Morgunblaðið - 26.04.2002, Blaðsíða 18
LISTIR
18 FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ásgrímur Jónsson
Verið velkomin að skoða verkin í Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14-16,
í dag frá kl. 10-18, á morgun frá kl. 10-17 og sunnudag frá kl. 12-17.
Seld verða um 160 verk, þar á meðal fjölmörg verk gömlu meistaranna.
Hægt er að nálgast uppboðsskrána á netinu: www.myndlist.is
Rauðarárstíg 14-16
sími 551 0400
LISTMUNAUPPBOÐ
það stærsta til þessa verður haldið á sunnudagskvöld kl. 19 á Hótel Sögu, Súlnasal.
Innlausnarverð*
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík
og hjá Lánasýslu ríkisins, Borgartúni 21, Reykjavík
Innlausnarverð er höfuðstóll vextir, vaxtavextir og verðbætur.*
Reykjavík, 26. apríl 2002
Greiðslumiði nafnverð
10.000 kr.
100.000 kr.
1.000.000 kr.
12.745,60 kr.
127.455,50 kr.
1.274.554,90 kr.
Innlausnartímabil
2.5.2002
2.5.2002
2.5.2002
Flokkur
1995 1.fl. B 10 ár
–
–
Tónlistarskóli FÍH, Rauðagerði 27.
Burtfararprófstónleikar Hafdísar
Bjarnadóttur rafgítarleikara frá
djass- og rokkbraut skólans verða kl.
17. Meðleikarar eru Ragnar Em-
ilsson gítar, Eiríkur Orri Ólafsson
trompet, Szymon Kuran fiðla, Þor-
grímur Jónsson bassi, Kristinn Agn-
arsson trommur, Elísabet Waage
harpa og Grímur Helgason bassa-
klarinett. Einnig kemur fram söng-
hópur sem samanstendur af Ernu
Blöndal sópran, Sigurði Helgasyni
kontratenór, Guðlaugi Viktorssyni
tenór og Eiríki Hreini Helgasyni
bassa.
Hafdís hóf nám í rafgítarleik við-
Tónlistarskóla FÍH árið 1995 og hef-
ur stundað nám þar síðan. Hún hefur
leikið í ýmsum samsetningum, bæði
djass, rokk og ýmsa aðra tónlist og
má þar nefna hljómsveitina Kjamma
og dúettinn Kuran Kompaní ásamt
Szymon Kuran fiðluleikara. Einnig
leiðir Hafdís eigið tríó ásamt Ragnari
Emilssyni gítarleikara og Grími
Helgasyni klarinettleikara.
Félagsstarf Gerðubergs Hugi Jó-
hannesson opnar sína fjórðu mynd-
listarsýningu kl. 16. Félagar úr Tón-
horninu og Gerðubergskórinn syngja
og leika við opnunina.
Hugi er fæddur í Haga í Aðaldal í S-
Þingeyjasýslu árið 1923 og hefur
teiknað og málað frá unglingsárum.
Eftir 1980 fór hann að snúa sér að
listmálun og hefur málað síðan í
vatnslitum, olíupastel og akríl.
Sýningin stendur fram í september
og er opin mánudaga til föstudaga kl.
10–17.
Valaskjálf, Egilsstöðum. Í tilefni
þess að 100 ár eru liðin frá fæðingu
Halldórs Laxness efna Bókasafn
Héraðsbúa, Leikfélag Fljótsdalshér-
aðs og Gunnarsstofnun til Laxness-
vöku kl. 20.30. Flutt verða ljóð, lesnir
valdir kaflar úr verkum, leiklesið og
sungið.
Í DAG
Hafdís Bjarnadóttir
MYNDLISTARSÝNING Ólafar
Nordal í galleri@hlemmur.is saman-
stendur af sjö verkum sem leika á
mörkum skúlptúra og ljósmynda. Þar
hefur Ólöf stefnt saman hrútshornum
og nútímalegum leikföngum, sem eru
fyrirmyndir ljósmyndanna á sýning-
unni.
Yfirskrift sýningarinnar, Gull, vís-
ar að sögn Ólafar á óljósan hátt til við-
fangsefnanna á sýningunni, þar sem
hún stefnir saman ólíkum þáttum og
vinnur kannski á mörkum þeirra,
hvað efnivið og framsetningu varðar.
„Hrútshorntengjast íslenskri þjóð-
menningu öðru fremur, en hafa hér
verið slitin úr sínu upprunalega sam-
hengi. Þess í stað eru þau sett saman
við leikföng úr plasti sem tilheyra allt
annari veröld. Titillinn vísar á mjög
óbókstaflegan hátt til barnagulla ann-
ars vegar og gullgerðarlistar hins
vegar, þar sem tveimur ólíkum þátt-
um er stefnt saman til að búa til eitt-
hvað nýtt. Þetta á við um frummynd-
irnar sem ég set saman, en einnig
framsetningu verkanna. Þau eru ekki
lengur skúlptúrar í eiginlegri merk-
ingu þess orðs, en leika einhvers stað-
ar á mörkum skúlptúrs og ljósmynd-
ar. Þannig geri ég í þrívíða hluti
tvívíða um leið og verkin fela í sér
ákveðnar pælingar um stærð og hlut-
föll,“ segir Ólöf.
Glötuð merking gullanna
Í ljós kemur að vísunin til leikfanga
á sér nokkuð djúpar rætur í reynslu
Ólafar, og má segja að hún leitist við
að miðla einhvers konar sögu í gegn-
um hrútshornin og leikföngin. „Þegar
ég var í sveit sem barn lékum við
krakkarnir okkur með legg og skel og
önnur gamalgróin íslensk leikföng.
Það er merkilegt hvað maður gaf
þessum hlutum mikla merkingu, enda
var vel pússaður leggur heilmikl fast-
eign. Þegar ég kom í bæinn glötuðu
gullin hins vegar öllu sínu vægi enda
komin í allt annað samhengi. Það var
mjög undarleg tilfinning sem ég upp-
lifði aftur á fullorðinsárum þegar ég
flutti til útlanda og tungmál mitt og
menning varð algerlega verðlaus. Fá-
ir þekktu yfirleitt til Íslands á þessum
slóðum og hafði maður hreinlega eng-
in not fyrir allt það sem maður hafði
talið verðmætt og mikilvægt.“
Þær þjóðlegu rætur sem Ólöf vísar
til hafa birst sem viðfangsefni í verk-
um hennar á ýmsan hátt, m.a. í Ný-
listasafninu á síðasta ári þar sem hið
íslenska forystufé varð miðpunktur
myndlistarsköpunarinnar. Ólöf segir
að í sínum huga endurspegli forystu-
féð þær menningarlegu rætur sem
við Íslendingar berum með okkur,
a.m.k. enn um sinn, þrátt fyrir aukin
alþjóðleg sam- og viðskipti. „Verkin
eru tilraun til að sættast við sauðinn
sem er svo ríkur í okkur, þó svo hann
sé kannski að færast í allt annað sam-
hengi. En svo má ekki gleyma húm-
ornum, án hans gengi þetta ekki upp,
segir Ólöf að lokum.
Sýningin Gull stendur fram til
sunnudagsins 28. apríl og er galleri-
@hlemmur.is opið milli kl. 14 og 18
frá fimmtudegi til sunnudags.
Morgunblaðið/Golli
Ólöf Nordal reynir að endurheimta gullin sín á sýningunni Gull sem stendur yfir í galleri@hlemmur.is.
Búin að brjóta og týna
Ólöf Nordal lýsir verk-
um sínum sem nokkurs
konar sáttargerð milli
menningar forfeðranna
og menningar dagsins
í dag. Heiða Jóhanns-
dóttir heimsótti Ólöfu
í galleri@hlemmur.is
þar sem hún sýnir
um þessar mundir.
heida@mbl.is
Á VEITINGASTAÐNUM Við Ár-
bakkann á Blönduósi stendur ný yfir
málverkasýning Garðars Jökuls-
sonar listmálara. Garðar er sjálf-
menntaður í myndlistinni og hefur
helgað sig málverkinu frá árinu 1995
en hélt þó þó sína fyrstu sýningu árið
1984. Garðar hefur haldið margar
sýningar bæði með öðrum og einn
sér og sýnir gjarnan verk sín á
„óhefðbundnum“ sýningarstöðum
þar sem almenningur gengur um
garð því eins og Garðar orðar það
sjálfur: „Ég hef alla tíð verið þeirrar
skoðunar að það eigi að færa listina
að fólkinu, en ekki hafa hana í af-
mörkuðum „básum“ fyrir þröngan
hóp sjálfskipaðra listeigenda.“
Efni í myndir sínar sækir Garðar í
náttúru landsins.
Sýninguni lýkur um mánaðamót-
in.
Náttúru-
myndir á
Árbakkanum
Eitt verka Garðars Jökulssonar.
Blönduósi. Morgunblaðið.
JPV útgáfa hefur gefið út sex nýjar
kiljubækur og hefur með útgáfunni
hleypt af stokkunum átaki sem hlot-
ið heitið Lestrargleði JPV útgáfu.
Með þessu móti vill útgáfan koma
til móts við lesendur og gefa þeim
kost á að eignast bækur á lægsta
mögulega verði.
Fyrstu bækurnar eru: Z Ást-
arsaga eftir Vigdísi Grímsdóttur,
Hann var kallaður „þetta“ eftir
Dave Pelzer, Leggðu rækt við sjálf-
an þig eftir Önnu Valdimarsdóttur
sálfræðing, Eyðimerkurblómið eftir
Waris Dirie, Artemis Fowl eftir Eoin
Colfer og Konan í köflótta stólnum
eftir Þórunni Stefánsdóttur.
Verð: 1.490 kr.
Kiljur
SAMSÝNING 170xhringinn verður
opnuð í Slunkaríki á Ísafirði á morg-
un, laugardag, kl. 17. Þar gefur að
líta verk fjögurra starfandi mynd-
listamanna sem allir eru búsettir í
Reykjavík. Þetta eru þau Björg Örv-
ar, Gunnar Karlsson, Jón Axel
Björnsson og Valgarður Gunnarsson
sem öll stunduðu saman nám í list-
málun við málaradeild Myndlista- og
handíðaskóla Íslands á árunum
1975–79.
Fjórmenningarnir hafa allir sýnt
mikið og víða á sínum ferli en þetta
er í fyrsta sinn sem þau sýna saman
verk sín.
Á sýningunni verða sýnd ný olíu-
málverk í stærðinni 170cm x 170cm,
eitt frá hverjum listamanni.
Sýningin er opin fimmmtudaga til
sunnudaga frá 16–18 og stendur
til12. maí
Verk eftir Jón Axel.
170xhringinn
í Slunkaríki