Morgunblaðið - 26.04.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isHaukar sýndu Stjörnunni
klærnar / B2
Eggert Magnússon í fram-
kvæmdastjórn UEFA / B1
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
KNATTSPYRNUHÚSIÐ í Graf-
arvogi var tekið í notkun að við-
stöddu fjölmenni í gær, en þar er
um að ræða fyrsta áfanga stærstu
íþróttahallar landsins. Hefur höllin
hlotið nafnið Egilshöll, en nafnið er
til komið vegna samstarfssamnings
rekstrarfélags hússins og Ölgerðar
Egils Skallagrímssonar.
Knattspyrnuhúsið sjálft er 90
metra breitt og 120 metrar að
lengd með 20 metra lofthæð yfir
miðlínu vallarins. Er það 10.800
fermetrar að stærð. Auk þess verð-
ur 400 fermetra skólaíþróttasalur í
húsinu, 3.000 fermetra skautahöll,
800 fermetra skotæfingasvæði og
ýmsir smærri salir, skrifstofur,
verslanir, þjónusta, gistirými og
fleira sem samtals verða um 8.000
fermetrar. Alls verður húsið því um
23.000 fermetrar að stærð þegar
það verðu fullbyggt.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði að fyrir nokkr-
um árum hefði verið ákveðið af
hálfu Reykjavíkurborgar að fara út
í það að byggja knattspyrnuhús í
Reykjavík sem myndi uppfylla al-
þjóðlega staðla í þeim efnum. Til
viðbótar knattspyrnuhúsinu yrði
reist annað hús sem hýsa myndi
skautahöll meðal annars og vera al-
hliða íþróttamiðstöð. Bygging húss-
ins væri liður í því að mæta þörfum
og væntingum borgarbúa í þessum
efnum og hún vonaðist til að knatt-
spyrnuhúsið ætti eftir að vera mikil
lyftistöng fyrir knattspyrnuiðkun,
ekki bara í Reykjavík heldur um
land allt.
Ellert Schram, forseti Íþrótta-
sambands Íslands, sagði í ávarpi
sínu að þetta væri stór stund fyrir
alla þá sem ynnu íþróttum. Risin
væri glæsileg knattspyrnuhöll, en
hér væri verið að vígja stærsta
íþróttamannvirki sem byggt hefði
verið í landinu.
Halldór B. Jónsson, varafor-
maður Knattspyrnusambands Ís-
lands, sagði að þetta væri stórkost-
legur dagur fyrir knattspyrnuna í
Reykjavík þegar fyrsta knatt-
spyrnuhúsið væri tekið í notkun. Þá
blessaði Vigfús Þór Árnason, sókn-
arprestur í Grafarvogi, húsið.
Athöfninni lauk með knatt-
spyrnuleik milli liðs Ellerts
Schram, sem skipað var eldri knatt-
spyrnumönnum úr Reykjavík, og
liðs Ómars Ragnarssonar, sem skip-
að var skemmtikröftum, fjölmiðla-
mönnum og fulltrúum stjórn-
málaaflanna í Reykjavík.
Morgunblaðið/Ómar
Það ríkti mikil gleði með nýja knattspyrnuhúsið.
Morgunblaðið/Ómar
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri ávarpaði gesti.
Knatt-
spyrnuhús-
ið í Grafar-
vogi tekið
í notkun
EINAR R. Axelsson, læknir á
sjúkrahúsinu Vogi, mælir eindregið
með þeirri hugmynd að komið verði
á fót miðstöð fyrir neytendur svo-
nefndra ópíata eða morfínskyldra
lyfja. Einar segist jafnframt vilja að
þessari meðferð verði komið á fót á
Vogi en ekki á Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi eins og komið hafi
fram í umræðum.
Stjórn Læknafélags Íslands hefur
lagt til við heilbrigðisráðherra að
komið verði á fót miðstöð fyrir neyt-
endur morfínskyldra lyfja, þar sem
þeir fá skyld lyf eða önnur lyf til að
mæta fíkninni og venjast af henni.
Er jafnframt lagt til að miðlæg
verkjameðferð verði styrkt á Land-
spítala – háskólasjúkrahúsi.
Einar segir að þessi hugmynd um
svonefnda viðhaldsmeðferð fyrir
fíkla hafi komið út úr viðræðum sem
hann átti ásamt Hauki Valdimars-
syni aðstoðarlandlækni við Lækna-
félagið.
Um 80% verða reiðubúin að
afnetjast fíkninni á hverju ári
,,Það er komin reynsla á þetta víða
og þessi meðferð er almennt viður-
kennd af þeim læknum sem fást við
vímuefnafíkn. Við myndum gjarnan
vilja að þessi meðferð yrði á Vogi,“
segir hann. ,,Þótt þeir geti alveg tek-
ið þetta að sér á Landspítala erum
við með langflesta sjúklingana hjá
okkur. Við erum tilbúnir að taka við
þessu, við gætum gert það og mynd-
um gjarnan vilja það,“ segir hann.
Að sögn Einars eru kostir þess að
miðstöð verði á Vogi m.a. þeir að þar
eru reyndir ráðgjafar að störfum,
sem gætu tekið sjúklingana að sér
vegna nauðsynlegrar meðferðar. Að
hans sögn hefur reynslan leitt í ljós
að árlega eru um 80% fólks, sem háð
er þessum lyfjum og fær slíka með-
ferð, reiðubúin að afnetjast fíkninni.
Kostnaðarsamt en
skilar árangri
Til að koma miðstöð af þessu tagi á
fót þarf m.a. að ráða hjúkrunarfræð-
inga sem sjá um að gefa lyfin og
halda utan um bókhald. Þá þurfa að
fara fram læknaviðtöl og ráðgjafar
munu setja upp prógramm fyrir ein-
staklinga sem fá viðhaldsmeðferð.
,,Við erum nú þegar með 20 ein-
staklinga í viðhaldsmeðferð á Vogi
og það hefur reynst mjög vel. Fólk
hefur getað snúið aftur til eðlilegra
lífs, til fjölskyldu sinnar og vinnu í
stað þess að vera allan daginn að
reyna að finna sér efni og er jafnvel í
afbrotum tengdum því að útvega sér
efni.“
Að hans sögn er svona viðhalds-
meðferð mjög dýr ef uppfylla á allar
nauðsynlegar kröfur. Þannig er
lyfjakostnaðurinn einn og sér vegna
þeirra 20 einstaklinga sem eru í við-
haldsmeðferð á Vogi um sjö milljónir
kr. en meðferðin skilar ótvíræðum
árangri, að hans sögn.
Einar R. Axelsson læknir mælir með viðhaldsmeðferð fyrir neytendur morfínskyldra lyfja
Tilbúnir að setja upp
slíka miðstöð á Vogi
AKUREYRARBÆR hyggst end-
urskoða og jafnvel segja upp við-
skiptum sínum við Símann í kjöl-
far uppsagna starfsfólks þar í
liðinni viku. Kristján Þór Júl-
íusson, bæjarstjóri á Akureyri,
sagði að þetta mál hefði í raun
valdið því að langlundargeð manna
í garð Símans væri þrotið.
„Síminn hefur haft áskrift að
viðskiptum við Akureyrarbæ, en
við sjáum enga ástæðu til að halda
í þau viðskipti þegar við horfum
upp á þessa síðustu atburði hjá
fyrirtækinu,“ sagði Kristján Þór.
Hann sagði að með því verklagi
sem viðhaft hefði verið varðandi
uppsagnir starfsfólksins hefði bor-
ið skugga á viðskipti Símans og
Akureyrarbæjar. „Og því er eðli-
legt og sjálfsagt að bærinn í um-
boði bæjarbúa fari yfir þessi mál,“
sagði Kristján Þór og benti á að
nú væru fleiri fyrirtæki á mark-
aðnum sem veittu sömu þjónustu.
Kristján Þór sagði viðbrögð
bæjarbúa við uppsögnum hjá Sím-
anum og því verklagi sem þar
hefði verið viðhaft afar sterk.
„Þetta hefur vakið hörð viðbrögð í
bænum og við munum ekki horfa
þegjandi upp á þetta,“ sagði bæj-
arstjóri. Hann sagði ennfremur að
í kjölfar þess að lagnadeild Símans
hefði verið lögð niður væru stórir
viðskiptavinir, s.s. Akureyrarbær
og Fjórðungssjúkrahúsið, í óvissu
um hvaða þjónusta yrði veitt í
framtíðinni. „Aðalatriðið er þó að
við eigum ekki að horfa þegjandi
upp á slíkt háttarlag fyrirtækis í
eigu almennings í landinu.“
Akureyrarbær
endurskoðar við-
skipti við Símann
TVEGGJA tíma töf varð á heim-
flugi Flugleiða frá Kaupmanna-
höfn í gærkvöldi, en bæði forseti
Íslands og forsætisráðherra voru
með vélinni.
Töfin varð vegna þess, sam-
kvæmt upplýsingum Bjarna Sig-
tryggssonar, sendiráðunautar í
Kaupmannahöfn, að fyrst bilaði
bókunarkerfi þannig að ekki bar
saman farþegalista og fjölda þeirra
sem búið var að skrá um borð í vél-
ina.
Meðal þeirra sem biðu eftir að
komast um borð, en vélin var nær
full, voru rússneskir sendiráðs-
starfsmenn með mjög mikinn
handfarangur, sem þeir tóku með
sér um borð þrátt fyrir andmæli
flugfreyju. Á endanum ákvað flug-
stjóri að þeir færu ekki með þenn-
an óskoðaða farangur um borð, en
handfarangur sendiráðsstarfs-
manna er ekki skoðaður. Þeir yrðu
annaðhvort að skilja hann eftir eða
að bíða eftir næstu vél. Þetta gerði
flugstjórinn að höfðu samráði við
yfirmenn öryggismála á Kastrup-
flugvelli, að sögn Bjarna.
Niðurstaðan varð sú að menn-
irnir ákváðu að bíða eftir næstu vél,
sem fer ekki fyrr en í dag, og það
varð til að skapa frekari tafir þar
sem þá þurfti að fjarlægja farang-
ur þeirra sem búið var að færa um
borð í vélina.
Töf á heimflugi
forseta og for-
sætisráðherra
GENGI bréfa deCODE, móður-
félags Íslenskrar erfðagreiningar,
hélt áfram að lækka á bandaríska
Nasdaq-markaðnum í gær.
Gengið lækkaði um 7,41% og
stendur hluturinn nú í fimm Banda-
ríkjadölum. Gengið lækkaði um 10%
í fyrradag.
deCODE
heldur áfram
að lækka