Morgunblaðið - 26.04.2002, Síða 16
LISTIR
16 FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
www.bmvalla.is
Þú færð heildarlausnir
fyrir framkvæmdirnar í söludeild
BM•Vallá í Fornalundi
Söludeild í Fornalundi
Breiðhöfða 3 • Sími: 585 5050 • Fax: 585 5051
sala@bmvalla.is
HÚS GARÐUR FRÁVEITUR
ÞAÐ er leikar-
inn Bill Paxton,
sem leikið hefur
í myndum á borð
við Aliens, True
Lies og A Simple
Plan sem sest
hér í fyrsta
skiptið í leik-
stjórnarstólinn
við gerð kvikmyndarinnar Frailty.
Hér er á ferðinni dularfullur og
óvæntur hryllingstryllir sem skartar
Suðurríkjaleikurunum Paxton,
Matthew McConaughey og Powers
Boothe í aðalhlutverkum. Söguþráð-
ur myndarinnar er á þá leið að Fen-
ton Meiks (McConaughey) birtist
óvænt í skrifstofu FBI-fulltrúans
Wesley Doyles (Boothe) og hefur
magnaða sögu að segja. Doyle hefur
eytt miklum tíma í að eltast við
fjöldamorðingja sem kallar sig
„Hönd Guðs“ og Meiks kveðst
þekkja hinn seka mjög vel því það sé
bróðir hans Adam. Fenton segir að
Adam hafi framið sjálfsmorð eftir ill-
virkin og sé nú grafinn í rósagarði. Á
meðan þeir ferðast að gröf Adams
lýsir Fenton æsku sinni fyrir lög-
reglufulltrúanum. Árið 1979, þegar
Fenton var 12 ára og Adam 9 ára, lifa
þeir bræður hamingjusömu lífi með
umhyggjusömum og ljúfum föður
sínum sem enn syrgir fráfall konu
sinnar sem lést við barnsburð. Þess-
ari draumaveröld er síðan tvístrað
einn góðan veðurdag þegar faðir
þeirra kveðst hafa verið heimsóttur
af engli, sem faldi honum það heilaga
verkefni að finna og drepa djöfla,
sem dulbúa sig sem venjulegt fólk.
Hann hefur undir höndum nafnalista
og áætlar að leggja í krossferð gegn
djöflunum ásamt sonum sínum.
Adam er trúr þessari nýju iðju fjöl-
skyldunnar en Fenton hins vegar
efast um andlegt heilbrigði föður
þeirra. Að lokum hefur ofbeldið og
morðæðið markað þessa menn og
öfgafull túlkun þeirra á réttu og
röngu leiðir að því að hulunni er
svipt af mögnuðum og hræðilegum
leyndarmálum.
Þrátt fyrir að þetta sé fyrsta leik-
stjórnarverkefni Paxtons í fullri
lengd, er hann ekki alls ókunnur
vinnslu kvikmynda. Hann hóf feril
sinn sem listrænn stjórnandi og
vann mikið með leikmyndir. Hann
skrifaði og leikstýrði stuttmyndinni
Fish Heads árið 1982 og hlaut sér-
stök verðlaun fyrir á kvikmyndahá-
tíðinni í Melbourne.
Myndin var tekin á 37 dögum í
Texas, heimaríki þeirra Paxtons,
Boothe og McConaughey. Handrits-
höfundur Frailty er Brent Hanley og
mun þetta vera hans fyrsta kvik-
myndahandrit, en hann er einnig
fæddur í Texas árið 1970.
Leikarar: Bill Paxton (Resistance, Tit-
anic, A Simple Plan); Matthew McCon-
aughey (Time to Kill, Ed tv, Amistad);
Powers Boothe (The Emerald Forest, U
Turn, Men of Honor); Matthew O’Leary
(Spy Kids 2, Domestic Disturbance).
Leikstjóri: Bill Paxton.
Fjöldamorðinginn í myndinni Frailty ræðst hér til atlögu.
Engin sál
er óhult
Laugarásbíó
frumsýnir Frailty
með Bill Paxton,
Matthew McCon-
aughey, Powers
Boothe og Matth-
ew O’Leary.
FRANSKA greifynjan Jeanne Val-
ois berst fyrir því að fá landareign
sína aftur eftir að fjölskyldan missti
hana á miklum ólgutímum bylting-
arinnar í Frakklandi. Til að ná sínu
fram þarf Jeanne að beita ýmsum
klókindum enda er heiður fjölskyld-
unnar í veði. En til að hefna almenni-
lega fyrir sig og sína stelur hún 2.800
karata hálsmeni sem hefur ýmsar af-
leiðingar sem ekki verða séðar fyrir
fyrr en í lokin.
Þetta er söguþráður spennumynd-
arinnar Affair of the Necklace, sem
kemur frá Warner Bros og gerist
rétt áður en franska stjórnarbylting-
in hefst. Framleiðendur eru Andrew
A Kosove, Broderick Johnson,
Charles Shyer og Redmond Morris.
Handrit skrifaði John Sweet upp úr
sannsögulegri sögu um Jeanne De
La Motte Valois, franskrar greif-
ynju, sem missti stöðu sína og heiður
sem slík á átjándu öldinni. Leikstjóri
myndarinnar er Charles Shyer.
Hér er komin nýjasta kvikmynd
Hilary Swank, sem fékk Óskarsverð-
launin í hittiðfyrra fyrir að leika
karlmann í Boys Don’t Cry. Þessi
nýjasta mynd hennar er byggð á
sannsögulegum atburðum og er afar
mikið lagt upp úr búningum.
Myndin, sem hefur að geyma allt í
senn, frægð og frama, kynlíf, græðgi
og þrár, spillingu og freistingar, er
saga um konu sem var á undan sinni
samtíð og braut allar reglur sam-
félagsins til að öðlast heiður sinn og
þjóðfélagsstöðu á ný. Hún lagði m.a.
á ráðin um áhættusamt samsæri,
sem varð til þess að hneyksla marga
enda bendlaði það fræga og ríka
fólkið við æði margt misjafnt. Sögu-
ritarar eru á því að klókindi frönsku
greifynjunnar hafi átt stóran þátt í
að leiða valdatímabil Marie Antoi-
nette og King Louis XVI til lykta, en
saga myndarinnar snýst ekki síst um
það hvernig farið getur þegar mikil
girnd og mikil völd fara saman.
Leikarar: Hilary Swank (Boys Don’t Cry,
The Gift, The Next Karate Kid); Jonath-
an Pryce (Breaking Glass, Haunted Ho-
neymoon, Consuming Passions); Christ-
opher Walken (The Deer Hunter, Sleepy
Hollow, Pulp Fiction); Joely Richardson
(The Patriot, Return to Me, Maybe
Baby); Brian Cox (Braveheart, Rush-
more, The Corrupter); Simon Baker
(Ride with the Devil, Judas Kiss); Adrien
Brody (The Pianist, Liberty Heights).
Leikstjóri: Charles Shyer.
Úr kvikmyndinni The Affair of the Necklace.
Fjölskyldu-
heiðurinn í veði
Sambíóin í Kringlunni frumsýna The
Affair of the Necklace með Hilary
Swank, Jonathan Pryce, Christopher
Walken, Simon Baker, Adrien Brody og
Brian Cox.
Átök og ófriður við
þjóðveginn er eftir
Jón R. Hjálmarsson.
Í bókinni er fer höf-
udur með lesendur
um sveitir landsins
eftir hringveginum og
eru heimsóttir ýmsir
merkir staðir þar
sem afdrifarík átök
hafa átt sér stað. Atburðirnir eru rifjaðir
upp samhliða því sem höfundur bók-
arinnar segir frá ýmsu merkilegu sem
mætir ferðamanninum.
Í fréttatilkynningu segir m.a.: „Á tím-
um þjóðveldisins mögnuðust upp mikil
átök í landinu og segja má að stríðs-
ástand hafi verið ríkjandi lengi vel.
Hetjur jafnt sem illmenni riðu um hér-
uð og vopn voru mönnum jafn-
nauðsynleg og orf og ljár. Við siðaskipt-
in á 16. öld blossaði aftur upp ófriður
sem endaði með því að allt innlent við-
nám var brotið á bak aftur.“
Í sama flokki hafa komið út bæk-
urnar Þjóðsögur við þjóðveginn og Ís-
lendingasögur við þjóðveginn.
Útg: Almenna bókafélagið. Bókin er
228 bls., prentuð í Odda. Kápu hann-
aði Loftur Ólafur Leifsson. Kort: Ólafur
Valsson. Teikningar og útlit korta: Björg
Vilhjálmsdóttir. Verð: 2.990 kr.
Ferðalög
Dalvísur eru eftir
Finn Torfa Hjörleifs-
son. Þetta er fjórða
ljóðabók höfundar.
Hinar þrjár eru Ein-
ferli 1989,
Bernskumyndir
1993 og Í með-
allandinu 1995.
Auk þeirra hefur
Finnur Torfi gefið út barnabók og
kennslubækur í ljóðalestri. Finnur
Torfi var móðurmálskennari í mörg ár
og stundaði ýmis önnur störf. Hann er
nú héraðsdómari, búsettur í Borg-
arnesi.
Í Dalvísum sækir Finnur Torfi yrk-
isefni einkum til íslenskrar náttúru,
lýsir þar náttúruskynjun einfarans. Í
bókinni eru 38 ljóð. Henni er skipt í
þrjá hluta, Dalvísur, Ljóð frá Sikiley og
Milli fjalls og fjöru.
Höfundur gefur út. Bókin er 52 bls.
Ljóð