Morgunblaðið - 26.04.2002, Side 32
MINNINGAR
32 FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Guðveig Hinriks-dóttir var fædd í
Neðri-Miðvík í Aðal-
vík 13. maí 1909. Hún
lést á Elliheimilinu
Grund 11. apríl síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Guðný
Hallgrímsdóttir og
Hinrik Neilsen,
Norðmaður. Guðveig
ólst upp fyrstu tíu ár-
in í skjóli móðurfor-
eldra og móðursyst-
ur. Árið 1920 flyst
hún ásamt móður-
systur sinni að Horni í Hornvík, en
þar bjó móðir hennar, gift Kristni
Grímssyni. Hálfsystkin Guðveigar
eru Ólína Guðrún og Magnús.
Hinn 21. júní árið 1934 giftist
Guðveig Gunnari Vilhjálmssyni
frá Meiri-Tungu í Holtahreppi.
Þau eignuðust fimm börn: Bald-
vin, dó í frumbernsku. Gunnlaug-
ur, kvæntur Þorbjörgu Einars-
dóttur, og eiga þau fjögur börn.
Kristbjörg Erna, gift
Kristni Sigurðssyni,
og eiga þau fjögur
börn, Erna átti son
fyrir, Agnar Loga
Axelsson, og var
hann alinn upp hjá
Guðveigu og Gunn-
ari. Guðný María á
þrjú börn, er í sam-
búð með Sverri Júl-
íussyni. Vigdís Unn-
ur á fjögur börn, er í
sambúð með Sæ-
mundi Harðarsyni.
Guðveig og Gunn-
ar bjuggu í Reykjavík til ársins
1949 er þau fluttu að Bólstað í
Austur-Landeyjum. Árið 1971
fluttu þau aftur til Reykjavíkur og
bjuggu í Álfheimum 42. Gunnar
lést 19. maí árið 1988. Guðveig bjó
í Álfheimum til ársins 2000, þá
fluttist hún á elliheimilið Grund.
Útför Guðveigar fer fram frá
Langholtskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Elsku mamma, þá er þessari jarð-
vist lokið, þú varst orðin svo þreytt
og vildir svo sannarlega kveðja.
Ég þakka þér fyrir allt það sem þú
hefur gert fyrir mig og mín börn.
Þakka þér fyrir góða skapið þitt og
alla gleðina sem þú hefur veitt mér
og mínum í gegnum árin.
Alltaf var gott að koma til þín. Þú
varst svo hlý og góð, svo notaleg
manneskja, mig langar að senda þér
þessi erindi sem lýsa þér betur en
nokkuð annað.
Hún var einstök perla.
Afar fágæt perla,
full af kærleika,
skreytt gimsteinum
sem glitraði á
og gerðu líf samferðamanna hennar
innihaldsríkara og fegurra.
Fáar perlur eru svo ríkulega búnar,
gæddar svo mörgum af dýrmætustu
gjöfum Guðs.
Hún hafði ásjónu engils
sem frá stafaði ilmur
umhyggju og vináttu,
ástar og kærleika.
Hún var farvegur kærleika Guðs,
kærleika sem ekki krafðist endurgjalds.
Hún var vitnisburður
um bestu gjafir Guðs,
trúna, vonina, kærleikann og lífið.
Blessuð sé minning einstakrar perlu.
(Sigurbjörn Þorkelsson.)
Kær kveðja,
Vigdís Unnur.
Elsku mamma.
Á kveðjustund þjóta margar minn-
ingar um hugann. Ég nokkurra ára,
þið pabbi ung á Njálsgötunni, síðan í
nýja húsinu sem pabbi byggði á
Hjallaveginum og ekki síst þegar við
fluttum í Austur-Landeyjarnar. Fyr-
ir mig 9 ára var þetta eins og æv-
intýri.
Aldrei gleymi ég hvað mér fundust
olíulamparnir stórskemmtilegir,
svona til að byrja með, en varð hálf
fúl yfir að ekki var hægt að kveikja á
rafmagnsljósum eins og í Reykjavík.
Svo voru það öll dýrinn, heyskapur-
inn og allt umstangið sem honum
fylgdi.
Fyrsta haustið á Bólstað er ofar-
lega í huganum, barnaskólinn var
staðsettur í stofunni heima og komu
krakkarnir gangandi, sum um lang-
an veg, þú lést þér annt um þau og
settir oft þurran sokk á lítinn fót. Ég
minnist líka krakkana sem komu til
mislangrar dvalar heima. Þú varst
alltaf blíð og natin, passaðir vel uppá
að allir fengju góðan og hollan mat.
Mamma var ekki sveitakona í eðli
sínu en gekk að sínum verkum úti
sem inni og natin við dýr og menn.
Um það leyti sem við systkinin fórum
að fljúga úr hreiðrinu eignuðust þið
ykkar gullmola sem þið óluð upp sem
ykkar eigið barn, það er elsti sonur
Ernu systur og sagði mamma oft að
hann væri þeim sem Guðsgjöf.
Árið 1971 brugðu þau búi mamma
og pabbi og fluttu til Reykjavíkur þar
sem við systkinin vorum öll búsett.
Oft var mannmargt í Álfheimum 42
og þú passaðir vel upp á að enginn
færi svangur þaðan. Mamma var vin-
mörg og leituðu margir til hennar.
Bæði í gleði og sorg og undraði
mig oft hvað vinahópurinn var breið-
ur allt frá börnum, unglingum og
uppúr og var eins og allir fengju ráð
sem dugðu og í marga kaffibolla var
spáð og spekúlerað og spilum raðað í
stjörnur og önnur tákn. Eftir kom-
una suður fóru mamma og pabbi oft
til sólarlanda sér til ánægju og hress-
ingar. Eftir lát pabba fórum við
mamma í hennar síðustu ferð í sólina
til Spánar. Var hún þá orðin 86 ára
gömul. Við leigðum hús í 2 vikur og
naut mamma hverrar mínútu. Við
fórum víða um sveitir á bíl ásamt vin-
konu minni sem búsett er þar. Ef ég
spurði mömmu hvort hún væri ekki
orðin þreytt sagði hún snöggt
„Þreytt? Ég er ekki svo gömul.“
Mamma hafði alla tíð yndi af bók-
um, hvort það voru ævisögur, ástar-
sögur eða ljóðabækur fann hún sér
alltaf stund og stað til að líta í bók.
Man ég eftir henni með bók í annarri
hendi og hrærði í potti með hinni.
Mamma og pabbi áttu alltaf góðar
bækur sem voru mikið lesnar og höf-
um við systkinin fengið bókaást í arf
frá þeim báðum. Ég vil þakka þér,
mamma mín, öll árin og sérstaklega
þau sem við bjuggum saman í Álf-
heimum, þau eru mér mjög dýrmæt.
Mamma var einstök kona, orðheppin,
jafnlynd en var föst á sínum skoð-
unum. Að lokum vil ég þakka starfs-
fólki á Grund yndislegt viðmót og
hlýju í hennar garð og öllum þeim
sem styttu henni stundir með heim-
sóknum.
Vertu nú yfir og allt um kring
Með eilífri blessun þinni
Sitji guðs englar saman í hring
Sænginni yfir minni.
Guð geymi þig, elsku mamma mín,
þín dóttir
Guðný María.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf sem
gleymist eigi
og gæfa var það öllum er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Til eru konur sem strá í kringum
sig glaðværð, birtu og yl, og sigrast á
öllum viðfangsefnum lífsins hversu
stór og þung þau eru. Slíkar konur
eru mikilmenni. Hún amma mín var
slík kona. Nú þegar þessi elska hefur
sagt skilið við okkur langar mig til að
minnast hennar í nokkrum orðum því
ótal minningarbrot fara í gegnum
huga minn. Amma mín og afi bjuggu
í Álfheimum 42 í Reykjavík, þangað
var ljúft og gott að koma. Ég man svo
vel þegar ég lítil stelpan var að koma
í heimsókn til ykkar, þú amma á
harða hlaupum, svo ótrúlega létt og
fljót á fæti, vildir allt fyrir mig gera,
tíndir til fullt af dúkkum, hekluðum
dúkkufötum og bangsum. Afi, svo ró-
legur, spjallaði við mig eins og full-
orðna manneskju um lífið og til-
veruna, sagði mér úr sveitinni og
hvernig lífið var í þá daga á meðan þú
varst á fullri ferð að reiða fram því-
líkt kaffihlaðborð, og allt heimabakað
eins og þér einni er lagið. Ég held að
ég geti mælt fyrir marga, en aldrei
fór nokkur gestur frá þér svangur,
maður var eiginlega saddur í sólar-
hring eftir að hafa komið í heimsókn
til þín. Svona varstu, ljúfan, hélst
alltaf að allir væru banhungraðir sem
kæmu í heimsókn. Og svo seinna í
mínu lífi þegar ég var orðin móðir
voruð þið afi mér svo yndislega góð
og nærgætin, vilduð allt fyrir mig
gera, þess verð ég ævinlega þakklát.
Og stundirnar voru ófáar þegar ég
kom svo seinna með mína fjölskyldu
úr Keflavík, þá komu gömlu dúkk-
urnar í nýjum hekluðum kjólum og
slitnu bangsar úr skápnum þínum og
börnin mín léku sér, og afi sagði þeim
sögurnar úr sveitinni og ekki brást
gamla klukkan með fuglinum sem
kíkti út og galaði. Afi margsýndi
börnunum þegar fuglinn kíkti út og
alltaf hafði afi jafn gaman af við-
brögðunum þeirra. En svo lést afi
minn snögglega og fuglinn hætti um
tíma að kíkja út úr klukkunni góðu og
þú ljúfan mín, elsku amma, varst ein
um tíma í Álfheimunum, en þú með
þitt létta skap, réttsýni og frábæra
hugrekki hélst áfram, umvafin fólk-
inu þínu sem þótti svo vænt um þig.
Þú notaðir þinn tíma vel, gerðir ná-
kvæmlega það sem þig langaði á
meðan heilsan leyfði, einn daginn
datt þér í hug að skella þér í dagsferð
til Grænlands, þig langaði alltaf til að
koma við þar, og komst svo sæl og
ánægð til baka úr þeirri ferð, þreytt
varstu að vísu enda orðin áttræð,
gafst samt engum eftir í þeirri ferð.
Og aðra ferð fórstu eftir það, þá til
sólarlanda með Guðnýju dóttur
þinni, það átti vel við þig að vera í sól-
inni og hlýja loftinu. Amma mín, þú
varst svo ákveðin kona, fórst og
gerðir nákvæmlega það sem þig
langaði, þótt aldurinn færðist yfir
þig. Ég gleymi aldrei einu skipti þeg-
ar ég og mín fjölskylda komum í
heimsókn til þín og Guðnýjar í Álf-
heimana. Það eru ekki nema svona
þrjú ár síðan þetta var. Við mættum
þér í útidyrunum. Þú ætlaðir aðeins
að líta út í garð, í garðinum við húsið
voru leiktæki stór og mikil dekkja-
róla var þar líka. Mér verður þá litið
út um gluggann á eftir þér. Sé ég þá
hvar þú vippaðir þér upp í eina ról-
una, komst þér þægilega fyrir og
byrjaðir að róla þér á fullri ferð. Þig
langaði svo óskaplega til að prufa.
Varst þú búin að hugsa um það í
nokkurn tíma og lést auðvitað verða
af því. Svona varstu, ljúfan mín –
engum öðrum lík.
Mikið væri nú gaman að erfa frá
þér léttleikann, húmorinn, æðruleys-
ið og kraftinn sem fylgdi þér alla tíð.
Það eru forréttindi að hafa átt slíka
ömmu og hafa þig alla tíð til staðar,
en elsku ljúfan mín, ég veit að þú
varst hvíldinni fegin og ferðin heim í
ljósið verður þér ljúf og falleg. Þar
munu ástvinir þínir sem farnir eru
taka vel á móti þér. Vegir skilja nú
um stund ljúfan mín. Ég kveð þig
með söknuði í hjarta, amma mín, í
þeirri vissu að við munum hittast í
landi hinnar eilífu æsku. Þar sem
þráður sem nú hefur verið slitinn
verður aftur upp tekinn.
Við munum öll sakna þín,
ljúfan mín, megi ljósið og
friðurinn umvefja þig.
Þín
Guðveig.
Nú er hún amma farin og hvíldin
sem hún talaði um er komin.
Fyrir okkur var hún alltaf amma í
sveitinni þótt þau afi væru flutt til
Reykjavíkur. Ég fór ungur í sveit til
ömmu og afa á Bólstað og var þar
þau sumur sem eftir voru af þeirra
búskap á Bólstað.
Amma sagði okkur systkinunum
margar sögur frá æskuárum sínum
þar sem hún ólst upp á Hornströnd-
um, og var það afskaplega fróðlegt og
skemmtilegt að fá innsýn í það líf og
skýrir að mörgu leyti dugnaðinn og
eljuna sem einkenndi hana alla tíð. En
þrátt fyrir að hún væri dugnaðarfork-
ur, hafði hún alltaf tíma fyrir sitt fólk,
að spjalla, fá sér kaffisopa og var af-
skaplega þægileg þrátt fyrir að hafa
ákveðnar skoðanir á mönnum og mál-
efnum. Minning hennar mun lifa í
huga okkar.
Okkur langar að kveðja hana með
línum sem hún kenndi okkur og
þakka henni fyrir allt og allt.
Hvar sem þú finnur fátækan á förnum vegi
gerðu honum gott en grættu eigi
því Guð mun launa á efsta degi.
Einar og Birna.
Ég vil fá að þakka ömmu Veigu
fyrir allar þær góðu stundir sem ég
átti á Bólstað í A-Landeyjum þar
sem ég var í sveit á sumrin hjá henni
og afa Gunnari.
Efst í huga mér er þegar ég og
Aggi kenndum henni að hjóla, þá var
hún 58 ára, það gekk heldur brösu-
lega en tókst með ágætum að lokum.
Hún hló í margar vikur á eftir. Allar
götur síðan var nóg að minnast þess
að það væri gott veður til að fara út
að hjóla en það kom henni alltaf til að
brosa.
Oft var einnig gott að hafa ömmu
til staðar þegar prófa þurfti straum-
inn á rafmagnsgirðingunum í sveit-
inni.
Nú veit ég, elsku amma, að þú ert
farin að ferðast um ótroðnar slóðir,
eins og þú hugsaðir svo oft um, og
vakir yfir okkur öllum um leið.
Gunnar Karl Gunnlaugsson.
Láttu nú ljósið þitt,
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti.
Signaði Jesú mæti.
Kristur minn, ég kalla á þig,
komdu að rúmi mínu.
Gerðu svo vel og geymdu mig,
Guð í skjóli þínu.
Elsku amma, þetta voru versin
sem þú kenndir mér sem barni og ég
hefi aldrei gleymt og kennt mínum
börnum það sama og þú innrættir
mér í kristinfræðinni. Aldrei að hata
heldur vera ávallt tilbúinn að hugsa
og fyrirgefa þeim sem gjöra eitthvað
á minn hlut. Þannig höfum við bæði
lifað og kann ég þér hinar bestu
þakkir fyrir það sem þú kenndir mér
í æsku.
Minningarnar hafa streymt upp á
yfirborðið allt frá því Einsi frændi
hringdi í mig og sagði mér frá veik-
indum þínum og hversu stutt væri
eftir. Ég vissi að hann mundi koma til
þín svo fljótt sem hann gæti og
hringja til mín svo ég gæti kvatt þig,
elsku amma. En tíminn var of naum-
ur. Hann hringdi og sagði mér frá
ástandi þínu og þá fyrst skynjaði ég
að það var mjög stutt eftir. Eins og
þú vissir, amma mín, er ég staddur
erlendis vegna vinnu minnar svo erf-
itt var um vik. Um hálftólfleytið að
mínum tíma vitjaðir þú mín og ég
vissi hvað gerst hafði. Ég þurfti ekki
frekari vitneskju þar um. Þú hafðir
kvatt okkur með þeim krafti sem þér
einni var lagið, og við vissum af, sem
þekktum þig best. Af því sem þú tjáð-
ir mér veit ég hvert þú ert komin og
vonandi hefur þú fundið afa svo þið
séuð sameinuð á ný. Minningarnar
eru margar frá mínum bernskuárum
í okkar samskiptum. Manstu eftir
hjólreiðakennslu okkar drengjanna
þar sem við slepptum þér á hjólinu
einni niður brekkuna? Það er sú
stund sem við gleymum aldrei.
Manstu öskrin í stúlkunni sem kom
með okkur í Álfheimana á þeim árum
sem við Gústa mín vorum að kynnast
og þú komst fram með slegið hárið og
sagðir „Hvað eruð þið piltar að
gera“. En er þú sást Gústu og Ægi
varð þér að orði: „Æi, komið greyinu
heim.“ Daginn eftir sagðir þú við mig
„mér kæmi ekki á óvart að þú ættir
eftir að kynnast þessari Gústu betur,
og haltu þig að henni“. Amma, það
hef ég gert síðan. Margir minna vina
minnast þín einmitt fyrir hversu
getspök þú varst og sagðir þeim til
við leit sína að mökum. Þú áttir það
til að segja er þú sást vini mína koma
í heimsókn með einhverri nýrri
stúlku: „Það er þessi.“ Og reyndin er
að allir eru þeir kvæntir enn í dag
þeim stúlkum sem þú hafðir spáð til
um.
Þökk sé þér. Unglingsárin mín
voru kannski ekki þau auðveldustu
fyrir þig, þar sem afi vann á nóttinni
og ég oftar en ekki með vinum mín-
um úti. Skilningur þinn á öllu hefur
aldrei gleymst og á ég þér einni það
að þakka að ég komst algerlega
klakklaust út úr því æviskeiði.
Enda ráðlagðir þú mér alltaf í tíma
og ótíma. Hafðir alltaf tíma til að
ræða öll heimsins vandamál og leið-
beina. Þessu mun ég aldrei gleyma
og verð þér ávallt þakklátur fyrir.
Kannski vissi enginn hvað við vorum
nátengd.
Elsku amma, þakka þér fyrir allar
okkar samverustundir og allt sem þú
hefur fyrir mig og fjölskyldu mína
gert. Skilaðu kveðju til afa.
Agnar Logi.
Ég kom ung að árum inn í fjöl-
skylduna þegar ég giftist Gunnlaugi
einkasyni þeirra Veigu og Gunnars,
sem eru nú bæði látin. Það var alla tíð
mjög náið samband á milli þeirra
hjónanna. Veiga og Gunnar bjuggu á
Bólstað í Austur-Landeyjum á þeim
árum á myndarlegu sveitabúi. Gunn-
ar var kappsfullur bóndi og stórhuga.
Alltaf var farið austur á sumrin að
hjálpa til t.d. við heyskapinn. Strák-
arnir okkar fóru mörg sumur í sveit
til ömmu og afa og var alltaf tekið vel
á móti þeim. Veiga var fædd á Horn-
ströndum og alin þar upp að mestu.
Hún var mjög stolt af uppruna sínum
og kom viss svipur á andlit hennar
þegar talað var um hennar heima-
byggð, Hornstrandir. Fyrir nokkr-
um árum fór ég þangað í ferðalag og
gekk þá um Hornstrandirnar. Gat ég
þekkt staðina sem Veiga var búin að
lýsa fyrir mér, þegar ég sá þá. Minn-
ingin um átthagana var ávallt ljóslif-
andi hjá henni.
Veiga hafði létta lund og góða
kímnigáfu sem kom henni oft vel.
Hún mundi tímana tvenna þegar fólk
bjó þröngt og þurfti að deila ólíkleg-
ustu hlutum með ókunnu fólki eins
og eldhúsi. Henni þótti gaman að
segja frá þessum tíma og sagði þá
gjarnan að margt hefði breyst og
mátti það líka. Veiga hafði gaman af
matargerð og eldaði mjög góðan mat,
sérstaklega sósur og einnig bjó hún
mjög oft til gómsætar kleinur og
fleira bakkelsi. Ég spurði Veigu einu
sinni hvar hún hefði lært þetta, þá
sagðist hún hafa verið í vist hjá góðu
fólki sem kenndi henni mikið.
Hún hafði eitt áhugamál sem
henni var afar kært sem var spádóm-
ur. Hún spáði í bolla og lagði í spil og
var oft líflegt í eldhúsinu í Álfheim-
um, þar sem þau bjuggu árum sam-
an. Hún hafði einnig mikinn áhuga á
íslenska búninginum og klæddist
hún honum við hvert tækifæri. Gam-
an var að sjá hve glæsileg hún var í
honum.
Eitt orðatiltæki notaði Veiga mik-
ið þegar hún sagði frá einhverju
leyndarmáli og vildi ekki að maður
segði neinum, en þá sagði hún alltaf
„stingdu þessu hjá þér“. Tengda-
móðir mín var fíngerð kona og blíð og
mjög létt á fæti. Við fórum oft saman
í bæinn og var uppáhaldsstaðurinn
hennar gamla Reykjavík, miðbærinn
og tjörnin og gat hún setið þar lengi
og látið hugann reika. Ég vil þakka
Veigu fyrir samfylgdina í lífinu og
fyrir allt sem hún kenndi mér. Megi
guð styrkja okkur öll í sorginni.
Ljúfar voru stundir
Er áttum við saman.
Þakka ber Drottni
Allt það gaman.
Skiljast nú leiðir
Og farin ert þú
Við hittast munum aftur,
Það er mín trú.
Hvíl þú í friði
Í ljósinu bjarta.
Ég kveð þig að sinni
Af öllu mínu hjarta.
(M. Jak.)
Þín tengdadóttir,
Þorbjörg.
GUÐVEIG
HINRIKSDÓTTIR
Fleiri minningargreinar
um Guðveigu Hinriksdóttur bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.