Morgunblaðið - 26.04.2002, Page 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LANDSPÍTALINN var rekinn með
133 milljóna tapi á fyrsta ársfjórð-
ungi ársins sem er um 2,3% frávik
frá fjárheimildum tímabilsins. Til
viðbótar er kostnaður við S-merkt
lyf 41,5 m.kr. umfram fjárveitingar
vegna lyfjanna. Þessar upplýsingar
koma fram á heimasíðu Landspítal-
ans. Launagjöld nema um 68% af
heildargjöldum sjúkrahússins og eru
þau 1,8% hærri en áætlað var fyrir
tímabilið. Rekstrargjöld eru rúm
26% af heildargjöldum sjúkrahúss-
ins og er sá kostnaðarliður 4,8% um-
fram áætlun. Sértekjur eru aðeins
meiri en áætlun gerði ráð fyrir. Um
helmingur af sviðum spítalans sýna
rekstrarkostnað umfram áætlun.
Heildarlaunakostnaður á Land-
spítala - háskólasjúkrahúsi er rúmar
1.300 m.kr. á mánuði og er fjöldi
stöðugilda tæplega 3.800. Skipting
heildarlauna á spítalanum eftir
launategundum sýnir að hlutfall
dagvinnu er tæplega 63% af heild-
arlaunum, hlutfall vaktavinnu er
20% og hlutfall yfirvinnu er tæplega
17%. Hlutfall dagvinnu jókst heldur í
marsmánuði á kostnað vaktavinnu.
Breyting á helstu rekstrarkostn-
aðarliðum á milli ára sýnir 6,3% með-
altalshækkun á einu ári. Þeir kostn-
aðarliðir sem hækkuðu mest á árinu
2001,, skv. drögum að ársreikningi
spítalans fyrir það ár, voru rann-
sóknarvörur og lækninga- og hjúkr-
unarvörur. Þessir kostnaðarliðir
hækka umtalsvert á fyrsta ársfjórð-
ungi 2002 í samanburði við sömu
mánuði í fyrra.
Útgjöld
2,3% um-
fram áætlun
Rekstur Landspítalans
FORSVARSMENN fiskvinnslunnar
Kambs hf. á Flateyri og fiskvinnsl-
unnar Íslandssögu hf. á Suðureyri
undirrituðu í fyrradag samning um
kaup á nýrri gerð snyrtilína af 3X-
Stál hf. Hljóðar samningurinn upp á
um 40 milljónir króna. Öll þessi fyr-
irtæki eru frá norðanverðum Vest-
fjörðum og í fréttatilkynningu kem-
ur fram að þessi samningur er sá
stærsti hingað til milli þessara fé-
laga.
Bæði þessi sjávarútvegsfyrirtæki
hafa allt frá stofnun þeirra unnið
með 3X-Stál að þróun á nýjum
vinnslubúnaði fyrir bolfisk- og salt-
fiskvinnslu. Má þar nefna karal-
ausnir, glasseringskerfi og nú
snyrtilínu. Þessi nýja gerð snyrti-
línu er afrakstur þróunar sem farið
hefur fram hjá 3X-Stál í samvinnu
við þessi tvö fyrirtæki undanfarin
misseri. Niðurstaðan er ný snyrti-
lína sem byggist á nýrri tækni sem
þróuð hefur verið hjá 3X-Stál. Sam-
anstendur þessi nýja tækni af nýjum
vélbúnaðar- og hugbúnaðarlausn-
um sem verða grunnurinn að nýjum
vörulínum hjá 3X-Stál. „Þessi þrjú
fyrirtæki hafa um árabil verið ein af
framsæknustu fyrirtækjum á Vest-
fjörðum. Með þessum samningum
sem undirritaðir hafa verið stíga
þau enn eitt skrefið til framtíðar.
Samvinna þessara fyrirtækja er
dæmi um þann árangur sem þekk-
ing og reynsla úr vestfirskum sjáv-
arútvegi sameinar. Þróun í nýj-
ungum sem síðar reynast
alþjóðlegum þekkingarfyrirtækjum
eins og 3X-Stál ómetanlegar,“ segir
í fréttatilkynningunni.
Kaupsamningur Kambs hf. á Flateyri og Íslandssögu hf. á Suðureyri við 3X-Stál hf. var undirritaður í sýningarbás
3X-Stál hf. á sjávarútvegssýningunni í Brussel að viðstöddum Árna Mathiesen sjávarútvegsráðherra.
Kambur og Íslandssaga kaupa
nýja snyrtilínu af 3X-Stál hf.
● TAP MP Verðbréfa hf. á árinu 2001
var 112,7 milljónir króna, en árið áð-
ur var 79 milljóna króna hagnaður.
Samkvæmt upplýsingum frá MP Veð-
bréfum hf. orsakaðist tapið af geng-
istapi á hlutabréfaeign og erfiðu ár-
ferði á mörkuðum.
Eigið fé félagsins nam 717,4 millj-
ónum króna samkvæmt efnahags-
reikningi í lok ársins. Niðurstöðutala
hans var 1.442 milljónir króna. Eig-
infjárhlutfall félagsins hinn 31. des-
ember sl., svokallað CAD-hlutfall
sem reiknað er út samkvæmt lögum
um verðbréfafyrirtæki, var 46,3%, en
má lægst vera 8%. Á aðalfundi fé-
lagsins voru eftirtaldir kjörnir í að-
alstjórn: Margeir Pétursson formað-
ur, Sigfús Ingimundarson, Ágúst
Sindri Karlsson, Sigurður Gísli
Pálmason og Sverrir Kristinsson.
Tap MP Verðbréfa
112,7 milljónir króna
● NÝLEGA var gengið frá samningi
Línu.Nets og ANZA og tengir Lína.-
Net nú saman starfsstöð ANZA í
Reykjavík og starfsstöð fyrirtækisins
á Akureyri með ljósleiðaratengingu.
ANZA er fyrirtæki sem sérhæfir sig
í rekstri og hýsingu á tölvu- og upp-
lýsingakerfum. Fyrirtækið er að 65%
hluta í eigu Landssíma Íslands og er
eitt stærsta fyrirtæki sinnar teg-
undar hér á landi. Í tilkynningu um
samninginn segir að með tengingu
Línu.Nets aukist mjög öryggi varð-
veislu þeirra gagna sem við-
skiptavinir ANZA hafa falið fyrirtæk-
inu þar sem starfsstöðvarnar tvær
verða tengdar saman á mjög hrað-
virkan hátt yfir ljósleiðara. Með sam-
starfsamningnum hafi ANZA jafn-
framt tryggt sér hámarksöryggi fyrir
viðskiptavini sína þar sem það teng-
ist nú bæði Landssíma Íslands og
Línu.Neti.
ANZA semur
við Línu.Net
SÆMUNDUR HS kom með fyrsta
humarinn að landi á hefðbundinni
humarvertíð til Hornafjarðar í vik-
unni. Þessa dagana er verið að búa
hornfirsku bátana til humarveiða.
Leyfilegt er að veiða humar allt ár-
ið og eitt hornfirskt skip, Hvanney
SF, er á humarveiðum allan ársins
hring og um miðjan mars byrjaði
Hafnarey SF einnig á humrinum.
Gunnar Ásgeirsson hjá Skinney-
Þinganesi segist bjartsýnn á vertíð-
ina. Humarinn er að vísu ekki eins
stór og í fyrra en það kann að
breytast þegar líður á vertíðina,
segir Gunnar. Skinney-Þinganes
gerir fjóra báta út á humarinn;
Skinney SF, Hvanney SF, Þóri SF
og Sæmund SH, sem fyrirtækið hef-
ur nýverið keypt frá Hafnarfirði.
Auk þess verða Sigurður Ólafsson
SF, Bjarni Gísli SF og Hafnarey á
humarveiðum á þessari vertið og
fleiri bátar gætu átt eftir að bætast
í hópinn. Veiðislóð hornfirsku hum-
arbátanna er í Lónsdýpi, Horna-
fjarðardýpi, Breiðamerkurdýpi og
allt vestur í Skeiðarárdýpi.
Morgunblaðið/Sigurður Mar Halldó
Skipverjar á Skinney SF gera klárt fyrir humarveiðarnar en skipið hélt til
veiða í morgun. Sjö bátar frá Hornafirði verða á humarveiðum á vertíðinni.
Humarvertíðin í gang
Hornafirði. Morgunblaðið.
STJÓRN Jyllands-Posten, ann-
ars stærsta dagblaðs Danmerkur,
hefur sagt upp fimmtán blaða-
mönnum vegna samdráttar í aug-
lýsingatekjum sem hefur neytt
stjórn blaðsins til að draga úr út-
gjöldum um 15 milljónir danskra
króna, eða 170 milljónir íslenskra
króna. Blaðið, sem gefið er út í um
179.000 eintökum á dag, sagði upp
um tíu manns í stjórnunarstöðum
fyrr í vikunni.
Uppsagnir hjá
Jyllands-Posten