Sprenging á Manhattan DRAGOLJUB Ojdanic, fyrrver- andi yfirmaður júgóslavneska heraflans, gaf sig í gær fram við fulltrúa Alþjóða- stríðsglæpadóm- stólsins í Haag í Hollandi. Ojdanic er hæst setti embættismaður- inn sem fulltrúar dómstólsins hafa komið höndum yfir frá því að Slobod- an Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, var framseldur í fyrra. Ojdanic flaug með farþegaflugvél frá Belgrað til Amsterdam í gær- morgun og var hann við komuna til Hollands umsvifalaust færður í fangaklefa stríðsglæpadómstólsins í útjaðri Haag. „Hann er sannarlega hæst setti herforinginn sem fram- seldur hefur verið,“ sagði Jim Land- ale, talsmaður dómstólsins. „Við vonum að þetta marki upp- hafið að frekara framsali [meintra stríðsglæpamanna],“ bætti Landale við. Fór hann fram á að stjórnvöld í Júgóslavíu handtækju nú þegar alla þá, sem ákærðir hafa verið fyrir stríðsglæpi, einkum og sér í lagi Radovan Karadzic, leiðtoga Bosníu- Serba í Bosníustríðinu 1992–1995, og Ratko Mladic, yfirmann herafla Bosníu-Serba í sama stríði. „Samviska mín er hrein“ Ojdanic var yfirmaður júgóslav- neska heraflans í átökum í Kosovo 1998–1999 og var ákærður fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannúð í maí 1999, á sama tíma og ákæra var lögð fram gegn Milosevic. Stjórnvöld í Júgóslavíu birtu fyrir rúmri viku lista yfir 23 meinta stríðs- glæpamenn og gáfu þeim þrjá daga til að gefa sig fram svo framselja mætti þá til Haag. Var Ojdanic einn af aðeins sex mönnum sem urðu við tilmælunum. Ojdanic sagði við brottför frá Belgrað í gær að hann hygðist sanna sakleysi sitt. „Ég þarf ekki að skammast mín fyrir neitt og sam- viska mín er alveg hrein.“ Hyggst sanna sakleysi sitt Haag. AFP. Dragoljub Ojdanic ÝMSAR nýjungar hafa verið ákveðnar í þeirri von að þannig megi auka þátttöku í sveitar- stjórnakosningum sem fram fara í Bretlandi í næstu viku. Í gær gafst kjósendum tækifæri til að greiða atkvæði um síma og Net auk þess sem færanlegir kjörstaðir voru teknir í notkun. Kosningarnar fara annars fram 2. maí en þátttaka í þeim hefur farið minnkandi á liðnum árum. Með því að beita nýjustu tækni er vonin sú að bæði áhugi á kosningunum og þátttaka í þeim aukist. Að auki vilja hefðbundnir flokkar leitast við að auka þátt- tökuna af ótta við að flokkur hægriöfgamanna, Þjóðarflokk- urinn, fái ella umtalsvert fylgi. Ýmsir möguleikar Í Newham í austurhluta Lundúna gátu kjósendur greitt atkvæði með aðstoð tölvu og færanlegir kjörstaðir voru opn- aðir. Í Crewe og Nantwitch get- ur fólk greitt atkvæði um Netið fram á sunnudag. Í Church og Everton-hverfum í Liverpool geta kjósendur greitt atkvæði um síma, Net eða með SMS- skilaboðum fram til kjördags. Í Swindon gefst almenningi sömuleiðis kostur á að greiða at- kvæði um Netið auk þess sem nýta má kosningaréttinn um hefðbundinn síma. Kosið um síma og Net Lundúnum. AP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.