Vísir - 11.09.1980, Blaðsíða 14

Vísir - 11.09.1980, Blaðsíða 14
vtsm Fimmtudagur 11. september 1980 14 Bréfritara finnst þaösölubragft af lægstu gerO aO birta myndirsem þessa. Burl meö neKtarmyndiri Nleira um ensku knatt- spyrnunai Knattspyrnuaðdáandi skrifaði: Ég er hneykslaöur á skrifum „Knattar” i lesendadálki Visis fyrir skömmu. Þar segir „Knött- ur” (hann er örugglega eins og knöttur i laginu) aö fáir hafi áhuga á ensku knattspyrnunni og aö Visir eigi aö ganga á undan meö góöu fordæmi og hætta öllum skrifum um „fótmennt Breta”, eins og hann kallaöi þaö. ÞUsundir manna fylgjast spenntir meö ensku knattspyrn- unni og menn eiga sér uppáhalds- liö. Þá eru getraunirnar bundnar viö ensku knattspyrnuna, en get- raunirnar eru drjúg tekjulind fyr- ir iþróttafélögin og iþrótta- hreyfinguna i heild. Ég ætla þvi aö hvetja Visi til aö auka skrif um ensku knattspyrn- una — skrifa blaöa mest um hana. Þannig myndi sala blaösins auk- ast enn meir. Enn ber ensku knattspyrnuna á góma lesenda. Sori á vegum Tónlistar- félagsins Tónlistarunnandi hringdi: „Ég skil ekkert i þvi aö kvik- myndahús þaö sem Tónlistarfé- lagiö rekur skuli þurfa aö leggja áherslu á aö sýna lágkúrulegar klámmyndir til aö halda uppi starfsemi félagsins. Nú siöast leggur Tónabió mikiö kapp á aö auglýsa mynd um 0 sem „finnur hina fullkomnu fullnægingu i al- gjörri auömýkt. Hún er barin til hlýöni og ásta.” Mér finnst þaö fyrir neöan allar hellur þegar aö félag sem vill kynna fólki æöri list lætur kvik- myndahús sem þaö rekur velta sér upp úr óeöli og viöbjóöi. Þaö hlýtur aö vera lágmarkskrafa aö nafn Tónlistarfélagsins sé ekki tengt sllkum sora.” Húsmóðir hringdi: Hvaöa stefna er þetta hjá siö- degisblööunum aö vera sifellt aö birta myndir af nöktum konum? Til skamms tima sáust slikar myndir sem betur fer ekki i blöö- unum, en svo var skyndilega sem allar flóögáttir opnuöust. Þaö má ekki skina sól, þá eru Visir og Dagblaöiö komin meö myndir af berbrjósta stúlkum eöa þaöan af verra. Er ekki óþarfi aö apa allt eftir frændum okkar á Noröurlöndun- um, eða seljast blööin miklu betur þegar slikar myndir eru birtar? Ef svo er þá er þetta sölubragö af lægstu gerð. Veriö er að höföa til lægstu hvatanna, en svo gleymist þaö aö dagblööin eru lesin af öllum aldurshópum. Eða á kannski aö fara aö banna sið- degisblööin börnum innan 16 ára? Spraufið á unglingana Húsmóðir komin af léttasta skeiði hringdi: Varöandi þetta svokallaöa unglingavandamál og umsáturs- ástandiö, sem veriö hefur i miöbæ Reykjavikur undanfarnar helgar I framhaldi af þvi, langar mig aö taka undir orö góöra manna um aö útbóta sé þörf. Þaö þarf aö sýna þessum ungmennum I tvo heimana og það fyrr en seinna. Hvers vegna eru þau ekki látin þrifa sjálf eftir sig? Heföi ekki veriö ráö, aö láta þessa tugi ungl- inga, sem handteknir voru á föstudag, þrifa eftir sig Austur- völl, planta blómum og borga þau spjöll, sem unnin voru? Ég er viss um, aö ef þetta fólk vissi á hverju þaö ætti von i þessu sambandi, myndi þaö hugsa sig tvisvar um áöur en þaö bryti næst glugga eöa sliti upp blóm. Annars fannst mér feikigóð aöferöin, sem þeir not- uöu i Sviss um helgina viö svipaö- ar aöstæöur. Þar fékk lögreglan slökkviliöiö i liö meö sér og sprautaöi á ungmennin. Areiðan- lega góö aöferö til eftirbreytni. Athugiö þaö. Bréfritari vill láta sprauta á ungiingana. sandkom Burt með klámhunda Nýútkominn Samúei greinir frá heimsókn blaöamanns Vikunnar til Halldórs Laxness. Blaöamaöur haföi óskaö eftir ieyfi til aö taka mynd af skrifboröi skáldsins en vildi siöan fá aö ræöa viö hann um sæöisbanka Nóbels verölaunahafa. Halldóri Laxnes fannst lífiö til umræöuefnisins koma, sagöist ekkert hafa viö klám- hunda aö tala og vísaöi Viku- manni á dyr. Jóhamta og SÍF Jóhanna Tryggvadóttir stjórnarformaöur ISPOHTO hefur haldiö uppi mikilli gagn- rýni á fisksölu SIF til Port- ugals. Hefur hún meöai annars fullyrt aö SiF hafi gert ailt til þess aö koma I veg fyrir að ISPORTO gæti selt mikiö magn af fiski til Portúgals á hagstæðara veröi en þaö sem SÍF selur á. Ennfremur aö umboösmaður SIF þar ytra hafi fengiö hundruö milljóna króna i umboösiaun. Forráöamenn StF hafa dög- um saman sagt blaöamönnum aö þeir myndu efna til fundar meö fréttamönnum til þess aö ræöa ásakanir Jóhönnu. Þetta hefur af einhverjum ástæöum ekki veriö gert, heldur var biööum send fréttatilkynning um máliö. Þetta er heldur billegur afgreiöslumáti sem ekki er sæmandi sllku stór- fyrirtæki sem StF er. Sé þaö rétt aö SIF komi í veg fyrir 10 milljaröa króna sölu ISPORTO til Portúgals er þaö ekki neitt smámál. Refskák Ýmsir veröa nú til þess aö lýsa þvi yfir aö þeir séu ekki eins gáfaöir og Ólafur Ragnar Grimsson sem sá um leift aö Flugleiöaskýrslan var ekkert annaö en lygi og fals. Gráungarnir benda á, aö þaö mætti ætla aö' Baldur óskarsson standi jafnfætis óiafi Ragnari aö gáfum þvi Baldur hafi strax úthúöaö skýrslunni. Þetta sé hins veg- ar misskilningur þvi Baldur hafi aöeins lerJö upp álit þess gáfafta. Þá hefur þvi einnig veriö fleygt, aö Baldur gangi erinda Ólafs i Flugleiöamálinu af þvi aö sá siöarnefndi setji þaö sem skiiyröi fyrir þvi aö Baldur komist á þing I næstu kosningum þegar bola á Garö- ari Sigurössyni f burtu. Risalax Kunningi minn veiddi slikan risalax I sumar aö varla hefur nokkur maöur sett I stærri fisk. Sem dæmi um stæröina má nefna, aö bara myndin sem hann tók af laxinum var 14 kfló aö þyngd.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.