Morgunblaðið - 26.04.2002, Qupperneq 20
Skóför
hins ljúfa lífs
„ÉG ER HRUKKA. Tegund í út-
rýmingarhættu, fyrirbæri sem þarf
að koma til bjargar. Ráðist er til
atlögu gegn okkur úr launsátri –
allir vilja þurrka okkur út með
hvers kyns ráðum, lögmætum eða
ólögmætum (lesist: hollum eða
óhollum). Það eru krem og sýrur,
lyf og snyrtivörur, jafnvel skurð-
hnífar... Aumingja við, innan tíðar
verðum við ekki annað en óljós
minning þeirra sem spóka sig á
þriðja árþúsundinu, hugsið ykkur,
eftir fáein ár verða andlit allra orð-
in slétt, einsleit og sneydd öllum
svipbrigðum eins og á plastdúkk-
um – þökk sé vísindunum. Aum-
ingja við, síðustu varnargarðar
persónuleikans, sjarmans og visk-
unnar.
Nei, stríð á hendur hrukkunum
er ekki rétta leiðin. Ykkur ætti
með réttu að þykja vænt um okkur,
þið ættuð að virða okkur í stað
þess að hrekja okkur á brott. Í
besta falli gætuð þið hjálpað til að
halda okkur fallegum og í formi í
því skyni að ljá andliti ykkar nýja
og dulúðuga fegurð.
Ef þið ákveðið hins vegar að
halda úti eilífu stríði gegn okkur,
hafið þá tvennt í huga:
Í fyrsta lagi erum við ótrúlega
lífseigar og það er hreint ekki svo
auðvelt að ráða niðurlögum okkar.
Í öðru lagi erum við ótrúlega
langræknar. Sem sagt, sá sem hat-
ar okkur verður hataður af okkur
á móti. Við munum skemmta okkur
við að verða dýpri, fúlleitari og
ljótari, nákvæmlega eins og þið
viljið alls ekki.
En hugsið líka um eitt: við erum
mjög, mjög lengi að myndast. Það
tekur mörg ár, áraraðir af alls
kyns svipbrigðum, hryggð, gleði,
reiði, ást, áraraðir af sól og sum-
arleyfum, áraraðir af tilveru sem
er stundum auðveld, oftar erfið og
stirð. Og allt þetta tjáum við á and-
litinu ykkar. Að svo miklu marki
sem við „tölum“, segjum við fjöl-
margt um ykkur, hvort sem ykkur
líkar betur eða verr. Um æsku ykk-
ar og uppvöxt, um það hvernig lífið
hefur leikið ykkur fram að þessu.
Þið gefið okkur hins vegar voða-
leg nöfn. Þið kallið sætu, grunnu
línurnar í kringum augun
„hænsnaspor“. Hvað koma hænsni
okkur við!? Kallið þær frekar „skó-
för hins ljúfa lífs“. Og systur mínar
á enninu, þessar láréttu, þær eru
línur þeirra sem dagdreyma og
gætu þannig kallast „draumför“.
Hinar lóðréttu eru aftur á móti lín-
ur þeirra sem einbeita sér mikið.
Sem sagt, við höfum allar merk-
ingu. Glórulaus er hins vegar sú til-
hneiging fólks að sætta sig ekki við
okkur, hatast við okkur, að hugsa
um það eitt að útrýma okkur.
En hvernig á þá að fara að því að
gera okkur aðeins fallegri? Hér
eru nokkur þjóðráð: Reynið að
brosa nóg og halda vöðvakerfi and-
litisins sem mest slöku. Borðið nóg
af ávöxtum og grænmeti. Forðist
róttækar megrunaraðgerðir. Reyn-
ið að neyta aðeins þeirra lyfja sem
nauðsyn ber til. Verið í sólinni ef
þið viljið en verjið ykkur með sól-
vörn, sér í lagi á milli klukkan 11
og 16. Og síðast en ekki síst, bætið
dálitlu kæruleysi inn í tilveruna.
Og allra síðast en ekki síst, hugsið
vel um húðina, berið á hana raka-
krem, næringarkrem og jafnvæg-
isstillandi krem eftir þörfum. Og,
það sem er mikilvægast af öllu,
reynið að láta ykkur þykja vænt
um okkur hrukkurnar – og jafnvel
örlítið vænna um ykkur sjálf.“
Reuters
Lífssaga rithöfundarins Astrid Lindgren birtist í rúnum ristu andlitinu.
Af auglýsingum fæst oft ekki betur séð en að
hrukkur séu ein helsta ógn lífshamingjunnar.
Þegar Sigurbjörg Þrastardóttir las í útlönd-
um jákvæða grein um rúnir í andliti fannst
henni skylda sín að snara skilaboðunum:
Höfundur er Riccarda Serri
húðsjúkdómalæknir.
DAGLEGT LÍF
20 FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HÆGT er að spara sér ferðirmilli verslana, langan tíma ímátun og jafnvel biðraðir við
kassa með því að panta sér fatnað í
gegnum póstlista. Netverslanir, sem í
raun eru af sama meiði, hafa reyndar
verið að sækja í sig veðrið að und-
anförnu en póstlistarnir sjálfir hafa
hreint ekki látið í minni pokann. Tvö
lífseig dæmi eru listar Freemans og
H&M Rowells sem gefnir eru út með
íslenskum leiðbeiningum og starf-
rækja einnig verslanir á höfuðborg-
arsvæðinu. H&M Rowells sinnir
póstverslun innan Hennes & Mau-
ritz-samsteypunnar sem er sú
stærsta á sviði fataverslunar á Norð-
urlöndum, eftir því sem fram kemur á
heimasíðu, og rekur yfir 600 verslanir
í Evrópu. Verslun og póstlisti Freem-
ans of London býður hins
vegar upp á vörur frá
Bretlandi, en á heimasíðu
eru ítarlegar upplýsingar
um mál og stærðir, verðút-
reikning, vöruskil, meðferð
persónuupplýsinga og annað sem
viðskiptavinir kunna að vilja kynna
sér. Af öðrum listum má nefna Quelle,
Kays, Friendtex og Bon’A Parte sem
allir hafa haft umboðsskrifstofur hér
á landi til lengri eða skemmri tíma.
Listarnir eiga það sammerkt að
bjóða í grunninn klassískan fatnað,
sem ekki tekur stökkbreytingum
milli ára. Úrvalið í hvert sinn er þó
kryddað útfærslum í samræmi við
ríkjandi tísku hverju sinni, þannig að
sem flestir ættu að finna eitthvað sem
hentar. Í sumarlista Freemans gefur
m.a. að líta ýmsar buxur með klauf
upp í skálmar, boli þar sem önnur öxl-
in er ber, gallafatnað, reimaða toppa,
pils og kjóla með svörtu og hvítu
áprenti, dragtir og bandaskó, allt eftir
forskrift tískufræðinga. Í H&M Row-
ells-listanum á rauði liturinn sterkt
vígi, sem og gallaföt, blúndutoppar,
svart/hvíta áprentið, bleikir tónar og
kósabelti, einnig samkvæmt sumar-
tískustraumum. Í flestum tilvikum er
hægt að skipta vörum úr pöntunar-
listum sem ekki passa, en hver listi
hefur sínar reglur um skilafrest og
hvernig vöruskiptum skuli háttað.
Rauður er
sterkasti lit-
urinn í ár,
áprent er líka
í móð. H&M
Rowells.
Póstlistar á Íslandi
Keimur
af tísku
og klassík
Kúrekastíllinn
kemur fram hér í
rúskinnsbuxum.
H&M Rowells.
Senjórítuyfirbragð á pífubol og
rauðum buxum. Freemans.
Önnur
öxlin ber
að hætti
tískunnar
í sumar.
Freemans.
TENGLAR
....................................................
www.freemans.is
www.hm.is
www.quelle.is
www.friendtex.is
www.svanni.is
Opti L Zinc
FRÁ
FRÍHÖFNIN
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Öflugt gæðasink
30 mg. með kopar
með gæðaöryggi
Calsium Citrate
FRÁ
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Fyrir bein og tennur,
maga og ristil.
með gæðaöryggi
FRÍHÖFNIN