Morgunblaðið - 26.04.2002, Blaðsíða 6
Skátamessa fór fram í Hallgrímskirkju. Skát-
ar mynduðu fánaborg fyrir framan kirkjuna.
Morgunblaðið/Golli
LANDSMENN fögnuðu sumri á
sumardeginum fyrsta með skrúð-
göngum og skemmtunum víða um
land þrátt fyrir kuldakast og vetr-
arlegt veður víðast hvar.
Í Sögu daganna eftir Árna
Björnsson segir að næstum alls
staðar á landinu hafi það verið sið-
ur að börn færu öðrum dögum
fremur í leiki sumardaginn fyrsta.
,,Bæði var þeim ekki haldið til
vinnu og af nágrannabæjum komu
þau víða saman til útileikja ef veður
var hagstætt. Þá var unnt að taka
til leikja sem kröfðust nokkurs
fjölda. Allvíða tóku fullorðnir þátt í
leik með börnum.“
Landsmenn brugðu ekki af van-
anum að þessu sinni. Boðið var upp
á líflega dagskrá í tilefni sum-
arkomunnar í sveitarfélögum víðs
vegar um landið og fóru hátíð-
arhöld dagsins vel fram. Farið var í
skrúðgöngur og skipulögð
skemmtidagskrá fyrir börn. Í
mörgum kirkjum voru haldnar
skátamessur og fjölmargir sóttu
vortónleika og aðra listviðburði.
Í höfuðborginni lögðu margir
leið sína í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinn í Laugardal þar sem
var skipulögð skemmtidagskrá
fram eftir degi. Í leik- og grunn-
skólum Mosfellsbæjar voru sýnd
verk barna og ungmenna sem unn-
in voru í tengslum við 100 ára af-
mæli Halldórs Laxness.
Í Vestmannaeyjum snjóaði í gær-
morgun og skafrenningur og él
settu víða mark sitt á sumarkom-
una, einkum á Norðurlandi og lá
snjóþekja yfir þegar íbúar vöknuðu
að morgni sumardagsins fyrsta.
Rifjuðu þá sumir upp hina gömlu
þjóðtrú að það viti aðeins á gott
sumar þegar saman frýs vetur og
sumar aðfaranótt sumardagsins
fyrsta.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Sumarið heilsaði Vestmannaeyingum með snjókomu og fannfergi. Nokkur börn í sumarskapi tjölduðu í húsa-
garði að kvöldi síðasta vetrardags og ætluðu að njóta veðursins, en um nóttina höfðu tjöldin breyst í snjóhús.
Morgunblaðið/Jim Smart
Fjöldi manns lagði leið sína í
Fjölskyldugarðinn og húsdýra-
garðinn í Laugardal.
Morgunblaðið/Halldór
Margir tóku þátt í skrúðgöngu á Ísafirði á sumardaginn fyrsta. Að venju
fóru skátar með fána í fararbroddi göngunnar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Strákar bruna í æsilegum kappakstri í Fjölskyldugarðinum. Þar var
ýmislegt hægt að gera sér til skemmtunar, bregða sér á hestbak, ferðast
með lest, fylgjast með leikatriðum og bregða á leik í tækjunum.
Sumri fagnað með
skrúðgöngum og
skemmtunum
Morgunblaðið/Jim Smart
Börn sýndu verk í Lágafellsskóla og Varmárskóla í Mosfellsbæ sem þau hafa unnið í tengslum við 100 ára af-
mæli Halldórs Laxness. Nokkur börn lásu einnig upp úr verkum skáldsins fyrir fjölda hátíðargesta.
Ungu mennirnir brugðu á leik við sundlaugina á Akureyri,
skelltu sér í smá snjóbað og svo beint í pottinn á eftir.
Ljósmynd Myndrún ehf./Rúnar Þór
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ