Vísir - 24.06.1980, Blaðsíða 6

Vísir - 24.06.1980, Blaðsíða 6
Sportvöruverslun Ingólfs Óskarssonar Klapparstíg 44 — Síml 11783 Afréttarland á Norðurlandi til sölu Veiöiréttindi fylgja. Réttur áskilinn til aö taka hvaöa tilboði sem er eöa hafna öllum. Upplýsingar í síma 95-1931. I sigraðl 2:0 begar Akureyrarllðin mættust í „heimaslagnum” 12. delldinni í gærkvöldi Sigurganga Þórs frá Akureyri yar endanlega rofin i gærkvöldi, þegar Þórsarar mættu „bræöra- liöinu” KA f innbyröis viöureign þessara Akureyrarfiöa i 2. deild- inni i gærkvöldi. Leikurinn bar merki þeirra aö- stæöna sem hann fór fram i kulda — rigningarsudda og blautum velli. KA liöiö var heldur sterkara i fyrri hálfleik og sá þá einnig um aö skora eina markiö sem gert var i þeim hálfleik. Þaö var Jóhann Jakobsson sem Stella Zakharova. Hún er yngst allra I sovéska Olympfuliöinu, er |tsg hún einnig best?. geröi þaö aö skalla eftir auka- spyrnu, en markvöröur Þórs, Einar Eiriksson var þá heldur illa staösettur. Þórsarar byrjuöu siö- ari hálfleikinn meö miklum látum og áttu tvö dauöafæri á fyrstu miniltum. En þeim tókst ekki aö skora og jafnaöist þá leikurinn aftur. Þegar rétt um 10 mfnútur voru til leiksloka geröu KA-menn endalega út um leikinn. Asbjörn Björnsson, sem var nýkominn inn á völlinn, fékk þá sendingu frá Gunnari Blöndal og skallaöi knöttinnlaglega I markiöhjá Þór. Þar meö var sigurinn i höfn hjá KA — sanngjarn sigur en eins marks munur heföi þó veriö nær sanni. Erlingur Kristjánsson var besti maöur KA f þessum leik, en hjá Þór var þaö Oddur Óskarsson. Hann bar af i vörninni, var með góöar aukaspyrnur og horn- spyrnur enda meö hugann viö leikinn en ekki viö aö hamast og þusa i dómurum og linuvöröum eins og oft áöur... GS Akureyri/-klp- TtaðaT Staðan i 2. deiid tslandsmótsins I knattspyrnu er nú þessi : Þór-KA ....0:2 Þór ....5 4 0 1 12:4 8 KA ....5 3 11 10:4 7 Isafjörður ....5311 12:9 7 Haukar ....5 3 11 11:10 7 Völsungur ....5 3 0 2 7:5 6 ÞrótturN ....5 2 0 3 8:12 4 Fylkir ....4 112 3:4 3 Ármann....... ....5 113 6:10 3 Selfoss ....5 1 13 6:12 3 Austri ....3 0 0 3 3:6 0 SLÆR HON I GEGN Á MOSKVULEIKUNUM? —Hún er ekki nema 39 kiló og þeim örfáu kilóum er skipt niður á 150 sentimetra. En þótt litil sé og létt, kemst enginn hjá þvi að taka eftir henni á stórmótum I fimleikum, og þannig á það örugglega eftir að vera i fimleikakeppni kvenna á Oiympiuleikunum I Moskvu I sumar. Stúlkansem þarna er verið að tala um heitir Stella Zakharova og er aðeins 16 ára gömul. Hún er nýjasta stjarna Sovétrikjanna f fimleikaheimin- um, og sú, sem flestir veðja á að muni taka allan ljómann af Nelly Kim og Nadiu Comaneci I Moskvu. Það bar litið á henni á mótum þar til i fyrra, ab hún sló virki- lega I gegn. Þá sigraði hún létti- lega I heimsmeistarakeppni ungiinga og fylgdi siðan þeim sigri eftir með þviaö sópa að sér verölaunum á Opna Bandariska meistaramótlnu i Madison Square Garden. Ekki lét sú litla þar við sitja. Hún sigraði siðan I „Moskva News” fimleikakeppninni i Moskvu, þar sem margar þær bestu i fimleikum I heiminum voru með, og hún sýndi þeim siöan I tvo heiman i World Cup i Tokyo og heimsmeistarar- keppninni i Texas I haust. Stella, sem kemur frá borginni Minsk, var ekki nema 8 ára gömul þegar hún ákvað sjálf að verða fimleikakona. En hún þótti svo litil og veikluleg, að hún var beöin um að vera ekki aö angra fimleikakennar- ana oftar, og bent á að snúa sér að annarri Iþrótt. Hún var ekki alveg á þvi og hélt áfram að suða og mæta á æfingar. Loks var henni sleppt með i hópinn sem valinn var til æfinga fyrir skólasýningu i Minsk, og þar tók Vladimir Kouksa frægur fimleikaþjálfari eftir henni, og hann hefur sfðan veriö þjálfari hennar. Hún er mesta efni sem við eigum i fimleikunum I dag” sagði Vladimir I viötali við Franska blaöiö „L’Equipe” á dögunum. „Hún er jafngóð i öll- um greinum og blandar þar mjög skemmtilega saman gömium hefðbundnum æfingum og nýjum sem við höfum fundið upp I sameiningu. Það er mjög auövelt að vinna með henni, þvi hún hefur meðfæddan áhuga á fimleikum, og hugsar varla um neitt annaö”. — Vladimir var spurður að þvi, hvort hann gæfi Stellu einhver meðul til að halda vexti hennar niöri. Hún, eins og svo margar stúlkur i sovéska fimleikahópnum, hefur vakið mikla athygli fyrir hvað hún er litil og óþroskuð likamlega, og hafa margir læknar fullyrt, að' henni séu gefln meðui til að halda eðiilegum vexti og hormónastarfsemi niðri. „Þetta er uppspuni og lýgi sem komiö hefur frá vestrænum blaðamönnum og læknum” sagði Viadimir. „Steila er litil og smábeinótt og það þarf engin mebul til að ná þeim árangri. Hún er fædd svona, og systur hennar eru einnig svona litlar. Móöir þeirra er jafnvel enn minni en Stella hefur erft frá henni mikinn vlljastyrk og kraft sem hefur gert hennikleift að ná þetta langt I fimleikunum þótt litil sé’!.. — klp —

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.