Vísir - 21.07.1980, Page 31

Vísir - 21.07.1980, Page 31
Útvarp kl. 19.25: S1 FEFA N J ÚN HAI :STE in r Ö NÝJ IRF UST RÁI UFF mi IE1 iKl fT- m Stefán Jón Hafstein frétta- maður hjá vltvarpinu dvelur nú i Moskvu og fylgist með Ólympiu- leikunum. Mun hann senda dag- lega nýjustu fréttir frá leikunum og veröur þeim útvarpað kl. 19.25. á hverjum degi út leikana. Þessir fréttaþættir verða tiu minútna langir i hvert sinn. Vist er að margir munu hlusta á þessa þætti með athygli. Ekki sist munu menn fylgjast með úr- slitum I þeim greinum sem ís- lensku keppendurnir taka þátt I. — AB. utvarp kt. 23.00 Utvarp frá Listahátíö Dr. Gunnlaugur Þóröarson: um daginn og veginn Þátturinn „Um daginn og veg- inn” hefur lengi veriö á dagskrá útvarpsins. Margir eru þeir orðnir mennirnir, sem hafa i þætti þessum látið i ljós skoöanir sinará þeim málum, sem eru efst ábaugiá hverjum tima. Þeir eru einnig margir hlustendurnir, sem eru ánægðir með þennan þátt og vilja allra sist af honum missa. í kvöld mun dr. Gunnlaugur Þórðarson hæstaréttarlögmaður tala um daginn og veginn. Vafa- laustberþarmargtá góma, sem almenningi leikur forvitni á að heyra. Dr. Gunnlaugur Þórðarsson. Seinni hluta tónleika spánska pianóleikarans Aliciu de Larr- ocha verður útvarpað kl. 23.00 I kvöld. Verkin sem flutt veröa eru Cha- conne eftir Bach-Busoni, Fanta- sla Bétrica, eftir spánska tón- skáldið Manuel De Falla og Gas- parde de la nuit eftir Moris Ravel. Alicia de Larrocha var undra- barn á sinum tima. Sem ung- lingur var hún aðstoöarkennari við Grandos tónlistarskóla og eftir dauöa Frank Marshall, árið 1959, tók hún við stjórn skólans. Vinsældir hennar hafa vaxið jafnt og þétt æ síöan og gagnrýn- endur keppst um að hlaða á hana lofi. Hún þykir hafa frábæra tækni, öryggi, tlguleik og kraft. Alicia hefur fengiö viðurkenn- ingar fyrir leik sinn, m.a. Grammy-verðlaunin 1974 og ’75, og einnig hefur hún fengiö Edi- son-verðlaunin tvisvar. — ÁB. útvarp Mánudagur 21. júli 12.00 Dagskráin. Tónleikar 12.20 Fréttir. 12.45 14.30 Miödegissagan. 15.00 Popp. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Slðdegistónieikar. Sin- fónluhljómsveit tslands leikur „Jo”, hljómsveitar- verk eftir Leif Þórarinsson, Alun Francis stj. / Gaching- er-kórinn syngur Slgenaljóö op. 103 og tvö lög úr Söng- kvartett op. 112 eftir Johannes Brahms, Helmuth Rilling stj. / Isaac Stem, Pinchas Zukerman og Enska kammersveitin leika Konsertsinfóniu fyrir fiðlu, vlólu og hljómsveit eftir Karl Stamitz, Daniel Barenboim stj. 17.20 Sagan „Barnaeyjan” eftir J.P. Jersild Guörún Bachmann þýddi. Leifur Hauksson les ís' 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Frá Ólympfuieikunum. Stefán Jón Hafstein talar frá Moskvu. 19.40 Mæit mál. Bjarni Ein- arsson flytur þáttinn. 19.45 Um daginn og veginn. Dr. Gunnlaugur Þóröarson talar. 20.05 Piikk, — þáttur fyrir ungt fólk. Stjórnendur: Sigrún Valbergsdóttir og Karl Agúst Úlfsson. 20.40 Lög unga fólksins. Hild- ur Eirlksdóttir kynnir. 21.45 Útvarpssagan: „Fugla- fit” eftir Kurt Vonnegut. Hlynur Arnason þýddi. Anna Guðmundsdóttir les (18). 22.35 Fyrir austan fjáll. Umsjónarmaður: Gunnar Kristjánss .. kennari á Selfossi 23.00 Frá listahátfð I Reykja- vfk 1980. Planótónleikar Aliciu de Larrocha i Há- skólabiói 3. júnl s.l.: siöari hluti. Kynnir: Baldur Pálmason. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. „FEIKILEGT SHOW” í VESTUR-BERLÍN Undanfarið heliur ekki linnt frásögnum gufuradlósins af ein- hverri Islensk-færeyskri menn- ingarviku I Vestur-Berlin. Má skilja að þarna hafi gerst heii ósköp og um það bil sex eða sjö höfundar og skáld íslensk hafi veriö uppgötvuð og muni koma út á þýsku alveg næstu daga. Þessi menningarvika mun aö einhverju runnin undan rifjum Siguröar A. Magnússonar, sem viröist hafa komiö sér vel fyrir I menningarlffi Vestur-Berlinar. Hann stendur þá ekki I kommúnistaupphlaupum hér á íslandi á meðan. Valið á þeim höfundum, sem fóru héöan á þessa viku ber þess glögg merki, að þar hefur Siguröur verið að verki. Þetta munu hafa verið einir fjórir kommún- istar, einn einkavinur og einn ómissandi „menningarmaður”. Sérkennilegt er, að þessi menningarvika skuli haldin i Vestur-Berlin, þegar ljóst er að hún er að stærstum hluta haldin til lofs og dýrðar vinstri bræðr- um Siguröar A. Magnússonar. Manni skilst að þar i borg hafi kommúnistar hlaðið upp stein- vegg miklum til aö hindra of mikinn samgang milli borgar- hluta. En svo virðist að það sem ekki kemur að austan sé hægt að flytja frá islandi, eða hvaöa landi sem er, undir yfirskyni menningarvikna. Til viðbótar segir gufuradlóið, alveg að leka niður af aödáun, aö mennta- málaráðuneytið I vesturborg- inni hafi borgað reikninginn. Nú eru þeir Vestur-Þjóðverjar al- veg frjálsir aö þvi hvaö þeir gera við peningana sina, og sist skal lasta þaö, vilji þeir styrkja einhverja Islenska listamenn til utanfarar. En það hlýtur að skorta nokkuð um skiining hér heima hvaö þeir eru yfirleitt að skera sig frá austantjaldslönd- um I pólitik, fyrst þeir fundu ekkert annað til að kynna frá is- landi. Þeir bera þvi viö aö nasista- sjokkið hafi lokaö fyrir eðlileg menningarsamskipti þjóðanna frá striöslokum, vegna þess að nasistar gerðu sér dátt við Is- lenska menningararfleifð út frá arlskum hindurvitnum. Nú eigi sem sagt að fara aö taka upp menningarsamstarfið að nýju undir stjórn Siguröar A. Magnússonar. Með því móti er fariö út I hinar öfgamar, svo 'vandséð er hverju Islensk menning er nær. Það þarf svo engan að undra, þótt fréttastofa gufuradíósins hafi ekki annað merkilegra að flytja en fréttir af gistingu nokkurra vinstri manna og félaga þeirra i Vest- ur-BerlIn I miðju sjónvarpsfrii. Fyrir slðari heimsstyrjöld létu Þjóðverjar sig mjög varða bókmenntir frá Norðurlöndum, löngu áður en nasistar komu til vaida. Þeir skildu mætavel nor- ræna sagnahefö, ekki siður en margar þær þjóðir sem nú telj- ast til austantjaldslanda svo og Rússar. Lesendahópurinn i þessum löndum gerði margan ágætan norrænan höfund rikan áður en hann varö yfirtak vin- sæll i heimalandi sinu. Þetta kom engri arisku eða slavnesku við, heldur byggðist á likum við- horfum tii skáldskapar. Þetta voru lesþjóöir. Ein lítil vinstri- menningarvika I Vestur-Berlln breytir svo sem engu um þetta. Hún er svona einskonar grinmál til að hafa uppi, þegar talið berst aö frækilegum Þjóöverj- um I heimsbaráttu við kommúnisma. Og þótt yfirlýs- ingar einstakra þátttakenda vikunnar I gufuradióinu bendi til að þarna hafi orðið hreinir ástafundir, sér enginn eftir þvi þótt þýskt menntamálaráöu- neyti borgi gamanið. Lesþjóð- irnar halda áfram að virða bæk- ur eftir þvl hvað þær hafa að flytja. Þær eru enn ekki orðnar „show” I þessum löndum handa hinu fylkta liði til að jarma um með hástemmdum lýsingarorö- um, þar sem enginn kemst neð- ar i lýsingunni en i oröið „feyki- legur”. Það er aöeins hér heima sem þýðir að auglýsa eins og Helgafell. Svarthöfði.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.