Vísir - 11.09.1980, Blaðsíða 1

Vísir - 11.09.1980, Blaðsíða 1
Gamla flugstööin á Keflavfkur- flugvelli. Kefiavíkurflugvöllur: Hanna áfram nýju stöðlna „Það er unnið áfram aö hönnun nýrrar flugstöðvarbyggingar á Keflavikurflugvelli,” sagði Ólaf- ur Jóhannesson utanrikisráð- herra er Visir spurði hvort nokkrar breytingar hefðu orðiö á þvi máli. Nýja flugstöðin á aö vera um sjö þúsund fermetrar að stærð. Meðal breytinga sem gerðar hafa veriðfrá upphaflegri áætlun er að flugstöðvareldhúsið verður i aðalbyggingunni, en áður var gert ráö fyrir sérbyggingu fyrir eldhúsið. Byggingarnefnd stöðvarinnar mun skila skýrslu um hönnun hennar i næsta mán- uöi. —SG í " "vTö’r æbur nar"vl ö luxemdörgapT ákveönar" " 1 STEINGRlMUR TIL ! i LUX X MffiVIKUUAG I - viðræðurnar verða aifarlð á ríkisstiórnarplani „Skýrsla eftirlitsmanna rikisins hefur þvi miður ekki enn borist okkur, en ég vona þó, að hægt verði að ákveða umræðugrundvöllinn fyrir viðræður minar við Luxemborgarmenn á rikisstjórnarfundi nú á eftir”, sagði Stein- grímur Hermannsson, samgönguráðherra, i samtali við blaðamann Visis i morgun. Viðræður Steingrims og Luxemborgarmanna fara fram i Luxemborg i næstu viku, og hafa fundardagarnir verið ákveðnir miðvikudagur og fimmtudagur, en einnig er gert ráð fyrir að hafa föstudaginn upp á að hlaupa, ef með þarf. Að sögn Steingrims er pað bagalegt, aö skýrslan skuli ekki liggja fyrir, þvi að timinn sé naumur og umræðugrundvöll- urinn veröi að liggja fyrir i siö- asta lagi á þriðjudaginn. „Það er gert ráö fyrir þvi, aö þessar viðræður verði alfarið á rikisstjórnarplani, en hvort Flugleiðamenn veröi staddir i Luxemborg á sama tima, skal ég ekkert segja um”, sagði Steingrimur. aðspurður. Hann sagöist lita svo á, að Fiugleiðamenn heföu lokið sin- um viðræðum viö aöila i Luxemborg, enda hefði félagið sent tilkynningu þess efnis ti! yfirvalda þar i landi. „Það er ekki nema ef út úr minum viðræðum kæmi eitt- hvaö jákvætt, að Flugleiðir kæmu inn i þær aftur”, sagði Steingrimur. Milljónatjón varö, þegar bifreiðaverkstæði brann til kaldra kola I Árskógshreppi í gær, og er myndin tekin þegar unnið er að slökkvistarfi. Nánar segir frá brunanum ifrétt ábaksiöu. Visismynd: JS-Dalvik. „Undirboð Skipaútgerðarinnar drepa vðruflutninga á landi” - seglr Stefán Pálsson, tramkv.slj. Landvara „Við höfum sent forsætisráð- hera bréf, af illri nauðsyn, þar sem við teljum, að með undir- boðum sé Skipaútgerð rikisins að drepa niöur alla vöru- fiutninga á landi”, sagði Stefán Pálsson, framkvæmdastjóri Landvara, félags vörubifreiöa- eigenda á flutningsleiðum, i samtali við Vfsi. t umræddu bréfi beinir Landvari þeirri kröfu til rikisstjórnarinnar, að málefni þessi veröi þegar tekin til alvarlegrar umræöu og þvi svarað, hver sé stefnan i flutningamálum. „Þeir hjá Skipaútgeröinni hafa að undanförnu unnið þrot- laust aö þvi að fá flutningskaup- endur úti á landi til að flytja vörur með skipum félagsins og hefur orðið töluvert ágengt, enda hafa þeir undirboðiö flutningana”, — sagöi Stefán ennfremur. „Flutningsstarf- semi þessi er rekin með bull- andi tapi og Skipaútgerðin fær ekki krónu upp i flutnings- kostnaöinn fyrir siglingu með vöruna, enda gert i trausti þess, að tapið sé greitt úr ríkissjóði. Okkur hefur reiknast til, að rikissjóöur greiði um 20 þúsund krónur með hverju tonni að meðaltali, sem Skipaútgerðin flytur. En meö þessu teljum viö, aö þaö sé visvitandi verið aö drepa þá niöur, sem annast skipulagsbundna flutninga með bilum”, sagöi Stefán. Stefán sagöi, að vöru- flutningabilar hefðu um árabil veitt flestum byggðarlögum veigamikla þjónustu og tryggt reglubundnar feröir til og frá Reykjavik. Hefðu flutningsað- ilar fjárfest i dýrum vöru- flutningabifreiðum og byggt vöruafgreiðslur bæði i Reykja- vik og i heimabyggöum sinum,- vegna verðlagsþróunar og verö- lagshafta hefði reksturinn stað- ið i járnum. Afkomumöguleikar heföu einkum veriö tryggöir með flutningum á stærri vöru- tegundum, vegna undirboða Skipaútgeröarinnar heföu margir flutningsaðilar færst yfir á skipin. Viö það hefði rekstrargrundvöllur bifreiðaút- geröar nokkurra aöila i Land- vara brostiö og fyrirsjáanlegt, að þeir muni hætta flutningum aö óbreyttu ástandi. —Sv.G.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.