Morgunblaðið - 26.04.2002, Síða 24

Morgunblaðið - 26.04.2002, Síða 24
UMRÆÐAN 24 FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÍSAGA ehf. er traust, öflugt og rótgróið fyrir- tæki sem hefur starfað á íslenskum markaði síðan 1919. Hjá fyrirtækinu eru 30 starfsmenn, en umboðsmenn okkar eru á 6 stöðum á landinu. Fyrirtækið framleiðir og selur fjölmargar gerðir gas- og lofttegunda sem eru ávallt í hæsta gæðaflokki. Framleiðsla fyrirtækisins fer fram í Reykjavík, Hæðarenda í Grímsnesi og hjá systurfyrirtækjum okkar í Linde Gas Group vítt og breytt um Evrópu. Markmið ÍSAGA er að tryggja viðskiptavin- um sínum ávallt góða vöru og þjónustu á sam- bærilegu verði og í nágrannalöndunum. Enn- fremur leggur fyrirtækið áherslu á að tryggja starfsfólki gott starfsumhverfi þar sem því líður vel og eigi þannig betur kost á að veita góða þjónustu og skila fyrirtæki sínu hagnaði. Hjá fyrirtækinu starfar frábær hópur starfs- fólks sem býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu sem kappkostað er að miðla til við- skiptavina. Ný og betri vara Endursöluaðilar óskast ÍSAGA ehf. er nú að setja nýja vöru á neytendamarkað sem selst allt árið, en þó mest yfir sumartímann. Þess vegna óskar ÍSAGA eftir samstarfi við fyrirtæki sem getur séð um endursölu á umræddri vöru um allt land. Fyrirtækið þarf að hafa sölustaði á sem flestum stöðum á landinu og langan opnunartíma. Á hinum Norðurlöndunum eru endursölu- aðilar mörg hundruð, en það eru m.a. umboðsmenn AGA, Shell, ESSO, BP, Primus verslanirnar o.fl. ÍSAGA ehf. er systurfyrirtæki AGA, sem er hluti af Linde Gas Group. Linde Gas Group er eitt af stærstu gasfyrirtækjum heims, með fyrirtæki í yfir 50 löndum í Evrópu, Ameríku og Asíu og með yfir 20.000 starfsmenn. Nánari upplýsingar veita Þórunn Þórisdóttir og Kristján Hauksson í síma 577 3000. ÍSAGA ehf. • Breiðhöfða 11 • 110 Reykjavík • Sími: 577 3000 • Fax: 577 3001 www.aga.is Hluti af Linde Gas Group ÍD E A grafísk hönnun - IS A 222 NÝTT ÉG vil byrja á því að skýra hvað felst í hug- takinu „gát“ inni á geð- deildum. Þegar sjúk- lingur er settur á gát þá felst í því, í öllum til- vikum, skerðing á ferðafrelsi hans. Að auki er fylgst mismikið með viðkomandi eftir því á hvaða stigi gátin er. Þar sem sjúklingi er haldið nauðugum þeg- ar hann er á gát flokk- ast gát greinilega undir nauðungarvistun sam- kvæmt skýringu átjándu greinar lög- ræðislaga. Er ástæða til að hafa gát á gátinni? Lækni er heimilt að halda sjálfráða manni nauðugum á sjúkrahúsi í allt að 48 stundir ef jafna má ástandi við- komandi til alvarlegs geðsjúkdóms (19. gr.). Eftir þann tíma þarf úr- skurð dómsmálaráðuneytis til nauð- ungarvistunar. Ég er ekki viss um að þessa sé alltaf gætt þegar sjúklingar eru hafðir á gát í meira en tvo sólar- hringa. Ef svo er þá er það sýnu al- varlegra en margir virðast halda. Samkvæmt annarri málsgrein 226. greinar almennra hegningarlaga varðar ólögmæt vistun á geðveikra- hæli (geðdeild) minnst eins árs fang- elsi og allt að sextán ára fangelsi. Nú kunna aðrir geðheilbrigðis- starfsmenn að bera því við að lækn- arnir beri einir ábyrgð á þessu. Þetta viðhorf er rangt. Þriðji kafli hegn- ingarlaga fjallar meðal annars um aðild að afbroti, sérstaklega 22. grein. Samkvæmt þessu er það að viðhalda ólögmætu ástandi refsivert og getur refsingin jafnvel verið hin sama og hjá þeim sem fyrirskipaði brotið. Önnur mótbára sem gæti komið fram er að það kosti óþarfa umstang að fá tilskilinn úrskurð frá dóms- málaráðuneytinu. Svarið við þessu er að það er nánast óhjákvæmilegt að það kosti umstang og fjármuni að fylgja reglum sem eru settar til að vernda mannréttindi. Að hafna meðferð Samkvæmt sjöundu grein laga um réttindi sjúklinga skal virða rétt sjúklings til að ákveða sjálfur hvort hann þiggur meðferð. Enga meðferð má framkvæma án samþykkis sjúk- lings. Á þessu eru þó fyrirvarar, sem um er fjallað í lögræðislögum. Ein- stakling sem vistaður er nauðugur á sjúkrahúsi án þess að fyrir liggi úr- skurður dómsmálaráðuneytis má ekki meðhöndla nauðugan nema hann sé sjálfum sér eða öðrum hættulegur eða ef líf hans eða heilsa liggur við. Eftir að úrskurður um nauðungarvistun liggur fyrir getur yfirlæknir einn ákveðið þvingaða meðferð! Aðrir fyrirvarar um þvingaða lyfjagjöf byggjast, að því er ég best veit, á svokölluð- um neyðarrétti. Að neyðarrétti slepptum og án úr- skurðar dómsmála- ráðuneytis má enga meðferð framkvæma á lögráða sjúklingi án hans samþykkis. Þetta þýðir, tel ég, að óheim- ilt sé að beita lögráða einstaklinga blekking- um, svo sem því að segja lyf vera annað en það er eða með því að blanda lyfjum í mat eða drykk sjúklings. Þann- ig aðferðir verða því að teljast ólög- mætar þegar lögráða einstaklingar eiga í hlut. Lög og siðferði Síðastliðið haust var ég viðstaddur ráðstefnu sem Félag geðhjúkrunar- fræðinga hélt um siðferði í starfi geð- heilbrigðisstarfsmanna. Segja má að þessir starfsmenn séu hálfgerð nátt- tröll sem dagað hefur uppi. Margt af því sem þarna var rætt sem siðferði- leg álitamál fyrst og fremst er í raun orðið meira og minna lagaleg atriði. Það lítur út fyrir að umræðan hafi hafist svo seint meðal þessa hóps að löggjafinn hafi tekið af skarið með hvað teljist rétt og rangt og þar með tekið ómakið af þeim. Reyndar sýnd- ist mér fáir geðlæknar vera á þessu málþingi. Þeir eru kannski það sið- væddir að þeir þurfi það ekki. Í ljósi þess sem hér hefur verið sagt legg ég til að næsta ráðstefna þessara hópa fjalli um lagaumhverfið í þeirra starfi. Um neyðarrétt Sumt af því sem geðheilbrigðis- starfsmenn þurfa að gera í starfi sínu byggist, að því er ég best veit, fyrst og fremst á neyðarrétti. Það væri því heppilegt að þessi hópur þekkti eitt- hvað til neyðarréttar og takmarkana hans. Um neyðarrétt fjalla 12. og 13. grein almennra hegningarlaga. Það til dæmis að sprauta niður sjúkling eftir að hann er orðinn rólegur sam- rýmist ekki neyðarrétti. Það er ekki hægt að afstýra því sem er liðið. Í þannig tilfelli giska ég á að um sé í raun að ræða líkamsárás og ætti því að vera refsivert. Ef talið er að hegna þurfi sjúklingi er það almennt á vald- sviði dómara að ákveða refsingar en ekki heilbrigðisstarfsmanna. Lokaorð Mannréttindi þau sem flestir Ís- lendingar telja sjálfsögð urðu ekki til sjálfkrafa. Fyrir þeim þurfti að berj- ast, oft með penna og jafnvel sverði. Ekki er gefið að þessi réttindi haldist af sjálfu sér ef enginn stendur vörð um þau. Þau gætu seytlað burtu frá okkur smátt og smátt ef enginn er til þess að halda starfsmönnum stofn- ana við að virða þær reglur sem vernda eiga mannréttindi. Við gæt- um vaknað upp við það að starfs- menn einhverra stofnana hefðu smám saman dregið sér vald sem ekki á sér stoð í lögum. Eftir að kom- in er hefð á slíkt vald gæti verið erfitt að berjast gegn því. Grein þessi er að sjálfsögðu skort- ur á sjúkdómsinnsæi. Mannréttindi geðveikra Hilmar Harðarson Höfundur er öryrki og með óvirkan aðsóknargeðklofa. warrior- @vortex.is. Meðferð Að sprauta niður sjúk- ling eftir að hann er orðinn rólegur, segir Hilmar Harðarson, samrýmist ekki neyðarrétti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.