Morgunblaðið - 26.04.2002, Side 14
ROMANO Prodi, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins (ESB), hefur ákveðið að stöðva þá
endurskoðun sem fram hefur farið á
sjávarútvegsstefnu sambandsins.
Jafnframt hefur hátt settur danskur
embættismaður á sviði sjávarútvegs-
mála innan framkvæmdastjórnarinn-
ar fengið boð um að hann verði færð-
ur til í starfi frá júlímánuði.
Dagblaðið Berlingske Tidende
greindi frá þessu í gær. Segir þar að
ákvörðun Prodis sé til komin fyrir
þrýsting frá Frökkum og Spánverj-
um. Hefur blaðið heimildir fyrir því
að fulltrúar þessara tveggja þjóða
hafi mánuðum saman krafist þess að
Daninn, Steffen Smidt, komi ekki
frekar að endurskoðun sjávarútvegs-
stefnunnar. Sagt er að Smidt, sem er
yfirmaður stjórnardeildar sjávarút-
vegsmála, njóti stuðnings Franz Fisc-
hlers, en hann er framkvæmdastjóri
þessa málaflokks. Spánverjar og
Frakkar krefjist þess hins vegar að
Smidt víki sökum þeirra áætlana sem
hann hefur unnið að en þær kveða
m.a. á um að skera beri verulega nið-
ur fiskiskipaflota aðildarríkjanna.
Verði raunin sú mun það koma hart
niður á þessum tveimur þjóðum auk
þess sem Spánverjar munu óttast
mjög áform um bann við ríkisstyrkj-
um í sjávarútvegi.
Símtal frá Aznar
José María Aznar, forsætisráð-
herra Spánar, hringdi, að sögn Berl-
ingske Tidende, í Romano Prodi um
liðna helgi. Krafðist Aznar þess að
áætlanir um endurbætur á sjávarút-
vegsstefnu ESB, sem eru því sem
næst tilbúnar af hálfu framkvæmda-
stjórnar, yrðu lagðar til hliðar. Á
þriðjudag höfðu tillögur fram-
kvæmdastjórnarinnar í raun verið
dregnar til baka. Að sögn danska
blaðsins var Smidt síðan greint frá því
í símtali sama dag að ákveðið hefði
verið að færa hann til í starfi. Raunar
á sú ákvörðun við um fleiri hátt setta
embættismenn innan ESB en haft er
fyrir satt að Smidts bíði ekki stjórn-
unarstaða.
Talsmaður Franz Fischlers neitaði
því í gær að tengsl væru á milli
ágreinings um sjávarútvegsstefnuna
og brottvikningar Smidts. Kvað hann
Smidt, sem er 56 ára, hafa unnið „frá-
bært starf.“ Mariann Fischer Boel,
landbúnaðar- og sjávarútvegsráð-
herra Danmerkur, vildi í gær ekki tjá
sig um málið en tók fram að Danir
teldu mjög óheppilegt að umbóta-
starfið á vettvangi sjávarútvegsmála
sambandsins tefðist.
Danir taka við forsæti í ESB í sum-
ar. Átti lokaendurskoðun sjávarút-
vegsstefnunar að fara fram í sex mán-
aða formennskutíð þeirra og boðað
hefur verið að fulltrúi íslenskra
stjórnvalda muni fylgjast með því
starfi.
Endurskoðun sjávarútvegsstefnu ESB
Prodi þvingaður til
að hægja á ferðinni
Hátt settur danskur embættismaður færður til
í starfi fyrir þrýsting Spánverja og Frakka
„Koizumi-byltingin“
gleymd og grafin
ÞAÐ vantaði ekki fyrirfólkið á ár-
legum vorfagnaði japanska for-
sætisráðherrans um síðustu helgi.
Er hann ávallt haldinn þegar kirsu-
berjatrén standa í blóma en að
þessu sinni var engu líkara en
sjálfri náttúrunni væri eitthvað í
nöp við Junichiro Koizumi því að
blómgunin var að mestu afstaðin.
Í dag er liðið ár frá því Koizumi
tók við embætti. Þá var hann eft-
irlæti allra, heiðarlegur umbóta-
maður, sem ætlaði að láta hendur
standa fram úr ermum, en nú öslar
hann aurinn í kálfa. Vinsældir hans
hafa hrunið, gagnrýnendur hans
segja, að hann hafi gefist upp á um-
bótunum og hvert hneykslismálið
rekur annað í flokki hans, Frjáls-
lynda lýðræðisflokknum. Hvíslað
er, að hann muni ekki endast í ann-
að ár og jafnvel ekki út þetta.
„Hann hefur gjörsamlega brugð-
ist vonum manna um breytingar á
flokknum,“ segir Jiro Yamaguchi,
prófessor í stjórnmálafræði við
Hokkaido-háskóla. „Í þeim efnum
hefur ekkert gerst.“
Hefur ekkert gert
Í vorfagnaðinum og innan um
blómlaus kirsuberjatrén fór Koiz-
umi enn einu sinni með
uppáhaldsslagorðið sitt, „án kerf-
isbreytinga verður ekki um neinn
hagvöxt að ræða“, og fyrir því var
klappað sem endranær, svona eins
og í kurteisisskyni.
„Hann hefur bara ekki gert
nokkurn skapaðan hlut,“ sagði Shi-
geru Ando, 63 ára
verkamaður á fisk-
markaðinum í Tókýó.
„Hann vill gera eitt-
hvað en virðist ekki
geta það.“
Fyrstu níu mán-
uðina í embætti bað-
aði Koizumi sig upp
úr aðdáun landa
sinna en síðustu þrír
mánuðirnir hafa ver-
ið beint strik niður á
við. Síðast í febrúar
naut hann stuðnings
70% kjósenda en nú
aðeins 40%. Í nýlegri
skoðanakönnun segjast 57% hafa
orðið fyrir vonbrigðum með hann.
Brottrekstur Tanaka
Það, sem breytti mestu um vin-
sældir Koizumis, var, að hann
skyldi reka hinn vinsæla utanrík-
isráðherra, Makiko Tanaka, en hún
átti meðal annars í harðri baráttu
gegn spillingu í sínu eigin ráðu-
neyti. Koizumi bar því við, að deil-
urnar um Tanaka tefðu framgang
fjárlaganna á þingi en með því að
reka hana svipti hann ríkisstjórn-
ina alþýðleikanum og sannfærði
marga landa sína um, að henn
hefði gengið til liðs við sömu
íhaldsöflin og hann hafði heitið að
sigra.
Stuðningsmenn Koizumis segja,
að hann sé að sumu leyti gagn-
rýndur að ósekju og benda á, að
það taki sinn tíma að koma á um-
Miklar vonir voru bundnar við Junichiro Koizumi, forsætisráð-
herra Japans, þegar hann komst til valda fyrir ári. Hann ætlaði
að beita sér fyrir kerfisuppstokkun í efnahagslífinu og leggja
að velli afturhaldsöflin en nú er marga farið að gruna, að hann
hafi alla tíð verið strengjabrúða hinnar ráðandi stéttar.
AP
Til mótmæla kom í Seoul í Suður-Kóreu eftir að Koizumi hafði vottað
helgiskríni til minningar um fallna hermenn, þar á meðal japanska
stríðsglæpamenn, virðingu sína.
bótum í efnahagskerfi,
sem hafi einkennst af
stöðnun í áratug. Hon-
um hafi til dæmis tekist
að halda útgáfu rík-
isskuldabréfa innan
marka og skorið niður
ríkisumsvifin með því
að leggja niður 17 rík-
isfyrirtæki og einka-
væða önnur 45. Þá hafi
hann uppskorið lof
George W. Bush, for-
seta Bandaríkjanna,
fyrir að koma í gegn
lögum, sem heimila
Japönum að taka þátt í
stríðinu gegn hryðjuverkamönn-
um.
Nafnbreyting í stað
kerfisbreytinga
Stjórnmálaskýrendur segja aft-
ur á móti, að þessar aðgerðir
breyti litlu um vandann í japönsku
efnahagslífi enda sé í raun ekki um
neinar kerfisbreytingar að ræða.
Tilraunir til að draga úr ríkisums-
vifunum hafi oft ekki falist í öðru
en nafnbreytingu og ríkisstjórnin
hafi farið í kringum takmarkanir á
útgáfu ríkisskuldabréfa með því að
afla sér fjár með öðrum hætti.
Koizumi hefur að auki tekist að
reita nágranna sína til reiði með
því að koma í gegn lögum um aukið
hlutverk hersins og með því að
vera viðstaddur minningarathöfn
um fallna hermenn, þar á meðal
stríðsglæpamenn.
Koizumi-æðið að fjara út
Koizumi komst til valda í eins
konar uppreisn óbreyttra félaga í
Frjálslynda lýðræðisflokknum en
flokksforystan studdi þá Ryutaro
Hashimoto, fyrrverandi forsætis-
ráðherra. Koizumi lofaði lands-
mönnum sínum blóði, tárum og
svita en Hashimoto gulli og græn-
um skógum. Hrifningin á þessu
„ljónshjarta“ með silfraðan makka
Junichiro Koizumi
og smekk fyrir þungarokk fór eins
og eldur í sinu um allt landið.
Myndir af honum blöstu við hvert
sem litið var og alls staðar var hon-
um tekið eins og rokkstjörnu.
Nú ári síðar er marga farið að
gruna, að hann hafi alla tíð verið
strengjabrúða í höndunum á
flokkseigendunum. Til hennar hafi
þeir þrifið til að koma í veg fyrir
ósigur í væntanlegum kosningum.
Því fer þó fjarri, að Koizumi sé
alveg vinalaus.
„Hann er samt sem áður gæddur
einhverju, sem vekur hjá mér von-
ir,“ sagði Hitoshi Fukushi, tæplega
fertugur starfsmaður neðanjarð-
arlestanna.
Tókýó. AP.
’ Hann hefur gjör-samlega brugðist
vonum manna ‘
ERLENT
14 FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SUÐUR-afríski auðkýfingurinn
Mark Shuttleworth lagði í gær
upp í tíu daga ferð með rússnesku
Soyuz-geimfari til alþjóðlegu
geimstöðvarinnar. Eldflauginni
var skotið á loft frá Baikonur-
geimferðamiðstöðinni í Kaz-
akhstan og var myndin tekin er
Shuttleworth kvaddi ættingja og
vini. Með þessu varð Shuttlewort,
sem er 28 ára gamall, annar mað-
urinn í sögunni til að kaupa sér
farmiða út í geiminn.
Í geimfarinu eru einnig rúss-
neski geimfarinn Júrí Gidzenko
og ítalski orrustuflugmaðurinn
Roberto Vittori.
Shuttleworth greiddi jafnvirði
tveggja milljarða króna fyrir
ferðina sem hófst á sama stað í
Kazakhstan og Sovétmenn hófu
geimferðakapphlaupið við Banda-
ríkin árið 1957 með því að senda
fyrsta gervihnöttinn á loft og síð-
an fyrsta geimfarann, Júrí Gag-
arín, fjórum árum síðar.
Shuttleworth fetar í fótspor
bandaríska kaupsýslumannsins
Dennis Tito sem varð fyrstur til
að kaupa sér far út í geiminn á
síðasta ári. Mun verðið á farmið-
anum hafa haldist stöðugt.
Reuters
Auðkýf-
ingur í æv-
intýraför
BRESKUR dómstóll hafnaði í gær
kröfu Bandaríkjastjórnar um fram-
sal alsírsks flugmanns, Lotfi Raissi,
sem bandarísk stjórnvöld hafa sakað
um að hafa þjálfað flugræningjana
sem stóðu að hryðjuverkaárásinni
11. september. Dómari komst að
þeirri niðurstöðu að sannanir skorti
fyrir aðild Raissis.
Eftir að réttarhöld höfðu staðið yf-
ir allan daginn í Lundúnum úrskurð-
aði Timothy Workman dómari að
ekki væru nægileg sönnunargögn
fyrir framsali Raissi til Bandaríkj-
anna vegna ásakana um að hann
hefði logið að Flugmálastjórn
Bandaríkjanna þegar hann óskaði
eftir að framlengja flugmannsskír-
teini sitt í Bandaríkjunum í apríl
2001. Í kröfu Bandaríkjamanna
sagði að maðurinn hefði þá ekki getið
þess að hann hefði gengist undir
uppskurð á hné. Þótti dómaranum sú
athugasemd léttvæg.
Þá sagði Workman ennfremur að
bandarísk yfirvöld hefðu ekki lagt
fram nein sönnunargögn um tengsl
Raissis við hryðjuverk.
Raissi grét af gleði þegar úrskurð-
urinn hafði verið birtur en hann
hafði verið í haldi í fimm mánuði, var
handtekinn 21. september. Lög-
menn hans boða málaferli gegn
breskum og bandarískum stjórn-
völdum.
Framsalskröfu hafnað
Fimm mánaða
varðhaldi lokið
Lundúnum. AP.