Morgunblaðið - 26.04.2002, Page 41
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 41
Í STAÐ sunnudagsguðsþjónustu
28. apríl verður bæna-, tónlistar-
og íhugunarguðsþjónusta við
kertaljós í kvöld, föstudagskvöldið
26. apríl, kl. 20.30.
Ástandið fyrir botni Miðjarð-
arhafs þar sem Ísraelar og Palest-
ínumenn takast á, virðist fara
versnandi með hverjum degi sem
líður. Öfgar og ofstæki, hatur og
hefndir virðast ráða ferðinni og
hafa æ ríkari áhrif á fréttaflutning
og afstöðu fólks almennt til þess-
ara mála og alger óvissa virðist
ríkja um framvindu mála.
Í Fríkirkjunni í kvöld verður
beðið fyrir því að sannur friður
raungerist og ríki um framtíð á
þessu stríðshrjáða svæði.
Tónlist verður í umsjón Önnu
Sigríðar Helgadóttur og Carls
Möllers tónlistarstjóra. Anna Sig-
ríður mun syngja einsöng en auk
þess mun hún leiða almenna til-
beiðslu og bænagjörð í söng.
Guðsþjónusta sunnudaginn 28.
apríl fellur því niður vegna þessa.
Safnaðarstarf Fríkirkjunnar í
Reykjavík.
Ensk messa
í Hallgrímskirkju
ENSK messa verður haldin sunnu-
daginn 28. apríl nk. kl. 14. Prestur
verður sr. Bjarni Þór Bjarnason og
organisti Hörður Áskelsson. Guð-
rún Finnbjarnardóttir mun leiða
almennan safnaðarsöng og syngja
einsöng. Léttar veitingar að messu
lokinni.
Á þessu ári er boðið upp á enska
messu í Hallgrímskirkju síðasta
sunnudag hvers mánaðar.
Service in English
SERVICE in English at The
Church of Hallgrímur (Hallgríms-
kirkja). Sunday April 28th at 2 pm.
Holy Communion. The Fifth
Sunday of Easter.
Celebrant and Preacher: The
Revd Bjarni Thor Bjarnson. Org-
anist: Hörður Áskelsson. Soloist:
Guðrún Finnbjarnardóttir.
Refreshments after the service.
Aðalsafnaðarfundur
Hjallasóknar
AÐALSAFNAÐARFUNDUR
Hjallasóknar verður haldinn
sunnudaginn 28. apríl strax að lok-
inni messu sem hefst kl. 11. Á fund-
inum verða tekin fyrir venjuleg að-
alfundarstörf sem og önnur mál,
löglega fram borin. Allt safn-
aðarfólk er hvatt til að mæta.
Hvenær veit ég hvort
ég er alkóhólisti?
OPIÐ verður á Ömmukaffi í Aust-
urstræti 20 (gamli Hressingarskál-
inn) á laugardagsmorguninn 27.
apríl kl. 11. Þangað mætir Guð-
bergur Auðunsson áfengis- og
fíkniefnaráðgjafi og flytur fyr-
irlestur um alkóhólisma. Guð-
bergur hefur langa og góða
reynslu og menntun í ráðgjöf fyrir
alkóhólista og aðstandendur
þeirra. Guðbergur hefur starfs-
aðstöðu í Austurstræti 20 (efri
hæð) þar sem hann tekur meðferð-
arviðtöl. Einnig heldur hann nám-
skeið og fyrirlestra. Það eru allir
velkomnir á þennan fyrirlestur
meðan að húsrúm leyfir og það er
hægt að kaupa sér ljúfar veitingar
á afar sanngjörnu verði á Ömmu-
kaffi sem er bjart og reyklaust
kaffihús í hjarta borgarinnar.
Fræðslan er öllum að kostn-
aðarlausu.
Ömmukaffi og
miðborgarstarf KFUM&K.
Morgunblaðið/ÓmarFríkirkjan í Reykjavík.
Fríkirkjan í
kvöld – beðið
fyrir friði
Háteigskirkja. Samverustund eldri borgara
kl. 13 í umsjón Þórdísar þjónustufulltrúa.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–
7.05 alla virka daga nema mánudaga.
Mömmumorgunn kl. 10–12 í umsjá Hrund-
ar Þórarinsdóttur djákna. Kaffispjall fyrir
mæður, góð upplifun fyrir börn.
Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Var-
márskóla kl. 13.15–14.30.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkom-
ur alla laugardaga kl. 11–12.30. Lofgjörð,
barnasaga, prédikun og biblíufræðsla.
Barna- og unglingadeildir á laugardögum.
Létt hressing eftir samkomuna. Allir vel-
komnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl. 10,
13 og 22 á FM 105,5.
Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Unglinga-
samkoma í kvöld kl. 21.
Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl. 14.30
helgistund á Heilbrigðisstofnun, heimsókn-
argestir velkomnir. Kl. 17 sameiginleg æf-
ing fyrir alla hópa Litlu lærisveinanna í safn-
aðarheimili.
Sjöundadags aðventistar á Íslandi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Jón Hj. Jónsson.
Biblíurannsókn og bænastund á miðviku-
dagskvöldum kl. 20. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði:
Guðsþjónusta/biblíufræðsla kl. 11. Ræðu-
maður Björgvin Snorrason. Biblíurann-
sókn/bænastund á miðvikudagskvöldum
kl. 20. Allir hjartanlega velkomnir.
Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2,
Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður Einar Valgeir
Arason.
Samlestrar- og bænastund á föstudags-
kvöldum kl. 20. Allir hjartanlega velkomnir.
Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði 40,
Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjón-
usta kl. 11. Ræðumaður Brynjar Ólafsson.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmanna-
eyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta
kl. 11. Ræðumaður Eric Guðmundsson.
Samlestrar og bænastund í safnaðarheim-
ilinu á fimmtudögum kl. 17.30. Allir hjart-
anlega velkomnir.
Safnaðarstarf
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Orgelleikarar
— organistar
Organisti óskast í hálft starf að kirkjum Kirkju-
bæjarklaustursprestakalls. Hæfniskröfur eru
a.m.k. 7. stig í orgelleik/hljómborðsleik, þekk-
ing á uppbyggingu messu í lútherskri kirkju
og nokkur reynsla af kórstjórn, auk þess að eiga
auðvelt með að vinna með fólki, jafnt ungu
sem öldnu. Launakjör skv. samningi Félags
ísl. orgelleikara. Möguleiki er fyrir hæfan tón-
listarmann á allt að hálfu starfi á móti organ-
istastarfinu við stofnanir Skaftárhrepps.
Í Kirkjubæjarklaustursprestakalli eru 4 sóknarkirkjur. Í Prestsbakka-
kirkju er 8 radda pípuorgel en í hinum kirkjunum eru allgóð harmoní-
um. Við kirkjurnar starfa 2 kórar sem æfa að jafnaði einu sinni í viku
hvor yfir vetrarmánuðina. Í prestakallinu eru nálægt 550 manns.
Nánari upplýsingar veitir formaður sóknar-
nefndar Prestsbakkasóknar, Guðmundur Óli
Sigurgeirsson, í síma 487 4664 milli kl. 19.00
og 22.00 á kvöldin og formaður fræðslunefndar
Skaftárhrepps, Jóna Sigurbjartsdóttir,
í síma 487 4636.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Hjallasókn
Aðalsafnaðarfundur
Aðalsafnaðarfundur Hjallasóknar verður hald-
inn sunnudaginn 28. apríl nk. að lokinni messu
sem hefst kl. 11.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál,
löglega fram borin samkvæmt samþykktum
Hjallasóknar.
Sóknarnefnd.
Aðalfundur
Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar hf., fyrir reikn-
ingsárið frá 1. sept. 2001 til 31. des. 2001, verð-
ur haldinn í Akógeshúsinu í Vestmannaeyjum
föstudaginn 10. maí 2002 og hefst hann kl. 16.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. gr. sam-
þykkta félagsins sbr. bráðabirgðaákvæði í
samþykktum félagsins.
2. Önnur mál löglega upp borin.
Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf.
NAUÐUNGARSALA
Nauðungarsala
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Suðurgötu
1, Sauðárkróki, fimmtudaginn 2. maí 2002, kl. 14.00,
á eftirtöldum eignum:
Austurgata 6, Hofsósi, þingl. eign Lúðvíks Bjarnasonar. Gerðarbeið-
andi er Vátryggingafélag Íslands hf.
Giljar, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Önnu Lisu Wiium
og Hlyns U. Jóhannssonar. Gerðarbeiðandi er Lánasjóður land-
búnaðarins.
Hótel Varmahlíð, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Hótels Varma-
hlíðar ehf. Gerðarbeiðendur eru Byggðastofnun og Ferðamálasjóður.
Kringlumýri, Akrahreppi, þingl. eign Sigurðar Hansen. Gerðarbeið-
endur eru Lánasjóður landbúnaðarins og Íbúðalánasjóður.
Lambeyri, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Lambeyrar hf. Gerð-
arbeiðandi er Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis.
Lindargata 15, n.h., Sauðárkróki, þingl. eign Ingu Jónu Helgadóttur.
Gerðarbeiðendur eru Íbúðalánasjóður og Samvinnulífeyrissjóðurinn.
Messuholt, verkstæði, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Gunnars
Ágústssonar. Gerðarbeiðandi er Lánasjóður landbúnaðarins.
Vatnsleysa, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Jóns Friðrikssonar
og Björns F. Jónssonar. Gerðarbeiðendur eru Lánasjóður landbúnað-
arins og Íslandsbanki hf.
Vélaverkstæði, Ljótsstöðum, Sveitarfélaginu Skagafirði, talin eign
Trausta Fjólmundssonar. Gerðarbeiðendur eru Verkfærasalan ehf.,
Bændasamtök Íslands og Sandblástur og málmhúðun hf.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
24. mars 2002.
TIL SÖLU
Verslunin Öryggi
á Húsavík er til sölu
Verslunin Öryggi, Garðarsbraut 18a á Húsavík,
er til sölu.
Í versluninni eru seld heimilistæki, ljós, sjón-
vörp, málning, úr, símar, perur, garðvörur og
margt fleira.
Einnig er veslunin umboðsaðili fyrir Stöð 2 og
Sýn ásamt símafyrirtækinu Tal.
Um er að ræða lager verslunarinnar ásamt inn-
réttingum og viðskiptavild, en verslunin er í
leiguhúsnæði.
Allar nánari upplýsingar gefur Kristinn
í símum 464 1600 og 863 3900.
TILKYNNINGAR
Frá yfirkjörstjórn
í Mosfellsbæ
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosn-
inga, sem fram skulu fara 25. maí 2002, er til
kl. 12.00 laugardaginn 4. maí 2002.
Yfirkjörstjórn verður til viðtals á skrifstofum
bæjarstjórnar, 4. hæð í Kjarna, Þverholti 2, frá
kl. 11.00 til 12.00 þann dag.
Mosfellsbæ 23. apríl 2002.
Yfirkjörstjórn í Mosfellsbæ,
Leifur Kr. Jóhannesson,
Þorbjörg Inga Jónsdóttir,
Pétur Hauksson.