Morgunblaðið - 26.04.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„Stöndum vörð um æskuna“
Réttindi barna
þurfa sérvernd
SAMEINUÐU þjóð-irnar taka á aðstæð-um barna í maí 2002.
Dagana 5.–7. maí verður
haldið Barnaþing í New
York sem eingöngu er ætl-
að börnum. N.k. þriðjudag,
30. apríl, verður málþing
hér á landi í tilefni af um-
ræddum áherslum SÞ og
Barnaþinginu í New York.
Í forsvari er Björg Kjart-
ansdóttir deildarsérfræð-
ingur á fjölskylduskrifstofu
félagsmálaráðuneytisins og
svaraði hún nokkrum
spurningum.
Hver heldur málþingið,
hvar verður það haldið og
hvenær?
„Félagsmálaráðuneytið
og Barnaheill standa fyrir
málþingi er nefnist Stönd-
um vörð um æskuna – Réttur
barna til verndar, á Grand Hótel
þriðjudaginn 30. apríl klukkan 13
til 17.“
Hverjar verða helstu áherslurn-
ar á þinginu?
„Á málþinginu verður leitast við
að draga fram í dagsljósið atriði
sem geta haft áhrif á aðstæður ís-
lenskra barna og spurt verður
hvort æskan þurfi á sérstakri
vernd að halda, einkum með tilliti
til frelsis annars vegar og ásóknar
fjölmiðla og markaðarins í börnin
hins vegar. Þetta verður gert með
umræðu um stöðu fjölskyldunnar
og um aðstæður foreldra til að
koma börnum sínum til manns í
nútímasamfélagi. Fjallað verður
sérstaklega um hugtakið frelsi í
tengslum við uppeldi barna. Litið
verður út fyrir heimilin og ytra
umhverfið skoðað út frá skólanum,
vinahópnum og félagslífi krakka.
Að lokum verður sjónum beint að
rétti barna til verndar og aðstoðar,
börn og ungmenni munu fjalla um
áhrif fjölmiðla á líf þeirra og fjallað
verður um ungmenni og kynlíf og
heilbrigðan lífsstíl.“
Hver er tilurð og tilgangur mál-
þingsins?
„Tilefnið er Barnaþing og Auka-
allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna um réttindi barna dagana 5.–
10.maí í New York. Félagsmála-
ráðherra mun ásamt íslenskri
sendinefnd sækja Aukaallsherjar-
þingið. Á málþinginu verður fjallað
um börn og alþjóðasamfélagið en
tilgangur þess er þó fyrst og
fremst að beina sjónum að íslensk-
um börnum í alþjóðlegu samhengi.
Þótt aðstæður barna á Íslandi séu
að mörgu leyti ólíkar aðstæðum
barna annars staðar í veröldinni
viljum við með málþinginu vekja
athygli á því að börn og ungmenni
á Íslandi þurfi kannski oft á frekari
vernd að halda en nú er.“
Hvernig er réttindamálum ís-
lenskra barna háttað, í alþjóðlegu
samhengi?
„Á Barnaráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna fyrir um 11 árum gáfu
ríkisstjórnir loforð um að stuðla að
bættum lífsskilyrðum fyrir börn og
nú boða Sameinuðu þjóðirnar til
aukaallsherjarþings um
réttindi barna í þeim til-
gangi að meta hvernig
velferð barna í heimin-
um hefur þróast á und-
anförnum áratug og til
hvaða aðgerða þurfi að grípa til að
bæta kjör barna og tryggja rétt-
indi þeirra. Í alþjóðlegu samhengi
er réttarstaða íslenskra barna að
mörgu leyti góð, íslensk börn búa
t.d. ekki við stöðug stríðsátök og
þau njóta skólagöngu. Þrátt fyrir
það eru mörg teikn á lofti sem sýna
að standa þurfi betur vörð um æsk-
una hér á landi. Ásókn fjölmiðla og
markaðarsins veldur álagi á heim-
ili og foreldra og við viljum varpa
þeirri spurningu fram á mál-
þinginu hvort ekki megi hvetja til
meiri ábyrgðar í fjölmiðlum þegar
markaðurinn er að höfða til barna.
Á Íslandi virðist það stundum vera
álitið hollt fyrir börn að eiga allt og
fá allt.“
Taka einhver börn þátt í mál-
þinginu?
„Já, tvö íslensk ungmenni sem
fara á Barnaþingið í New York.
Þau munu fjalla annars vegar um
þátttöku íslenskra barna í sam-
félaginu og hins vegar um aðstoð
við börn í vanda út frá eigin
reynslu. Svo verður heill hópur
krakka með innlegg um áhrif fjöl-
miðla á lífsstíl ungs fólks, þeir ætla
m.a. að sýna myndband sem þeir
gerðu um þetta efni.“
Hver er helsti málsvari barna í
réttindarmálum?
„Árið 1989 komu Sameinuðu
þjóðirnar sér saman um 54 greinar
er fjalla um rétt barna og ung-
menna undir 18 ára aldri sem kall-
ast barnasáttmáli Sameinuðu þjóð-
anna. En orðin tóm duga skammt,
því hefur börnum víðs vegar um
heiminn verið skipaður sérstakur
umboðsmaður er hefur það hlut-
verk að vera talsmaður barna og
standa vörð um að tekið sé tillit til
réttinda þeirra og hagsmuna á öll-
um sviðum þjóðfélagsins. Á Íslandi
er slíkur umboðsmaður barna.
Ekki má heldur gleyma
því að þeir er mest hafa
að segja um hvort rétt-
indi barna séu virt eru
þeir sem standa þeim
næst, foreldrar eða
kennarar, og að sjálfsögðu börnin
sjálf.“
Hvers vegna eiga börn að hafa
réttindi?
„Mannréttindi eru óháð aldri en
réttindi barna þurfa sérstaka
vernd. Foreldrum, kennurum og
fjölmiðlum ber skylda til að standa
vörð um réttindi barna. Börnin
okkar eiga rétt á að við stöndum
vörð um æskuna.“
Björg Kjartansdóttir
Björg Kjartansdóttir er fædd
5. janúar 1967. BA próf í sálfræði
og starfsréttindanámi í fé-
lagsráðgjöf frá HÍ 1999. Mast-
ersnám í „Comparative Europ-
ean Social Studies“ frá
Maastrichtháskóla árið 2000 og
sama ár hlaut hún starfsþjálfun í
„Social Policy Department í Evr-
ópuráðinu í Frakklandi. Lauk
diplomunámi í frönsku fyrir út-
lendinga frá háskólanum í
Strassborg vorið 2001 og þá ráð-
in verkefnisstjóri á þróunarsviði
Félagsþjónustunnar í Reykjavík,
en nú deildarsérfræðingur á fjöl-
skylduskrifstofu félagsmála-
ráðuneytis. Á tvo drengi, 6 og 11
ára.
En orðin
tóm duga
skammt
Hann verður að segja sig til sveitar, hann er orðinn munaðarlaus.