Vísir - 24.06.1980, Blaðsíða 12

Vísir - 24.06.1980, Blaðsíða 12
Fylgi forsetaframbjððenda i heild og eltir kjfirdæmum I % VISIR ÞriOjudagur 24. júni 1980. Albert % Guðlaugur % Pétur % Vigdís % Úákveðnlr % Neita að svara % Reykiavlk 14.58 25.69 14.58 17.36 16.67 11.11 Reyklanes 23.84 21.85 11.92 21.19 11.26 9.93 vesturland 19.15 14.89 23.14 23.40 10.64 8.51 vestfirðir 2.94 17.69 35.29 32.35 2.94 6.82 Norðurl. V. 16.13 16.13 12.90 29.03 6.45 19.36 Norðurl. E. 9.41 29.41 9.41 28.24 12.94 10.59 Austuriand 7.14 23.81 9.52 33.33 16.67 9.52 Suðurland 18.03 27.87 6.56 29.51 8.20 9.84 Landið allt 15.56 23.95 13.94 22.97 12.99 10.69 VISIR ÞriOjudagur 24. júnl 1980. Landlð allt af peím sem tóku atstöðu 20.39 31.38 18.26 29.97 Helmingl færrl óákveðnir nú en í fyrri könnun Visis: Meginniðurstöður skoðanakönnunar Visis, sem unnin var siðustu þrjá daga, er að mun fleiri hafa nú tekið afstöðu til forsetaframbjóðenda en i fyrri könnun Visis, sem gerð var fyrir þremur vikum siðan. Fylgisaukningin er mest hjá Pétri J. Thorsteinssyni 4.82%, og Albert Guðmunds- syni, 2.74% en fylgisaukning Guðlaugs Þorvalds- sonar er 1.14%. Hins vegar minnkar fyigi Vigdisar Finnbogadóttur um 0.43% og hefur Guðlaugur þvi i heildina rúmlega eins prósents vinning yfir hana þegar litið er á landið i heild. Mikiar sveiflur i elnsiökum klördæmum GUÐLAUGUR ER EFSTUR í HÖFUÐBORGINNI OG Á NORBURLANDI EYSTRA • VIGDÍS EFST Á SUÐURLANDI, AUSTURLANDI, NORÐURLANDI VESTRA OG VESTURLANDI • ALBERT EFSTUR Á REYKJANESI • PÉTUR EFSTUR Á VESTFJÖRÐUM Þegar nánar er litiO á töflur þær, sem birtast hér i opnunni, kemur hins vegar i ljós, aö mun meiri sveiflur hafa átt sér staö I einstökum kjördæmum en þessi heildarniöurstaöa sýnir. Þar er hins vegar um aö ræöa fylgis- breytingar f mismunandi áttir, og þær jafna þvi hverja aöra upp aö verulegum hluta til þegar landsyfirlitiö er tekið saman. 91.12%. Viö skoöanakönnunina núna var notaö sama úrtak og viö fyrri skoöanakönnunina, sem fram fór um mánaöamótin mal/júnf. 1 þeirri skoöana- könnun náöist i 80.6% úrtaksins, sem unniö var af Reiknistofnun háskólans úr þjóöskrá i sam- ræmi viö skiptingu kjósenda eftir búsetu, aldri og kyni. t þessari könnun var fylgst með þróuninni hjá þeim 80.6% sem samband náöist viö i siöustu könnun. öll svargögn úr þeirri könnun höföu veriö eyöi- lögö og þvi engin tök á aö bera saman svör einstaklinga i könnuninni þá og nú, heldur aöeins niöurstööur eftir kjör- dæmum og yfir landiö I heild. Þátttakendur i skoöana- könnuninni tóku þvi mjög vel aö I þá var hringt að nýju, og er rétt að nota þetta tækifæri til þess aö þakka sérstaklega þeim, sem I úrtakinu lentu, fyrir góöar viötökur, sem auövitaö eru forsenda þess aö niður- stööur séu marktækar. Heildarsvörunin i könnuninni var nú 91.12% yfir landið i heild. 1 sex af átta kjördæmum fór hún vel yfir 90%. Þátttakan var sem hér segir: Reykjavik 91.14% Reykjanes 93.79% Vesturland 81.04% Vestfiröir 94.44% Norðurl. v. 91.18% Noröurl. e. 89.47% Austurland 93.33% Suöurland 92.42% Eins og af þessu sést er þátt- takan um eöa yfir 90% i öllum kjördæmum nema einu, Vestur- Igndi, þar sem aðeins náöist i 81.04%. Ber þvi aö sjálfsögöu aö taka úrslitum þar meö meiri varúö en I öörum kjördæmum. Þeir, sem ekki náðist til, voru ótilgengilegir af ýmsum ástæöum, en oftast þó vegna feröalaga innanlands eöa er- Fyigi frambjfifienda eflir kyni kjðsenda i % Karlar Konur Samtals Albert 9.20 6.36 15.56 Guðlaugur 11.91 12.04 23.95 Pétur 7.71 6.23 13.94 Vigdis 10.01 12.66 22.07 Oákveðnir 5.41 7.50 12.99 Neita að svara 5.01 5.66 10.69 Eins og Ifyrri könnun VIsis á fylgi forsetaframbjóöendanna gaf Visir fulltrúum þeirra kost á aö koma á ritstjórnarskrifstofur blaösins um helgina til þess aö fylgjast meö framkvæmd könnunarinnar og I morgun voru þeim kynntar niöurstööurnar og gefinn kostur á aö kynna sér gögn og útreikninga. lendis, en nú er sem kunnugt er sumarleyfistimi. 15-20 manns. Skoöanakönnun sem þessi krefst mikillar vinnu, og unnu viö hana aö þessu sinni 15-20 manns i þrjá daga, laugardag, sunnudag og mánudag. Útreikningar og töflugerö stóöu slðan langt fram á siöustu nótt. Ekki tókst aö ljúka allri töflu- gerö um skiptingu þátttakenda eftir aldri á milli frambjóöenda, og veröa þær töflur þvi birtar i VIsi á morgun. Páll Magnússon, blaöamaður, haföi umsjón meö framkvæmd könnunarinnar eins og I fyrra sinnið. Úrslitin blasa aö sjálfsögöu viö I þeim töflum, sem hér birtast, en fyrir þá, sem litt eru gefnir fyrir lestur slikra tafla, skal hér fariö nokkrum oröum um helstuatriöin og sérstaklega getiö þeirra breytinga, sem orðiö hafa i hverju kjördæmi fyrir sig frá siðustu könnun Visis. Litlar sveiflur i Reykjavik. Litlar sveiflur hafa oröiö I höfuöborginni, þótt nú séu aöeins 16.67% óákveönir en voru 25.95% siöast. Nokkru fleiri neita aö svara nú en áður, eöa 11.1% á móti 8.54%. Rétt er aö geta þess, aö i hópi þeirra, sem neita aö svara, eru einnig settir þeir, sem kváöust ekki ætla aö kjósa og þvi ekki velja neinn frambjóöenda. Pétur hefur bætt viö sig 4.14% IReykjavik, og Vigdis 2.17%, en Guölaugur og Albert standa nokkurn veginn I staö. Albert efstur i Reykja- nesi. Miklar breytingar hafa orðið i Reykjaneskjördæmi. Þar hefur Albert aukiö fylgi sitt úr 14.91% siðast I 23.84% og er hann efstur i kjördæminu. Guölaugur hefur aukiö fylgiö þar úr 14.29% i 21.85%, og fylgi Péturs hefur aukist úr 10.56% i 11.92%. Hins vegar hefur fylgi Vigdisar lækkaö mjög verulega, eöa úr 32.3% í 21.19%, Þessi fyigis- minnkun I Reykjaneskjördæmi vegur upp á móti fylgisaukn- ingu Vigdisar I flestum öörum kjördæmum. 1 Reykjanesi eins og i öllum kjördæmum hefur hinum óákveönu fækkað mjög mikiö siöan um mánaöamótin. Sveiflur á Vesturlandi. Verulegar breytingar hafa lika orðiö á Vesturlandi, en itreka skal, aö þar náöist i minni hluta úrtaksins en I öörum kjör- dæmum. Mest er fylgisaukning Péturs, úr 8.62% i 23.14%, og Alberts, úr 10.34% I 19.15%, en bæöi Vigdis og Guölaugur tapa fylgi, Vigdis þó sýnu meira, eöa úr 39.65% i 23.40%. Hún er þó enn efst I kjördæminu, en Pétur er nánast viö hliö hennar. Þetta er eina kjördæmiö, þar sem Guölaugur er neðstur frambjóöenda. Pétur efstur á Vest- fjörðum. Vestfirðir eru annaö kjör- dæmi, þar sem miklar breyting- ar hafa átt sér stað frá siðustu könnun. Þar hefur Pétur að þvi er viröist fengið atkvæöi þeirra, sem óákveönir voru siöast, þvi hann er efstur i kjördæminu en óákveðnir eru aöeins 2.94% og eru þeir óákveðnu hvergi færri. Fylgi Péturs hefur aukist i kjördæminu úr 11.11% i 35.29%, en Vigdis kemur næst honum' meö 32.35%, sem er örlitlu minna en hún hafði siöast. Hlutur Guðlaugs og Alberts hefur einnig minnkað á Vest- fjörðum. Vigdis efst á Norður- landi vestra. 1 Norðurlandskjördæmi vestra hafa Albert og Pétur tvö- faldað fylgi sitt og hefur Albert nú þar 16.13% en Pétur 12.9%. Vigdis er hins vegar enn efsL i kjördæminu meö 29.03%. Guö- laugur hefur misst nokkurt fylgi þar samkvæmt könnuninni, eöa úr 20.59% i 16.13%. Athygli vekur, aö 19.36% neita að svara i þessu kjördæmi, og er þaö Ivið lægra hlutfall en siðast. Mun sveitasiminn eiga sinn þátt i þessu, en margir eru ófúsir að lýsa skoðunum á þessum málum yfir sveitir sinar. Vigdis vinnur mest á austanverðu Norður- landi. 1 Norðurlandskjördæmi eystra hefur Vigdls aukiö mest fylgi sitt, eöa úr 21.05% i 28.24%. Guðlaugur er þó enn aðeins hærri en hún i kjördæminu með 29.41%. Bæði Pétur og Albert hafa aukið sinn hlut, og eru jafnir meö 9.41%, en óákveðnum hefur fækkað mjög mikiö, eða úr tæpum 32% I tæp 13%. Vigdis tekur forystu á Austurlandi.... 1 Austurlandskjördæmi hefur Vigdis tekið forystuna af Guö- laugi, og aukiö fylgi sitt mikið, eöa úr 24.44% i 33.33%. Guölaugur hefur hins vegar tapaö nokkru, eða úr 26.67% i 23.81%. Litilsháttar fylgisaukn- ing hefur veriö hjá Albert og Pétri i kjördæminu. .... og á Suðurlandi. 1 Suðurlandskjördæmi hefur Vigdis lika tekið forystuna af Guðlaugi. Hún hefur aukiö sinn hlutúr 22.73% i 29.51%, en Guð- laugur hins vegar fariö úr 33.33% niður i 27.87%. Hlutur Alberts hefur einnig minnkað um 1.66%, en Péturs tvöfaldast og er nú 6.56%. Landsyfirlitið. Þegar litið er á landið i heild hefur Pétur aukiö fylgi sitt mest, eöa um 4.82%. Hann er samt enn neöstur með 13.94%. Albert hefur aukiö fylgi sitt um 2.74%, og er með 15.56%. Hann er þriöji i rööinni. Vigdls hefur litilsháttar misst fylgi, eöa um 0.43%, og munar þar fyrst og fremst um fylgis- minnkun i Reykjaneskjördæmi. Hún er meö 22.87% og i ööru sæti. Guðlaugur er hins vegar efstur meö 23.95% og jók sinn hlut um 1.14%. 1.08% skilur þau að. Biliö á milli þeirra tveggja efstu, Guðlaugs og Vigdisar, er litiö, eöa aðeins 1.08%. Siðast var Vigdis um hálfu prósenti fyrir ofan Guölaug. Albert, sem er þriðji I rööinni, er 8.39% fyrir neöan Guölaug, og Pétur er 10.01% fyrir neöan hann. Óákveönir eru hins vegar 12.99%, og 10.69% neita að svara, þannig að ekki er ljóst, hvaö 23.68% þeirra, sem þátt tóku I könnuninni, hyggjast gera. —ESJ. nithi ÞEIRRA VERÐUR FORSETI? Frambjóðendurnir til forsetakjörs Vigdis, Guð- laugur, Pétur og Albert eru hér í mesta bróðerni í sjónvarpssal á föstudags- kvöldið, en þá svöruðu þeir spurningum í beinni útsendingu. Sú skoðanakönnun, sem Vísir birtir nú var gerð á laugardag, sunnudag og mánudag, þannig að áhrif sjónvarpsþáttarins, ef einhver eru, ættu þar að koma fram. En hvert þeirra verður húsráðandi að Bessastöð- um eftir Kristján Eld- járn? Það er spurning, sem verður svarað á kosninganóttina. P’ I I I I Páll Magnússon, blaöamaöur, sem haföi meö höndum fram- kvæmd skoðanakönnunarinnar, sýnir hér Haraldi Blöndal, fuiltrúa Péturs Thorsteinssonar hluta úrtaksins, sem könnunin var grund- völluö á, en þaö var unniö af Reiknistofnun Haskólans. Visismynd: GVA.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.