Morgunblaðið - 26.04.2002, Side 46

Morgunblaðið - 26.04.2002, Side 46
FÓLK Í FRÉTTUM 46 FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Mulholland Dr. Þessi draumlógíska og seiðandi noir-saga skipast tvímælalaust í flokk bestu mynda David Lynch. Óræð en þó býr yfir leyndu merkingarsamhengi. (H.J.) Háskólabíó E.T. Enn er aðskilnaður vinanna ET og Elliotts með hjartnæmari augnablikum kvikmynda- sögunnar, slíkur er máttur Spielbergs. (Úr Myndbandahandbók Sæbjarnar Valdimars- sonar og Arnalds Indriðasonar (’90).) Amélie Yndislega hjartahlý og falleg kvikmynd um það að þora að njóta lífsins. (H.L.) Háskólabíó Monster’s Ball Einkar vel gerð kvikmynd um einstaklinga og lífsviðhorf í Suðurríkjum Bandaríkjanna. (H.J.) Regnboginn The Royal Tennenbaums Ljóðræn, vel gerð gamanmynd um fjölskyldu í súrrealískri tilvistarkreppu. Frábær leik- stjórn og leikur með Hackman í fararbroddi. (H.L.) Sambíóin Reykjavík Guesthouse Vel leikin, lágstemmd á yfirborðinu, en með þungri, tilfinningalegri undiröldu sem ýtir rösklega við hugarheimi áhorfandans. (S.V.)  Háskólabíó A Beautiful Mind Hugvekjandi kvikmynd, þar sem margar áhugaverðar spurningar um eðli mannshug- ans eru dregnar fram, en rígskorðun hins staðlaða hetjuforms Hollywood-smiðjunnar felur víða í sér einföldun sem dregur úr ánægjunni. (H.J.) Sambíóin, Háskólabíó. Black Hawk Down Harðsoðin, vel leikstýrð og raunveruleg bar- dagamynd um hlífðarleysi stríðsátaka, í þessu tilfelli borgarastyrjöldina í Sómalíu 1993. (S.V)  Regnboginn. I Am Sam/Ég er Sam Sean Penn og Dakota Fanning eru svo stór- kostleg í aðalhlutverkunum, að þau geta ekki annað en snert við heimsins mestu harð- jöxlum. (H.L.)  Sambíóin Kate and Leopold Tímagatsmynd um breskan aðalsmann sem dettur inn í nútímann í miðri New York og verður ástfanginn. Bráðskemmtileg láttu-þér- líða-vel mynd, vel leikin og skrifuð. (S.V.)  Smárabíó We Were Soldiers Vel gerð mynd um frægt blóðbað í Víetnam- stríðinu. Raunsönn lýsing á stríðsfirringu og allsherjaróreiðu í óhugnaði návígisins. (S.V.)  Smárabíó Skrímsli HF Létt og skemmtileg fyrir alla fjölskylduna. (S.V.) Sambíóin Ísöld Teiknimynd. Ágætis skemmtun, sérstaklega fyrir börn, þótt sagan sé frekar einföld og ekki sérlega fersk. (H.L.)  Laugarásbíó, Regnboginn, Smárabíó Iris Bresk. 2001. Leikstjóri: Richard Eyre. Aðal- hlutv: Judi Dench, Kate Winslet, Jim Broad- bent og Hugh Bonneville. Frábær leikur í fremur slappri mynd, sem er alls ekki nógu skemmtileg en sýnir engan veginn hvernig manneskja og heimspekingur Iris Murdock var.  (H.L) Laugarásbíó, Regnboginn, Smárabíó. Crossroads Þessi frumraun poppstjörnunnar Britney Spears á hvíta tjaldinu er ekki alvond. Leikur með ímynd Britney í myndinni er athyglis- verður en handrit klisjuofið. (H.J.) Sambíóin Aftur til hvergilands – Peter Pan II Pétur Pan berst enn við Kaftein Krók og nú með hjálp Jónu dóttur hennar Vöndu. Ósköp sæt mynd en heldur tíðindalítil og ófrumleg. (H.L.) Sambíóin Mean Machine Bresk útgáfa harðsoðinnar, bandarískrar myndar um átök fanga og gæslumanna þeirra í fótboltaleik. Vinnie Jones daufur, út- koman hvorki fugl né fiskur. (S.V.) Háskólabíó Showtime Ólíkar löggur í Los Angeles verða sjónvarps- stjörnur og samherjar. Hefði getað orðið smellin satíra. (S.V.) Sambíóin The Time Machine Leikurinn slæmur en nokkur tækniatriði eru þrusugóð auk þess sem stundum tekst að ná upp spennu. (S.V.) Sambíóin Long Time Dead Blóði drifin, drepleiðinleg hrollvekjuómynd. Efnisrýr og illa gerð í alla staði. (S.V.) ½ Laugarásbíó Slackers Enn ein afbökun af American Pie og jafn- framt sú versta til þessa. (S.V.)0 Smárabíó BÍÓIN Í BORGINNI Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir  Meistaraverk  Ómissandi  Miðjumoð  Tímasóun 0 Botninn Naomi Watts og Laura Harring í Mulholland Dr. sem Heiða Jóhanns- dóttir telur tvímælalaust eina af bestu myndum David Lynch. THE Notwist byrjuðu ferilinn í enda níunda áratugarins sem harð- kjarna-pönksveit. Í dag spila þeir mjög svo þekkilega blöndu af rokki og raftónlist, blöndu sem er listi- lega vel útfærð á fimmtu breiðskífu sveitarinnar; Neon Golden, sem út kom snemma á þessu ári. Tónlist Notwist lýtur áður óheyrðum og í raun glænýjum lög- málum. Það er óhætt að segja hana einstaka, því þó að tilraunir til þessa hafi vissulega verið reyndar áður hefi ég ekki heyrt neinn taka þetta jafn traustum og öruggum tökum og Notwist. Tónlistin rennur óhindrað og „eðlilega“ áfram, líkt og nýbylgjurokk og framsækin raf- tónlist hafi verið sjálfsagðir rekkju- nautar frá upphafi. Auk þess koma til hjálparkokkar eins og strengir og næmt melódíuinnsæi og gerir þetta heildarútkomuna í meira lagi glæsta. Fyrsta plata sveitarinnar kom út árið 1990 á Rough Trade merkinu góða og var dagskipunin þar hrátt pönkrokk, eins og reyndin varð svo með næstu plötu Nook (’92). Árið 1995 kom svo 12 út, og það var þar sem þeir æringjar hófu að róa út á rafræn mið, tónlistinni til bragð- auka. Shrink kom svo út 1998 og þar var hrærivélin sett í gang fyrir alvöru. Og svo er það Neon Gold- en... Fimmtán mánuðir Til hamingju með ... ég verð bara að segja það ... einstaka plötu, Markús minn. Segðu mér, voruð þið lengi að hnoða snilldinni sam- an? „Ó já. Fimmtán mánuði takk fyr- ir. Við vorum öllum stundum í hljóðverinu, raðandi þessu saman. Við ákváðum strax í upphafi að við myndum taka okkur eins langan tíma og við þyrftum í þessa plötu – við nostruðum lengi við hvert lag, fengum hina og þessa hljóðfæra- leikara til liðs við okkur. Við hljóð- rituðum mikið af efni til að finna einmitt það sem okkur vantaði (AET: Talandi um þýska ná- kvæmni!).“ Þið gerðuð þetta semsagt af stakri kostgæfni... „Já (hlær). Lögin tóku margoft breytingum, urðu hraðari og hæg- ari á víxl. Þetta gat verið erfitt á stundum.“ Er þetta í fyrsta skipti sem þið beitið þessum aðferðum? „Umm ... á síðustu plötu beittum við svipuðum aðferðum. Hún tók líka langan tíma og þá vorum við að eltast við snarstefjaða tónlist, svo og mistök sem hljóðfæraleikarar gera. Á Neon Golden fórum við með þetta út í öfgar. En um leið reynum við að passa upp á það að halda góðu flæði gangandi – þetta má ekki hljóma eins og saman- pússlaðir bitar.“ Af hverju stafar þessi víða sýn sem þið hafið á tónlistarsköpunina? „Ja ... plötusöfnin okkar endur- spegla tónlistina okkar ágætlega. Eftir því sem ferill okkar þróaðist urðum við æ forvitnari um fleiri tegundir af tónlist. Við fórum að sjá að krafturinn og ákafinn sem við leituðum eftir í pönki var einnig í annarri tónlist.“ Svo virðist sem Þjóðverjar séu mikið að blanda og bæta í dag. Ein- hver sérstök ástæða fyrir því? „Ætli það hafi ekki komið í kjöl- far tæknósins og allrar raftónlist- arinnar sem lifir einkar góðu lífi hér í Þýskalandi. Rokksveitir hafa sannarlega orðið fyrir áhrifum af þessu (AET: Sjá bara „evró-popp“ tilhneiginguna hjá Rammstein, sem mætti kalla Aqua þungarokksins. Og trúið mér þegar ég segi að ég er ekki að setja sveitina niður með þessu. Ég dýrka Rammstein!)“ Talk Talk mikilvægir Horfið þið til einhverra eldri sveita frá Þýskalandi? „Við komumst frekar seint í kynni við súrkálsrokkið (Can, Neu!, Faust) en við erum mjög hrifnir af því í dag. Ég verð líka að nefna „óþýskar“ sveitir eins og Talk Talk, Flaming Lips og Sonic Youth sem hafa verið okkur mikill innblástur.“ Vinnuferli ykkar minnir einmitt á aðferðir Mark Hollis (Talk Talk) er hann vann að „Spirit of Eden“ (’88) og „Laughing Stock“ (’91)? „Já, rétt er það. Laughing Stock vakti mikla hrifningu hjá okkur og við rákumst einnig á viðtal við Holl- is þar sem hann lýsti því hvernig hann byggði upp þessar plötur. Okkur fannst mikið til koma, er óhætt að segja. Þetta var eitthvað sem við vildum reyna líka.“ Við endum viðtalið á að spjalla um íslenska tónlist og Markus kannast mæta vel við Björk og Sig- ur Rós. Nafn múm kemur svo upp og tekur Markus við það andköf, segir plötu þeirra (Yesterday was...) hreint út sagt frábæra. Neon Golden á að vera til úti í næstu plötubúð. Og að lokum ráð- legg ég þeim sem eru nettengdir að athuga opinbera heimasíðu sveitar- innar. Slóðin er hér að neðan. Þetta er sannarlega fallega steikt síða! Spjallað við Markus Acher í Notwist Úr pönki í pjátur Þýskt rokk er í bullandi grósku um þessar mundir, hefur í raun ekki haft það eins gott síðan Can var og hét. Arnar Eggert Thor- oddsen ræddi við Mark- us Acher, söngvara og gítarleikara í München- arsveitinni Notwist, um lífið og tilveruna og sitthvað fleira. TENGLAR ..................................................... www.notwist.com arnart@mbl.is Meðlimir Notwist kæla sig eftir erilsaman dag í hljóðverinu…

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.