Morgunblaðið - 26.04.2002, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 43
DAGBÓK
OPNUN austurs á sterku
grandi markar leiðina í
fjórum hjörtum suðurs:
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ D72
♥ G743
♦ Á64
♣Á106
Suður
♠ Á93
♥ ÁK10965
♦ G
♣853
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 grand * 2 hjörtu
Pass 3 hjörtu Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
* 15-17 punktar
Útspil vesturs er tígul-
þristur. Hvernig er best að
spila?
Vörnin á tvo slagi á lauf
og að minnsta kosti einn á
spaða, kannski tvo, því það
er vitað að spaðakóngurinn
liggur á eftir drottningunni
í austur. Áætlun sagnhafa
tekur mið af því og snýst
um það að neyða vörnina til
að hreyfa spaðann í enda-
stöðunni.
Fyrst þarf að hreinsa
upp hliðarlitina. Sagnhafi
tekur á tígulás og trompar
strax tígul. Spilar svo ÁK í
hjarta (drottningin er önn-
ur í austur) og svo laufi á
tíuna:
Norður
♠ D72
♥ G743
♦ Á64
♣Á106
Vestur Austur
♠ G64 ♠ K1085
♥ 2 ♥ D8
♦ 108753 ♦ KD92
♣G973 ♣KD4
Suður
♠ Á93
♥ ÁK10965
♦ G
♣853
Austur spilar væntanlega
tígli um hæl, sem suður
trompar og spilar laufás og
meira laufi. Ef austur er
vakandi hendir hann lauf-
kóng undir ásinn og lætur
makker sinn taka slaginn á
gosann. Vörnin er þá enn á
lífi. Eina von vesturs er að
spila spaðagosa. Nú þarf
sagnhafi að gera upp við sig
hvoru megin tían er. Ef
hann metur það svo að
vestur sé með tíuna verður
hann að dúkka, en í þessari
legu er nauðsynlegt að
stinga upp drottningunni.
Ekkert er öruggt í þess-
um heimi, en samkvæmt
líkindafræðinni er senni-
legra að vestur sé með gos-
ann stakan en G10, auk
þess sem hann hefði hugs-
anlega spilað út spaðagosa
frá G10x í upphafi frekar en
smáum tígli.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú er sjálfstæð manneskja,
jafnvel einangruð. Engu að
síður finnst þér rétt að efla
sambönd þín við aðra, eink-
um fjölskyldu og vini.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Í dag er fullt tungl og það get-
ur valdið ruglingi varðandi
fjármálin. Þú ert ekki viss um
hvar þú eigir að draga mörkin
milli eigin peninga og peninga
einhvers sem er þér náin(n).
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nú er fullt tungl í andstæðu
stjörnumerki. Þetta þýðir að
þú þarft að vera sérstaklega
háttvís í samskiptum þínum
við maka þinn og allan al-
menning.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það ríkir spenna á vinnu-
staðnum. Hún nær hámarki í
dag sem leiðir til lausnar á
næstu dögum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Vinur þinn gæti gagnrýnt
rómantískan áhuga þinn á til-
tekinni manneskju. Þú þarft
ekki að réttlæta áhuga þinn á
þessari manneskju fyrir nein-
um.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú finnur til togstreitu í dag
varðandi hvort þú eigir að
sinna fjölskyldu og heimili
annars vegar og frama þínum
hins vegar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Val þitt í dag stendur á milli
þess að framkvæma venju-
bundin verk eða ýta þeim til
hliðar svo þú getir gert eitt-
hvað sem er framandi og
óvenjulegt.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þátttaka þín í sameiginlegu
eignarhaldi mun taka eigin
fjáröflunargetu fram í dag.
Ýttu persónulegum hags-
munum þínum til hliðar uns
þetta sameiginlega verkefni
hefur verið leyst.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er fullt tungl í stjörnu-
merkinu þínu í dag. Það
þvingar þig til að taka erfiða
ákvörðun um það hvort þú
eigi að einbeita þér að eigin
hagsmunum eða setja hags-
muni annars í forgang.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Sýndu samstarfsfólki þínu og
vandamálum á vinnustað þol-
inmæði í dag. Fullt tungl or-
sakar spennu í vinnunni en
hún hverfur fljótt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert tvístígandi um það
hvort þú eigir að eyða pen-
ingum í skemmtanir í dag.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Einkalíf þitt og allt sem teng-
ist heimili þínu krefst athygli
þinnar í dag. Þú verður að
biðja yfirmann þinn að sýna
þér biðlund.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Frestaðu ferðalögum svo þú
getir sinnt daglegum skyld-
um þínum. Eftir nokkra daga
getur þú skoðað ferðaplönin á
ný.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
70 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 26. apríl,
er sjötugur Magnús Eydór
Snæfells Þorsteinsson,
fyrrverandi sjómaður og
bílstjóri. Hann dvelst nú á
Landakoti. Í tilefni dagsins
tekur Magnús á móti gest-
um í Efstalandi, Ölfusi, milli
kl. 16-18 í dag.
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 26. apríl,
er sextugur Jóhannes Jón-
asson, Hrauntungu 1. Af
þessu tilefni mun hann taka
á móti ættingjum og vinum í
Þinghól, Hamraborg 11,
Kópavogi, sunnudaginn 28.
apríl milli kl. 16 og 18.
LJÓÐABROT
ÚR FJÓSARÍMU
Karlamagnús keisari dýr
kenndi trúna hreina.
Aldrei hann fyrir aftan kýr
orrustu háði neina.
Þórður hreða þegna vo,
þessi bjó að Ósi.
Breytti aldrei bóndinn svo,
að berði menn í fjósi.
Rollant hjó með dýrumdal,
drjúgum vakti hildi.
Bardagann í Baulusal
byrja aldrei vildi.
Þórður Magnússon á Strjúgi
1. c4 Rf6 2. Rf3 c6 3. b3 d5 4.
Bb2 Bg4 5. e3 e6 6. Be2 Bd6
7. h3 Bxf3 8. Bxf3 Rbd7 9.
Rc3 O-O 10. O-O De7 11. a3
Hac8 12. d3 Hfd8 13. g3 Bb8
14. d4 a6 15. Bg2 b5 16. De2
dxc4 17. bxc4 Rb6 18. c5 Rc4
19. f4 Rd5 20. Rd1 f5 21. Bc1
Kh8 22. Ha2 g5 23. Kh1 Hg8
24. Bf3 gxf4 25. gxf4 Dh4 26.
Bg2
Staðan kom upp á Amber
mótinu sem lauk fyrir
skömmu í Mónakó. Boris
Gelfand (2.703) hafði svart
gegn Ljubomir Ljubojevic
(2.548). 26...Hxg2! 27. Dxg2
27. Kxg2 gekk ekki upp
vegna 27...Hg8+ 28. Kh1
Dxh3+ 29. Dh2
Dxf1+. Í fram-
haldinu reyndist
hvíta staðan einn-
ig töpuð. 27...Hg8
28. Dh2 Hg3 29.
Rf2 Rcxe3 30.
Bxe3 Rxe3 og
hvítur gafst upp
enda fátt til varn-
ar eftir 31. Hg1
Hf3. Klúbba-
keppni Hellis og
Taflfélags
Reykjavíkur hefst
kl. 20 26. apríl.
Keppnin verður
haldin í Faxafeni
12. Sérstök verðlaun verða
veitt til þeirra sveita sem
hafa minna en 1.800 skákstig
að meðaltali. Borðaverðlaun
verða veitt fyrir 1.-4. borð,
bæði fyrir hina stigahærri
og stigalægri! Keppt verður
í fjögurra manna sveitum og
tefldar verða 9 umferðir með
7 mínútna umhugsunartíma.
Meðlimir skákklúbba sem
að jafnaði taka ekki þátt í
opinberum mótum eru sér-
staklega hvattir til að taka
þátt.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
GLEÐILEGT
SUMAR!
Glæsilegt
úrval af
sumarfatnaði.
Kringlunni,
sími 588 1680
V/Nesveg,
Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
iðunn
tískuverslun
Aðalfundur Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga
verður haldinn á Radisson SAS Hótel Sögu, í sal D,
föstudaginn 3. maí 2002 kl. 16.00.
Dagskrá:
Hefðbundin aðalfundarstörf.
Stjórn FVH.
AÐALFUNDUR
Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga
Pétur Tyrfingsson sálfræðingur
hefur opnað sálfræðistofu í Síðumúla 13, Reykjavík.
Tímapantanir í síma 697 5522 eða 588 0975
Áhugasvið: Þunglyndi og kvíði - Vandamál vegna
neyslu áfengis eða vímuefna - Spilafíkn
Aldurshópar: Unglingar og fullorðnir.
Lokað í dag
Föstudaginn 26. apríl verður lokað
vegna árshátíðarferðar starfsfólks
Við óskum þér gleðilegs og sólríks sumars
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Ég hef ákveðið að koma ekki með. Segðu þeim að ég
sé með mislinga eða eitthvað.
FRÉTTIR
ÞREKMEISTARAMÓT Reykjavík-
ur verður haldið á laugardaginn 27.
apríl kl. 16 í Austurbergi í Breiðholti.
Þetta er í fyrsta skipti sem keppni
af þessu tagi er haldin á höfuðborg-
arsvæðinu en alls eru skráðir 85
keppendur til keppni.
Þrekmeistarakeppnin felst í því að
keppendur fara í gegnum tíu æfing-
ar í kapphlaupi við klukkuna. Æfing-
arnar eru allar kunnuglegar fyrir þá
sem stunda líkamsræktarstöðvarn-
ar.
Keppt er í einstaklingsflokki karla
og kvenna, einstaklingsflokki karla
og kvenna eldri en 39 ára og einnig í
liðakeppni og eru fimm keppendur í
hverju liði.
Miðaverð er kr. 1000 fyrir áhorf-
endur, segir í fréttatilkynningu.
Þrekmeist-
aramót
Reykjavíkur
SJÁLFBOÐALIÐASAMTÖK um
náttúruvernd (SJÁ) efna til fyrstu
göngu sumarsins laugardaginn 27.
apríl. Lagt verður af stað kl. 11 frá
strætisvagnaskýlinu í Mjódd og eru
allir velkomnir.
Rabbfundur verður á Lækjar-
brekku sunnudaginn 28. apríl kl. 3.
Fjallað verður um vinnuferðir sum-
arsins, segir í fréttatilkynningu.
Gönguferð á
vegum SJÁ